Fréttablaðið - 09.07.2008, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 09.07.2008, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 9. júlí 2008 17 Mikki refur kvartar UMRÆÐAN Ari Edwald skrifar um samkeppni á fjöl- miðlamarkaði Þorsteinn Þorsteins-son, markaðsstjóri RÚV, skrifar skrýtna grein í Mbl. síðastliðinn sunnudag, þar sem flestu er snúið á haus varðandi samkeppni á auglýs- ingamarkaðnum. Gengur mark- aðsstjórinn svo langt í öfugmæl- um sínum að það minnir á það þegar Mikki refur reyndi að telja bangsapabba trú um að Lilli klif- urmús hefði ætlað að éta hann! Grundvallaratriðið sem RÚV- mönnum virðist fyrirmunað að skilja, er að það leggur þeim skyldur á herðar að þiggja 3 milljarða styrk árlega frá skatt- greiðendum, sem þeir megi ekki bara eyða í að bera keppinauta sína á auglýsingamarkaðnum ofurliði. Það blasir við, að ef RÚV hefur ekki önnur markmið í rekstri sínum en einkarekið vinsældasjónvarp, og býr ekki við takmarkanir á auglýsinga- markaði umfram einkafyrirtæki, þá getur RÚV í raun notað allan ríkisstyrkinn til niðurgreiðslu á sókn sinni á auglýsingamarkað- inn. Við það mun ekkert einka- fyrirtæki geta keppt til lengdar. Núverandi hlutdeild einstakra fyrirtækja á auglýsingamark- aðnum skiptir í raun engu máli í þessu sambandi, þetta snýst um leikreglur. Það ætti engu að skipta fyrir rökræðuna hvort til dæmis 365 samstæðan er eitt fyrirtæki með marga ólíka miðla innanborðs, eða væri skipt í mörg fyrirtæki. Þegar RÚV er farið að miða dagskrá sína fyrst og fremst við sókn eftir auglýs- ingafé, og ríkisstyrkurinn sem hægt er að nota í samkeppnis- starfsemi er 3 milljarðar, á meðan auglýsingamarkaðurinn í heild er aðeins um 10 milljarðar, þá er augljóst að skekkjan er svo mikil að úrslitin í taflinu liggja fyrir. Þetta er aðeins spurning um tíma. Það á ekki bara við um svokallaða ljósvakamiðla, enda beinist sókn RÚV ekkert síður að auglýsendum í dagblöðum um þessar mundir. Má minna á að þegar lög um RÚV ohf. voru samþykkt lýstu málsvarar RÚV því yfir að sókn RÚV á auglýs- ingamarkað myndi í engu breyt- ast frá því sem verið hefði. Allir sjá nú að þessar yfirlýsingar voru helber ósannindi. Enginn vinur betri en Guðni Markaðsstjóri RÚV heldur því reyndar fram, að núverandi aug- lýsingatekjur RÚV séu lágar, þar sem þær séu minni partur af aug- lýsingakökunni, heldur en nemur hlutdeild RÚV í heildar áhorfi. Þessi kenning er út í hött af tveim- ur ástæðum. Í fyrsta lagi yrði RÚV að sætta sig við að þessi mælikvarði gilti í báðar áttir. Ef eðlilegt er að RÚV hafi sömu hlut- deild og einkastöðvar í auglýs- ingafé, miðað við áhorf, yrði að skipta ríkisstyrknum í sömu hlut- föllum, ef jafnræði á að ríkja. Í öðru lagi er heildar- áhorf ótækur mæli- kvarði. Auglýsendur eiga sér markhópa, sem eru miklu þrengri en skilgreiningin: „allir á aldrinum 12-80 ára, landið allt“. Einkamiðl- ar leggja einmitt sér- staka áherslu á að ná útbreiðslu hjá mikilvæg- um markhópum til að gera sig til við auglýsendur og geta verið stærri en RÚV í „markhópnum“ þótt þeir séu minni í heild. Þar er eftir atvikum hægt að gefa eftir gagnvart landshlutum og hópum. Þessu á einmitt að vera öfugt farið með Ríkisútvarp, en því virðast núverandi stjórnendur RÚV hafa gleymt. Þeir hafa alltof mikla peninga til ráðstöfunar og geta yfirboðið starfsfólk og vin- sældaefni þegar þeim sýnist svo, samanber nýafstaðna Evrópu- keppni í fótbolta, þar sem bara sýningarrétturinn kostaði þá hátt í 100 m.kr. En þeir skera niður „hallærislegt“ landshlutasjón- varp með fréttum af landsbyggð- inni. Þetta er í raun kjarninn í þeim breytingum sem hafa orðið á RÚV. Óheft þátttaka á samkeppn- ismarkaði með þeim áherslu- breytingum sem því fylgir er ósamrýmanleg hugtakinu „ríkis- útvarp“. Það er ekki tilviljun að það fyrirkomulag sem hér gildir um RÚV er hvergi að finna um ríkisútvörp í nálægum löndum. Svo spyr Guðni Ágústsson eins og álfur út úr hól, hvort Ríkis útvarpið eigi öngvan vin, þótt hann beri fulla ábyrgð á því að breyta RÚV úr hefðbundnu ríkisútvarpi, í samkeppnisfyrirtæki sem hefur engan áhuga á skyldum ríkisút- varps. Sá sem á Guðna að vini þarf greinilega enga óvini. Gagnrýni Samkeppniseftirlitsins Litlu skiptir þótt RÚV-toppar telji fjarstæðu að samkeppni við þá sé ójöfn. Samkeppniseftirlitið hefur talað skýrt um þessi efni eftir mikla yfirlegu. Eins og fram kemur í úrskurði SKE frá 16. júní síðastliðinn (sem finna má á 365midlar.is) telur eftirlitið að núverandi fyrirkomulag feli í sér samkeppnislega mismunun og sé frávik frá markmiðum samkeppnislaga, þótt eftirlitið telji sig ekki geta tekið á málinu, að svo stöddu að minnsta kosti, af tæknilegum ástæðum. Það kæmi mjög á óvart ef Alþingi teldi sæmandi að hafa það fyrirkomulag til frambúðar sem er þessum annmörkum búið. Það færi þá lítið fyrir hástemmdum yfirlýsingum um mikilvægi samkeppni og heil- brigðra leikreglna í atvinnulíf- inu. Við setningu laganna um RÚV ohf. benti Samkeppnis- eftirlitið í umsögn sinni á leiðir til að lagfæra þá galla sem aug- ljóslega voru á lagasetningunni, en á það var því miður ekki hlustað. Leið SKE var að hafa skýr skil á milli þess sem nyti skattfjár og þess sem kostað væri með auglýsingum. Fleiri leiðir eru færar til að hamla gegn ólögmætum samkeppnis- háttum RÚV, án þess að RÚV þurfi að hverfa af auglýsinga- markaði. Þótt það hefði best áhrif á fjölbreytni og samkeppni til lengdar. Höfundur er forstjóri 365 miðla. ARI EDWALD Samkeppniseftirlitið telur að núverandi fyrirkomulag RÚV feli í sér samkeppnislega mis- munun og sé frávik frá mark- miðum samkeppnislaga... TB W A\ RE YK JA VÍ K \ SÍ A / 0 82 76 0

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.