Fréttablaðið - 28.07.2008, Side 50
26 28. júlí 2008 MÁNUDAGUR
Íslandsmótið í höggleik 2008
Karlaflokkur
1.Kristján Þór Einarsson, GKJ 284
1. Björgvin Sigurbergsson GK 284
1. Heiðar Davíð Bragason GR 284
4. Sigmundur Einar Másson GKG 287
5. Sigurpáll Geir Sveinsson, GKJ 288
6. Örn Ævar Hjartarson, GS 290
7. Júlíus Hallgrímsson, GV 292
7. Ottó Sigurðsson, GR 292
9 Guðjón H. Hilmarsson, GKG 293
9. Haraldur Franklín Magnús, GR 293
11. Ólafur Björn Loftsson, NK 295
11. Auðunn Einarsson, GK 295
11. Birgir Guðjónsson GR 295
14. Pétur Óskar Sigurðsson, GR 296
15. Sigurþór Jónsson, GR 298
16 Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG 299
16. Ólafur Hreinn Jóhanness., GS 299
16. Þorsteinn Hallgrímsson,GV 299
19. Axel Bóasson,GK 300
19. Hlynur Geir Hjartarson,GK 300
19. Arnar Snær Jóhannsson,GR 300
19. Stefán Már Stefánsson,GR 300
19. Andri Þór Björnsson,GR 300
- umspilið- (16. til 18. hola)
1.Kristján Þór Einarsson, GKJ 12 (-1)
1. Heiðar Davíð Bragason GR 12 (-1)
3. Björgvin Sigurbergsson GK 14 (+1)
- bráðabani-
1. Kristján Þór Einarsson, GKJ 9 (-1)
2. Heiðar Davíð Bragason GR 10 (Par)
Kvennaflokkur
1. Helena Árnadóttir,GR 308
1. Nína Björk Geirsdóttir,GKJ 308
3. Tinna Jóhannsdóttir,GK 311
4. Eygló Myrra Óskarsdóttir,GO 313
5. Ragnhildur Sigurðardóttir,GR 316
6. Ásta Birna Magnúsdóttir,GK 317
6. Valdís Þóra Jónsdóttir,GL 317
8. Þórdís Geirsdóttir,GK 319
9. Hanna Lilja Sigurðardóttir,GR 331
9. Ragna Björk Ólafsdóttir,GK 331
- umspilið- (10. til 12. hola)
1. Helena Árnadóttir,GR 12 (+1)
1. Nína Björk Geirsdóttir,GKJ 12 (+1)
- bráðabani- (10. og 11. hola)
1. Helena Árnadóttir,GR 10 (+2)
2. Nína Björk Geirsdóttir,GKJ 12 (+4)
LOKASTAÐAN
GOLF Íslandsmeistaramótið í golfi
fór tveimur tímum fram úr
áætlun í gær þar sem bæði karla-
og kvennakeppni fóru alla leið í
bráðabana. Þetta er í fyrsta sinn
sem þarf umspil í báðum flokkum
á Íslandsmótinu í höggleik. - óój
UMSPIL SÍÐUSTU 30 ÁR:
Karlaflokkur
2008
Kristján Þór Einarsson úr Kili vann
Heiðar Davíð Bragason úr GR í
bráðabana eftir þriggja manna umspil
við Heiðar og Björgvin Sigurbergsson
úr Keili.
1999
Björgvin Sigurbergsson úr Keili vann
Örn Ævar Hjartarson úr GS í umspili á
Hvaleyrinni.
1990
Úlfar Jónsson úr GK vann Ragnar
Ólafsson úr KR í umspili á Jaðarsvelli
á Akureyri.
1978
Hannes Eyvindsson úr GR vann Gylfa
Kristinsson úr GS í umspili á Hólm-
svelli í Leiru.
Kvennaflokkur
2008
Helena Árnadóttir úr GR vann Nínu
Björku Geirsdóttur úr Kili í umspili í
vestmannaeyjum.
