Fréttablaðið - 18.06.2008, Blaðsíða 8
MARKAÐURINN 18. JÚNÍ 2008 MIÐVIKUDAGUR8
Ú T T E K T
L
andsmót hestamanna var fyrst
haldið árið 1950 á Þingvöllum. Þá
voru gestir um tíu þúsund talsins.
Þó gestum hafi ekki fjölgað mikið
síðan þá hefur umfang mótsins
gjörbreyst og fyrirkomulag móts-
ins er orðið allt annað.
Í samtali við Markaðinn segja þau Jóna
Fanney Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri
Landsmóts, og Haraldur Þórarinsson, formaður
Landssambands hestamannafélaga, að nú orðið
keppist fyrirtæki um að fá að fá kynningu og
aðstöðu á mót-
inu. Velta
mótanna hafi
aukist mikið
á undanförn-
um árum og
gestafjöldinn
líka þrátt fyrir
að hann auk-
ist ekki í sama
hlutfalli.
Þetta er átj-
ánda landsmót
hestamanna
sem er hald-
ið í ár. Mótin
nú eru gjör-
ólík frá því
að keppendur riðu sumir hverju á Landsmót.
Allur aðbúnaður, bæði hvað varðar áhorfend-
ur og keppendur, sé gjörbreyttur og áherslan
á góða aðstöðu hafi mikið breyst. ,,Hestar og
knapar skila ávallt sínu en eigi mótið að takast
vel þarf öll aðstaða að vera í topplagi, s.s. veit-
ingar, hreinlætisaðstaða, allt skipulag og þjón-
usta. Þetta má ekki vanmeta þrátt fyrir að ís-
lenski gæðingurinn sé aðalmálið,“ segir Jóna
Fanney.
Hún segir að núorðið þurfi að byggja upp
heilt þorp frá grunni með öllum innviðum sem
geri það að verkum að mótið sé mjög viðamik-
ið og að veltan aukist í takt við það. Varðandi
fjölda gesta þá hafa þeir verið að rokka á milli
níu og tólf þúsund síðustu árin og segir Jóna
Fanney að stór þáttur í ákvarðanatöku íslenskra
gesta sé á endanum veðrið. Ef gott veður er á
landsmóti þá sé gestafjöldi yfirleitt í hámarki.
Jóna Fanney og Haraldur taka fram að nú
sé unnið að því að gera landsmótið fjölskyldu-
vænna og nefna í því sambandi einkum tvennt.
,,Við erum að gera veglegt leik- og afþreyingar-
svæði fyrir ungu hestamennina og frá fimmtu-
degi bjóðum við uppá barnagæslu gegn vægu
gjaldi. Jafnframt er áherslan á að bjóða ekki
uppá dansleiki langt fram eftir nóttu. Við ein-
faldlega byrjum fyrr að skemmta okkur og
hættum fyrr, enda er hinn almenni hestaáhuga-
maður mættur í brekkuna eldsnemma næsta
morgun,“ segir Jóna Fanney.
„Hvort við drögum úr tekjum með þess-
um áherslum efa ég, því sá markhópur sem
við erum að stíla inn á er stór, þ.e. hestaáhuga-
menn í landinu og fjölskyldan öll. Þvert á móti
tel ég að við séum einmitt að stækka markhóp-
inn,“ segir hún.
ÞREFALT FLEIRI ÍSLENSKIR HESTAR ERLENDIS
Upphaf landsmóts segir Haraldur að megi
rekja til framtaks þeirra Jónasar frá Hriflu,
Guðjóns Samúelssonar og Runólfs Ólafssonar.
Þeir hafi talað um að íslenska menningin sem
tengdist íslenska hestinum mætti ekki týnast.
Þeir lögðu því til fjármagn og hvöttu hesta-
menn til að búa til nethring hringinn í kring-
um landið til þess að standa vörð um ræktun og
sýningu á íslenska hestinum. Það er grunnur-
inn að því að landsmót hestamanna varð til.
Síðan nefnir Haraldur alþjóðasamtökin FEIF
sem er stytting á International Federation of
Icelandic Horse Associations. Þetta eru al-
þjóðasamtök þeirra sem eiga íslenska hesta.
Félagar í samtökunum eru yfir sjötíu þúsund
talsins frá nítján þjóðlöndum. Nýja Sjáland
er nýgengið í FEIF og Ástralía er að banka á
dyrnar. ,,Það eru fleiri íslenskir hestar erlend-
is en hér heima,“ segir Haraldur. Hann telur að
innan FEIF séu vel á vel á annað hundrað þús-
und hrossa en hér heima eru þau í kringum sjö-
tíu þúsund.
