Fréttablaðið - 06.08.2008, Side 10

Fréttablaðið - 06.08.2008, Side 10
MARKAÐURINN 6. ÁGÚST 2008 MIÐVIKUDAGUR10 S K O Ð U N ÚT GÁFU FÉ LAG: 365 – prentmiðlar RIT STJÓRAR: Björn Ingi Hrafnsson og Óli Kr. Ármannsson RITSTJÓRN: Annas Sigmundsson, Björn Þór Arnarson, Hólmfríður Helga Sigurðardóttir, Ingimar Karl Helgason, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, Sindri Sindrason AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal RIT STJÓRN OG AUGLÝSING AR: Skaftahlíð 24, 105 Reykja vík AÐ AL SÍMI: 512 5000 SÍMBRÉF: 512 5301 NETFÖNG: rit stjorn@markadurinn.is og aug lys ing ar@markadurinn.is VEFFANG: visir.is UM BROT: 365 – prentmiðlar PRENT VINNSLA: Ísa fold arprent smiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Markaðinum er dreift ókeyp is með Fréttablaðinu á heim ili á höf uðborg ar svæð inu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands byggðinni. Markaðurinn áskil ur sér rétt til að birta allt efni blaðs ins í staf rænu formi og í gagna bönk um án end ur gjalds. annas@markadurinn.is l bjorn.ingi@markadurinn.is l bjornthor@markadurinn.is l holmfridur@ markadurinn.is l ingimar@markadurinn.is l jonab@markadurinn.is l olikr@markadurinn.is l sindri@markadurinn.is Sögurnar... tölurnar... fólkið... O R Ð S K Ý R I N G Fljótandi gengi ræðst algerlega af framboði og eftirspurn en er ekki miðað við annan gjaldmiðil eða gengisvog. Andstaðan við fljótandi gengi er fast gengi en það er oftast ákveðið af seðlabanka. Fullkomlega fljótandi gengi er þegar stjórnvöld reyna ekki að koma í veg fyrir gengissveiflur. Stýrt flot er þegar opinberir aðilar, sér í lagi seðlabanki, reyna að hafa áhrif á gengið. Undanfarna tvo áratugi hefur íslenska krónan verið fljótandi. Seðlabanki Íslands reyndi að stýra flotinu allt til ársins 2001 en síðan þá hefur bankinn ekki haft það að markmiði að halda genginu innan ákveðinna marka. Helsta markmið hans er að halda verðbólgu niðri þannig að gengi krónunnar hefur samt sem áður haft áhrif á aðgerðir bankans. Einn stærsti kosturinn við fljótandi gengi er að stjórnvöld hafa svigrúm til að haga peningamálastjórn sinni eftir þörfum efnahagslífsins. Helsti ókosturinn er að fljótandi gengi hættir til að hækka og lækka á víxl og oft langt umfram verð á vöru og þjónustu. Spákaupmenn geta t.a.m. aukið gengissveiflurnar. Þetta getur haft vond áhrif á erlend viðskipti og hagvöxt. Samkvæmt Vísindavef Háskóla Íslands voru allir helstu gjaldmiðlar heims með fast gengi sem byggðist á gulli. Þá voru gjaldmiðlarnir á gullfæti en bak við hvern gjaldmiðil var loforð útgefandans um að láta seðlana fyrir gull. Þetta kerfi brotnaði niður við upphaf fyrri heimstyrjaldarinnar. Í kjölfarið var gengi allra helstu gjaldmiðla fest gagnvart Bandaríkjadollara en eftir 1970 var horfið frá þessu alþjóðlega fastgengiskerfi. Fastgengiskerfi er innan Evrópusambandsins. Þróun á upptöku evru er þannig að fyrst er gengi gjaldmiðils haldið nokkuð föstu gagnvart evrunni, svo er það fest alveg og síðan er tekin upp evra. Evran er hins vegar fljótandi á alþjóðagjaldeyris- mörkuðum. Bandaríkjadal er líka haldið föstum í Bandaríkjunum en gengi hans er fljótandi út á við. Fljótandi gengi Sú var tíðin að nokkuð stór hópur Íslendinga trúði hverju einasta orði sem Karl Marx hafði sett á blað. Bókstafstrú þessi hvarf góðu heilli en við tók önnur, litlu skárri, trúin á kennivald Miltons Friedman. Varla líður sá dagur að einhver álitshafi bergmáli ekki skrif Friedmans í fjölmiðlum þessa guðsvolaða lands. ÁVÍSANAKERFI Í SKÓLUM Til dæmis hafa ýmsir íslenskir álitshafar gleypt þá Friedmans- hugmynd hráa að ávísanakerfi í skólum sé allra skólameina bót. Ekkert bendir til þess að þeir hafi kynnt sér gagnrýni á