Fréttablaðið - 09.07.2008, Side 6
6 9. júlí 2008 MIÐVIKUDAGUR
Björn Gunnarsson skrifar: Hekla
lækkaði verð á nýjum bílum
sínum með miklu húllumhæi í
maí. Viðskiptaráðherra og fleiri
mættu í gleðina. Forseti ASÍ lýsti
ánægju sinni með framtakið og
forstjóri Heklu gerði mikið úr
málinu og sagði þetta framtak
þeirra framlag gegn verð-
bólgunni. Þeir auglýstu reyndar
„allt að 17% lækkun“ sem reynd-
ist svo bara vera á einhverjum
Audi sem seldist í örfáum eintök-
um. Lækkunin á algengustu bíl-
unum var ca 10% sem er hið
besta mál. Nú hafa þeir hinsveg-
ar hækkað aftur. Þannig að fram-
lagið gegn verðbólgunni er greini-
lega hætt.
Þann 2. maí birtist auglýsing frá
Heklu þar sem meðal annars
stóð: „Varanleg verðlækkun um
allt að 17% er okkar framlag til
að ná verðbólgunni niður“. Sama
dag birtist frétt um málið í Frétta-
blaðinu. Með fréttinni fylgdu
fimm dæmi um verðlækkanir. Nú
hafa allir bílarnir í dæminu
hækkað, um 110 til 265 þúsund
krónur, eða að jafnaði um tæp-
lega fimm prósent (sjá
töflu). „Varanlegur“ þýðir
samkvæmt Orðabók
Menningarsjóðs „það sem
endist, varir lengi, end-
ingarmikill“. Rúmlega tveir mán-
uðir eru liðnir síðan verðbólgu-
framlag Heklu var kynnt.
Ásamt Heklu var það helst Ikea
sem reyndi að berjast gegn verð-
bólgunni. Þann 29. mars síðastlið-
inn mátti lesa í Fréttablaðinu að
óbreytt verð héldist á öllum
vörum Ikea til 15. ágúst næst-
komandi. Tilkynning var send í
tilefni af fréttaflutningi um
verðhækkanir á innfluttum
vörum eins og húsgögnum og
raftækjum vegna veikingar
íslensku krónunnar. „Ikea mun
standa við uppgefið verð eins og
það er auglýst í Ikea-bæklingn-
um“, sagði í fréttinni. Þetta hefur
gengið eftir. Von er á nýjum
Ikea-bæklingi í byrjun september
og þá má búast við verðhækkun-
um á vörum fyrirtækisins.
Hvernig gengur „Framlagið gegn verðbólgunni“?
Hekla búin að hækka, ekki Ikea
VERÐLÆKKUN FAGNAÐ Í BYRJUN MAÍ Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra í
„húllumhæi“ með Sverri og Knúti Haukssonum hjá Heklu.
Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@frettabladid.is
DR. GUNNI gunnarh@frettabladid.is
VARANLEGU VERÐLÆKKUNARBÍLAR HEKLU
Tegund Fyrir lækkun Eftir lækkun Verð nú
VW Golf Treadline 1.6 beinsk. 2.560.000 2.280.000 2.390.000
Skoda Octavia 1.9 TDI sjálfsk. 3.050.000 2.770.000 2.890.000
Audi A4 TFSI beinsk. 5.090.000 4.220.000 4.430.000
Mitsubishi Pajero DID sjálfsk. 5.970.000 5.350.000 5.615.000
KIA Sorento EX 2.5 4.420.000 3.995.000 4.190.000
HEILBRIGÐISMÁL Stóru heilbrigðis-
stofnanirnar úti á landi eiga við
rekstrarvanda að stríða. Einkum
er ástandið slæmt á Heilbrigðis-
stofnun Austurlands, HSA, en þar
nemur hallinn eftir fyrstu fimm
mánuði ársins rúmum 200 milljón-
um króna. „Við erum í úlfakreppu
og sívaxandi rekstrarvanda,“
segir Stefán Þórarinsson, fram-
kvæmastjóri lækninga á HSA.
Heilbrigðisstofnun Austurlands
fékk tíu pró-
sentum minni
fjárveitingu en
gert var ráð
fyrir að sam-
kvæmt rekstr-
aráætlun stjórn-
enda og veltir
rúmum tveimur
milljörðum
króna á þessu
ári. Heilbrigðis-
stofnunin er nú
komin í vanskil við birgja og
ástandið er erfitt.
