Fréttablaðið - 28.07.2008, Blaðsíða 12
12 28. júlí 2008 MÁNUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Helgina 16. og 17. ágúst
verður hunda-dragkeppni
(Bikejorin) haldin í Garði
á Suðurnesjum og er það
í fyrsta sinn á Íslandi
sem slík keppni er haldin.
Einhverjir kynnu að halda
að hún byggðist á því að
kynskiptir hundar gangi
þar um svið og því var Páll
Tryggvi Karlsson fenginn
til að útskýra málið nánar.
„Ég var alveg viss um það að ein-
hverjir myndu hafa orð á þessu,“
segir Páll, sem stendur fyrir
keppninni, þegar hann er spurð-
ur um það hvort hann óttist ekki
að menn telji um einhvers konar
drag-keppni að ræða.
Keppnin fer þannig fram að
menn koma taug á hundinn sem
síðan er fest á reiðhjól. Hundur-
inn tekur síðan á rás og dregur
húsbónda sinn á hjólinu. „Þetta
er mikið stundað erlendis eins og
til dæmis í Kanada,“ segir Páll.
Þó þetta þyki hin mesta nýlunda
hér á landi hefur hann stundað
þetta til margra ára. „Ég bjó áður
í Reykjavík og hundarnir eru
búnir að draga mig á hjólinu um
alla borg,“ segir hann. „Það lá oft
við að fólk keyrði út í kant þar
sem ég fór enda var stíft starað á
mann.“
Hann er bjartsýnn á að íþrótt-
inni verði tekið fagnandi hér á
landi. „Viðtökurnar hafa verið
mjög góðar, skráning er ný hafin
og þetta lítur bara vel út. Ég geri
mér vonir um að það verði um 50
þátttakendur.“
Keppt verður í þremur aldurs-
flokkum; 8 til 12 ára, 13 til 16 ára
og síðan 17 ára og eldri. Í elsta
flokki verður farin 7 kílómetra leið
en hinir yngri fara mun styttra.
Þorsteinn Birgir Ægir Kristjáns-
son, fóstursonur Páls, ætlar ekki
að láta sitt eftir liggja í keppninni.
En þetta er ekki aðeins spurning
um að setjast á hjól og láta hund
hlaupa með sig. Páll segir að menn
verði að hafa algjöra stjórn á þjón-
inum og hafi sumir tileinkað sér
sérstakt tungumál sem sá ferfætti
skilur. Þar þýðir „gee“ að beygja
skuli til hægri og „hóóó“ þýðir
stopp svo dæmi séu tekin.
Þeir sem vilja skrá sig geta þó
gert það á íslensku og með því að
færa nafn sitt og aðrar upplýsing-
ar til bókar á netfangið bikejorin@
visir.is
jse@frettabladid.is
Hjólin knúin áfram af hvutta
Á FULLRI FERÐ Tryggð hundanna virðist síst fara þverrandi. Hér dregur Hrímir húsbónda sinn, Pál Tryggva Karlsson, á reiðhjóli rétt
eins og tryggur hundur af Alaskakyni á að gera þegar jörð er auð.
„Það er allt æðislegt að frétta,“ segir Margrét
Guðrúnardóttir, söngkona, lagahöfundur og
íslenskunemi.
„Um þessar mundir er ég að koma saman
efni fyrir plötu og byrja upptökur bráðlega,“
segir Margrét.
Öll lögin á plötunni eru eftir Margréti, „ég hef
mjög gaman af að semja lög og geri það mikið.
Ég veit ekki alveg hverjir munu spila með mér
á plötunni, bandið hans pabba mun örugglega
spila eitthvað með mér,“ en í því bandi eru
pabbi Margrétar, Ásgeir Óskarsson, Tómas Tóm-
asson og Björgvin Gíslason og hefur Margrét
verið að spila mikið með þeim upp á síðkastið.
Margrét er búin að vera að spila vítt og breitt
í sumar. „Um daginn var ég að spila á blúshátíð
á Ólafsfirði og 17. júní í miðbæ Reykjavíkur, allt
saman ótrúlega gaman. Síðan á menningarnótt
verð ég að spila í einhverju partíi á Skólavörðu-
stígnum, en ég er mjög spennt fyrir því.
Í sumar er ég líka að
vinna í Suðurbæjarlaug
Hafnarfjarðar ásamt
því að spila. Í haust
mun námið taka við
á ný eftir sumarleyfi,
en ég er að hefja
mitt annað ár í
íslensku við Háskóla
Íslands. Ég ætla
samt að reyna að
vinna eins mikið
í tónlistinni og
mögulegt er,“
segir Margrét.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA: MARGRÉT GUÐRÚNARDÓTTIR SÖNGKONA
Kemur saman efni á nýja plötu
„Þessar reglur kínverskra stjórnvalda
um [framkvæmd Ólympíuleikanna]
koma mér ekki á óvart,“ segir Ragnar
Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður
um framferði kínverskra stjórnvalda
í kringum Ólympíuleikana í Peking í
næsta mánuði.
