Fréttablaðið - 09.07.2008, Blaðsíða 4
4 9. júlí 2008 MIÐVIKUDAGUR
FLÓTTAMENN Íslensk yfirvöld nýta
sér endursendingarréttinn í Dyfl-
innarsamningnum meira en allar
aðrar norrænar þjóðir. Nærri
tvisvar sinnum oftar en Finnar og
ríflega fjórum sinnum oftar en
Norðmenn, okkar næstu nágrann-
ar.
Alls sendu íslensk yfirvöld 38
prósent flóttamanna í annað land
með tilvísan í ákvæðið. Norðmenn
sendu 8,6 prósent og Finnar
21,68.
Hafa ber í huga að mikill munur
er á fjölda þeirra sem sækja um
hér og erlendis. Þannig sóttu 6.528
um hæli í Noregi en 42 á Íslandi.
„Við hjá Flóttamannastofnun
leggjum áherslu á að samkvæmt
Dyflinnarsamningnum þurfa lönd
alls ekki að senda fólk til ríkisins
sem tók fyrst við því,“ segir
Hanne Mathiesen, talsmaður
Flóttamannastofnunar Sameinuðu
þjóðanna í Svíþjóð.
„Ríkin þurfa ekki að beita samn-
ingnum, hvert ríki getur séð um
umsóknirnar sjálft. Sérstaklega á
þetta við, ef ástæða er til að ætla
að hælisleitandinn fái ekki rétt-
láta málsmeðferð í landinu sem
hann er sendur til. Einnig ef ein-
staklingurinn er veikburða og ef
fjölskyldutengsl koma til,“ segir
hún.
Mathiesen segir stofnunina
hvetja til þess að meðferð mála sé
samræmd milli Evrópulanda.
„Svo þetta verði ekki lotterí.
Fólk ætti ekki að fá mismunandi
meðferð, eftir því í hvaða landi
það sækir um hæli. Það á ekki að
skipta máli. Þetta á að snúast um
hvort fólkið þurfi á því að halda
að vera veitt staða flóttamanns
eða ekki,“ segir hún.
Allsherjarnefnd alþingis fjall-
aði um mál Pauls Ramses í gær.
Atli Gíslason, þingmaður VG,
segir að þar hafi fulltrúar Útlend-
ingastofnunar viðurkennt að full
harkalega hafi verið farið í mál
Pauls Ramses frá Kenía, eftir á að
hyggja. Að Útlendingatofnun
hefði ekki kannað aðstæður á
Ítalíu: „Það þarf að finna lausn á
þessu strax. Þá er ég fyrst og síð-
ast að hugsa um velferð barns-
ins,“ segir Atli.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar
sagði fréttamönnum í gær að
henni virtist „harðneskjulegt“ að
tvístra kenísku fjölskyldunni.
klemens@frettabladid.is
GENGIÐ 08.07.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
155,0526
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
76,85 77,21
151,73 152,47
120,70 121,38
16,183 16,277
15,053 15,141
12,814 12,890
0,7202 0,7244
124,97 125,71
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
BANDARÍKIN, AP Bandarísk
þingnefnd mælir með því að
þingið setji lög, sem geri forseta
skylt að leita samþykkis þingsins
áður en hann lýsir yfir stríði á
hendur öðru ríki.
Formenn nefndarinnar eru
repúblikaninn James Baker og
demókratinn Warren Christopher,
en þeir eru báðir fyrrverandi
utanríkisráðherrar Bandaríkj-
anna.
Í skýrslu nefndarinnar, sem
kynnt var í gær, segir að núgild-
andi lög um stríðsrekstur séu
meingölluð vegna þess að þar er
ekki gert ráð fyrir að forseti og
þing fari saman með stríðsyfir-
lýsingavald í Bandaríkjunum,
heldur sé það vald alfarið á hendi
forseta. - gb
Bandarísk þingnefnd:
Samþykki þings
þurfi fyrir stríði
Vísum mest til Dyflinnar
Af Norðurlöndunum sendir Ísland hlutfallslega flesta aftur til fyrsta móttökuríkis. „Þetta á að snúast um
hvort fólk þurfi á hælinu að halda eða ekki,“ segir talsmaður Flóttamannastofnunar SÞ í Svíþjóð.
FRÁ FUNDI ALLSHERJARNEFNDAR „Já, að sjálfsögðu finnst mér sjálfsagt að málið sé skoðað,“ segir Ellert B. Schram þingmaður.
Allsherjarnefnd fundaði um málið í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Umsækjendur:
Svíþjóð: 36.207
Noregur: 6.528
Danmörk: 2.226
Finnland: 1.434
Ísland: 42
Sendir heim á grundvelli Dyflinnar:
Svíþjóð: 3.709
Noregur: 560
Danmörk: 358
Finnland: 311
Ísland: 16
Hlutfall:
Svíþjóð: 10,24%
Noregur: 8,57%
Danmörk: 16,08%
Finnland: 21,68%
Ísland: 38,09%
ÍSLAND Í SAMANBURÐI VIÐ NÁGRANNALÖNDIN:
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
Helsinki
Eindhoven
Amsterdam
London
Berlín
Frankfurt
Friedrichshafen
París
Basel
Barcelona
Alicante
Algarve
Tenerife
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
20°
20°
25°
22°
20°
20°
19°
19°
20°
22°
20°
25°
23°
24°
27°
30°
28°
22°
13
Á MORGUN
Hæg, vestlæg átt.
