Fréttablaðið - 09.07.2008, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 09.07.2008, Qupperneq 19
][ Farsími er nauðsynlegur í ferðalagið ef ske kynni að eitthvað kæmi upp á. Það á ekki síst við ef menn eru einir á ferð. Vatnajökulsþjóðgarður heillar marga enda rómaður fyrir náttúrufegurð og skemmtilegar gönguleiðir. Ýmsir möguleikar eru til útivistar og náttúruskoðunar í Vatnajökuls- þjóðgarði, en þar eru helstu áning- arstaðir Ásbyrgi, Hljóðaklettar, Hólmatungur og Dettifoss. Þar á milli eru síðan margir áhugaverðir og fallegir staðir sem vert er að heimsækja. „Á þessum árstíma er mikið af fólki sem kemur hingað. Það fer að vísu eftir veðri. Íslendingar koma þegar veðrið er gott á meðan útlend- ingar koma í hvernig veðri sem er,“ segir Einar Rafn Guðbrands son, landvörður í Vatnajökuls þjóðgarði, þar sem bæði er vinsælt að fara í tjaldútilegur og göngur, en göngu- leiðir liggja um þjóðgarðinn þveran og endilangan. „Mikið er um að fólk gangi á eigin vegum, til dæmis úr Ásbyrgi yfir í Hljóðakletta. Gönguleiðin tekur um fjóra klukkutíma og er þægileg,“ segir Einar Rafn. „Við erum svo með stuttar, skipulagðar göngur um þjóðgarðinn frá 21. júní til 17. ágúst, svokölluð rölt þar sem meðal annars er gengið um botn Ásbyrgis og Hljóðakletta. Göng- urnar taka um eina til þrjár klukku- stundir.“ Að sögn Einars Rafns geta göngugarpar síðan farið alla leið frá Ásbyrgi að Dettifossi, sem tekur yfirleitt um tvo daga. „Gönguleiðirnar eru yfirleitt ekki mjög erfiðar. Gangi menn frá Hljóðaklettum inn að Dettifossi þá er möguleiki að fara ofan í Hafra- gilsundirland eða sleppa því. Ef farið er fyrir ofan Hafragilsundir- lendi er erfið leið fyrir höndum. Þá þarf að fara yfir aurskriður, en þar eru reipi svo fólk komist betur um. Að því undanskildu er ekki hægt að segja að gönguleiðirnar séu erfiðar.“ Eins og fyrr sagði eru tjaldsvæði innan þjóðgarðsins og svo fjöl- breyttir gistimöguleikar í nágrenni hans. Þess má enn fremur geta að Ásbyrgishátíð verður endurvakin þann 20. júlí. Þemað er fimmti ára- tugurinn og verður klæðnaður gesta og veitingar í samræmi við það. - stp Útivist í einstakri náttúru Stallá rennur í Vatnajökulsþjóðgarði. MYND/ÚR SAFNI VATNAJÖKULSÞJÓÐGARÐS Einar Rafn Guðbrandsson landvörður segir að töluvert sé um að fólk gangi á eigin vegum um Vatnajökulsþjóðgarð. MYND/GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR Allra síðustu sætin! Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Montreal 6. og 13. júní. Þetta er einstakt tækifæri til að njóta lífsins í þessari stórkostlega spennandi borg sem er önnur stærsta borg Kanada. Í borginni mætast gamli og nýi timinn, rík sagan og iðandi nýbreytnin á einstaklega skemmtilegan hátt. Það er frábært að skoða sig um, versla og njóta lífsins í Montreal; fallegar byggingar, endalaust úrval verslana og veitingastaða og mjög hagstætt verðlag. Gríptu tækifærið og smelltu þér til Montreal og njóttu þess besta sem þessi spennandi heimsborg hefur að bjóða. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is flugfelag.is Skráðu þig í Netklúbbinn REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR VESTMANNAEYJAR ÍSAFJÖRÐUR VOPNAFJÖRÐUR ÞÓRSHÖFN GRÍMSEY Félagar í Netklúbbnum fá fyrstir upplýsingar um tilboð og nýjungar í tölvupósti. Alltaf ódýrast á netinu www.flugfelag.is Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.