Fréttablaðið - 06.08.2008, Blaðsíða 8
MARKAÐURINN 6. ÁGÚST 2008 MIÐVIKUDAGUR8
Ú T T E K T
J
arðeldsneyti er takmarkað og
ljóst er að síhækkandi eldsneyt-
isverð er að sliga atvinnuvegi
landsins og að hagkvæmara er
orðið að leita annarra leiða til
að knýja ökutæki í framtíðinni. Í bók
sinni, Dögun vetnisaldar – róteindin
tamin fjallar Þorsteinn Ingi Sigfússon
um vetni sem orkugjafa. Bókin er gefin
út samtímis á íslensku og ensku.
Þorsteinn er prófessor í eðlisfræði
við Háskóla Íslands og hlaut á síðasta
ári Alheimsorkuverðlaun fyrir rann-
sóknir á framþróun hug-
mynda og tækni fyrir vetn-
isnotkun.
„Þegar ég hugleiddi að-
ferðafræði bókarinnar
hugsaði ég að nóg væri
komið af bókum um hrein
verkfræðileg efni og taldi
miklu fremur að nauðsyn-
legt að skrifa bók sem hinn
fróðleiksfúsi, almenni les-
andi gæti lesið og tileinkað
sér,“ segir Þorsteinn.
Hann segir að ein af meg-
inkenningum bókarinnar sé
að mannkynið hafi nýtt sér
rafeindina til tæknifram-
fara og að vonandi verði
hægt að nýta róteindina úr
vetni til svipaðra tækni-
framfara. Þorsteinn bendir
á að rafeindin er notuð í allt
frá rafmótorum til tölva og
heilu kerfisráða kjarnorku-
verunum. „Hugmyndin er
að reyna að beisla róteind-
ina, sem er kjarninn í vetn-
inu, með svipuðu móti,“
segir hann.
Þorsteinn bendir á að
tæknin sé ákveðnum erf-
iðleikum háð, mun erfið-
ara sé að temja róteind-
ina heldur en rafeindina og
róteindatækni því miklu flóknari en
rafeindatækni. „Það er erfitt að slíta
hana úr sambandi eins og til dæmis
í vetnissameindinni. Það er erfitt
að geyma vetni, þetta léttasta allra
frumefna er svo frekt á allt rúmmál
geymslunnar,“ segir hann.
ÓDÝR OLÍA LIÐIN TÍÐ
Úr hverju kílói af vetni fæst þrefalt
meiri orka en úr sambærilegu jarð-
efnaeldsneyti. Þorsteinn segir það
geta skapað ákveðin vandamál og
mikilvægt sé að huga vel að örygg-
ismálum.
„Ég tók þann pól í hæðina að ræða
um vetni sem mjög líklega stoð við
næstu orkubyltingu á jörðinni. Hins
vegar var ég ekki tilbúinn til að sjá
jarðefnaeldsneytið hverfa; sá vetn-
ið miklu fremur smám saman ógna
jarðefnaeldsneytinu einkum þar
sem unnt væri að notast við endur-
nýjanlega orku við að vinna vetnið,“
segir Þorsteinn.
Spurður um hvort dagar olíu séu
taldir segir þorsteinn svo ekki vera.
„Ég spái því engan veginn að dagar
olíunnar séu taldir. Miklu fremur
hygg ég að menn muni fara um lang-
an veg til að kreista olíuna upp á yf-
irborðið og viðskipti með olíu munu
halda áfram að verða mjög ábata-
söm. En, eins og Shell hefur sagt, þá
tel ég að dagar hinnar ódýru olíu séu
taldir,“ segir hann.
AÐDRAGANDI BÓKARINNAR
Þorsteinn hefur flutt marga fyrir-
lestra um endurnýjanlega orku og
vetni sem orkubera. Þegar þetta
viðtal er tekið er Þorsteinn á leið í
fyrirlestraferð til Skotlands og ný-
kominn frá Ástralíu þar sem hann
hélt fyrirlestra um vetni. „Eftir að
orkumálaráðherrar 16 ríkja stofn-
uðu IPHE-vetnissamtökin í Wash-
ington 2003 ágerðist enn meira þessi
þáttur í mínu lífi – að fara um heim-
inn og halda fyrirlestra,“ segir hann.
„Auk þess,“ bætir hann við,“ skor-
uðu margir á mig að taka vetnisboð-
skapinn saman í bók og leyfa heim-
inum njóta.“
„Fyrir um fjórum árum fór ég að
safna saman efni í bók sem í upp-
hafi var hugsuð á ensku. Ég einsetti
mér að skrifa bók þar sem lesand-
inn væri með mér í ferð um jörð-
ina. Reyndar hefst bókin á bréfi frá
framtíðinni sem er eins konar að-
ferð til að tengja vísindaskáldsagna-
Dögun vetnisaldar
– veruleiki eða framtíðarsýn
Þorsteinn Ingi Sigfússon prófessor
gaf nýlega út bókina Dögun vetnisald-
ar – róteindin tamin. Þar veltir hann
upp þeirri spurningu hvort hægt sé
að temja róteindina í vetni á svip-
aðan hátt og gert hefur verið með
rafeindina. Björn Þór Arnarson ræddi
við Þorstein um vetni, nýju bókina
og framtíðarmöguleika vetnis sem
orkugjafa. Þorsteinn hlaut á síðasta
ári Alheimsorkuverðlaunin fyrir rann-
sóknir sínar á vetni. Verðlaunin eru
talin ígildi Nóbelsverðlauna á sviði
orkurannsókna.
Ég spái því
engan veg-
inn að dagar
olíunnar séu
taldir. Miklu
fremur hygg ég
að menn muni
fara um lang-
an veg til að
kreista olíuna
upp á yfirborð-
ið og viðskipti
með olíu munu
halda áfram
að verða mjög
ábatasöm. En,
eins og Shell
hefur sagt, þá
tel ég að dagar
hinnar ódýru
olíu séu taldir.
… bílaleigan Hertz hefur þrettán vetnisbíla á sínum snærum sem
leigðir eru út.
… á Íslandi var opnuð fyrsta vetniseldsneytisstöðin í heimi árið 2003.
… hvalaskoðunarbáturinn Elding er knúinn áfram að hluta með
vetni.
… vetnið er framleitt með rafgreiningu úr fersku vatni frá veitukerfi
Orkuveitu Reykjavíkur.
… vetni er léttasta frumefnið og ákaflega eldfimt.
… nýverið ákvað Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra að vinna að
því að stofna fjölorkustöðvar víða um land.
… efnarafalar breyta vetni og vetnissamböndum í rafmagn.
… vetnið er svo orkumikið að úr hverju kílói af vetni fæst þrefalt meiri
orka en úr sambærilegu magni af jarðefnaeldsneyti.
V I S S I R Þ Ú A Ð . . .