Tíminn - 06.06.1982, Blaðsíða 15

Tíminn - 06.06.1982, Blaðsíða 15
SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1982 15 ■ Kveikjan, upprunalega sagan, hljóðar eitthvað á þessa leið: Einhvers staðar i Japan er gamall maður sem hefur þann starfa að sópa hallargarð kóngsins. Á hverjum degi sér hann unaðsfagra prinsessu ganga hjá eins og i öðrum heimi. Gamli maðurinn verður óforbetranlega ástfanginn. Ást hans kemst upp og illa innrætt fólk gerir sér það að leik að hæðast að honum, honum er sagt að hvenær sem silkitromman er sleginn megi hann snerta kóngsdótturina sína. Þetta er einföld og stutt saga, ekki nema tvær-þrjár blaðsiður í bók, og er upprunnin úr hinu japanska no-leikhúsi. Og þessi saga er nú orðin kveikjan að fátiðri uppákomu, islenskri óperu, þeirri annarri í röðinni fyrr og siðar. Höfundar hennar e'ru þeir Atli Heimir Sveinsson og Örnólfur Árnason og óperan heitir Silkitromman. En i meðförum þeirra hefur sagan tekið stakkaskiptum, japanskir kóngar, prinsessur og hallir eru víðs fjarri, frumsagan er vart þekkjanleg, nema kannski sálfræði hennar og inntak, þetta er eins konar hvenær-sem-er- og hvar-sem-er saga, ein af þeim sögum sem ekki eldast. Segir Atli Heimir Sveinsson. Ópera þeirra Atla Heimis og Örnólfs gerist i alþjóðlegri tískuveröld nútím- ■ Silkitromman: Sigurður Bjömsson, Kristinn Sigmundsson og Jón Sigurbjömsson berja sjálfa Siikitrommuna. Allir þættir alls- herjarleikhússins — Silkitromma Atla Heimis Sveinssonar og Örnólfs Árnasonar ans, nánar tiltekið i tiskuhúsi, þar sem æska og æskuljómi ganga kaupum og sölum og þar sem fegurðin og mannleg verðmæti eru afskræmd í þágu peninganna. Hallargarðssóparinn er nú gamall gluggapússari (Guðmundur Jónsson) og prinsessan er orðin að ungri tiskusýningarstúlku. Hann fellir hugi til hennar, elskar hana i meinum. Þeirra heimar liggja auðvitað hvergi saman, og auk þess er stúlkan i meira lagi ráðvillt og tvöföld i roðinu, en tvöfeldni hennar undirstrika Ólöf Kolbrún Harðardóttir söngkona og Helena Jóhannesdóttir ballettdansari sem fara með hlutverk hennar samtimis. En þrátt fyrir það lifir gamli maðurinn fyrir stúlkuna og sérhverjum vinnudegi hans lýkur með þvi að hann pússar þann búðarglugga sem gefur honum færi á að lita sina heittelskuðu. Hann skrifar henni bréf, sem valdsmenn i tísku- og glysheimi stúlkunnar henda gaman að, allir telja þeir sig eiga eignarrétt á stúlkunni - Ungi maðurinn sem „á allar piurnar" (Kristinn Sigmundsson), Fini maðurinn sem „á nokkur fyrirtæki" (Jón Sigurbjörnsson) og Konan sem á kjólabúð (Rut Magnússon). En þar kemur loks að gamanið fer að káma, ást gamla mannsins hættir að vera fyndin og fulltrúar tískuheimsins ákveða að veita honum ærlega ráðningu. í hugleiðingum um Silkitrommuna skýrir Atli Heimir Sveinsson hvers vegna þessi saga varð fyrir valinu: „Margir hallmæla óperuforminu, ekki hvað sist tónskáld. Ástæðan er augljós: á sviðinu syngur fólk í stað þess að tala, býður hvert öðru góðan daginn, í löngum tersettum með kórum og voldugu hljómsveitarspili, o.s.frv. En samt heillar óperan marga. flest tónskáld sem ég þekki eru á höttunum eftir góðu óperuefni og það er vandfundið. Ég þykist heppinn að hafa fundið söguna um Silkitrommuna. Sú saga er eins og allar góðar sögur, óháð tíma og rúmi. Hún er gömul - japönsk, en getur gerst hvenær sem er og hvar sem er. Hún er líka margræð, en samt er hún skýr. Það má leggja i hana ýmsan skilning, sálfræðilegan, mannlegan - hvað sem er. Kannski er hún dæmisaga eða raunveruleiki, kannski má draga af henni nokkurn lærdóm og kannski veitir hún mönnum skemmtun. Hún hæfir vel óperuforminu, því í henni má flétta saman marga þætti leikhússins. Leikhús er fleira en hið talaða orð og ópera er annað og meira en syrpa af vinsældum lögum. í óperunni fléttast saman söngur, hljómsveitarleik- ur. dans, sviðsetning, leikmynd, texti, boðskapur og margt fleira. allir þættir þess, sem mynda allsherjarleikhús." Textahöfundurinn Örnólfur sagðist hafa lítið sem ekkert vit á tónlist - þeir Atli Heimir hafi mæst í áhuga sinum á allsherjarleikhúsi eða tótal-leikhúsi, leikhúsi sem reynir að notfæra sér og sameina hina aðskiljanlegustu tjáning- armiðla. Og þetta er það sem kannski kemur til með að vekja mesta athygli við Silkitrommuna, hinir ólíku þættir sem er fléttað saman i eina heild - auðvitað söngur og hljóðfærasláttur og list orðsins, dans, látbragðsleikur, látbragð og fas úr tískuheiminum, myndlist sviðsmyndarinnar, búningar, og svo tæknin - skuggamyndir, kvikmyndir