2006
Helena Árnadóttir úr GR vann Ragn-
hildi Sigurðardóttur úr GR í umspili á
Urriðavelli.
2005
Ragnhildur Sigurðardóttir úr GR vann
Ólöfu Maríu Jónsdóttur úr Keili í
umspili á Hólmsvelli í Leiru.
2001
Herborg Arnarsdóttir úr GR vann
Ólöfu Maríu Jónsdóttur úr Keili í
umspili á Grafarholtsvelli.
Íslandsmótið í golfi í gær:
Sögulegur endir
TAPAÐI Í BRÁÐABANA Heiðar Davíð
Bragason klúðraði hreinlega frábærri
stöðu í lokin. VÍKURFRÉTTIR/VALUR
GOLF Helena Árnadóttir úr GR
sýndi að hún er með sannkallaðar
stáltaugar þegar hún tryggði sér
öðru sinni Íslandsmeistaratitilinn
eftir umspil.
„Jú, ætli ég sé ekki bara með
stáltaugar,“ sagði Helena kát
þegar Fréttablaðið náði í skottið á
henni að gera sig klára fyrir loka-
hátíð mótsins. „Þetta var bara
fram og til baka. Þetta var örugg-
lega spennuþrungnasti lokadagur
sem ég hef spilað. Ég er mjög
sátt,“ sagði Helena og bætti við:
„Fyrir tveimur árum var ég
hálfpartinn dottin úr keppninni
eftir fyrstu tíu holurnar á loka-
deginum en svo kom ég til baka.
Núna var þetta miklu jafnara,“
segir Helena sem þurfti eitt
meistarahögg á átjándu til þess
að tryggja sér umspilið. Þetta var
ekki fyrsta meistarahöggið henn-
ar á mótinu í Eyjum. „Þau eru
búin að vera nokkur dálítið góð,“
segir Helena hógvær.
Hún segir að það hafi reynt
mikið á að spila í þessu roki enda
dróst keppnin talsvert. „Ég hafði
trú á því allan tímann að ég gæti
unnið og þyrsti mikið í sigurinn.
Ég ætlaði ekki að gefa neitt eftir.
Þetta var mjög erfitt og maður
þurfti að taka á öllu sínu til þess
að halda einbeitingunni. Maður
tók þetta bara á þrjóskunni í
lokin,“ segir Helena sem segist
vinna í andlega þættinum.
„Ég veit ekki hvaðan þessar
stáltaugar koma. Ég er nú með
BA-próf í sálfræði og það er
kannski hugsanlegt að það hjálpi
mér eitthvað,“ sagði Helena í létt-
um tón. Hún lét það ekkert á sig
fá að kylfusveinninn hennar sem
er jafnframt móðir hennar skyldi
úlnliðsbrotna á öðrum deginum.
„Ég var ekkert að láta það trufla
mig enda hefði hún ekki orðið
ánægð með það,“ sagði Helena og
móðir hennar, Kristín Margrét
Axelsdóttir, var sú fyrsta til að
faðma hana þegar titillinn var í
höfn. - óój
Helena Árnadóttir úr GR vann Íslandsmeistaratitilinn aftur eftir umspil og sýndi að hún er með stáltaugar:
Kannski að sálfræðiprófið hjálpi eitthvað
TAUGALAUS Helena Árnadóttir
sýndi mikinn andlegan styrk á
lokadeginum. VÍKURFRÉTTIR/VALUR
GOLF Íslandsmótinu í höggleik lauk
með dramatískum lokadegi þar
sem í fyrsta sinn í sögunni þurfti
umspil í bæði karla- og kvenna-
flokki til þess að skera úr um sig-
urvegara. Kristján Þór Einarsson
úr Kili vann sinn fyrsta titil eftir
að hafa óvænt komið inn í barátt-
una og unnið síðan Heiðar Davíð
Bragason úr GR í bráðabana. Hel-
ena Árnadóttir úr GR hafði betur í
bráðabana eftir mikla baráttu
Íslandsmeistara tveggja síðustu
ára.