þessa hugmynd, alla vega þegja þeir þunnu hljóði yfir henni. En hvað er átt við með „ávísanakerfi í skólum“? Átt er við kerfi þar sem skólar eru í einkaeign en foreldrar fá ákveðna upphæð frá hinu opinbera sem þeim er skylt að nota til að fjármagna skólagöngu barna sinna. Nefna má að breski heim- spekingurinn Harry Brighouse hefur gagnrýnt ávísanakerfis- hugmyndina og aðrar hugmynd- ir um allsherjar einkavæðingu skólakerfisins af nokkurri hind. Hann bendir á að skólakerfi sem byggir á einkarekstri hafi ýmsa galla. Til dæmis verður sam- keppnin ævinlega fremur tak- mörkuð því í reynd getur við- skiptavinurinn ekki valið milli nema fimm til sex skóla. Gagn- stætt því er venjulega til urm- ull af pípurum og rökurum sem velja má milli. Einnig er talsverður kostnað- ur við að skipta um skóla, mikið vesen kringum það flytja barn úr einum skóla í annan. Vart þarf að taka fram að ekkert til- tökumál er að skipta um rak- ara eða pípulagningamann. Til að gera illt verra getur eng- inn fengið fullkomnar upplýs- ingar um skóla, hvað þá full- komnar upplýsingar um hvaða skóli hæfi tilteknu barni best. Brighouse fordæmir samt ekki hugmyndina um ávísanakerfi en hvetur menn til að fara gæti- lega í sakirnar. PENINGAMAGNSKENNING Þegar Friedman hrökk upp af kepptust þeir Hannes Gissurar- son og Þorvaldur Gylfason um að lofsyngja hann og töluðu eins og hann væri það nýjasta nýtt í stjórnmálahagfræði. En hinn heimsfrægi hagfræðingur Paul Krugman segir annað í sinni minningargrein um Friedman. Hann viðurkennir vissulega að Friedman hafi gert ýmislegt vel en segir að peningamagnskenn- ing hans hafi ekki reynst vel í framkvæmd. Hafi því flestir gefist upp á henni. Nóbelshagfræðingurinn Joseph Stiglitz tekur í sama streng og kallar peningamagnskenninguna „einfeldningslega“. En hvað er peningamagnskenning? Hún er kenning um verðmyndun sem á sér eldgamlar rætur en Friedman dustaði rykið af henni fyrir margt löngu. Samkvæmt henni orsakast verðbólga af ofprentun peninga, magn peninga í umferð ræður verði. FRIEDMAN OG EINRÆÐISHERRANN Minnumst þess að Stiglitz segir að fylgispekt við kreddur Fri- ed mans hafi leitt til stórkreppu í Chile árið 1982. Bæta má við að hagfræðingurinn Kalle Moene segir að hagvöxtur á valdaskeiði Pinochets hafi ekki verið nema skitin tvö prósent og mestur eftir að einræðis- herrann losaði sig við Fried- manskreddurnar og tók upp blandaðan markaðsbúskap. Það fylgir sögunni að þeir Þorvald- ur og Hannes hafa sungið efna- hags-„afrekum“ einræðisherr- ans lof og prís og þakkað Fried- man þau. Ekki láta gagnrýnendur Fri- ed mans sér nægja að lasta pen- ingamagnskenninguna, sumir brigsla ameríska hagfræðingn- um um þjónkun og undirlægju- semi við stórauðvald og ein- ræðisherra á borð við Pino- chet. Þess lags gagnrýni má finna í bók Naomi Klein, The Shock Doctr ine. Hún segir líka að kennslan í hagfræðideild- inni í Chicago þar sem Fried- man réði ríkjum hafi líkst heila- þvotti meira en háskólakennslu. Nemendum hafi ekki verið kennt neitt annað en kreddur Chicagoskólans sem Friedman veitti forstöðu. Enn aðrir fræðimenn með vísindaheimspekinginn John Dupre í broddi fylkingar segja að kenningar Friedmans séu ekki prófanlegar og þar af leið- andi ekki vísindalegar. Reynd- ar er Dupre einn þeirra fjöl- mörgu fræðimann sem telja hag-„fræði“ froðu, ekki rétt- nefnd vísindi. Hvað sem þessu líður er bók- stafstrú mjög af hinu illa, hvort sem menn éta frasana upp úr Friedman eða Marx. Friedman og Ísland Stefán Snævarr prófessor í heimspeki O R Ð Í B E L G AFMÆLISFÖGNUÐUR Milton og Rose Friedman við hátíðlega athöfn ásamt George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, á níræðisafmæli Nóbelsverðlaunahafans Friedmans