„Það verður erfiðara og erfið-
ara að reka stofnunina. Hún hefur
verið að ganga í gegnum breyting-
ar, fólki hefur fjölgað mikið og
álag verið vegna byggingafram-
kvæmda. Þessi vöxtur hefur að
hluta til verið greiddur af sértekj-
um vegna álversins eða stíflunnar.
Við höfum misst þessar tekjur
með minnkandi framkvæmdum,“
segir Stefán.
„Íbúum og starfsmönnum
álversins þurfum við að sinna eftir
sem áður. Við þurfum að reka sex
vinnusvæði og tólf vinnustaði og
veita aðallega grunnþjónustu. Við
getum ekki látið þetta hverfa,
lokað og vísað á LSH eða Reykja-
vík. Við erum í vanda og það er
ekki gott,“ segir hann.
Stefán segir að stjórnendur hafi
strax í upphafi ársins gert heil-
brigðisráðuneytinu grein fyrir að
þetta væri stærri vandi en svo að
þeir gætu ráðið einir við hann.
„Maður skilur að ráðuneytið hefur
ekki mörg úrræði. Þegar fjárveit-
ingin er svona kröpp er það í
klemmu með málið,“ segir Stefán.
Fleiri stofnanir úti á landi eiga
við fjárhagsvanda að stríða. Þor-
valdur Ingvarsson, framkvæmda-
stjóri á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri, FSA, segir hallann 60
milljónir króna eftir fyrstu fimm
mánuði ársins. Beðið er fjárauka-
laga. Á Ísafirði nemur hallinn
tæpum 24 milljónum en Þröstur
Óskarsson framkvæmdastjóri
býst við að staðan skáni eftir því
sem líður á árið. Útgjöld dreifist
ójafnt yfir árið þess vegna batni
staðan. Á Akranesi nemur hallinn
tæpum 14 milljónum krónum,
meðal annars vegna launaþróun-
ar. Sigríður Snæbjörnsdóttir, for-
stjóri Heilbrigðisstofnunar Suður-
nesja, HSS, sendi frá sér þau
skilaboð nýverið að nauðsynlegt
væri að draga úr þjónustu heilsu-
gæslunnar vegna fjárskorts. Hún
er nú í viðræðum við ráðuneytið.
ghs@frettabladid.is
ÞORVALDUR
INGVARSSON
Rekstur Heilbrigðisstofnunar
Austurlands er í uppnámi
Heilbrigðisstofnanir úti á landi eiga við rekstrarvanda að stríða. Sérstaklega er ástandið slæmt á Austur-
landi þar sem stjórnendur ráða ekki einir við vandann. „Erum í úlfakreppu,“ segir framkvæmdastjóri.
STÖÐUGT ERFIÐARA Heilbrigðisstofnun Austurlands er í verulegum fjárhagsvanda
og meðal annars komin í vanskil við birgja. „Það verður erfiðara og erfiðara að reka
stofnunina,“ segir Stefán Þórarinsson lækningaforstjóri.
RV
U
n
iq
u
e
0
60
80
1
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Servíettur NexxStyle 39x39cm 80stk, ýmsir litir
Satiné Clean, gólfsápa
Brial Clean, alhliða hreinsiefni
Kristalin Clean, baðherbergishreinsir
Into WC Clean
Lotus eldhúsrúllur Lotus WC pappír
Lotus Maraþon Plus Lotus WC Júmbó
Lotur T-Þurrkur
Lotus V-Þurrkur
Nánar
i upplý
singar
veita s
ölume
nn og
ráðgja
far RV
Umhverfisvottaðar vörur
- fyrir sumarbústaðinn, veiðihúsið og ...
HEILBRIGÐISMÁL Guðlaugur Þór
Þórðarson heilbrigðisráðherra
hefur kynnt fyrir ríkisstjórn
samning um þjónustu heimilis-
lækna á læknastofum utan
heilsugæslustöðva. Þetta er
rammasamningur til fimm ára.
Á grundvelli hans er stefnt að
útboði á rekstri læknastofu
þriggja til fimm heimilislækna á
höfuðborgarsvæðinu síðar á
árinu.
