Fréttablaðið - 27.04.2008, Side 88

Fréttablaðið - 27.04.2008, Side 88
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Davíðs Þórs Jónssonar Í dag er sunnudagurinn 27. apríl. 118. dagur ársins. 5.13 13.25 21.40 4.46 13.10 21.36 Þegar allt kemur til alls erum við Íslendingar býsna heppnir. Við búum við tiltölulega siðlegt lýðræði. Þrátt fyrir að öðru hverju verði vart vægrar spillingar í stjórnkerfinu þurfum við ekki að hafa áhyggjur af mjög víðtækri valdníðslu eða handahófskenndri frelsissviptingu borgaranna. Við njótum þrátt fyrir allt nokkuð áreiðanlegs réttaröryggis. Svona er þetta ekki alls staðar. Sorglega víða á lýðræðið í vök að verjast og ráðamenn svífast einskis í valda- brölti sínu. ALÞJÓÐLEG samvinna eykst sífellt og alþjóðalög og reglugerð- ir verða stöðugt umfangsmeiri. Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum sem varða hryðjuverk. Með því er stefnt að því að uppfylla skilyrði til að unnt sé að fullgilda Evrópuráðssamn- ing um varnir gegn hryðjuverk- um. Þar segir m. a. að fyrir hryðju- verk „skuli refsa með allt að ævilöngu fangelsi hverjum sem í þeim tilgangi að ... þvinga með ólögmætum hætti íslensk ... stjórn- völd ... til að gera eitthvað eða láta eitthvað ógert ...“ fremur ákveðin brot. LAGAMÁL er mikið torf og ég hef tekið út aukasetningar til að draga fram þennan kjarna máls- ins. Alþjóðleg mannréttindasam- tök hafa látið í ljós efasemdir um að orðalag þessa Evrópuráðs- samnings standist alþjóðlegar mannréttindakröfur og tryggi rétt fólks til lögmætrar andstöðu við stjórnvöld sem er varin af alþjóð- lega viðurkenndum mannréttinda- reglum. Nýlegir atburðir hérlend- is sýna hve brýnt það er að ráða bót á þessu, en lög hafa einmitt verið brotin í þeim tilgangi að þrýsta á stjórnvöld að „gera eitt- hvað“ (að lækka álögur á elds- neyti) eða „láta eitthvað ógert“ (að virkja fljót). VIÐ Íslendingar erum heppnir. Við þurfum sennilega ekki að hafa áhyggjur af því að stjórn- völd misbeiti þessum lagabók- staf, skilgreini vörubílstjóra og umhverfisverndarsinna sem hryðju verkamenn og hafi þá á bak við lás og slá eins lengi og þeim sýnist án dóms og laga, án þess að birta þeim kæru eða gefa þeim kost á málsvörn, eins og sums staðar væri gert. En hvað með rússnesk, georgísk, aserba- ídsjönsk eða moldavísk stjórn- völd, svo ég nefni fjögur aðildar- ríki Evrópuráðsins þar sem lýðræðishefðin er veik en hefðin fyrir valdníðslu og pólitískri spillingu þeim mun sterkari? Alþjóðalög með ánægju F í t o n / S Í A Í sumar verður flogið frá Akureyri tvisvar í viku, á föstudögum og sunnudögum og alla laugardaga frá Egilsstöðum. Einnig er í boði fjöldi framhaldsfluga frá Køben um alla Evrópu. Kynntu þér úrvalið á www.icelandexpress.is/framhaldsflug Bókaðu flug á www.icelandexpress.is Farðu stystu leið! Beint flug frá Akureyri og Egilsstöðum til Køben hefst 16. og 17. maí. Akureyri: 16. maí–31. ágúst Egilsstaðir: 17. maí–30. ágúst Egilsstaðir Akureyri Kaupmannahöfn * V eg al en gd ir er u m ið að ar v ið lo ft lín u

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.