Kristján Þór Einarsson var átta
höggum á eftir Heiðari Davíð
fyrir síðustu þrjár holurnar en
hann fékk fugl á átjándu og sá
sama tíma og skrautlegt klúður
Heiðars á sextándu kom Kristjáni
aftur inn í bartáttuna. Kristján
vann síðan Heiðar á endanum í
bráðabana eftir að þeir höfðu orðið
jafnir eftir þriggja manna umspil
við Björgvin Sigurbergsson úr
Keili.
Heiðar Davíð Bragason virtist
vera með sigurinn vísan eftir fyrri
níu holurnar en hann var þá enn
með fimm högga forskot eins og
hann hafði fyrir lokadaginn. Eftir
frábæra spilamennsku á fyrstu 63
holunum fór hins vegar allt í bak-
lás hjá honum á síðustu níu holun-
um. Björgvin Sigurbergsson vann
fyrst tvö högg á hann þegar Heið-
ar fékk þrjá skolla í röð á holum 10
til 12 en ævintýrið hófst fyrst á
sextándu holunni.
Sextánda holan fór illa með
Björgvin en skelfilega með Heið-
ar Davíð sem var á þremur högg-
um undir pari og með þriggja
högga forskot á Björgvin þegar
þeir fóru á teiginn á sextándu.
Heiðar setti þá þrjá bolta út fyrir
völl sem þýddi að hann varð að
taka fjórða bolta á teig og slá þar
sjöunda höggið sitt. Heiðar endaði
á að fá 11 högg á holuna en það eru
6 högg yfir pari. Björgvin lenti
líka í miklum vandræðum og fékk
8 högg á þessa holu þannig að stað-
an var allt í einu orðin jöfn og um
leið var Kristján Þór Einarsson úr
Kili kominn inn í baráttuna en
hann lék frábærlega á fjórða degi
og kom inn á par og um leið á fjór-
um höggum yfir pari samanlagt.
Heiðar og Björgvin fengu báðir
skolla á 17. holunni en tryggði sér
umspil með því að ná pari á 18. og
síðustu holunni. Umspilið var því
staðreynd.
Heiðar og Kristján léku frá-
bærlega í umspilinu og enduðu
báðir á einu höggi undir pari en
Björgvin lék aftur á móti höggi
yfir pari. Kristján átti eitt högg á
þá báða fyrir þriðju og síðustu
holuna í umspilinu en Heiðar
tryggði sér þá bráðabana með því
að ná fugli.
Helena Árnadóttir endurtók
leikinn frá 2006 þegar hún vann
sinn annan Íslandsmeistaratitil í
Eyjum í gær. Alveg eins og fyrir
tveimur árum þá vann hún ríkj-
andi Íslandsmeistara í umspili (og
bráðabana).
Þær Helena og Nína Björk voru
jafnar eftir 72 holur en Helena lék
fjórða hringinn á 77 höggum og
vann upp eina höggið sem Nína
Björk hafði í forskot fyrir loka-
daginn. Það var mikil taugaspenna
á lokasprettinum. Helena var
höggi á undan fyrir síðustu tvær
holurnar en fékk tvöfaldan skolla
á sautjándu þegar hún sló yfir flöt-
ina og í vatnið. Nína fékk aftur á
móti par og var því komin með
eins höggs forskot fyrir lokahol-
una. Helena bætti fyrir holuna á
undan með því að eiga frábært
högg inn á flöt og náði fugli í kjöl-
farið á sama tíma og Nína fékk
öruggt par.
Það þurfti síðan fimm holur til
þess að skera út um Íslandsmeist-
arana því stelpurnar voru aftur
jafnar eftir þriggja holu umspil.
