Fréttablaðið - 27.04.2008, Síða 86
30 27. apríl 2008 SUNNUDAGUR
HVAÐ SEGIR MAMMA?
Hvað er að frétta? Það er allt á fullu. Ég er að klára fyrsta
árið mitt í grafískri hönnun í Listaháskólanum og var að
frumsýna myndina Konfektkassann sem ég leik í í vikunni.
Augnlitur: Grænn.
Starf: Plötusnúður og verðandi hönnuður.
Fjölskylduhagir: Góðir.
Hvaðan ertu? Héðan og þaðan, aðallega héðan. Ég er
fædd í Danmörku, alin upp í Bandaríkjunum og í Hlíðun-
um.
Ertu hjátrúarfull? Já, frekar.
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Ég er búin að gefast upp
á sjónvarpinu eins og er, en Dexter var í uppáhaldi hjá
mér. Ég þori varla að viðurkenna hversu mikil sjoppa ég
er í rauninni en ég er líka veik fyrir amerískri vellu eins og
Bachelor.
Uppáhaldsmatur: Grjónagrautur, fiskur, marsípan og ís. Og
Hamborgarabúllan.
Fallegasti staðurinn: Ísland.
iPod eða geislaspilari? iPod, geislaspilarinn minn
er ónýtur.
Hvað er skemmtilegast? Að hlæja og hafa gaman.
Hvað er leiðinlegast? Leiðinlegt fólk.
Helsti veikleiki: Ís.
Helsti kostur: Mér finnst gaman að vera til.
Helsta afrek: Að komast inn í LHÍ og leika í Kon-
fektkassanum!
Mestu vonbrigðin: Ég nenni ekki að velta mér upp
úr þeim.
Hver er draumurinn: Að ná tökum á því að vera til
í núinu.
Hver er fyndnastur/fyndnust? Davíð bróðir, hann
er ótrúlega skemmtilegur og fyndinn.
Hvað fer mest í taugarnar á þér? Svartsýni og
neikvæðni.
Hvað er mikilvægast? Ást og hamingja.
HIN HLIÐIN ANNA RAKEL RÓBERTSDÓTTIR, NÁMSMAÐUR OG PLÖTUSNÚÐUR
Veik fyrir ís og amerískri vellu
„Ég er montin og stolt og hún
er falleg að innan sem utan.
Ég fer varla út úr húsi nema að
skarta höfuðskrauti eftir hana.“
Margrét Sigtryggsdóttir sjúkraliði um
dóttur sína Thelmu Björk Jónsdóttir.
Hönnun Thelmu verður áberandi í brúð-
arblaði franska dagblaðsins Le Figaro í
næsta mánuði.
Ballhljómsveitin Dísel hefur gefið
út rokkútgáfu af hinu sígilda lagi
Bubba Morthens, Stál og hnífur.
„Við vorum búnir að æfa kassagít-
arútgáfuna af Stáli og hníf og fannst
hún engan veginn virka. Við höfum
kallað þetta Rammstein-útgáfu.
Hún er rosalega einföld og þétt,“
segir Magnús Ingi Sveinbjörnsson,
trommari Dísel. „Þessi útgáfa gefur
laginu dálítið nýjan blæ. Það er
fyrir löngu búið að taka það út af
listum á útvarpsstöðvum og þessi
útgáfa gefur því nýtt spark í rass-
inn.“
Dísel, sem var stofnuð í lok síð-
asta árs, hefur miklar mætur á
Bubba, enda með þrjú önnur Bubb-
alög á tónleikadagskrá sinni; Hiros-
hima, Fjöllin hafa
vakað og
Rómeó og
Júlía. „Þetta þrælvirkar enda eru
þetta frábær lög. Í hvert einasta
skipti sem við spilum þau verður
allt vitlaust,“ segir Magnús.
Hann segir hljómsveitina ekki
hafa beðið um leyfi hjá Bubba til að
taka upp lagið. „Þú mátt endurút-
gefa lag ef það kemur fram hver á
upprunalegu útgáfuna og ef þú
breytir ekki uppröðuninni á laginu.
En ég held að við eigum samt eftir
að hringja í hann eftir helgi og
rabba við hann til að hafa hann
góðan.“
Bubbi hefur ekki heyrt lagið en
er engu að síður ánægður með
framtak Dísel. „Það er fínt að menn
nenni að spila lög eftir mig og ekk-
ert nema gott um það að segja,“
segir hann og er ekkert ósáttur þótt
Dísel hafi ekki beðið um leyfi hjá
sér. „Lögin mín eru ekki heilög. Ég
er bara ánægður svo lengi sem
menn eru ekki að breyta lögum og
textum.“
Útgáfu Dísel af Stáli og hníf má
heyra á síðunni www.myspace.com/
diselspace. -fb
Bubbi í Ramm-
stein-útgáfu
DÍSEL Hljómsveitin Dísel hefur gert nýja
útgáfu af Bubba-laginu Stál og hnífur.
