Fréttablaðið - 09.07.2008, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
MIÐVIKUDAGUR
9. júlí 2008 — 185. tölublað — 8. árgangur
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
ÓDÝRT OG VISTVÆNTHjá Lundavespum er hægt að leigja sér vespur í skemmri eða lengri tíma.BÍLAR 2
Hafþór Theodórsson, sölumaður hjá Securitas,
reynir að ferðast sem oftast bæði innanlands og
erlendis.
Hafþór Th
varla er hægt að lýsa þessum stöðum í stuttu máli.
Strákurinn okkar var yfir sig hrifinn og ekki
fyrir að hann hitti þ
Frábært að vera á Flórída
Feðgarnir Hafþór og Viktor Blær sem er í körfuboltatreyju sem Hafþór keypti á soninn á NBA-leik í Flórída. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
EITTHVAÐ FYRIR ALLAJökulsárgljúfur býður upp á fjölbreytta möguleika til útivistar og náttúruskoð-unar.
FERÐIR 3
Lager
hreinsun
allt að 60%Húsgagna lagersala
t.d sófasett, hornsófar, tungusófar o.fl
HAFÞÓR THEODÓRSSON
Fór í skemmtilega fjöl-
skylduferð til Flórída
ferðir bílar
Í MIÐJU BLAÐSINS
VIÐSKIPTI Fyrirtækið IOD, sem
rekur meðal annars Sjónvarps-
miðstöðina og Heimilistæki, tók
yfir heildsölu Tölvulistans fyrir
um ári og á nú félagið í heild sinni.
Ásgeir Bjarnason, fyrrverandi
eigandi Tölvulistans, staðfestir
þetta. Samkvæmt heimildum
Markaðarins hefur Tölvulistinn
barist fyrir tilveru sinni undan-
farið. Lánardrottnar hafa haft
áhyggjur af stöðunni og jafnvel
haft hönd í bagga með
niðurstöðunni.
Breytingar hafa einnig orðið á
eignarhaldi byggingarfyrirtækis-
ins Mest. Þá varð leikfangaversl-
unin Leikbær gjaldþrota fyrir
skemmstu. Leikfangaverslunar-
keðjan Just4kids tók yfir rekstur
þriggja verslana hennar. Eftir því
sem Markaðurinn kemst næst
keyptu heildsalar lager Leikbæjar.
Nokkuð hefur verið um að
lánardrottnar hafi reynt að sigla
viðskiptavinum sínum í var í ólgu-
sjó markaðanna nú um stundir,
enda eiga margir í lausafjárerfið-
leikum.
Heimildir Markaðarins herma
að fullvíst sé talið að frekari eigna-
tilfærsla á félögum verði á næst-
unni, þar sem sterkari aðilar taki
yfir rekstur félaga sem búa ekki
lengur yfir nægu eigin fé.
- ghh / sjá Markaðinn
Nýir eigendur koma að rekstri Tölvulistans og Mest, en Leikbær er gjaldþrota:
Eignatilfærslur í viðskiptalífinu
Ójafnt gefið
„Óheft þátttaka á samkeppnis-
markaði með þeim áherslubreyt-
ingum sem því fylgir er ósamrým-
anleg hugtakinu „ríkisútvarp“,“
skrifar Ari Edwald.
UMRÆÐAN 25
Fjölbreytt dagskrá
Sumartónleikaröðin Bláa
kirkjan hefst á Seyðisfirði
í dag en þetta er í
tíunda sinn sem hún
er haldin.
TÍMAMÓT 18
ANITA BRIEM
Komin með fjöl-
miðlafulltrúa
Öll fjölmiðlasamskipti um Bandaríkin
FÓLK 30
Skjöldur
hörkutól
Er tryggur fjölskyld-
unni og situr í stjórn
vinnuvélafyrirtæk-
is föður síns.
FÓLK 30
VIÐSKIPTI Forsvarsmenn Eignar-
haldsfélagsins Fasteignar hf. og
Klasa hf. íhuga nú að sækja bætur
vegna Tónlistar- og ráðstefnuhúss
við höfnina í Reykjavík. Félögin
tóku sameiginlega þátt í samn-
ingskaupaferli um húsið en Aust-
urhöfn ehf. samdi við Portus ehf.,
sem er í eigu Landsbankans og
Nýsis.
Fasteign og Klasi fóru fram á
að fá samning Austurhafnar og
Portusar afhentan. Líkt og Frétta-
blaðið greindi frá, neituðu
samningsaðilar að afhenda samn-
inginn. Það var kært til úrskurð-
arnefndar upplýsingamála sem
úrskurðaði Fasteign og Klasa í
vil.
Ríkiskaup kærðu þann úrskurð
til héraðsdóms og þegar hann
hafði staðfest að félögunum bæri
samningurinn, var áfrýjað til
Hæstaréttar. Í vor féll dómur og
enn og aftur Fasteign og Klasa í
vil.
