Fréttablaðið - 27.04.2008, Side 83
SUNNUDAGUR 27. apríl 2008 27
HANDBOLTI Fram þurfti að hafa
fyrir því að sigra FH og halda í
vonina um að landa Íslandsmeist-
aratitlinum í N1 deild kvenna.
Fram lagði FH með átta marka
mun, 35-27, eftir að hafa verið
undir í hálfleik. Fram þarf að
treysta á að Stjarnan tapi stigum
gegn Val í lokaumferðinni um
næstu helgi til að verða meistari.
Einar Jónsson, þjálfari Fram,
var ánægður með að lið hans hafi
náð í stigin tvö í boði og heldur í
vonina um að standa uppi sem sig-
urvegari þegar mótið er úti. „Við
sýndum karakter eftir arfaslakan
fyrri hálfleik. Við enduðum mótið
á góðum nótum. Við þurftum að
vinna þennan leik sama hvernig
við fórum að því. Þetta var góður
endir á góðu tímabili og svo sjáum
við hvort óvæntir hlutir gerist
eftir viku. Það er alltaf ömurlegt
að þurfa að treysta á aðra. Ef
maður þarf að treysta á annað lið
til að sigra Stjörnuna þá myndi
maður velja Val. Þær hafa leikið
best allra liða upp á síðkastið,“
sagði Einar og bætti við.
„Sama hvernig fer eftir viku þá
geta Framarar verið stoltir af
þessu tímabili. Ef þetta fer á
versta veg þá endum við með jafn
mörg stig og Stjarnan og þær áttu
oddaleikinn heima. Það væri
gaman að standa uppi með bikar-
inn en hvað sem gerist held ég að
við séum einir af sigurvegurum
þessa móts. Við lögðum upp með
að vera við toppinn og stríða topp-
liðunum og við höfum gert það og
rúmlega það. Ég hafði trú á að við
gætum gert atlögu að þessu í upp-
hafi móts. Markmiðið var að vera
í topp fjórum. Við settum okkur ný
markmið um áramót. Að fara í
hvern leik til að vinna. Við endum
á toppnum núna. Það er bjart
framundan í Safamýrinni,“ sagði
Einar að lokum. - gmi
Fram heldur í vonina um að landa Íslandsmeistaratitlinum í N1-deild kvenna eftir sigur á FH í lokaleik:
Alltaf ömurlegt að þurfa að treysta á aðra
MARK Þórey Rósa Stefánsdóttir og
félagar í Fram þurfa að fylgjast með
úr stúkunni um næstu helgi en þá
kemur í ljós hvort Fram eða Stjarn-
an verður meistari. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
N1-deild karla:
Haukar-Afturelding 32-29
Mörk Hauka: Gunnar Viktorsson 10/4 (14/4),
Kári Kristjánsson 6 (6), Jón Björnsson 4/2 (8/3),
Elías Halldórsson 3 (3), Gísli Jón Þórisson 2 (3),
Arnar Pétursson 2 (3), Andri Stefan 2 (4), Freyr
Brynjarsson 2 (5), Halldór Ingólfsson 1 (4/1)
Varin skot: Gísli Guðmundsson 7 (20/1 35%),
Magnús Sigmundsson 8 (24/3 33,3%)
Mörk Aftureldingar: Einar Guðmundsson 13/2
(17/2), Hilmar Stefánsson 5/2 (6/2), Jóhann
Jóhannsson 3 (7), Ásgeir Jónsson 2 (2), Magnús
Einarsson 2 (3), Jón Helgason 2 (3), Þrándur
Gíslason 1 (1), Örn Bjarkason 1 (4), Aron Eribeck
(1), Hrafn Ingvarsson (2), Daníel Jónsson (2)
Varin skot: Oliver Kiss 3/1 (16/4 18,8%), Davíð
Svansson 16/1 (35/4 45,/%)
N1-deild kvenna:
FH-Fram 27-35 (16-13)
Mörk FH: Ragnhildur Guðmundsdóttir 9/4
(18/6), Gunnur Sveinsdóttir 7 (11), Hildur