FÖSTUDAGUR
Hæg, breytileg átt.
13
14
16
11
16
13
20
14
16
14
20
2
5
5
6
12 15
15
15
20
12
11
12
13
12
14
VÆTA UM
HELGINA
Um helgina má
búast við nokkrum
breytingum á veðr-
inu. Er að vænta
að það verði víðast
fremur skýjað og
sumstaðar dálítil
væta, einkum
sunnan og vestan
til og þá meiri
úrkoma á sunnu-
dag en laugardag.
Hitinn verður þá
um 10-15 stig.
20
5
4
4
1
1
1
1
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
Forstjóri Útlendingastofnunar hefur
ekki viljað svara spurningum um mál.
stofnunarinnar. Hvorki sértækum
spurningum um mál Pauls Ramses,
né almennum um stefnu yfirvalda og
starfsemi stofnunarinnar.
Nokkrar spurningar
sem hann svarar ekki:
■ Er ekki venja hjá Útlendingastofnun
að láta fólk vita hvenær því verður
vísað úr landi? Að minnsta kosti í
mánuðum talið?
■ Hvernig skýrir þú hátt hlutfall
brottvísana frá Íslandi, á grundvelli
Dyflinnarsamningsins, miðað við hin
Norðurlöndin?
■ Sendir Útlendingastofnun ekki þau
gögn, sem umsækjendum um hæli
fylgja, til þess lands sem tekur við
þeim?
■ Hafið þið kannað aðstæður flótta-
manna á Ítalíu?
Dómsmálaráðherra svaraði heldur ekki.
SVARA ALLS EKKI
STJÓRNSÝSLA „Óvissan er slæm en
við treystum því að unnið sé fag-
lega að málinu,“ segir Halldór H.
Backmann, lögmaður veitingastað-
arins Óðals sem í meira en hálft ár
hefur beðið niðurstöðu lögreglu-
stjórans á höfuðborgarsvæðinu
varðandi nektardansleyfi.
Borgarráð veitti í nóvember nei-
kvæða umsögn um umsókn veit-
ingastaðanna Óðals, Bóhems og
Vegas um leyfi til nektardanssýn-
inga. Þá réði Tjarnarkvartettinn
svokallaði ríkjum í borgarstjórn.
Í ágúst 2007, þegar meirihluti
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks var við völd, hafði borgarráð
hins vegar veitt jákvæða umsögn
vegna nektardansleyfanna. Lög-
reglustjóri sendi þá málið aftur til
umsagnar hjá borginni og fékk þá
hina neikvæðu umsögn Tjarnar-
kvartettsins sem var borgar-
fulltrúum Sjálfstæðisflokks ekki að
skapi. Tóku þeir undir með lög-
mönnum veitingastaðanna að borg-
arráð færi út fyrir hlutverk sitt sem
umsagnaraðili með því að bera við
sjónarmiðum um mansal og mann-
réttindi.
„Þetta er alger geðþóttaákvörð-
un,“ sagði Gísli Marteinn Baldurs-
son í Fréttablaðinu 24. nóvember í
fyrra og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
tók í svipaðan streng: „Við verðum
að gæta okkar að fara að lögum.“
sagði hann. Þótt sjálfstæðismenn
séu nú við stjórn telur Halldór það
litlu breyta því ótrúlegt sé að lög-
reglustjóri óski í þriðja sinn eftir
umsögn borgarinnar. - gar
Eigendur nektardansstaða bíða enn eftir niðurstöðu lögreglustjóra um leyfi:
Nektardansstaðir enn í óvissu
HALLDÓR H. BACKMAN Lögmaður Óðals
er ósáttur við stöðuna. FRÉTTABLAÐIÐ/E. ÓL
H
EI
M
IL
D
:
FL
Ó
TT
A
M
A
N
N
A
ST
O
FN
U
N
S
Þ
JAMES BAKER Formaður þingnefndar
sem vill takmarka völd forseta til að lýsa
yfir stríði. NORDICPHOTOS/AFP
Eldur í bíl á gatnamótum
Eldur kviknaði í bifreið á gatnamótum
Miklubrautar og Háaleitisbrautar um
klukkan hálfeitt í fyrrinótt. Vel gekk
að slökkva eldinn og hafði hann verið
slökktur um fimmtán mínútum eftir
að slökkvilið kom á vettvang.
Reykur og ólykt frá potti
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
var kallað út að húsi í Sundahverfi í
Reykjavík seint í fyrrinótt vegna reyks
og ólyktar sem stafaði frá potti á
eldavél. Engin eldur var í íbúðinni en
slökkvilið reykræsti íbúðina.
LÖGREGLUFRÉTTIR
PERSÓNUVERND Allir starfsmenn
dvalarheimilisins Grundar munu
undirrita sérstakan samning þess
efnis að þeir samþykki að
tilkynna fjarvistir sínar til
Heilsuverndarstöðvarinnar.
Þetta er gert í kjölfar úrskurð-
ar Persónuverndar í apríl. Þar
komst Persónuvernd að þeirri
niðurstöðu að með skráningu
upplýsinga um veikindi sautján
ára gamallar starfsstúlku á
Grund, án samþykkis forráða-
manna, hefði Grund brotið
fyrrgreind lög.
Heilsuverndarstöðin hefur nú
eytt öllum upplýsingum um
stúlkuna úr gagnagrunni. - þeb
Heilsuverndarstöðin bregst við:
Upplýsingum
um veikindi eytt