Tíminn - 06.06.1982, Síða 3
SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1982
3
Ekki leið þó á mjög löngu áður en svo
undarlega vill tii að þessir sömu
þremenningar mæta mér á götu að nýju
og vilja enn hafa tal af mér. „Þú dregur
ekki af þér við vinnuna, þrátt fyrir góð
ráð,“ segja þeir nú. „Þú ættir að gæta
þess að hér í Katowice er mikil iðnaðar
og athafnaborg. Af því leiðir að hér er
mikil umferð alls konar bíla og vagna.
Okkur er sagt að þú eigi tvo stráka og
strákar eru nú alltaf strákar og gera verið
ógætnir. Gáðu að þessu. Þú þarft ekki
að vera hræddur, en festu þér þetta í
minni.“
Þessari vinsamlegu aðvörun var fylgt
eftir í þriðja sinn, þegar ég hitti
þremenningana enn að nokkrum dögum
liðnum: „Þú munt ekki hafa tekið okkur
alvarlega," segja þeir. „Þú hefur liklega
bara gleymt þessu. En við verðum þá
aftur að vara þig við, því eitthvað
slysalegt kann að koma fyrir."
Ég sagði konunni minni ekki frá þessu
fyrr en við vorum komin frá Póllandi.
Ég sagði vinum minum frá þessu, en
hvað gátu þeir gert? Þeir gátu ekkert
gert nema fórna höndum og snúist i
hringi, eins og sili i vatnsfötu. Á
ritstjórnarskrifstofunni fékk ég í sífellu
fréttir á „telex" um alls konar slys,
bílslys og allskyns dauðsföll, rétt eins og
gengur. Mér hafði aldrei orðið hugsað
til þess að þau kynnu að hafa orðið til á
kynlegan hátt....
Ég ákvað þvi að fara frá Póllandi,
heldur en láta reyna á hvort alvara lægi
að baki orðum þremenninganna.
Ákvörðunin varð auðveld þegar mér
barst bréf um að mér væri sagt upp
starfinu á lækningastofnuninni og við
heilsugæsluskipuiagninguna líka. Bæði
uppsagnarbréfin voru dagsett sama
dag, - 31. september. Enn ein skrýtin
tiiviljunin. Ég átti nokkurra daga oriof
inni og gat þvi hætt strax og umsókn mín
um vegabréfsáritun gekk óvenju greið-
lega. Algengt var að fjölskylda fengi
aðeins áritun fyrir foreldrana og
kannske eitt barn, ef þau voru fleiri, eða
þá aðeins fyrir foreldrana. En ég fékk
umyrðalaust áritun fyrir okkur öll.
Þann 22. september hélt ég því úr
landi með járnbrautinni sem ber nafn
tónskáldsins „Chopin“, - til Austur-
ríkis.“
Hvad verður?
„Nei, ég veit ekki hvað nú tekur við
i Póllandi. Ekki óska ég eftir borgara-
stríði þar, en komi til þess, þá mun til
þess verða engt af stjórnvöldunum, en
ekki þjóðinni. Pólverjar eru orðnir
fullsaddir af stríðum. Hvernig stendur á
því að þessi þjóð sem árið 1935 var
stærsti útflytjandi matvæla í Evrópu er
nú ekki einu sinni sjálfri sér nóg. Þetta
góða og rika lands, sem Pólland er.
Skýringarinnar er að leita í efnahags-
stjórnun stjórnvalda, sem þjóðin hefur
aldrei óskað eftir að hafa yfir sér. En
tíminn sker úr hvað verður. Nú er
efnahagsástandið þannig að Rússar
verða að veita Póllandi aðstoð. Það mun'
veikja þá og ég er meðmæltur þeirri
ráðstöfun Bandarikjanna að styðja ekki
pólsku stjórnina með matar og lyfja-
sendingum. Öll slik aðstoð ætti að fara
í gegn um stofnanir og dreifikerfi
kirkjunnar, því við fengum sannað að
mikill hluti þess sem stjórnvöld áttu að
ráðstafa lenti á matborðunum í her-
skálunum og hjá lögreglunni. Við áttum
ljósmyndir þvi tilsönnunar. Þetta gerðist
á meðan pólskir læknar urðu að skera
börn upp án svæfingar og deyfinga, þvi
takmarkaðar birgðir varð að geyma
vegna tilfella þar sem lif manna var i
veði. Já tíminn sker úr um hvað verður.
Með pólska varningnum sem til Rússa
fer fljóta likar hugmyndir „Samstöðu",
og sá útflutningur á kannske eftir að
skila sér.
Ég vil koma á framfæri þakklæti minu
fyrir allt sem fyrir okkur hefur verið gert
héma. Við höfum verið hér aðeins örfáa
daga, en höfum fundið að hér vilja menn
allir gera okkur allt til hæfis og greiða
götu okkar á allan hátt. Mig brestur
orðin til þess að segja hve þakklát við
erum fyrir þetta, - alls staðar erum við
velkomin og alls staðar er alúðlegt
viðmót. Nefndinni sem kom til Austur-
ríkis, starfsmönnum Rauða kross fs-
lands og stjórnvalda færum við enn
itrekaðar þakkir fyrir þetta allt saman.
- AM.
KOGSTÁL
NÝTT klæöningarefni á þök
og veggi frábrugðid öllu óöru
ALUZINK sameinar alla helstu kosti stáls, áls, og
zinks. Endingin er allt að 6 föld miðað við venju-
legt galvaniserað járn og lengdir ákveður þú sjálf-
ur. Aluzink er tvímælalaust hagkvæmasta efnið
sem fáanlegt er hvort sem er á íbúðarhúsið eða
útihúsin. ALUZINK fæst sem garðastál, bárustál
og sléttar plötur.
Viljir þú vita meira, hafðu þá samband við sölu-
deild okkar. Þar bíður þín litprentaður bæklingur
um Garðastál og Aluzink.
Gatoj&Ct.
= HÉÐINN =
SÖLUSÍMI 52922 STÓRÁSI 4-6 GARÐABÆ
Þar er framleiðslan, þar er þjónustan
QJ
co
C
oo
20 140 160 KHZ
ylgjulengd
arettri
Vestur Þýska þvottavélin Royal 85 frá
BBC er engin venjuleg þvottavél, því hún
hefur til að bera afburðaeiginleika svo
sem:
1. Þeytuvinduhraða - 800 sn. á mín.
2. Þyngd -102 kg sem gerir vélina hljóðláta
og mjög stöðuga í þeytivindingu.
3. ÞÚ getur ráðið hita þvottavatnsins með
sjálfstæðum hitastilli.
4. Toppstykkið á vélinni er hannað sem
vinnuborð.
5. Hæð - 85 cm, breidd - 60 cm, dýpt - 60 cm.
Þess vegna er BBC á réttri bylgjulengd.
Skipholti 7símar20080 — 26800
OflKIN