Þorgeirsdóttir 6 (13), Líney Rut Guðmundsdóttir
2 (2), Birna Íris Helgadóttir 2 (4), Arnheiður Guð-
mundsdóttir 1 (2), Ingibjörg Pálmadóttir (1)
Varin skot: Gabriela Cristescu 15/2 (50/7 30%)
Hraðaupphlaup: 4 (Hildur 2, Arnheiður, Líney)
Fiskuð víti: 6 (Gunnur 3, Tijana, Sigrún, Líney)
Utan vallar: 10 mínútur
Mörk Fram: Stella Sigurðardóttir 9/2 (14/2),
Karen Knútsdóttir 7/2 (8/3), Marthe Sördal 5
(7), Pavla Nevariolva 4/1 (4/1), Þórey Rósa Stef-
ánsdóttir 3 (4), Sigurbjörg Jóhannsdóttir 3 (8/1),
Anett Köbli 2 (4/1), Ásta Birna Gunnardóttir 1
(2), Sara Sigurðardóttir (2)
Varin skot: Kristina Matuzeviciute 11 (32/1
34,4%), Karen Einarsdóttir 1 (6/3 16,7%)
Hraðaupphlaup: 11 (Stella 4, Marthe 3, Karen
3, Sigurbjörg)
Fiskuð víti: 8 (Sigurbjörg 2, Pavla 2, Sara, Karen,
Stella, Þórey)
Utan vallar: 2 mínútur
Grótta-Stjarnan 19-20 (13-11)
Mörk Gróttu (skot): Pavla Plaminkova 6/5
(16/7), Ragna Karen Sigurðardóttir 4 (6), Anna
Ú. Guðmundsdóttir 3/2 (6/2), Arndís María
Erlingsdóttir 3 (5), Aukse Visnyauskaite 2 (5),
Eva Hlöðversdóttir 1 (2), Karólína Gunnarsd. (1)
Varin skot: Íris Björk Símonardóttir 4 (13/1)
31%, Guðrún Ósk Maríasdóttir 13/1 (24/5) 54%
Hraðaupphlaup: 2 (Ragna Karen 2)
Fiskuð víti: 9 (Aukse 3, Eva Björk 2, Anna Úrsula
2, Ragna Karen, Hildur María Andrésdóttir)
Utan vallar: 6 mínútur
Mörk Stjörnunnar (skot): Alina Petrache 8/5
(19/7), Harpa Sif Eyjólfsdóttir 4 (8), Sólveig
Lára Kjærnested 3 (5), Birgit Engl 3 (6), Ásta
Björk Agnarsdóttir 2 (2), Þorgerður
Atladóttir (1), Rakel Dögg Bragadóttir (4)
Varin skot: Florentina Stanciu 17/1 (35/7) 49%,
Helga Vala Jónsdóttir 1/1 (2/2) 50%
Hraðaupphlaup : 3 (Birgit 2, Sólveig Lára)
Fiskuð víti: 6 (Kristín Clausen 2, Birgit, Harpa
Sif, Alina, Ásta Björk)
Utan vallar: 4 mínútur
Valur-Haukar 24-25
Fylkir-Akureyri 32-29
ÚRSLIT
HANDBOLTI Stjarnan varð að vinna
sigur á Gróttu til að halda
titilvonum sínum lifandi. Það
tókst því þær sigrðu 20-19 og
dugir því að vinna Val í síðustu
umferðinni til að tryggja sér
Íslandsmeistaratitilinn. Takist
það ekki verða Framstúlkur
meistarar.
Grótta leiddi 13-11 í hálfleik og
seinni hálfleikur var gríðarlega
spennandi. Grótta fékk tækifæri í
síðustu sókn leiksins til að jafna
metin en varnarmúr Stjörnunnar
varði skot Pövlu Plaminkovu og
Stjarnan fagnaði sigri.
Rakel Dögg Bragadóttir,
fyrirliði Stjörnunnar, var ánægð í
leikslok. „Það er hrikalega sætt
að klára þetta á síðustu mínútun-
um eftir að hafa verið svona
mikið undir,“ sagði Rakel.
Stjarnan mætir Val í síðustu
umferðinni og getur tryggt sér
titilinn með sigri. „Ég býst við
brjáluðu Valsliði. Þær sögðu að
þær ætluðu að klára þá leiki sem
eftir voru og þó að þær hafi tapað
gegn Haukum er ég viss um að
þær ætla sér sigur í leiknum.“ - sjj
N1-deild kvenna:
Stjörnusigur í
spennuleik
MARKSKOT Harpa Sif Eyjólfsdóttir sækir
hér að marki Gróttu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN