Fréttablaðið - 04.06.2008, Síða 8
MARKAÐURINN 4. JÚNÍ 2008 MIÐVIKUDAGUR8
Ú T T E K T
A
tvinnuhorfur nýútskrifaðra háskóla-
nema hafa töluvert breyst nú á milli
ára. Fyrir ári var uppsveifla þjóðfé-
lagsins í algleymingi og stúdentar gátu
oft á tíðum jafnvel valið milli þriggja
til fjögurra starfstækifæra.
Þrengingar á fjármálamarkaði hafa breytt
þessu ástandi töluvert en þó er það álit flestra við-
mælenda Markaðarins í þessari úttekt að afleið-
ingarnar séu ekki að fullu farnar að sjást á vinnu-
markaði. Stúdentar fái kannski ekki drauma-
starfið sitt strax en þó fái allir vinnu.
Katrín S. Óladóttir, framkvæmdastjóri Hag-
vangs, hefur áratuga reynslu af þessum markaði
en hún hefur verið eigandi Hagvangs frá árinu
1986. Að hennar mati eru tækifæri þeirra sem
nú eru að útskrifast ekki jafn spennandi og þau
voru fyrir ári. Atvinnuleysi sé þó ekki byrjað að
koma í ljós í miklum mæli og þrengingarnar séu
almennt ekki farnar að hafa varanleg áhrif.
Hins vegar segir hún að ef þetta haldi svona
áfram sé mjög líklegt að atvinnuleysi muni auk-
ast á haustmánuðum. Atvinnuleysi mælist nú 2,3
prósent samkvæmt mælingum Hagstofunnar en
greiningardeild Kaupþings hefur sem dæmi spáð
því að það fari í 5,2 prósent á næsta ári.
ÞRENGINGAR KOMA Á 6-8 ÁRA FRESTI
Katrín segir að þær þrengingar sem nú steðji að
vinnumarkaði komi alltaf á nokkurra ára fresti.
Nefnir hún sem dæmi að ástandið hafi verið mjög
slæmt á árunum 1993-94 þegar atvinnuleysi var
mikið og vinnumarkaður var að ganga í gegn-
um miklar skipulagsbreytingar. Þá var fjármála-
markaðurinn að verða til og þá voru fyrirtæki að
segja upp mikið af eldra fólki til að koma á svo-
kallaðri breytingastjórnun.
Svo hefðum við upplifað þetta aftur upp úr
2000 þegar miklar breytingar urðu og upplýs-
ingatæknigeirinn varð einna verst úti. „Núna má
segja að þetta sé þriðja lægðin en við erum þó
ekki farin að sjá miklar breytingar enn þá. Með
haustinu óttast maður að það verði miklu þyngra
á vinnumarkaðinum heldur en verið hefur undan-
farin ár,“ segir Katrín.
Varðandi ráðleggingar til þeirra sem nú eru að
útskrifast með BS- eða BA-gráðu segir Katrín að
ef stúdentar eru ekki komnir með starf á vinnu-
markaði sem þau telja ákjósanlegt geti verið
skynsamlegast að halda beint áfram í meistara-
nám til þess að gera sig samkeppnishæfari. Það
hjálpi alltaf til á vinnumarkaði.
Að hennar mati á ungt fólk í dag að velta meira
fyrir sér hvar atvinnumöguleikarnir liggja og
horfa meira á hvar vaxtamöguleikarnir eru í
framtíðinni. Horfa meira af skynsemi heldur en
hefur verið undanfarið þar sem allir hafi meira
og minna stefnt í eina átt og menntað sig á sviði
viðskipta. Það sé nú ljóst að þar séu kannski ekki
um beinlínis ný tækifæri að ræða næstu árin.
