Tíminn - 06.06.1982, Blaðsíða 18

Tíminn - 06.06.1982, Blaðsíða 18
SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1982 18 \Wfasnm Iistahátíð í Reykjavík 5.-20. júní ’82 KONUR OG DÝR málarinn Walesse Ting í Listasafni Islands n f salarkynnum Listasafns fslands í húsi f’jóöminjasafnsins verður á Lista- hátíð uppihangandi sýning á verkum kinverska málarans Walasse Ting sem er búsettur í New York. Walasse Ting fæddist i Shanghai árið 1929, en yfirgaf heimaland sitt á tvitugsaldri og hélt til Parísar að nema list. Síðan hefur hann haldið til á vesturlöndum, í París og New York, og haldið fjölmargar sýningar og er sagt um myndlist hans að hún byggi á kínverskum grunni, en sé undir sterkum vestrænum áhrifum. í fyrstu myndum sinum hneigðist Ting til afstrakt-málverks, en sneri sér siðan að svokölluðum figúrativisma og hefur þróað með sér ákaflega sérstæðan stil. Auk þess að mála hefur Ting lagt gjörva hönd á ýmislegt annað, leik- stjórn, kennslu og fyrirlestrahald svo fátt eitt sé nefnt. Aukin heldur hefur hann útbúið nokkrar ljóðabækur og mun þeirra þekktust „Rauður rnunnur", sem hefur að geyma hvorki meira né minna en 428 málverkaeftirprentanir og 33 svarthvitar teikningar. Walasse Ting hlaut Guggenheim verðlaunin fyrir teiknum árið 1970. Á sýningu Listasafnsins verða um 60 málverk eftir Ting, öll ný af nálinni, máluð á síðustu tveimur árum. Petta eru akrýl- og vatnslitamyndir sem eru fmálaðar á kínverskan pappir og sýna glöggf þann samruna austurs og vesturs sem á sér stað i myndheimi Tings. Myndirnar eru bæði litlar og stórar, þær stærstu næstum tveir metrar á hæð eða breidd, og á flestum myndunum eru mótívin konur með kínversku yfirbragði í bland við „dýr merkurinnar“, ketti, hesta og hunda, enda er Ting talinn meðal mestu spámanna fígúrativismans nú á dögum. Heimssýn Tings er mjög fersk og litrik, litirnir eru sterkir, mest ber á rauðu, grænu og bláu, og ást hans á sköpulagi og þokka kvenkynsins fer hvergi á milli mála. Sýningin verður opnuð laugardaginn 5ta júni klukkan 15.00 og er opin frá klukkan 13.30-22.00 daglega meðan listahátíð stendur. Verk Tings munu siðan prýða Listasafnið eitthvað fram í júlimánuð. ■ Human League-flokkurinn heldur tvenna tónleika i Laugardalshöll. Tíu metra loft- hæð Skilyrði „Human Leagne” fyrir tónleikahaldi ■ Jæja, ekki fengum við Rolling Stones i þetta sinn. Hvemig væri nú að listahát. færi að drífa i að fá strákana hingað- til dæmis áður en Jagger ieggst í kör? Hafiði það bak við eyrað. En poppáhugamenn þurfa ekki að svelta samt. Hingað kemur hljómsveitin Human League frá Bretlandi og heldur tvenna hljómleika i Laugardalshöll, 11. og 12. júní og hefjast báðir klukkan 21. Human League mætti kalla afar dæmigerða fyrir a.m.k. hluta popptón- listar heimsins i dag, nýrómantískt tölvupopp - þýuðir það eitthvað? En hljómsveitin er altént gasalega vinsæl og lag hennar „Donf You Want Me, Baby?