Tíminn - 29.05.1982, Síða 15
Laugardagur 29. mai 1982
og leikhús - Kvikmyndir og leikhús
15
■ Michael (Paul Newman) og Megan (Sally Fields) I „Absence
of Malice”.
Rannsóknar-
blaðamennska
fær á baukinn
■ Bandarisk rannsóknarblaðamennska hefur
verið hafin til skýjanna i ýmsum þekktum
bandariskum kvikmyndum siðustu árin, og
minnist ég þá alveg sérstaklega ,,A11 The
President’s Men” og ,,The China Syndrome”.
En allter iheiminum hverfult, og nú er Sydney
PoIIack, einn af bestu leikstjórum Bandarikj-
anna, búinn að gera athyglisverða kvikmynd,
þar sem rannsóknarblaðamennskan fær á
baukinn.
Sidney Pollack hefur gert
margar forvitnilegar kvik-
myndir, og má þar m.a. nefna
,,The Way We Were”, „Three
Days of the Condor” og ,,The
Electric Horseman”. Hann
tekur gjarnan til meöferðar
mikilsverð málefni i samtim-
anum, og athyglisverðar per-
sónur, sem rekast saman við
rás atburðanna.
í nýjustu myndinni, sem ber
nafnið „Absence of Malice”,
er það rannsóknarblaða-
■mennskan í Bandarikjunum,
sem tekin er til meöferðar.
Höfuðpersónurnar eru tvær:
Megan Carter (leikin af Sally
Fields), blaðakona við stór-
blað i bandariskri borg, og
Michael Gallagher, áfengis-
heildsali, leikinn af Paul New-
man.
Megan skýrir ranglega frá
þvi i frétt i blaði sinu, að
Michael sé flæktur inn i hvarf
verkalýðsforingja nokkurs, og
vekur i leiðinni athygli á þvi
að faðir Michaels hafi verið
glæpamaður. Hún var ginnt
til þess að skrifa þessa frétt af
rannsóknarlögr. manni (Bob
Balaban), sem hugðist með
þessu þrýsta á Michael að
gefa upplýsingar um, hverjir
væruliklegir til að hafa staðið
á bak við glæpinn. Balaban
sjálfur vissi allan timann að
Michael var hvergi viðriðinn,
en taldi þetta eina leið til að ná' :Elías Snæland
árangri við rannsókn málsins Jónsson
og Megan féll sem sé i gildr- skrifar
una. Michael bregst að sjálf- _
sögðu hart við þessu og fund-
um hans og Megan ber saman.
Maliö þróast svo stig af stigi.
Skrif Megans veröa m.a. til
þess að skaða alvarlega ó-
framfærna, dygga konu (Mel-
inda Dillon), sem heíur lengi
verið náinn vinur Michaels.
Að sögn bandariskra gagn-
rýnenda er mynd þessi áhrifa-
mikil og sérlega vel leikin.
Paul Newman er t.d. talinn
standa sig hér betur en i flest-
um öðrum hlutverkum siðustu
árin.
Nafn myndarinnar, „Ab-
sence of Malice”, þýðir nánast
„An illvilja”, og er bein til-
vitnun i bandarisk lög, sem
eru m jög á annan veg en hér á
landi. Vestra er sem sagt ekki
hægt að dæma blaðamenn fyr-
ir að segja sannleikann — eins
og hægt mun hér á landi — og
það er heldur ekki hægt að
dæma þá fyrir að segja ósatt á
prenti ef þeir geta sannaö þaö,
að skrif þeirra hafi verið „án
illvilja”, en þaö er einmitt
vörn Megan Carters i mynd-
inni.
—ESJ.
★ Meö hnúum og hnefum
★ ★ ★ Ránið á týndu örkinni
★ ★ Dóttir kolanámumannsins
O Gereyðandinn
★ ★ ★ Eldvagninn
★ ★ Lögreglustöðin i Bronx
★ ★ ★ Fram i sviðsljósið
Stjörnugjöf Tímans
♦ ★ * * frábær ■ * ♦ * mjög ^óó * * ★ góð • ★ sæmíleg * O léleg
4