ÁHERSLUR MENNTAYFIRVALDA
Hún segir margar aðrar greinar líða fyrir það
að þar skorti fólk. Nefnir hún þá sérstaklega að
skortur sé á verk- og tæknifræðingum. „Fólk á
að fara í raunhæft mat á því hvað komi sér best á
vinnumarkaði þannig að það gefist einhver tæki-
færi að loknu námi. Fólk á ekki allt að horfa í
sömu áttina og sérstaklega ekki ef áhuginn liggur
kannski allt annars staðar,“ segir Katrín.
Hún beinir því til menntayfirvalda að þau skoði
svolítið stefnu sína á hvað eigi að leggja áherslu
á í framtíðinni. Hún nefnir sem dæmi að lítil
áhersla hafi verið lögð á iðntækninám þar sem
allir hafi verið að keppast við að komast inn í
viðskiptaumhverfið. Viðskiptamenntun sé allra
góðra gjalda verð en það þurfi að gæta ákveð-
ins jafnvægis til að störf séu til staðar fyrir allan
þann stóra hóp.
Spurð hvar hún sjái samdrátt vera í störf-
um sem Hagvangur er að ráða í segir hún að
enn vanti gríðarlega mikið af fólki í upplýsinga-
tæknistörfin og nefnir að enn vanti mikið af for-
riturum.
„Skortur er á fólki sem hefur góða menntun í
bókhaldslegum skilningi, þ.e. reikningshald og
endurskoðun. Öll endurskoðendafyrirtæki geta
bætt við sig mannskap. Það er skortur á fólki á
verkfræðistofum því þær hafa verið að bæta við
sig mikið af stórum verkefnum,“ segir hún.
VINNUMARKAÐUR VAR KOMINN Í RUGL
Varðandi ástandið sem var á vinnumarkaði fyrir
ári nefnir Katrín að það sé rétt að það hafi verið
orðið hálfgert rugl og nefnir skipulagsleysi hjá
fyrirtækjum.
„Það var svo mikill hjartsláttur hjá öllum og
það átti að gera svo mikið. Það skorti svo mikið
raunsæi í hugsun og okkur hefur fundist um-
ræðan á villigötum og þessar miklu væntingar
sem voru búnar til. Bara hvað við ætluðum að
gera svo stóra hluti sem hefur tekið aðrar þjóðir
mannsaldra að framkvæma. Það ætluðum við að
gera á nokkrum mánuðum. Þá var ráðið inn fólk í
stórum stíl. Síðan voru oft og tíðum ekki verkefni
til staðar fyrir þetta fólk,“ segir Katrín.
Hún leggur áherslu á að fólk horfi á störf út frá
því sem það langar að gera og út frá eigin styrk-
leikum en ekki út frá einhverjum tískustraum-
um. Katrín nefnir að opinber fyrirtæki séu ekki
síður góður starfsvettvangur til að öðlast góða
starfsþjálfun eða til að hasla sér völl sem fram-
tíðarstarfsvettvang. „Eins og við höfum sagt við
fólk; ef þú stendur þig vel færðu það orðspor allt-
af með þér hvert sem þú ferð svo áfram,“ segir
hún.
Katrín nefnir að ungt fólk sé orðið meðvitaðra
um það hvar það sjái sjálft sig eftir svona tíu ár.
Mikil áhersla sé lögð á stjórnun og fólk horfi til
þess að það ætli sér að verða stjórnendur. „En
fólk á bara gríðarlega langt í land og marg ólært
áður en það getur tekist á við það hlutverk. Ég
vonast til þess að það verði meiri skynsemi sem
fái að ráða förinni núna en ekki bara óskhyggja
og væntingar.“
Þrengingar verða á
vinnumarkaði í haust
Háskólar landsins eru nú í óða önn að fara að útskrifa nýstúdenta. Þeir hafa aldrei verið fleiri. Þrengingar á vinnu-
markaði hafa mikið verið í umræðunni síðustu mánuði og má búast við að þær komi enn betur í ljós nú á haustmán-
uðum. Annas Sigmundsson ræddi við nokkra viðmælendur um stöðu nýstúdenta og hvað þeim stæði nú til boða.