árið 2002. MARKAÐURINN/AFP Fagnaðarefni er ef breytist tónninn í erlendri umfjöllun um íslenskt fjármálakerfi. Þannig sagði í frétt Financial Times um helgina að upp- gjör viðskiptabankanna stóru hér, Kaupþings, Landsbankans og Glitn- is, hefðu slegið á ótta við að landið stæði frammi fyrir fjármálakreppu. Vissulega finndu þeir fyrir þrengingum vegna alþjóðlegs lausafjár- skorts, en bæru þó ekki stóran skaða af og tekist nokkuð vel að aðlag- ast nýjum aðstæðum. Uppgjörin eru hins vegar kannski ekki langt frá því sem ráð var fyrir gert hér heima, þótt ekki séu þau í takt við svartsýnustu spár í útlönd- um. Bankarnir halda sjó í erfiðu árferði og eiga hrós skilið fyrir það. Mikilsverðar eru þær breytingar sem bankarnir hafa gert á fjármögn- un sinni með aukinni áherslu á innlán. Á afkomukynningarfundi Kaup- þings fór Guðni Aðalsteinsson, framkvæmda- stjóri fjárstýringar Kaupþings, yfir þróunina þar á bæ og svaraði fyrirspurn á þann veg að vissulega kölluðu breyttar áherslur á annað vinnulag í áhættustýringu bankans. Þá eiga bankarnir einnig kost á fleiri leið- um í fjármögnun en skuldabréfaútgáfu eina, svo sem útgáfu breytanlegra skuldabréfa (sem yrðu þá að hlutafé í bönkunum, en þá leið hafa margir bandarískir bankar farið). Eins er hægt að vöndla saman húsnæðislánum þannig að þau geti fengið sjálfstætt mat alþjóðlegra matsfyr- irtækja. Slíka vöndla má svo til dæmis selja seðlabönkum ríkja á ásættanlegum kjörum. Í kjölfar uppgjöra bankanna hefur svonefnt CDS-álag (skuldatryggingarálag á fimm ára skuldabréfaútgáfu bank- anna) enda lækkað lítillega, þótt enn sé það með því hæsta sem verið hefur. Velta má fyrir sér ástæðum þess að það lækkar ekki hraðar en raun ber vitni. Spilar þar væntanlega inn í hversu óskilvirkur og ógagn- sær hann er þessi markaður með skuldatryggingar og hvernig hann ræðst fremur af tilfinningu einstakra miðlara á erlendum fjármála- mörkuðum. Tregða í lækkun skuldatryggingarálagsins kann líka að vera áminn- ing um að varhugavert sé að hlaupa upp til handa og fóta og fagna sigri í umræðuvandaslag íslensks fjármálakerfis. Frá því að þrengja tók að á mörkuðum erlendis hefur við hvert einasta uppgjör bankanna verið talið að tölurnar gætu beint umræðu um þá inn á réttar brautir, lausar við illa grundaðar vangaveltur um veika stöðu þeirra og vanda- mál í fjármögnun. Raunin hefur svo jafnan orðið sú að góðu fregnirn- ar gleymast hratt. Þannig var það fyrr á árinu þegar íslensku bankarnir voru nýbúnir að birta ársuppgjör sín og þóttust hafa unnið nokkurn sigur í umræðunni að svissneski stórbankinn Credit Suisse þurfti að afskrifa væna summu vegna undirmálslána. Við það bættust 10 punktar ofan á skuldatrygg- ingarálag svissneska bankans, en 30 til 40 punktar á þá íslensku, sem þó bera ekki nema óbeinan skaða af undirmálslánum í formi þrenginga á fjármálamörkuðum. Því er líklega rétt að bíða aðeins og sjá hver tónninn verður í áfram- haldandi umfjöllun um íslenskt efnahagslíf. Ekki er ólíklegt að erlenda greinendur fari enn að lengja eftir fréttum af lántöku til styrktar gjald- eyrisvarasjóði landsins og þar með baklandi bankanna. Þá eru blikur á lofti hvað varðar sparisjóði landsins sem margir hverjir standa höllum fæti eftir undangengnar lækkanir á hlutabréfamarkaði. Verkefnin fram undan eru ærin þótt aðeins hafi sést til sólar í erlendri umfjöllun. Þíða í erlendri umfjöllun um íslenskt fjármála- og efna- hagslíf hefur til þessa reynst skammgóður vermir: Enn má marka viðsnúning í skrifum Óli Kristján Ármannsson skrifar Tregða í lækkun skuldatrygging- arálagsins kann líka að vera áminning um að varhugavert sé að fagna sigri í umræðuvanda- slag.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.