Haraldur segir að þegar heimsmeistaramót
íslenska hestsins voru fyrst haldin útí Evrópu
hafi skipuleggjendur hér heima horft til þeirra
aðdáunaraugum en nú í seinni tíð hafi þetta
snúist við. Undirbúningur landsmóta sé gríðar-
legur og gott starf hefur verið unnið í gegnum
árin. Þetta hefur skilað sér erlendis í aukinni
aðsókn erlendra hestaunnenda. ,,Samkvæmt
skýrslu sem samgönguráðuneytið lét gera árið
2003 þá koma 20 prósent erlendra gesta hingað
eingöngu út af íslenska hestinum,“ segir Har-
aldur.
Miðað við framreiknaða útreikninga sem
gerðir voru árið 2003 segir Haraldur að ís-
lenski hesturinn og starfsemi tengd honum sé
að velta a.m.k. í kringum 14 milljörðum í ís-
lensku hagkerfi á ári hverju. Varðandi fjölda
starfsmanna landsmóts segir Jóna Fanney að
líklega verði þeir á bilinu 300 til 400 talsins
þegar allt kemur til alls.
HESTAMENNSKA ER ÍÞRÓTT
Árið 2000 varð breyting á rekstri landsmóta
þegar sérstakt einkahlutafélag var stofnað í
kringum mótið. Fyrsta mótið sem rekið var á
þeim forsendum var árið 2002. Haraldur segir
að það hafi verið gert til þess að ná utan um
þekkingu í kringum mótin og til þess að flytja
hana áfram. Eigendur Landsmóts eru Lands-
samband hestamannafélaga að tveimur þriðju
og Bændasamtök Íslands eiga þriðjung.
Jóna Fanney tekur fram að landsmót hafi
ekki verið rekið með hagnaði síðustu ár en
segir allar sínar áætlanir ganga út á að skila
þessu móti með hagnaði.
„Hestamann vilja búa við sömu skilyrði og
aðrar íþróttagreinar í landinu gagnvart hinu
opinbera,“ segir Haraldur. En bendir þó á að
hestamennskan í landinu verði að fá að þróast
á sinn hátt með sem minnstum afskiptum rík-
isins. Hestaíþróttin verði hins vegar að njóta
sama stuðnings og aðrar íþróttagreinar í land-
inu.
Þetta tekur Jóna Fanney undir og segir það
þyngja róðurinn að þurfa að greiða háar fjár-
hæðir í löggæslu og jafnvel heilsugæsluvaktir
lækna. „Það kemur mér á óvart í undirbúningn-
um hversu lítið samstarf er við hið opinbera.
Ég veit ekki hvort þetta er skilningsleysi eða
bara hreint áhugaleysi en ég hefði viljað sjá
þetta samstarf mun öflugra,“ segir hún.
Haraldur og Jóna Fanney telja að íslenski
hesturinn sé stórlega vannýttur í landkynningu
á Íslandi erlendis og að töluvert skorti á að bæði
stjórnvöld sem og fjölmiðlar hafi skilning á því
að um íþrótt sé að ræða en bætir við að kannski
ELSA
MAGNÚSDÓTTIR
lætur gamminn geisa
á Þyt frá Kálfhóli á
síðasta Landsmóti
hestamanna á
Vindheimamelum í
Skagafirði árið 2006.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SKIPULEGGJENDUR LANDS-
MÓTS Jóna Fanney og Haraldur
ætla að gera landsmótið fjöl-
skylduvænna og vilja leggja
minni áherslu á dansleiki langt
fram eftir nóttu. Myndin er
tekin á bænum Laugardælum
í Hraungerðishreppi og sjá má
Ingólfsfjall í baksýn.
SUNNLENSKA FRÉTTABLAÐIÐ/EGILL
Risaskjáirnir komnir, kamrar
Landsmót hestamanna fer fram á Gaddstaðaflötum á Hellu dagana 30. júní til 6. júlí. Hið átjánda í röðinni. Mikið hefur brey
haldið árið 1950 á Þingvöllum þegar menn riðu á mótið. Skipuleggjendur vilja gera mótið fjölskylduvænna og minnka áher
mótsins leggur áherslu á að hún ætli sér að skila mótinu með hagnaði. Annas Sigmundsson ræddi við skipuleggjendur mótsin