Fréttablaðið - 09.07.2008, Side 17
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
ÓDÝRT OG VISTVÆNT
Hjá Lundavespum er hægt
að leigja sér vespur í
skemmri eða lengri tíma.
BÍLAR 2
Hafþór Theodórsson, sölumaður hjá Securitas,
reynir að ferðast sem oftast bæði innanlands og
erlendis.
Hafþór Theodórsson hefur víða komið og stefnir á að
fjölga viðkomustöðunum. Ein ferð stendur þó sérstak-
lega upp úr að hans mati en það er þriggja vikna frí sem
hann fór í ásamt fjölskyldunni til Kissimee í Flórída.
„Við fjölskyldan, það er að segja ég og frúin og sonur
okkar, fórum í heimsókn til systur hennar og eigin-
manns á Flórída. Þar var mikið stuð og afþreyingar-
möguleikarnir nánast endalausir. Það er eiginlega ekki
hægt að láta sér leiðast þarna,“ útskýrir Hafþór, sem
fór meðal annars með fjölskyldunni í Busch Gardens,
Disneyworld og Seaworld, þar sem margt fróðlegt og
skemmtilegt var að sjá. „Ég verð að viðurkenna að
varla er hægt að lýsa þessum stöðum í stuttu máli.
Strákurinn okkar var yfir sig hrifinn og ekki skemmdi
fyrir að hann hitti þarna margar þekktar Disney-
persónur.“
Fjölskyldan gerði sér margt annað til dægrastytting-
ar meðan á dvölinni stóð. Flatmagaði á ströndinni,
snæddi á ýmsum góðum veitingastöðum, meðal annars
á Outback Steakhouse og Olive Gardens, og verslaði þó
nokkuð enda dollarinn hagstæður að sögn Hafþórs,
sem lét jafnframt gamlan draum rætast með því að
skella sér á NBA-leik. Fjölskyldan upplifði síðan
heljarmikið ævintýri þegar hún fór í fjögurra daga
siglingu til Bahama-eyja og væri alveg til í að fara
þangað aftur.
„Ég mun einn daginn fara aftur með fjölskylduna til
Flórída, enda frábær staður fyrir fjölskyldufólk,“ segir
Hafþór. mikael@frettabladid.is
Frábært að vera á Flórída
Feðgarnir Hafþór og Viktor Blær sem er í körfuboltatreyju sem Hafþór keypti á soninn á NBA-leik í Flórída. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
EITTHVAÐ FYRIR ALLA
Jökulsárgljúfur býður upp á
fjölbreytta möguleika til
útivistar og náttúruskoð-
unar.
FERÐIR 3
Dugguvogi 2 /Simi 557 9510 / patti.is
Lager
hreinsun
allt að -60%
Húsgagna lagersala
t.d sófasett, hornsófar,
tungusófar o.fl
Sölustaðir: Járn og gler · Garðheimar · Húsasmiðjan · Egg · Búsáhöld Kringlunni
Útilegumaðurinn · Motor Max · Everest · Seglagerðin Ægir · www.weber.is
X
E
IN
N
J
G
5
x1
0
W
eb
er
Q
– gasgrill í úti-leguna!
Bjóddu henniút að borða)