Fréttablaðið - 04.06.2008, Page 6
MARKAÐURINN 4. JÚNÍ 2008 MIÐVIKUDAGUR6
F R É T T A K S Ý R I N G
Hækkandi fóðurverð hefur gefið
kjúklingarækt byr undir báða
vængi, ef þannig má að orði kom-
ast. Helsti styrkur Stork Food
Systems, sem nú hefur runn-
ið saman við Marel Food Syst-
ems, er einmitt tæki til kjúkl-
ingavinnslu.
Í nýrri skýrslu greiningar-
deildar Morgan Stanley er mælt
með fjárfestingum í kjúklinga-
iðnaði enda spáð örum vexti í
þeim geira næstu ár. Samkvæmt
útreikningum greiningardeild-
arinnar var hlutfall almennrar
neyslu á kjúklingakjöti í saman-
burði við annað í fyrra 34,7 pró-
sent. Árið 2017 gerir bankinn
hins vegar ráð fyrir því að hlut-
fallið verði komið í 57,2 prósent.
Nokkrir þættir eru þarna ráð-
andi, svo sem áframhaldandi
fólksfjölgun í heiminum, aukin
kjötneysla með bættum efnahag
í fátækari löndum sem og ann-
ars staðar, hækkandi fóðurverð
vegna aukinnar korneftirspurn-
ar með aukinni framleiðslu á
lífrænu eldsneyti, auk annarra
umhverfisþátta sem ýta undir
hærra verð.
Fóðurverð vegur þungt í fram-
leiðslukostnaði kjötvara og því
ekki að undra þótt því sé spáð
að kjúklingur nái yfirhönd-
inni, enda víðast hvar ódýrari
en annað kjöt. Þannig þarf sjö
kíló af fóðri til að búa til eitt
kíló af nautakjöti, fimm kíló á
móti kílói af svínakjöti, en ein-
ungis 1,6 til tvö kíló af fóðri til
að framleiða eitt kíló af kjúkl-
ingakjöti. Einungis eldisfiskur
er með betri fóðurnýtingu, þar
sem kíló kemur á móti kíló. Þar
er framleiðslan hins vegar mun
flóknari og hættara við áföllum
en í kjúklingaræktinni. Eldislax
tekur allt að þrjú ár að komast
á markað á meðan framleiðslu-
ferli kjúklings nemur ekki nema
fimm til sjö vikum. - óká
VIÐ FLÆÐILÍNUNA Fjárfestar og aðrir
gestir kynntu sér kjúklingaverksmiðju
Emsland Frischgeflügel í Þýskalandi í byrj-
un síðustu viku. MARKAÐURINN/ÓKÁ
Framtíðin er í kjúklingi
Morgan Stanley spáir breyttum neysluháttum.
Marel og Stork hafa í tæpan áratug átt í nánu sam-
starfi og er það meðal annars þess vegna sem
búist við að samruni fyrirtækjanna gangi átaka-
lítið fyrir sig, enda skarast starfsemi fyrirtækj-
anna lítið. Þetta er ólíkt erfiðum samruna Marels
við Scanvægt í Danmörku þar sem fyrirtækin áttu
í harðvítugri samkeppni.
Óvíða kemur betur fram samstarf fyrirtækj-
anna en í einni fullkomnustu kjúklingaverksmiðju
heims sem er í Neðra-Saxlandi í Þýskalandi. Í
Emsland Frischgeflügel er vinnslulínan frá Stork
Food Systems, en hugbúnaður, gæðaeftirlit og
fleiri þættir frá Marel.
Í heimsókn fjárfesta og annarra gesta til Emsland
fór Frans-Josef Rothkötter, framkvæmdastjóri og
einn eigenda, yfir ferlið sem er einstakt bæði hvað
varðar afköst og öryggi. Verksmiðjan, auk fóður-
framleiðslu og annarrar starfsemi, er í eigu fjöl-
skyldufyrirtækisins Rothkötter Kraftfutterwerk
GmbH.
