Fréttablaðið - 18.06.2008, Blaðsíða 4
MARKAÐURINN 18. JÚNÍ 2008 MIÐVIKUDAGUR4
F R É T T I R
Björn Ingi Hrafnsson
skrifar
Norska Vinnumála- og trygg-
ingastofnunin (NAV) hefur skrif-
að undir samning við Sirius IT,
dótturfyrirtæki Skipta hf., um
þróun og viðhald á upplýsinga-
kerfinu Arena, sem er kjarna-
kerfi stofnunarinnar. Áætlað
verðmæti samningsins er liðlega
200 milljónir norskra króna, um
þrír milljarðar íslenskra króna.
Samningurinn nær til næstu
fjögurra ára, með möguleika á
eins árs framlengingu.
„Við erum mjög stolt af því að
NAV skuli velja Sirius IT til að
sjá um og þróa þetta mikil væga
upplýsingakefi,“ segir Hreinn
Jakobsson, stjórnarformaður
Sirius IT. Samningurinn nær yfir
allt viðhald og þróun sem tengist
Arenu en gert er ráð fyrir að á
næstu árum eigi sér stað um-
talsverð þróun og uppfærsla á
kerfinu. „Við lítum á það sem
heiður og viðurkenningu að NAV
hafi valið að vinna með okkur,“
segir Carsten Boje Möller, fram-
kvæmdastjóri Noregsdeildar
Sirius IT, sem telst nú vera
stærsta hugbúnaðar hús í eigu
Íslendinga.
Fyrirtækið var stofnað síðla
árs 2006 þegar Skipti, ásamt
nokkrum lykilstjórnendum,
keypti viðskiptaeiningu sem sér-
hæfði sig í þjónustu við opinbera
aðila á finnska hugbúnaðarris-
anum TietoEnator. Skipti á nú
92 prósent í Sirius en þrír lykil-
stjórnendur eiga samtals átta
prósent. Sirius er með starf-
semi í Danmörku, Noregi og Sví-
þjóð og hjá félaginu starfa um
420 starfsmenn. Rekstur félags-
ins hefur gengið afar vel frá
upphafi og á seinasta ári nam
velta félagsins 7,2 milljörðum ís-
lenskra króna.
SiriusIT er með höfuðstöðvar
í Hellerup í Kaupmannahöfn.
Skipti dk. og Hreinn Jakobs-
son, sem stýrir starfsemi Skipta
á Norðurlöndunum, eru þar til
húsa. Á fyrsta ársfjórðungi 2008
komu um 28 prósent af tekjum
Skipta af erlendri starfsemi.
Hreinn, sem er einn helsti hug-
myndafræðingurinn að baki hinu
nýja fyrirtæki, segist strax hafa
fallið fyrir hugmyndinni. Hann
var áður forstjóri Skýrr á Íslandi
og kveðst hafa þekkt viðskipta-
módelið sem slíkt frá fyrri tíð.
„Reksturinn hefur gengið mjög
vel. Í Danmörku hefur gengið
verulega vel, en nokkurt verk-
efni var að koma rekstrinum í
Noregi og Svíþjóð í betra horf.
Sirius sérhæfir sig í hönnun,
þróun, rekstri og viðhaldi á hvers
kyns hugbúnaðarlausnum fyrir
opinbera aðila og stærri fyrir-
tæki. Viðskiptamódelið byggir
á því að byggja upp mjög náið
samband til langs tíma við við-
skiptavininn þannig að starfs-
menn Sirius verði í raun hluti
af teymi viðskiptavinarins í því
sem snýr að upplýsingatækni.
Viðskiptavinir félagsins eru
stórir opinberir aðilar og stærri
fyrirtæki. Í Svíþjóð má nefna
að Stokkhólmsborg er viðskipta-
vinur Sirius IT en borgin hefur
sett sér það markmið að verða
leiðandi sveitarfélag í heimin-
um þegar kemur að þjónustu
við þegnana á sviði upplýsinga-
tækni. Í Noregi vinnur Sirius
IT m.a. að því að þróa hið nýja
lífeyrissjóðskerfi Norðmanna
sem byggir á Olíusjóðnum svo-
kallaða. Í Danmörku er danska
þingið meðal viðskiptavina auk
sjónvarpsstöðvarinnar TV2.
Upplýsingakerfi
fyrir þrjá milljarða
Sirius IT er stærsta hugbúnaðarhús í eigu Íslendinga. Nýr
risasamningur við norsk stjórnvöld liggur nú fyrir.
Actavis í Búlgar-
íu hreppti verðlaun
stofnunarinnar
Super brands fyrir
að vera sterkasta
vörumerkið í lyfja-
iðnaði í Búlgaríu.
„Aðeins fjórum
árum eftir að skipt
var um nafn á sam-
stæðunni hefur
okkur tekist að
byggja upp sterka
ímynd Actavis sem leiðandi fyrir-
tækis í lyfjaiðnaði. Þessi viður-
kenning sýnir árangur mikils
og öflugs markaðsstarfs og við
erum mjög stolt af
þessum verðlaun-
um“ segir Nikolay
Hadjindonchev,
framkvæmdastjóri
Actavis í Búlgaríu.