Þær léku fyrst 10., 11. og 12. holu í
umspili og fengu báðar par á 10.,
skolla á 11. og par á 12. holu. Báðar
fengu síðan tvöfaldan skolla á
fyrstu holu í bráðabana (10. hola)
en Helena stóðst pressuna og náði
pari á annarri holu í bráðabana
(11. hola). Nína átti möguleika á að
jafna hana en átti slakt pútt og
varð að lokum að sætta sig við tvö-
faldan skolla. Helena var þar með
orðin Íslandsmeistari í annað
skiptið á þremur árum. Tinna
Jóhannsdóttir úr GK varð í þriðja
sæti, þremur höggum á eftir þeim
Helenu og Nínu og Eygló Myrra
Óskarsdóttir úr GO endaði í fjórða
sæti en hún var í forustu eftir tvo
fyrstu dagana.
ooj@frettabladid.is
Dramatíkin engu lík á lokadeginum
Kristján Þór Einarsson úr Kili og Helena Árnadóttir úr GR eru Íslandsmeistarar í höggleik eftir spennu-
þrunginn og vindasaman lokadag á Íslandsmótinu í Eyjum. Heiðar Davíð Bragason klúðraði frábærri stöðu.
ÍSLANDSMEISTARARNIR 2008 Kristján Þór Einarsson úr Kili og Helena Árnadóttir úr
GR með bikarana í mótslok. VÍKURFRÉTTIR/VALUR
GOLF Kristján Þór Einarsson lék
frábærlega síðasta daginn og vann
Íslandsmeistaratitilinn þrátt fyrir
að hefja leik ellefu höggum á eftir
fyrsta manni. Kristján lék loka-
hringinn á einu höggi undir pari
og spilaði síðan óaðfinnanlega í
umspilinu og bráðabananum.
„Það er nokkuð ljúft að vera
kominn með titilinn. Ég ætlaði
mér að bæta árangurinn frá því í
fyrra þegar ég lenti í áttunda sæt-
inu. Þetta var skemmtilegur endir
á þessu,“ sagði Kristján Þór og
bætti við:
„Þegar þeir lentu í þessu veseni
á sextándu þá opnaðist þetta aftur
fyrir mig,“ sagði Kristján sem
sagðist hafa vitað stöðu mála
þegar hann setti niður púttið fyrir
fugl á lokaholunni en það átti eftir
að tryggja honum sæti í umspil-
inu. „Ég vissi þá að ég átti aftur
möguleika og það var mjög sterkt
að setja það pútt niður,“ sagði
Kristján.
„Ég var að spila mjög vel í dag
og það gekk næstum því allt upp
hjá mér,“ sagði Kristján sem var
ekkert stressaður að glíma við
reynsluboltana Björgvin Sigur-
bergsson og Heiðar Davíð Braga-
son í umspilinu.
„Ég var bara stressaður í fyrsta
högginu á fyrstu holunni í umspil-
inu. Það var eina höggið sem ég
var stressaður fyrir. Ég setti niður
mjög gott pútt á þeirri holu sem
gaf mér sjálfstraust,“ segir Kristj-
án sem sagðist hafa átt að klára
þetta strax í umspilinu. „Ég var
bara klaufi á átjándu að setja ekki
niður gott pútt en þetta hafðist í
lokin,“ sagði Kristján að lokum.
„Ég bjóst aldrei við þessu. Ég og
Simmi sem vorum að spila saman
í dag töluðum saman á annarri og
vorum að veðja á hvað Heiðar
myndi vinna þetta með mörgum
höggum. Við veðjuðum á sjö
högg,“ sagði Kristján í léttum tón.
Það getur hins vegar allt gerst í
golfinu og þá sérstaklega í Eyjum.
- óój
Kjalarsmaðurinn Kristján Þór Einarsson átti frábæran lokadag og tryggði sér fyrsta titilinn í bráðabana:
Byrjaði daginn 11 höggum á eftir Heiðari
FRÁBÆR Í GÆR Kristján Þór Einarsson
lék vel á lokadeginum en enn betur í
umspilinu. VÍKURFRÉTTIR/VALUR