KATRÍN S. ÓLADÓTTIR, FRAMKVÆMDASTJÓRI HAGVANGS
Hún beinir því til menntayfirvalda að þau skoði svolítið
stefnu sína á hvað eigi að leggja áherslu á í framtíðinni.
Viðskiptamenntun sé allra góðra gjalda verð en það þurfi að
gæta ákveðins jafnvægis til að störf séu til staðar fyrir allan þann
stóra hóp. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Gestur Steinþórsson, formaður Mágusar,
félags viðskiptafræðinema við HÍ, segir
að þónokkur fjöldi nemenda sem nú séu að
útskrifast hafi verið í hlutastarfi hjá fyrir-
tækjum með námi og fari nú að vinna hjá
þeim við útskrift. Hann segir að útskrif-
aðir nemendur í viðskiptafræði sem fengu
vinnu fari nú meira til bókhalds fyrirtækja
heldur en til bankanna. Bankarnir séu lítið
sem ekkert að ráða inn.
Gestur segir að allir virðist fá vinnu þar
sem viðskiptafræðinámið sé fjölbreytt og
boðið sé upp á fjórar mismunandi áhersl-
ur í sérhæfingu. ,,Það virðist enginn vera
atvinnulaus við útskrift og ég þekki ekki
dæmi um að fólk fari að starfa við neitt
óskylt í neyð,“ segir hann.
Varðandi launakröfur hefur hann ekki
heyrt um að fólk sé að taka á sig launa-
lækkun en teldi það ekkert óeðlilegt að
fólki byðist ekki sömu kjör og buðust fyrir
ári síðan.
Nú í vor útskrifar Háskólinn í Reykja-
vík í fyrsta skipti nemendur í verkfræði.
Agla Friðjónsdóttir, formaður Pragma,
félags verkfræðinema við Háskólann í
Reykjavík, segir að útskriftarnemendur
séu nú að fara í útskriftarferð og að ekki
séu allir komnir með vinnu. Henni finnst
það mjög skrýtið þar sem það mikil eftir-
spurn var eftir þessu fólki þegar HR byrj-
aði að bjóða upp á verkfræðinám fyrir
þremur árum.
,,En nú þegar samdráttur hófst er orðið
aðeins erfiðara að fá vinnu en fólk hélt.
Þannig að nemendur finna alveg fyrir því
að samdráttur sé á atvinnumarkaði. Það
eru einhverjir nemendur sem eru að út-
skrifast núna sem eru ekki komnir með
vinnu,“ segir Agla.
Hún segir að flestir hafi fengið sumar-
vinnu í fyrra og sumir af þeim fari þangað
til starfa nú en aðrir fái ekki fastráðningu
hjá fyrri vinnuveitendum. Hún segir þó
engan svartsýnistón vera í nemendum.
Enginn að vinna við neitt óskylt í neyð
AGLA FRIÐJÓNSDÓTT IR
Formaður Pragma, félags
verkfræðinema við
Háskólann í Reykjavík.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GESTUR STEINÞÓRS-
SON Formaður Mágusar,
félags viðskiptafræðinema
við Háskóla Íslands.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
F J Ö L D I Í N Á M I
20.000
18.000
16.000
14.000
12.000
10.000
8.000
6.000
4.000
2.000
0
´75 ´77 ´79 ´81 ´83 ´85 ´87 ´89 ´91 ´93 ´95 ´97 ´99 ´01 ´03 ´05
F J Ö L D I V I Ð S K I P T A - O G H A G F R Æ Ð I N E M A
´75 ´77 ´79 ´81 ´83 ´85 ´87 ´89 ´91 ´93 ´95 ´97 ´99 ´01 ´03 ´05
3.500
3.000
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
´80 ´82 ´84 ´86 ´88 ´90 ´92 ´94 ´96 ´98 ´00 ´02 ´04 ´06 ´08 ´10
6
5
4
3
2
1
0
A T V I N N U L E Y S I S E M H L U T F A L L H E I L D A R M A N N A F L A