Tíminn - 19.02.1982, Blaðsíða 6

Tíminn - 19.02.1982, Blaðsíða 6
6 Föstudagur 19. febrúar 1982 Wivmm aldarafmæli samvinnuhreyfinsarinnar á íslandi ■ „Enginn vafi leikur á þvi að samvinnuhreyf'ingin hefur markað djúp spor i islenskt þjóö- lif á þeirri öld sem nú er minnst. Meginatriðið er þó að samvinnu- hreyfingin verði hreyfing en ekki stofnun og að hún verði samtök fólks en ekki samsteypa fyrir- tækja, sem faxa fram i nafni sinna rekstrarlegu hagsmuna, gjörsamlega án tillits til hverjir eru hagsmunir þess fólks, sem samvinnuhreyfingin i öndverðu var stofnuð til að berjast fyrir, sagði Svavar Gestsson, félags- málaráðherra og formaöur Alþýðubandalagsins, þegar Tim- inn'spuröi hann hvað honum væri efst i huga við 100 ára afmæli samvinnuhreyíingarinnar i landinu. Svavar iiélt áfra: „Gildi sam- vinnuhreyfingarinnar er engu minna i dag en þaö var i önd- verðu. Gildi hennar felst i þvi, að samvinnufélög gel'a mönnum kost á þvi að taka þátt i aö stjórna at- vinnulifi eða framleiöslu eða verslun á tilteknum svæöum i landinu án tillits til elnahags viðkomandi einstaklings. Munur- inn á samvinnuíélagi og hluta- félagi er sá að i hlutalélagi hefst maöurinn til afls eftir f jármagns- eign sinni, i samvinnuíélagi er mögulegt fyrir hinn almenna mann að leita réttar sins og beita áhrifum sinum til jafns viö aöra menn. Vandinn er hins vegar sá að á undanlörnum árum og ára- tugum hefur lilandi lelagsstarf kaupfélaganna og samvinnu- félaganna ekki verið sem skyldi. Fólk hefur ekki fengist til aöf sinna samvinnustarfinu lrá degi til dags og þar al leiðandi hafa völd dregist i hendur fárra manna. Þessi háskalega stað- reynd birtist okkur i ferli fjöl- margra lýðhreyfinga alþýðu á undanförnum árum, en hún er ákaflega hættuleg vegna þess, að fái hún að standa áfram, hefur þaö i för með sér að völdin færast á hendur fárra manna og samvinnulyrir- tæki geta, viö slikar aðstæður, breyst i andstæöu sina, breyst i „Völd dregist í hendur farra manna,” segir Svavar Gestsson, formadur Alþýðu- bandalagsins um samvinnuhreyfinguna það afl, sem i upphafi var ætlunin að berjast á moti. Þá afmælisósk á ég besta til samvinnu- hreyfingarinnar að hún viröi grundvallarhugsjónir sinar, að forraðamenn hennar minnist þeirra i daglegum athöfnum. Samvinnuhreyfing án hugsjóna, félagshyggju, er engin samvinnu- hreyfing.” „Verkalýðshreyfingin og sam- vinnuhreyfingin hala á undan- förnum árum og áratugum olt á tiðum staðið hlið við hliö, en oft og raunar oftar eldaö grátt silfur saman. Þannig háttar nú til um stjórn landsmála á Islandi aö um er að ræða einskonar pólitiskt bandalag þar sem verkalýös- hreylingin og samvinnu- hreylingineiga verulega aöild aö. Þetta pólitiska bandalag skapar forsendur til þess að verja hið islenska þjóölélag fyrir þeim áföllum sem alþýða grannlanda okkar hefur orðið fyrir á undan- lörnum árum og hafa birst henni i geigvænlegu atvinnuleysi og stór- felldum samdrætti i hverskonar félagslegri þjónustu.” „Meginatriðiö er að samvinnu- hreyfingin átti sig á þessum félagslegu og stéttarlegu stað- reyndum hins islenska þjóð- félags.” „Staða samvinnuhreyfingar- innar nú og á næstu árum ræöst af þvi hvort hún skilur þessi grund- vallaratriði.” „Á undanlörnum árum hala komið fram ýmsar nýjungar i samvinnustarfi á Islandi. Þaö er athyglisvert að þessar nýjungar eru ekki sist utan þeirrar sam- vinnuhreyfingar sem nú minnisl afmælis sins i dag. Hér á ég fyrst og fremst viö íramleiðslusam- vinnulélögin, sem hala verið stofnuö og hafa staríað vel og með miklum árangri núna um nokkurra ára bil. Ég tel að það sé nauðsynlegt fyrir samvinnu- hreyfinguna, sem svo er kölluð i daglegu tali, aö átta sig á þessum breytingum sem hafa orðið úti i þjóðfélaginu. Þar hafa ákveðnir einstaklingar i stórum hópum svarað hugsjónum samvinnu- hreyfingarinnar,einsog þær voru i öndverðu, með athöínum sinum en hafa ekki