Superbrand starf-
ar í sextíu löndum og
veitir árlega verð-
laun fyrir sterkustu
vörumerkin á hverj-
um markaði. Óháð
dómnefnd velur þau
vörumerki sem skara fram úr og
hefur til hliðsjónar skoðanakönn-
un sem framkvæmd er af óháðu
fyrirtæki. - bþa
Actavis hlýtur verðlaun
Rússneska fyrirtækið SPI, hefur
ráðið bandaríska bankann Lehman
Brothers til að finna kaupanda að
einu af dótturfyrirtækjum þess.
Fyrirtækið framleiðir hinn heims-
þekkta Stolichnaya-vodka sem er
Íslendingum að góðu kunnur.
Skoska dagblaðið The Scots-
man segir vodkaframleiðsluna
og dreifinguna geta farið á allt
að þrjá milljarða Bandaríkjadala,
jafnvirði um 240 milljarða ís-
lenskra króna.
Meðal þeirra sem sagðir eru
hafa hugsanlegan áhuga á dropan-
um dýra eru Brown Forman, sem
framleiðir Southern Comfort, Ba-
cardi-Martini og Campari.
Franski áfengisframleiðandinn
Pernod Ricard, sem framleiðir
samnefnt vín, sýndi vodkanum
áhuga undir lok síðasta árs. Ekki
liggur fyrir hvort Frakkarnir
hafi áhuga á að taka tappann úr
flöskunni nú en fyrirtækið keypti
framleiðslu Absolut-vodkans af
sænska ríkinu í lok mars. - jab
VODKI FYRIR ALLRA AUGUM Talið
er líklegt að nokkur áhugi verði á
Stolichnaya-vodkanum sem nú er til sölu.
MARKAÐURINN/AFP
Stolinn til sölu
Evrópsk farsímafélög ætla ýmist
að láta viðskiptavini sína fá „frían“
iPhone-farsíma frá Apple eða „selja“
þá mjög ódýrt. Deila má um aðferð-
ina en viðskiptavinirnir verða að
greiða fyrir dýrustu áskriftina til
að eiga kost á síma.
Nýju símarnir, sem styðja
við þriðju kynslóð í farsíma-
tækni, koma á markað 11. júlí
næstkomandi. Fram kom í
Fréttablaðinu í síðustu viku að
ekki liggi fyrir hvenær sím-
arnir koma hingað til lands,
að minnsta kosti opinber-
lega.
Breska farsíma-
fyrirtækið O2 ætlar þessu sam-
kvæmt að „gefa“ hverjum kúnna
farsíma gegn langtímasamn-
ingi. Svipaða sögu er að segja
í öðrum löndum. Þjóðverjar
verða hins vegar að greiða
eina evru, jafnvirði rúmra 123
króna. Ekki liggur fyrir hvert
áskriftar verðið verður.
Ætla mætti að símafyrir-
tækin tapi á athæfinu. Það er
hins vegar ekki raunin, að mati
bandaríska vikuritsins Fortune.
Blaðinu reiknast til að hagnað-
ur símafyrirtækjanna af hverj-
um síma geti numið allt að 74 pró-
sentum þegar yfir lýkur. - jab
Fyrirtæki „gefa“ iPhone-farsímana
ÞEIR STÝRA STÆRSTA HUGBÚNAÐARHÚSI ÍSLENDINGA Hreinn Jakobsson (til
vinstri) og Carsten Boje Möller.
ACTAVIS HLÝTUR VERÐLAUN
Super brand starfar í sextíu lönd-
um og veitir árlega verðlaun fyrir
sterkustu vörumerkin á hverjum
markaði. MARKAÐURINN/ACTAVIS
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir þriðjudaginn 24. júní með
því að senda tölvupóst á netfangið sagacapital@sagacapital.is
eða hringja í síma 545 2600.
Saga Capital Fjárfestingarbanki heldur morgunverðarfund með Eugen Weinberg,
helsta hrávörusérfræðingi Commerzbank, fimmtudaginn 26. júní, frá kl. 8:30-10:00
á Hilton Reykjavík Nordica hóteli.
Weinberg, sem stýrir rannsóknum og greiningu á hrávörum hjá Commerzbank,
er eftirsóttur fyrirlesari á ráðstefnum víða um heim og tíður fréttaskýrandi t.d. hjá
Bloomberg, CNBC og Financial Times.
Olíuverð hefur aldrei verið hærra en nú og þetta háa verð hefur bein áhrif á rekstur fjölmargra
fyrirtækja, svo sem samgöngufyrirtækja og sjávarútvegsfyrirtækja. Heimili landsins finna líka fyrir
hækkandi eldsneytisverði og þessi verðhækkun hefur m.a. áhrif á verðbólgu og verðtryggingu
húsnæðislána.
Er olíuverðshækkunin komin til að vera eða er þetta bóla sem springur?
Hvar liggja fjárfestingartækifæri framtíðarinnar?
Weinberg mun í fyrirlestri sínum svara þessum spurningum ásamt því að fjalla almennt um
hrávörumarkaði og þá kosti og galla sem fylgja fjárfestingum í hrávöru. Weinberg mun að auki fjalla
um markaði með landbúnaðarvörur sem margir spá að muni fylgja í kjölfarið á olíunni og öðrum
hrávörum og hækka á næstunni.
Ó!
1
16
46