Reynt er eftir fremsta megni að haga slátrun
kjúklinganna þannig að þeir verði ekki fyrir
óþarfa óþægindum, enda skilar vanlíðan slátur-
dýra sér í verra kjöti. Kjúklingunum er slátrað
með gasi og svo færðir upp á króka sem bera þá
í gegnum alla verksmiðjuna. Hraðinn er slíkur að
á sekúndu eru unnir 6,66 kjúklingar, eða 24.000
á klukkustund. Á um það bil fjórum tímum eftir
slátrun fer kjúklingurinn í gegnum fiðurhreins-
un, kælingu og eftirvinnslu þar sem hann er bút-
aður niður og er á endanum kominn í neytenda-
pakkningar og tilbúinn til flutnings í verslun.
Í Emsland er í raun um að ræða tvær verk-
smiðjur sem keyrðar eru hlið við hlið og skila frá
sér 320 þúsund kjúklingum á dag, en fjórðungur
seldra kjúklinga í Þýskalandi kemur frá þessari
einu verksmiðju. - óka
DÁLEIÐANDI STREYMI Tvískipt verksmiðjan í Emsland skilar af
sér 320 þúsund kjúklingum á sólarhring. MARKAÐURINN/ÓKÁ
Samstiga í tæknilausn
Tækjabúnaður frá Marel Food Systems og frá Stork Food Systems er
grunnurinn að einni fullkomnustu kjúklingaverksmiðju í heimi.
FARIÐ YFIR FERLIÐ
Lars Gruntvig, sem varð
einn af stærstu hlut-
höfum Marels við sam-
runann við Scanvægt,
ræðir hér við Frans-Josef
Rothkötter, fram-
kvæmdastjóra og einn
eigenda kjúklingaverk-
smiðjunnar í Emsland.
MARKAÐURINN/ÓKÁ
Í kjölfar kaupa Marel Food Syst-
ems (MFS) á Stork Food Syst-
ems í Hollandi
hefur fyrirtækið
skipað nýja fram-
kvæmdastjórn.
Hana skipa Hörð-
ur Arnarson for-
stjóri, Theo Hoen
aðstoðarforstjóri
(áður forstjóri
Stork Food Systems), Erik Kaman
fjármálastjóri og Lárus Ásgeirs-
son, framkvæmdastjóri sölu- og
markaðssviðs.
Eftir sameiningu fyrirtækjanna
í byrjun síðasta mánaðar hefur
MFS borist liðstyrkur úr röðum
stjórnenda Stork. Auk Eriks Kam-
ans, sem var áður hluti af stjórn-
endateymi Stork Aerospace, taka
á næstu vikum við nýjum störf-
um hjá MFS stjórnendur á sviðum
fjármála, skattamála, innkaupa og
upplýsingatækni.
ERIK KAMAN
N Ý F R A M K V Æ M D A S T J Ó R N
M A R E L F O O D S Y S T E M S
Á
morgun hefst hlutafjárútboð Marel
Food Systems vegna fjármögnunar
á kaupum á Stork Food Systems í
Hollandi. Samruni fyrirtækjanna
gekk í gegn í byrjun síðasta mán-
aðar. Útboðið sem er sölutryggt af Lands-
banka Íslands lýkur svo á föstudag. Alls
stendur hluthöfum Marels til boða hlutafé
fyrir 117 milljónir evra, eða sem nemur ná-
lægt 13,5 milljörðum íslenskra króna. Þá er
einnig heimild til þess að bjóða fagfjárfest-
um 30 milljónir evra (ríflega 3,5 milljarða
króna) til viðbótar, en þá næmi heildarfjár-
hæð útboðsins 147 milljónum evra, eða ná-
lægt 17 milljörðum króna.
Verð hluta í útboðinu er ákvarðað á síð-
ustu stundu af stjórn Marel Food Systems og
verður væntanlega birt í dag, um leið og út-
boðslýsing verður birt í Kauphöll Íslands.
Aðstæður eru erfiðar á fjármálamörkuð-
um og segjast sérfræðingar sumir hverjir á
fjármálamörkuðum búast við einhverjum af-
slætti frá markaðsverði í Kauphöll, en aðrir
telja að markaðsverð verði látið ráða. Miðað
við þetta gæti útboðsgengið hlaupið á bilinu
90 til 95 krónur á hlut.
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hefur
síðustu daga fundað með fjárfestum og fjár-
málafyrirtækjum og kynnt útboðið, en í síð-
ustu viku bauð Marel Food Systems jafn-
framt fjárfestum og fleirum til Hollands
að skoða höfuðstöðvar Stork Food Systems
í Boxmeer og kynna sér framleiðsluferlið
þar, auk þess sem búnaður bæði Marel Food
Systems og Stork var sýndur að störfum
í Emsland-kjúklingaverksmiðjunni í Neðra-
Saxlandi í Þýskalandi (sjá hér til hliðar).