Hanna Lára Helgadóttir, lög-
maður félaganna, segir að verið
sé að skoða hvort rétt hafi verið
staðið að málum við samnings-
gerðina að öllu leyti. Hún segir að
búið sé að óska eftir frekari gögn-
um frá Austurhöfn, Reykjavíkur-
borg og Ríkiskaupum. „Þetta er
töluvert flókið mál og enn flókn-
ara þar sem gögnin voru afhent
svo seint sem raun ber vitni.
Félögin hafa ýmsar spurningar
um samningaferlið. Lagt var út í
mikinn kostnað við verkefnið og
menn vilja vera þess fullvissir að
rétt hafi verið staðið að öllum
málum,“ segir Hanna Lára.
Fréttablaðið óskaði eftir samn-
ingi Portusar og Austurhafnar í
kjölfar dóms Hæstaréttar, en var í
fyrstu hafnað. Eftir nokkra eftir-
gengni fékkst samningurinn
afhentur, þó ekki fjárhagslegar
upplýsingar.
Í tillögu Fasteignar og Klasa var
gert ráð fyrir húsi sem kostaði 8,5
milljarða, en tilboð Portusar, sem
var tekið, gerði ráð fyrir stofn-
kostnaði upp á 12 milljarða króna.
Engu að síður var gert ráð fyrir
sama hámarksfjármagni ríkis og
sveitarfélaga, 600 milljónum
árlega á samningstímanum.
- kóp
Íhuga málshöfðun
vegna Tónlistarhúss
Félögin Fasteign og Klasi íhuga málshöfðun vegna samningagerðar um Tónlist-
ar- og ráðstefnuhús. Þau fengu samninga afhenta eftir úrskurð Hæstaréttar.
Má bjóða þér
léttan kaffisopa?
FRÁBÆR TILBOÐ!
SÉRBLAÐ FYLGIR
VÍÐAST BJARTVIÐRI Í dag verða
norðvestan 3-8 vestan til, annars
hæg breytileg átt. Víðast bjartviðri
til landsins en áfram má búast við
þokulofti með ströndum, einkum
norðan til og austan. Hiti 10-20 stig.
VEÐUR 4
13
16
16
20
16
20
20
VIÐSKIPTI „Það var einfaldlega
kominn sá tími sem ég hafði
ætlað mér að vera þarna,“ segir
Ólafur Jóhann Ólafsson athafna-
maður um sölu á 16,7 prósenta
hlut sínum í Árvakri, útgáfufélagi
Morgunblaðsins. Það vakti
töluverða athygli þegar Ólafur
Jóhann eignaðist hlutinn, síðla árs
2005, en öllu minni þegar hann
seldi. Björgólfur Guðmundsson,
athafnamaður og aðaleigandi
Landsbankans, keypti hlutinn.
Björgólfur ræður nú yfir
þriðjungshlut í Árvakri eftir því
sem næst verður komist, meðal
annars í gegnum félögin Ólafsfell
og Forsíðu. - ikh / sjá Markaðinn
Björgólfur stærstur í Árvakri:
Ólafsfell kaupir
Ólaf Jóhann út
FLÓTTAMENN Biskup Íslands, séra
Karl Sigurbjörnsson, segist hafa
samúð með Fídel Smára, syni
Rosemary og Pauls Ramses.
„Við erum skuldbundin því að
sjá til þess að fjölskyldum sé ekki
sundrað. Því miður var það ekki
virt hér,“ segir biskup.
Allsherjarnefnd fjallaði um
málið í gær og segir Atli Gíslason
þingmaður að fram hafi komið að
vel hefði mátt finna aðra lausn á
máli Keníamannsins, en að slíta
hann frá konu og barni.
„Þessi fjölskylda kann að vera
sundruð í á annað ár,“ segir hann.
„Þetta er kjarninn og rauði
þráðurinn í þessu máli; það er
brotið gegn réttindum barnsins.“
- kóþ / sjá síður 4 og 16
Flóttamaðurinn frá Kenía:
Biskup telur illa
farið með Fídel
BISKUP ÍSLANDS Séra Karl Sigurbjörns-
son segir að í Biblíunni séum við hvött
til þess að taka vel á móti útlendingum.
BIFREIÐIN ALELDA Eldur kom upp í bifreið fjögurra pólskra ferðamanna, þriggja presta og biskups, eftir að þeir höfnuðu utan
vegar við Vatnsdalshóla í Austur-Húnavatnssýslu laust eftir hádegi í gær. Mennirnir voru sjálfir komnir út úr bílnum þegar lögreglu
bar að garði. Fljótlega eftir það varð bíllinn alelda að sögn lögreglu. Þrír mannanna voru fluttir á sjúkrahús á Akureyri vegna
meiðsla, sem þó voru ekki mjög alvarleg. Tildrög slyssins og eldsupptök eru óljós. MYND/ÓMAR VILHELMSSON
Fyrsti þjálfarinn
fokinn
Gunnar Guðmunds-
son var rekinn
frá botnliði
HK í gær. HK
leitar að nýjum
þjálfara.
ÍÞRÓTTIR 27
VEÐRIÐ Í DAG