fundiö farveg fyrir starfsemi sina innan hinna hefð- bundnu kaupíélaga, eöa Sam- bandsins, sem svo er kallað. Ég tel að i þessu íelist mjög ánægju- leg tiðindi i starl'i íramleiðslu- samvinnufélaganna, en i þeim felst einnig ákveðin áminning til samvinnuhreyíingarinnar.” „A þessum timamótum sem viö minnumst i dag þá óska ég þess helst fyrir samvinnuhreyfinguna að fólkið verði miklu virkara i starfi samvinnulélaganna en verið hefur. Fólkið getur ráðið stefnu og starfi samvinnu- hreyfingarinnar ef það gengur i samvinnufélögin og tekur þar virkan þátt. Þvi aðeins nær sam- vinnuhreyfingin að dafna og vera það afl framvegis, sem til var ætlast i öndverðu, að fólkiö fylki sér inn i samvinnufélögin til starfs og til átaka.” —Sjó. Svavar Gestsson, félagsmála- ráöherra. og formaður Alþýöu- bandalagsins. Geir Hallgrimsson, formaöur Sjálfstæðisflokksins. fódurblöndun kögglun HHHLJHkJi úrvals kjarnfóður FÓÐUR fóÖriÖ sem bœndur treysta Kostir MS fóöurs eru: Kúafóöur Stewartsalt fóður grasfrœ girðingarefni Sauðfjárfóður Hænsnafóður Ungafóður Svínafóður Vifoskal Cocura Magníumsalt Hestafóður Sími 1 11 25 • f fóðrinu eru islensk eggjahvítuefni úr okkar ágœta fiskimjöli. • MR tóður er ætíð nýmalað og blandað. • MR fóður er ávallt fyrirliggjandi. • MR fóður hefur áunnið sér orð sem gott fóður, enda blandað úr úrvals korn- tegundum frá bestu kornsvæðum heims. MJÓLKURFELAG REYKJAVIKUR „Er sterk og voldug,” segir Geir Hallgríms- son, formaður Sjálfstædisflokksins ■ „Ég tel samvinnuhreyfinguna afar mikilvæga fyrir islenskt þjóðlif. Samvinnuheyfingin átti mikinn þátt i þvi að flytja versl- unina inn i landið og er viða buröarás i atvinnulifi byggðanna,” sagði Geir Hallgrimsson, formaöur Sjálf- stæöisflokksins, þegar blaöamaður Timans spurði hann um gildi samvinnuhreyfingar- innar fyrir islenskt þjóðlif. — Hverja telur þú stööu sam- vinnuhreyfingarinnar núna? „Samvinnuhreyfingin er nú sterk og voldug. Ef til vill er það henni fjötur um fót að hún býr viöa ekki við nægilega sam- keppni. Hætt er þvi við að sam- vinnuhreyfingin staðni. 1 sam- vinnuhreyfingunni felst ekki tilgangur i sjálfu sér. Þaö veltur á þvi að tilgangi samvinnuhreyf- ingarinnar sé náð hvaða þjónustu samvinnuhreyfingin lætur fólki i té og hvort hún er tæki i höndum þess.” — A samvinnuhreyfingin sama erindi nú og fyrir 100 árum? „Samvinnuhreyfingin á ef til vill ekki sama erindi nú og fyrir 1Ó0 árum, en hún á vissulega enn erindi og mikilvægu hlutverki að gegna. Einkarekstur, þ.á.m. hlutafélagsrekstur, og samvinnu- rekstur eiga að búa við sömu skil- yröi og jafnrétti sin á milli. öllum atvinnurekstri, án tillits til félags- eða fyrirtækjaforms á aö skapa frelsi til framkvæmda og athafna og skilyrði til eigin fjármuna- myndunar. Meö þeim hætti er at- vinnuöryggi og batnandi lifskjör almenningi til handa best tryggð. Reynslan mun og þannig leiða i ljós hagkvæmustu verkaskipt- ingu milli samvinnurekstrar og einkareksturs.” — Ef eitthvað, hvað finnur þú henni til foráttu? „Samvinnuhreyfingin hefur veriö misnotuö i pólitiskum tilgangi. Þótt sú pólitiska mis- notkun hafi oft fært samvinnu- félögum forréttindi, þá er ég þeirrar skoðunar að hún hafi skaðað samvinnuhreyfinguna sem slika. Samvinnuhreyfingin á að vera utan pólitiskra flokkadrátta og sýna gildi sitt i frjálsu markaðs- kerfi við hliö annars atvinnu- reksturs. Vandamál sam vinnuhreyf- ingarinnar er og að tryggja áhrif og sjálfstæði hvers einstaks félagsmanns en eyða þeim ekki með mörgum millistigum félags- deildaskipulags og innskriftar- fyrirkomulagi verslunarviðskipta i ætt við selstöðukaupmenn i staö peningaviöskipta. Ég vil nota þetta tækifæri, þegar islensk samvinnuhreyfing heldur hátiðlegt 100 ára afmæli sitt til aö óska samvinnuhreyfing- unni heilla og farsældar á kom- andi árum,” sagði Geir Hallgrimsson að lokum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.