“ var til að mynda valið besta lag síðasta árs i vinsældavali Nútimans fyrir skömmu. Hljómsveitina skipa sex menn, þar af 2 söngkonur, og þykir hún sérstaklega lífleg og skemmtileg á sviði. Krafðist hljómsveitin þess m.a. af Listahátið að minnst tiu metra lofthæð væri þar sem hún kæmi fram. Það má því búast við að sitthvað gangi á.. Þess má geta að sviðsbúnaður hljómsveitar- innar vegur alls um tólf tonn, ekki er það litið. Hvort sem menn hneigjast fyrir nýrómantískt tölvupopp eður ei, þá er engin ástæða til þess að láta einn besta fulltrúa þessarar tónlistarstefnu fram hjá sér fara, poppunnendur. yyFliigmenniniir” Ovenjuleg leiksýning frá Frans —o Og margt, margt fleira • • ■ Engin leið er að kynna ýtarlega allt það sem á boðstólum verður á þessarí sjöundu Listahátið. Hér að neðan verður stiklað á stóru. Sýning á verkum Kjarvals Á Kjarvalsstödum verdur, aldrei þessu vant, sýning á verkum Jóhannesar Kjarvals, en hana hefur Gylfi Gislason, myndlistarmaður, sett upp. Alls eiga Kjarvaisstaðir 121 verk eftir listamanninn en á þossari sýningu verður einkum gerð tilraun til að rekja feril hans i máli og myndum. Sýningin er opin 4.-20. júni frá kl. 14-22 daglega. Hönnun '82 í vestursal Kjarvalsstaða verður sýnt úrval nýrra islenskra húsgagna og listiðnaðarverka, og er tilgangur- inn með sýningunni að leiða saman framleiðendur og listainenn - vekja landsmenn til umhugsunar um stöðu iðnhönnunar og hverja til frekar átaks og samvinnu i þeim efnum. Sýninguna halda Kjarvalsstaðir i samvinnu við svonefnda „stjórnar- nefnd markaðsátaks i þágu húsgagn- aiðnaðar" og taka 10 isl. iðnfyrirtæki þátt i sýningunni og 25 listiðnaðarm- enn. Guðni Pálsson, arkitekt, setti sýninguna upp en hún verður opðin 4.-20. júni frá kl. 14-22 daglega. Granithöggmyndir i Norr- æna húsi John Rud heitir maður, sjálflasrður myndhöggvari. Hann vinnur högg- myndir sinar i stein og er sórlega hrifinn af grjóti sem hann finnur i fjörunni, tala ekki um grjót frá isöld. „Ég skynja að óg hef lokið við að höggva steininn til þegar ég get lagt hann aftur á ströndina hjá hinum, án þess að samrasmið raskist." Rud hofur dvalist hér á landi og hyggst vinna hér i sumar en á Listahátið sýnlr hann verk sin i Norrama húsinu og var hún opnuð 1. júni og stendur til 20. júni, en fram i ágúst utanhúss. Föstudaginn 11. júni kl. 17 mun Rud kynna verk sin og vinnuaðferðlr sinar tveimur dögum siðar, 13. júni, einnig kl. 17. Ljósmyndir Ken Reynolds í kjallara Norræna hússins verður sýning á ljósmyndum Bretans Ken Reynolds. Hann hefur búið viða á Bretlandi og fengist við hitt og þetta, einkum myndlist og tónlist, en 1980 sneri hann sér að ljósmyndun. Hann hefur viða haldið sýningar, en sýning hans f Norræna húsinu verður opin 5.-20. Júni mUli ki. 14 og 19 daglega. Smælki '82 Nú er iokið endurbótum á Gallerí Langbrók á Bemhöftstorfu og hefur i tilefni Listahátiðar veríð sett þar upp sýning á smámyndum eftir 14 lístamenn. Verkin eru úr ýmsum efnum: taui; saumi; vefnaði; grafik; skúlptúr; keramik, en myndlistarm- ennirnir sem sýna eru Ásrún Kristjánsdóttir, Elisabet Haraldsdótt- ir, Eva Vilholmsdóttir, Guðný Magn- úsdóttir, Guðrún Auðunsdóttir, Guð- rún Gunnarsdóttir, Guðrún Marínós- dóttir, Jóhanna Þórðardóttir, Kolbrún Björgúlfsdóttir, Ragna Róbertsdóttir, Sigrún Eldjárn, Sigrún Guðmunds- dóttir, Steinunn Bergsteinsdóttir og Þorbjörg Þórðardóttir. Sýningin verður opnuð 5. júni, en lýkur þann 27. og opið er kl. 12 til 18 virka daga en 14 til 16 um helgar. Náttúruform i Ásmundar- sal Þessi sýning er sögð byggð á niðurstöðum „þverfaglegra" rann- sókna i þýskura háskólum, en hingað kemur hún á vegum Arkitektafélags íslands. Eins og nafnið bendir til fjallar hún einkum um ýmisbygging- arform náttúrunnar, jafn lifræn sem ólifræn. Nefna má egg, kóngulóarv* efi, krístalla og sápukúlur, og einnig er fjallað um tilrauoir raanna til að likja eftirþessum formum. Má geta „tjaldsins" yfir ólympiuleikvangin- ura i Miinchen iþvi sambandi. Sýningin verður opln 12.