og tónlist af segulbandi. Stjórnandinn, Gilbert Levine, tók til máls á blaðamannafundi sem var haldinn um Silkitrommuna á sjálfu sviði Þjóðleikhússins. Hann sagði að sér þætti verkið athyglisvert og furðu flókið. Áhorfandanum gæti sýnst óperan einföld og slétt og felld, en i raun væri það mjög flókið að allri gerð, bæði tónlistin og sviðsetningin. Hin leikræna hlið verksins væri mjög sérstök og sér þætti i raun ótrúlegt að allt væri að taka á sig heillega mynd nú eftir æðibunugang síðustu vikna. Levine sagði ennfremur að hlutverk Guðmundar Jónssonar væri eitthvert hið allra erfiðasta sem hægt væri að leggja á bassa-baritónsöngvara og taldi að helst væri hægt að bera það saman við hlutverk Woyzecks í samnefndri óperu Albans Berg. Þess má geta að Guðmundur tekur á sig mynd heils karlakórs í Silkitrommunni, Atli Heimir hefur tekið þann kostinn að nota tónbönd til að lýsa inn í hugarheim persónanna og þar syngur Guðmundur meðal annars á móti sjálfum sér á segulbandi - sextánföldum! Hljóðfæraskipanin er eftir þessu - talsvert óvenjuleg. Hljómsveitin er skipuð 22 hljóðfæralcikurum sem allir eru einleikarar og þar eru blásturs- og ásláttarhljóðfæri mjög áberandi. „Sigurjón leysti vandann," sagði Sveinn Einarsson leikstjóri á blaða- mannafundinum og átti þar við að leikmynd Sigurjóns Jóhannssonar hefði leyst ýmis vandamál í sviðsetningunni. Það sem helst vekur athygli við leikmyndina er að yfir sviðinu gnæfa þrjú stóreflis herðatré, sem minna óneitanlega á krossana þrjá á Golgata- hæð, hvort sem það hefur einhverja táknræna merkingu eða ekki. Það er Helga Björnsson tískuhönnuð- ur sem hefur hannað búningana í Silkitrommunni. Helga hefur verið starfandi í París síðustu ellefu árin, við frægt tískuhús Louis Ferauds, og hefur ekki áður starfað í leikhúsi. En aftur á móti þekkir hún tískuna og tiskuheiminn af eigin raun og er þvi á heimavelli í þessu verki ef svo má segja. Einhver japönsk einkenni má greina í búningum Helgu, en það mun frekar stafa af því að nú er japanska linan í tisku í Paris en japönskum uppruna sögunnar. Búningarnir eru býsna skrautlegir og framúrstefnulegir - „Nína Hagen mundi passa vel inn i partiið," varð einhverjum að orði. Alls munu það vera um þrjátíu og fimm manns sem taka þátt i sýningunni á Silkitrommunni, sex einsöngvarar, tuttugu og tveir hljóðfæraleikarar auk dansara og tískusýningarfólks. Silkitromman verður leikin og sungin við opnun Listahátíðar þann 5ta júní, en alls verða sýningarnar þrjár meðan á hátiðinni stendur. Hugsað um Evrópuna - í Nýlistasafninu ■ Nýlistasafnið tekur þátt i Listahátið eins og aðrir og sýnir verk eftir tiu svonefnda „samtimalistamenn" frá fimm þjóðlöndum. Sýningin er skipulögð af sikileyska list- fræðingnum Demetrio Papar- oni, ásamt Nýlistasafninu, en Paparoni þessi hefur undir sinum verndarvæng fjöl- marga unga myndlistarmenn sem allir þykja mála i anda hinnar „nýju málaralistar" sem svo hefur verið kölluð, en ekki kunnum við að skilgreina það. Sagt er að mikið hafi verið fjallað um verk þessara listamanna i vestrænum fjölmiðlum undanfarin 2 ár. Flestir eiga stuttan ferii að baki en sumir þegar orðnir heimsfrægir. Þeir eru John Van’t Slot, Milan Kunc, Peter Angerman, Bernd Zinyner, Helmut Middendorf, Mario Merz, Mimmo Paladino, Kö- berling, Martin Disler og „our own” Helgi Þorgils Fríðjóns- son. Sýningin verður opin 5.-20. júni klukkan 16-22 daglega en 14-22 um helgar. Lítið inn... Sýningin heitir „Thinking of the Europe". ■ Boris ChrístofT Bassi í Laugar dalshöll ■ Pavarotti kom fyrír tveim- ur árum og nú Borís Christoff. Hann er bassasöngvari frá Búlgaríu, fæddur áríð 1919, og starfaði um tima sem lögf ræð- ingur áður en hann snerí sér að sönglistinni. Hann lærði hjá Stracciari á ítaliu 1941 og siðar i Salzburg, en kom fyrst fram i Róm árið 1946. Árið eftir birtist hann á La Scala. Siðan hefur hann sungið um allan heim og hvarvetna við óhemju góðar undirtektir; ber hæst ber túlkun hans á Borís Godunov i samnefndri óperu. Hann er frægur fyrir persónu- töfra sina og leikhæfni, þykir mjög dramatiskur og sterkur á sviði og er viðurkenndur sem einn af öndvegis óperusöng- vurum okkar tima. Hann er einnig frægur konsertsöng- vari, og hér tekst hans á við Beethoven, Mozart, Verdi, Glinka, Tjækovskij og Múss- orgskij. Tónleikarnir verða i Laugardalshöll 20. júni kl. 17 og leikur Sinfóniuhljómsveit íslands undir, stjórnandi er Gilbert Levine. SAMANTEKT: DL.LUGI JÖKULSSON OG EGILL HELGASON

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.