Erik Kaman, nýr fjármálastjóri Marel
Food Systems, sem áður var fjármálastjóri
hjá Stork Aerospace, flugiðnaðargeira
Stork-samstæðunnar í Hollandi, hélt erindi
þar sem hann fór yfir helstu verkefni sem
fram undan eru í samþættingu og endur-
bótum hjá Marel. „Fegurðin við samrun-
ann við Marel er hins vegar að nánast engin
skörun er í þeim lausnum sem fyrirtækin
bjóða,“ segir hann. Samlegðaráhrifin segir
Erik Kaman hins vegar geta verið meiri en
nemur stærðarhagræði og meira vörufram-
boði. Hann boðar til dæmis innleiðingu verk-
ferla hjá Marel Food Systems sem þróaðir
hafa verið hjá Stork, svo sem við fjárhags-
uppgjör og reikningsskil. „Með bættum að-
ferðum er hægt að draga úr þeim tíma sem
eytt er í að gera upp fortíðina og auka ráð-
rúm til að horfa fram á veginn,“ segir hann
og bætir við að því fyrr sem rekstrarupplýs-
ingar liggi fyrir, þeim mun betur gangi að
stýra fyrirtækinu.
Uppgjörskerfi Stork verður því á næstu
vikum innleitt í samstæðunni allri og tekin
upp mánaðarleg innri reikningsskil með
helstu tölum til stjórnar. „Þegar við byrjuð-
um árið 2000 að innleiða þetta kerfi hjá Stork
tók um það bil fimm vikur að fá samstæðutöl-
urnar, núna fáum við þær upplýsingar, ásamt
rekstrarreikningi á sex virkum dögum, og
það frá 180 einingum. Munurinn er því tals-
verður.“
Erik Kaman segist, í viðtali við Markaðinn,
hafa verið spenntur að hefja störf hjá Marel
Food System, en hann lét af störfum hjá
einu elsta og virtasta iðnfyrirtæki Hollands.
„Fyrir tækin eru svipuð að stærð,“ segir
hann, en kveður um leið hafa verið spenn-
andi að fá að koma að uppbyggingu hjá Marel
eftir samrunann við Stork Food Systems. „Þá
er líka meiri pólitík tengd rekstrinum í flug-
iðnaðinum og þá sér í lagi tengt því hverjum
er selt og það er nokkuð sem mér fellur ekki
alls kostar. Ég kann hins vegar vel við mig
í samkeppnisumhverfi þar sem áherslan er
á bestu framkvæmd á öllum sviðum, hvort
sem það er í tækni, skipulagi, upplýsinga-
gjöf, sölu og öðrum sviðum.“
Nýr fjármálastjóri Marels segist gera ráð
fyrir því að um hálft ár taki að innleiða bestu
reikningsskilaaðferðir hjá félaginu öllu, en
tvö til þrjú ár að koma á bestu framkvæmd
á öllum sviðum. „Reikningsskilin eru hins
vegar grunnurinn sem við byggjum á.“
HÖRÐUR ARNARSON
OG THEO HOEN
Forstjóri og aðstoðar-
forstjóri Marel Food
Systems samkvæmt nýju
skipuriti. MARKAÐURINN/GVA
Marel sækir það besta frá Hollandi
Erik Kaman, nýr fjármálastjóri Marel Food Systems, ætlar að innleiða uppgjörsreglur sem tíðkast hafa hjá Stork í Hollandi. Í
haust verða komin mánaðarleg innri reikningsskil hjá samstæðunni allri. Óli Kristján Ármannsson kynnti sér breytingar sem fyrir
dyrum standa hjá Marel og hlutafjárútboð sem hefst á morgun.
VIÐ HÖFUÐSTÖÐVAR STORK FOOD SYSTEMS Nýr fjármálastjóri Marel Food Systems, Erik Kaman,
slær á létta strengi með Árna Oddi Þórðarsyni, stjórnarformanni félagsins, fyrir utan höfuðstöðvar Stork
Food Systems í Boxmeer í Hollandi. MARKAÐURINN/ÓKÁ