-20. júni kl. 14-22. Leirlist i Listmunahúsi Þetta er fyrsta sýning Leirlistafél- ' agsins sera stofnað var i Rvfk fyrir rúmu árí. Sýningunni er ætlað að gefa hugmynd ura fjöibreytni og grósku innan félagsins en 11 félagsmenn opinbera verk sin i Listraunahúsinu: Borghildur Óskars- dóttir, Edda Óskarsdóttir, Elisabet Haraldsdóttir, Gestur Þorgrirasson, Guðný Magnúsdóttir, Haukur Dór, Jóna Guðvarðardóttir, Jónina Guðn- adóttir, Kolbrún Björgúlfsdóttir, Sigrún Guðjónsdóttir og Steinunn Marteinsdóttir, en gestur sýningar- innar er Daninn Peter Tyberg. Sýningin verður opin 5.-27. júnilO-18 virka daga, 14-18 um helgar, en lokað er á mánudögum. Trúðleikarínn Ruben Trúðurínn Ruben frá Sviþjóð heldur tvær sýningar i Norræna húsinu, ath. auglýsingar. Hann er kunnur trúður, einkum á Norðurlönd- um en kemur hingað beint frá alþjóðlegu sirkustrúðamóti i Moskvu og fer héðan til Kanada á svipað mót. Hann hefur vakið athygli fyrir að tengja vel saman ýmis ólik tjáningarform, svipbrigði, látbragðs- leik, akróbatik, tónlist o.fl. o.fl. Visnasöngvarinn Adolph- son Visnasöngvarinn Olle Adophson frá Sviþjóð kemur hingað og heldur tónleika á Listahátið, verða þeir auglýstir síðar. Hann er fæddur i Stokkhólrai '34 og hefur saraið fjöldann allan aí lögum við eigin texta og annarra, auk þess sem hann er ljóðskáld og rithöfundur. Hann átti, ásamt Sven Bertil Taube, mikinn þátt i að auka áhuga manna á visnatónlist og er meðal kunnustu vfsnasöngvara á Norðurlöndum. Úr aldaannál i Gamla biói I tilefni hátiðarinnar kemur Litii leikklúbburinn frá Ísafírði suður og sýnir Ór aldaannál eftir BöðvarGuðm- undsson i Gamla biói þriðjudaginn 8. júni kL 20. Leikrítið er skrifað sérstaklega fyrir klúbbinn og þó byggt sé á söguiegum forsendum á leikurinn sér engan tima i sjálfum sér. Kári Halldór leíkstýrði og gerði lelkmynd. Leikur þessi hefur vakið nokkra athygli, svo sem titt er um leikrit Böðvars Guðmundssonar, og margir án efa forvitnir að sjá hann. London Sinfonietta Þett er kammersveit sem stofnuð var árið 1968 og hefur fylgst þeirri stefnu að flytja samtimatónlist og étt náið samstarf við mörg fremstu tónskáld heimsins. The London Sinfonietta hefur frumflutt meira en 100 verk og vorumörg þeirra samin skv. sérstakrí beiðni hljómsveitarínn- . ar. í samræmi við þessa hefð sina mun sveitin f rumflytja verk Jonathan Lloyds, „Little Sweet", á Listahátið- inni hér. Auk 20. aldar verka flytur The London Sinfonietta einnig eldri verk eins og sjá má af efnisskránni, þar er að finna verk eftir J.S. Bach, auk verka Lloyds, Stravinskis, Ligetis og Bríttens. Hljómsveitin hefur ekki einskorðað sig við Bretlandseyjar einar heldur hefur hún komið fram á tónlistarhátiðum víða um heim. Til heimsóknarinnar hingað nýtur TLS höfðinglegs fjárhagsstuðning The British Council. Tónlelkar verða i Gamia biói föstudaginn 18. júni kl. 20.30 Barnadagskrá Meðan á Listahátið stendur verða sérstakar Barnadagskrár i Norræna húsinu með reglulegu mlllibili, sjá auglýsingar. Ýmislegt verður til gaman gert. Jens Mattiasson frá Sviþjóð hefur föndurvinnustofu, og trúðurinn Ruben skommtir og stendur auk þess fyrir „sirkusskóla". Fá bömin þar tækifærí til að taka sjálf þátt i undirbúningi og gangi sirkusins. - - ij tók saman'

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.