Fréttablaðið - 04.06.2008, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 04.06.2008, Qupperneq 11
MARKAÐURINN 11MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2008 S K O Ð U N Skjálfti Skjálfti er á fleiri stöðum en á Suður landi. Sjálfur tók ég lítið eftir honum. Var þannig staddur í til- verunni að annað hafði forgang. Þegar konan spurði hvort ég hefði fundið fyrir honum kyngdi ég og svaraði, svolítið másandi: „Ja …á.“ En það var nú allt um mína skjálftavirkni. Virknin er mun meiri utan minna prívatvera. Hún er mikil á hluta- bréfamörkuðum. Svo mikil að síð- ast þegar ég lagðist til svefns yfir Bloomberg sá ég í svefnrofunum borða renna yfir skjáinn. Þetta voru varnaðarorð til fjárfesta, falleg ábending frá fjármálastöðinni þar sem sagði eitthvað á þá leið að fjár- festar ættu að hafa varann á, renna ekki blint inn í hríðina eftir þeim leiðarvísi sem finna má í verðmöt- um banka og fjármálafyrirtækja. Gengi hlutabréfa geti lækkað. Nú jæja, það fannst mér ekki merki- leg ábending til þeirra sem á annað borð horfa á stöðina. Það hefði mátt benda á þetta fyrr, segjum í júlí eða ágúst í fyrra. Enda sitja nú margir með sárt ennið og snæða skóreimar með botnum og möl í hvert mál líkt og Chaplin í Gullæðinu. Það er að segja þeir sem höfðu ekki vit á öðru, lásu efsta hlutann á greiningum og verðmötum og héldu í alvöru að það sem færi upp kæmi aldrei niður. Segjum Jesú og Vilhjálmi Bjarna það en annar þeirra hefur séð á eftir nokkrum bílum hverfa úr eignasafninu. Ódýrir bílar það, nema ef vera skyldi Hummer, sem ég reyndar sakna af götum borg- arinnar. Eftir Jesú bíð ég enn og reyndar búinn að veðja gegn því að hann láti sjá sig. En hvað um það. Greiningardeild- um getur skjátlast. Þetta eru bara menn og konur af holdi og blóði – á háum launum. Lítum á verðmat frá í haust sem ég fann í skrifborðs- skúffu um helgina. Þar er mælt með kaupum á bréfum í Bakka- vör, Existu, Kaupþingi og Össuri. Skemmtilegt frá því að segja en Össur reyndist öflug hækja þegar á reyndi. Þá var næstum guðsgjöf að halda í bréf Icelandic Group. Já og halda þeim fast – á genginu sex. Og þá er ég ekki að tala um aura líkt og verðið á bréfunum stefnir á með dágóðum fallhraða. Já, hlutabréf geta lækkað. Spákaupmaðurinn á horninu S P Á K A U P M A Ð U R I N N Netverslun ishusid.is Er of hátt hitastig? Loftkæling fyrir: -Netþjóna -Skrifstofur -Veitingastaði -Verslanir Netversl ishusid.is „Hann Ingólfur er geysilega snjall bankamaður, en er lítið fyrir sviðsljósið,“ er setning sem virðist standa upp úr hjá mörg- um þegar talið berst að Ing- ólfi Helgasyni, forstjóra Kaup- þings á Íslandi. Og það er að mörgu leyti rétt að miðað við þá ábyrgðarmiklu stöðu sem Ingólf- ur gegnir í samfélaginu hefur honum tekist merkilega vel að halda sér og sinni persónu utan við kastljós fjölmiðlanna. Ingólfur er fæddur 1967, alinn upp á Akranesi og nam við Samvinnuskólann á Bifröst. Foreldrar hans eru þau Sigríður Gróa Kristjánsdóttir, sjúkraliði og fyrrverandi bæjarfulltrúi, og Helgi Ingólfsson rafvirki. Síðar lá leiðin upp í Háskóla Íslands, þaðan sem hann útskrifaðist sem viðskiptafræðingur árið 1993. Ári síðar fékk Ingólfur leyfi sem löggiltur verðbréfamiðlari, en hann hafði þá þegar hafið störf hjá Kaupþingi; fyrst í einstakl- ingsráðgjöf og síðar í miðlun. Ingólfi er lýst sem hæglátum manni, sem sé þó ákaflega skemmtilegur í góðra vina hópi. Fjölskyldumaður mikill, en hann er kvæntur Hönnu Birnu Björns- dóttur og á einn son, áhuga samur veiðimaður í meira lagi og mikið fyrir útivist. Undirmenn hans bera honum vel söguna; segja auðvelt og gott að leita til hans og hann „fari ekki á taugum“ þótt ýmislegt gangi á. Almennt er talið mjög náið milli Ingólfs og Hreiðars Más Sigurðssonar, forstjóra Kaup- þings-samstæðunnar. Sömuleið- is segja viðmælendur blaðsins að Sigurður Einarsson, starfandi stjórnarformaður félagsins, hafi miklar mætur á forstjóranum á Íslandi, ekki síst því að hann hafi þorað að segja nei við óraun- hæfum lánabeiðnum stórra við- skiptavina þegar allt lék í lyndi. Slík skynsemi hafi ekki verið of vinsæl þá, en skili sér auðvitað vel við núverandi aðstæður. Ingólfur hefur verið allan sinn starfsferil hjá Kaupþingi, hann gegndi stöðu framkvæmdastjóra markaðsviðskipta frá 1997 til 2003, þegar hann varð fram- kvæmdastjóri markaðsviðskipta hjá sameinuðum banka Kaup- þings og Búnaðarbankans. Hinn 1. september 2005 var Ingólfur ráðinn forstjóri Kaup- þings banka á Íslandi. Traustur bak við tjöldin S A G A N Á B A K V I Ð . . . I N G Ó L F H E L G A S O N , F O R S T J Ó R A K A U P Þ I N G S Á Í S L A N D I

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.