Samningurinn miðast við að
þrír eða fleiri heimilislæknar
sameinist um faglegt samstarf
og rekstur heilsugæslu- og
læknastöðvar. Þjónustan skal að
jafnaði unnin á læknastofunni
en læknum verður einnig
auðveldað að sinna vitjunum hjá
sjúklingum sem ekki eiga
heimangengt.
Unnið er að gerð sambærilegs
samnings við sjálfstætt starf-
andi hjúkrunarfræðinga. - ghs
Nýr rammasamningur:
Útboð á rekstri
læknastofu
LJÓSMÆÐUR „Líðan og öryggi
kvenna er í húfi“, segir í áskorun
sem var lesin fyrir utan stjórnar-
ráðið í gærmorgun áður en ríkis-
stjórnarfundur hófst.
Stuðningsfólk ljósmæðra fjöl-
mennti á baráttufund fyrir utan
stjórnarráðið í gærmorgun til að
styðja við launabaráttu þeirra.
Eydís Hentze sem var einn skipu-
leggjenda fundarins segir málið
vera rammpólítískt.
„Þetta er kvennastétt sem þjón-
ustar einungis konur. Starf þeirra
er táknrænt fyrir sjálfræði
kvenna og yfirráða þeirra yfir
eigin líkama. Þannig er þetta mál
mjög pólitískt, því það snýst um
grunnréttindi kvenna,“ segir
Eydís.
Í áskoruninni voru tíunduð lof-
orð stefnuyfirlýsingar ríkisstjórn-
arinnar. „Ríkisstjórn sem stefnir
að jafnrétti í reynd getur ekki virt
þarfir og störf kvenna að vettugi,
heldur verður hún að beita sér í
þágu stéttarinnar [ljósmæðra] og
fæðandi kvenna.“
Geir H. Haarde forsætisráð-
herra tók við áskorun stuðnings-
hópsins. „Mál sem þessi eru ekki
leyst fyrir framan stjórnarráðið
heldur er þetta gert við samninga-
borðið. Þið vinnið gríðarlega mik-
ilvæg störf og ég vona að það gangi
vel að leysa þetta mál á réttum
vettvangi,“ sagði Geir þegar
honum var afhent áskorunin. - vsp
Stuðningsfólk ljósmæðra fjölmennti fyrir framan stjórnarráðið í gærmorgun:
Segja málið rammpólítískt
STUÐNINGSFÓLK LJÓSMÆÐRA Afhent
var áskorun til ríkisstjórnarinnar um að
leiðrétta laun ljósmæðra.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
DANMÖRK Ásatrúarmenn í
Danmörku, sem trúa á norrænu
guðina Þór, Óðin og Loka, fá nú í
fyrsta sinn sinn eigin grafreit.
Sveitarfélagið Óðinsvé hafa
gefið grænt ljós á að koma upp
grafreit að heiðnum sið í Assis-
tens-kirkjugarðinum í miðbæ
Óðinsvéa síðar á þessu ári. Áður
hafa ásatrúarmenn geta valið
milli þess að láta dreifa ösku
sinni úti á hafi eða að hljóta
legstað í kirkjugarði.
Fjöldi félaga í stærsta ásatrúar-
félaginu í Danmörku, Forn siðr,
hefur þrefaldast frá því að félagið
fékk formlega stöðu sem trúfélag
í Danmörku árið 2003. - ghs
Danskir ásatrúarmenn:
Fá eigin grafreit
í Óðinsvéum
Vilt þú nýja ríkisstjórn?
Já 68,4%
Nei 31,6%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ertu ánægð/ur með nýjar tillög-
ur um skipulag á Kársnesi?
Segðu skoðun þína á visir.is
Dæmdur smyglari ók á lyfjum
Tæplega fertugur maður hefur verið
dæmdur til að greiða 100 þúsund
króna sekt í ríkissjóð fyrir akstur undir
áhrifum amfetamíns og ofvirknilyfja.
Hann var einnig sviptur ökurétti í
átta mánuði. Maðurinn hlaut nýverið
dóm fyrir aðild að innflutningi á 700
grömmum af kókaíni.
DÓMSMÁL
KJÖRKASSINN