Strangar reglur gilda um aðgang að
leikunum og til dæmis eru geðfatlaðir
óvelkomnir á leikana. „Þegar forseti
Kína kom hingað til Íslands á sínum
tíma í boði íslensku stjórnarinnar þá
komu hingað Falun Gong-iðkendur og
vildu láta í ljós afstöðu sína til ástands
mannréttinda í Kína. Það vildu hvorki
hinir kínversku valdamenn þola né
hinir íslensku.“
Ragnar segist ekki geta svarað því
hvort rétt sé af íslenskum ráðamönn-
um að sækja Ólympíuleikana í Peking.
„Ég þekki ekki nógu vel hefðirnar til að
átta mig á því,“ segir hann.
SJÓNARHÓLL
FRAMKVÆMD KÍNVERSKRA STJÓRN-
VALDA Á ÓLYMPÍULEIKUNUM
Reglur koma
ekki á óvart
RAGNAR AÐALSTEINSSON
HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR
■ Ermarsund
er um 560
kílómetra
langt sund í
Atlantshafi.
Sundið skilur
að norðurhluta
Frakklands og
England. Nafn
þess er dregið af franska orðinu
La Manche sem þýðir ermin.
Nafnið hefur verið notað síðan
á sautjándu öld og er venjulega
sagt að það sé dregið af útliti
sundsins en úr því má auðveld-
lega sjá ermi. Því er mikilvægt
að minnast við ritun nafnsins
að átt er við staka ermi en ekki
tvær. Því er ávallt skrifað og sagt
Ermarsund en ekki Ermasund.
ERMARSUND:
KENND VIÐ EINA ERMI
PÁLL TRYGGVI ÁSAMT SYNI OG TVEIMUR HUNDUM Páll er bjartsýnn á að íþróttinni
verði tekið fagnandi hér á landi. Hann gerir sér vonir um fimmtíu þátttakendur.
Ógurlegt ísbjarnartíst
„Við heyrðum allt í einu tíst
undan veröndinni og héldum
fyrst að það væri ísbjörn.“
HJÖRLEIFUR JÓHANNSSON
FLUG STJÓRI FANN ANDARUNGA
UNDIR VERÖND SUMARBÚSTAÐAR
SÍNS. HANN VAR FEGINN AÐ ÞAR LÁ
EKKI ÍSBJÖRN Í LEYNUM.
Fréttablaðið 27. júlí
Allt vaðandi í þekk-
ingu
„Þekking á fræðslumálum
er til staðar innan sveitarfé-
lagsins.“
ÓMAR STEFÁNSSON, BÆJAR FULL-
TRÚI MEIRIHLUTANS Í KÓPA VOGI,
TELUR ÓÞARFT AÐ RÁÐA
FRÆÐSLUSTJÓRA MEÐ REYNSLU AF
FRÆÐSLUMÁLUM.
Fréttablaðið 27. júlí
Hópur bandarískra nema frá School for International
Training, skóla í Vermontríki í Bandaríkjunum, hefur
undanfarna daga dvalið á Vestfjörðum.
Nemarnir eru staddir á Íslandi til að fræðast um
endurnýjanlega orkugjafa en fyrir Vestfjarðaheim-
sóknina heimsóttu þeir RES Orkuskólann á Akureyri
og í Reykjavík.
Á Vestfjörðum hafa nemarnir sótt ýmsa fyrirlestra
og kynningar á vegum Háskólaseturs Vestfjarða en
meginviðfangsefni þeirra er verkefnavinna um
hitaveitu Ísafjarðarbæjar. Í tilkynningu frá Háskóla-
setrinu segir að nemarnir hafi meðal annars notið
leiðsagnar starfsfólks Orkubús Vestfjarða.
Þá fræddi Dóra Hlín Gísladóttir, efnaverkfræðingur
hópinn um koltvísýring sem endurnýjanlegt eldsneyt-
ishráefni auk þess sem Gunnar Páll Eydal ræddi
möguleikann á sjálfbærum Vestfjörðum. Nemarnir
stefna svo að því að kynna verkefni sín síðar í vikunni.
Helgina nýtti hópurinn til að fræðst um Gísla sögu
Súrsonar undir leiðsögn Þóris Arnars Guðmundssonar,
leiðsögumanns. Fór hann um slóðir sögunnar auk þess
sem Elfar Logi Hannesson flutti einleik um Gísla.
- ovd
Vinna verkefni um hitaveitu
FRÆÐAST UM ENDURNÝJANLEGA ORKUGJAFA Á Ísafirði hitti
hópurinn Carol van Voorst, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi,
sem sótti með þeim fyrirlestur um Vestfirði.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
4
23
61
0
5/
08
Jarðfræði
í Elliðaárdal Þriðjudagskvöldið 29. júlí verður farin göngu- og fræðslu-
ferð í Elliðaárdal undir leiðsögn Einars Gunnlaugssonar
jarðfræðings. Jarðfræði Elliðaárdals er stórkostleg. Í dalnum má
t.d. finna jökulrákaðar grágrýtisklappir, hraun frá nútíma, sjávar-
hjalla og merkileg setlög. Gangan hefst við Minjasafnið
í Elliðaárdal kl. 19.30. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir.
• OR ætlar að knýja meirihluta bílaflota síns með vistvænum eldsneytisgjöfum árið 2013. www.or.is