BUBBI
Bubbi er
ánægður
með framtak
ballsveitar-
innar Dísel.
„Já, staðurinn mun hugsanlega
heita Gleðibankinn. Eða jafnvel
Rússneski bankinn því uppi eru
hugmyndir um að setja þarna upp
rússneskan veitingastað. En allt
er þetta óljóst á þessu stigi,“ segir
Ásgeir Þór Davíðsson veitinga-
maður – betur þekktur sem Geiri á
Goldfinger.
Geiri er aftur á leið í miðbæinn
með sinn oft á tíðum umdeilda
veitingarekstur. Hann mun taka
við helmingi húsakynna þar sem
nú er aðalútibú Kaupþings við
Austurstræti 5. Þetta sætir tíðind-
um, meðal annars því Geiri var
nánast flæmdur úr borginni á
sínum tíma eftir að borgin setti
fram reglur um að rekstur súlu-
staða væri ekki leyfilegur þar en
þá rak Geiri veitingastaðinn Max-
íms í Hafnarstræti. Áður rak hann
Hafnarkrána þar. Síðan hefur
Geiri haldið til í Kópavoginum
með Goldfinger.
„Nei, það verður ekkert stripp.
Hvað sem menn halda þá fer ég nú
eftir lögum og reglum. En þetta
gengur út á að ég tek helminginn
af Búnaðarbankanum á leigu.
Tæpir 600 fermetrar á þremur
hæðum. Hinn helmingurinn verð-
ur áfram lagður undir bankastarf-
semi eftir því sem ég best veit,“
segir Geiri.
Húsið sem Geiri kallar Búnað-
arbankann eru aðalútibú Kaup-
þings við Austurstræti 5. Bankinn
er að draga saman starfsemi sína
þar. En Geiri er hins vegar að færa
út kvíarnar. Hann er nú í óða önn
við að innrétta glæsilegan sport-
bar við Grensásveg þar sem áður
var Bóhem. Stefnt er að því að
þeim framkvæmdum ljúki 1. júní
og þá vonast Geiri til þess að hafa
teikningar, sem reyndar á eftir að
samþykkja, og gengi hans geti
snúið sér að breytingum á húsa-
kynnum við Austurstræti.
Að sögn Svala Björgvinssonar
starfsmannastjóra hefur Kaup-
þing smátt og smátt verið að flytja
starfsemi sína úr miðborginni og
er það einkum vegna aðgengis við-
skiptavina sem var orðið erfitt
vegna bílastæðamála, meðal ann-
ars. „Þetta eru skipulagsbreyting-
ar. Aðalútibú bankans verður nú
við Laugaveg 120. Þar verður
langstærsta útibú bankans. En við
verðum áfram með starfsemi í
gamla góða salnum í Austurstræti
sem svo margir þekkja af afar
góðu. Útibússtjórar verða áfram
þeir sömu, Jón Emil Ólafsson aðal-
útibússtjóri og Þorsteinn Ólafs
sem nú er á Laugavegi 120.“
jakob@frettabladid.is
SVALI BJÖRGVINSSON: KAUPÞING FLYTUR AÐALÚTIBÚ SITT
Geiri opnar Gleðibankann
GEIRI FYRIR UTAN BANKANN Þar sem áður var bankastarfsemi verður í framtíðinni veitingahús í eigu Geira. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Mjólkurbílstjórinn okkar var meira að segja
spurður út í hvernig væri hægt að ná sambandi við
okkur og hvernig kettirnir væru í raun og veru,“
segir Jón Egill Indriðason, kúabóndi og kattarækt-
andi með meiru. Eftir að Fréttablaðið greindi frá því
að hann og eiginkona hans, Sigríður Þóra Storms-
dóttir, ræktuðu svokallaða Maine Coon-ketti, varð
hreinlega allt brjálað, fólk hringdi norður og vildi
vita meira um þetta risakyn.
Á barnalandi.is spunnust miklar umræður um
kattarkynið og er ljóst að Maine Coon-kettir gætu
orðið stjörnur ársins í kattasamfélaginu. Jón Egill
verður hins vegar að hryggja áhugasama með því að
það er langur biðlisti og nú sé hann að bíða eftir því
að rauði högninn í Hrísey losni úr vist sinni. „Ég er
með tvær læður á heimilinu en það verður örugg-
lega ekkert got fyrr en með haustinu. Ég veit ekki
hvernig staðan er fyrir sunnan en mér skilst að hún
sé eitthvað svipuð,“ útskýrir Jón Egill. - fgg
Langur biðlisti eftir risaköttum
SKORTUR Á MAINE COON
Langur biðlisti er eftir
risaköttunum og ásóknin
hefur ekki minnkað eftir
umfjöllun Fréttablaðsins.
26.09.1978