Tíminn - 06.06.1982, Blaðsíða 19

Tíminn - 06.06.1982, Blaðsíða 19
SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1982 19 Listahátíð í Reykjavík 5.-20. júrd '82 ■ Næstkomandi mánudag, 7. júni, og kl. 21 verða í Háskólabíói tónleikar Sinfóniuhljómsveitar íslands þar sem Gidon Kremer og Oleg Maisenberg munu leika á fiðlti1' óg píanó. Á efnisskránni eru verk éfflr Schubert, Brahms, Webern óg Beethoven. Gidon Kremer er fæddur i Riga og ■ Kremer Spilamenn frá útlöndum Gidon Kremer, Maisenberg og Kocsis þykir nú einhv^r besti fiðluleikari heims. Hefur hann enda sigrað í nokkrum mikilsháttar tónlistarsamkeppnum og starfað með mörgum þekktustu hljóm- sveitarstjórum í víðri veröld. Nægir að nefna Abbado, Bernstein, Giulini, Herbert v.f Karajan, Kondrashin og André Previn. Oleg Maisenberg er fæddur i Ódessa 1945 og hefur unnið til margra verðlauna fyrir píanóleik sinn, enda hefur hann starfað um allan heimf. Hann er nú einleikari við Filharmóníu- sveit Moskvuborgar en kemur oft fram á alþjóðlegum listahátiðum og þá gjaman með Gidon Kremer. Annar útlendur hljóðfæraleikari sem sækir okkur heim er hinn virti ungverski píanóleikari Zoltán Kocsis en hann er óðum að skipa sér sess meðal fremstu píanóleikara á verkum eftir Beethoven 1970. Hann gegnir prófessorsstöðu við „Ferenc Liszt“ Tónlistarháskólann í fæðingarborg sinni. Kocsis hefur leikið viða um heim og hvarvetna verið vel tekið. Hér á íslandi leikurhann eftirtalin verk á tónleikum i Háskólabíó þann 16. júní kl. 21.3 af 7 verkum fyrir pianó ópus 11 eftir Zoltán Kodály, Sedrustrén í Villa déste og Gosbrunnarnir í Villa déste eftir Liszt, Atriði blómastúlkunn- ar og lokaatriði Parsifals eftir þá Kocsis og Wagner (!), Polonaise Phantasie ópus 61 eftir Chopin og loks 12 valsa eftir Chopin. Lika list á Akureyri ■ Akureyringar eiga lika sína listahát- íð, þó í smáu sé. Þar nefnist hún Vorvaka og hefur reyndar staðið siðan 27da maí, en þá var hún sett á Ráðhústorginu. En Vorvöku þeirra norðanmanna lýkur ekki fyrr en 19da júní, svo enn á ýmisleg menning eftir að reka á fjörur þeirra, bæði útlensk og heimatilbúin. Hinn 6ta júní verða tónleikar i Skemmunni og þar flytur Passíukórinn African Sanctus, nýstárlegt messutón- verk eftir breska tónskáldið David Fanshawe, þar sem renna saman í eitt svo ólikir straumar sem afrisk þjóðtónlist, latneskur tiðasöngur, djass, popp, rokk og klassisk nútíatónlist. Undirleikurinn er fluttur af segulbond- um, slagverkssveit og hljómsveit með rafmögnuð hljóðfæri. Passiukórinn mun verafyrstur kóra í EvrópuutanEnglands til að flytja þetta verk á tónleikum. Stjórnandi er Roar Kvam. Passíukórinn mun einnig flytja African Sanctus á tónleikum i Gamla bíói í Reykjavík 13da júní. Af Listahátíð í Reykjavík koma til Akureyrar frönsku látbragðsleikararnir Farid Chopel og Ged Marlon með sýningu sina Flugmennirnir. Hún verður í Samkomuhúsinu 7da júní. Einnig munu tveir Svíar gista Akureyri - visnasöngvarinn Olle Adolphson sem heldur tónleika á Hótel Kea 9da júni og trúðurinn Ruben sem hefur sýningu í Samkomuhúsinu 13dajúní. Daginn eftir setur Ruben svo trúðaskóla sinn á laggimar í sal Gagnfræðaskólans. Vorvökunni á Akureyri lýkur svo 19da júní á tónleikum bresku kammersveitar- innar The London Sinfonietta. Myndlistin situr heldur ekki á hakanum á Akureyri þetta vorið. í Myndlistarskólanum stendur yfir sýning á ljósmyndum breska ljósmyndarans Ken Reynolds. Hinn llta júní verður opnuð í Skemmunni sýning á vegum Félags íslenskra myndlistarmanna og daginn eftir opna þau Sigríður Jóhannesdóttir og Leifur Breiðfjörð veflistarsýningu í Hússtjórnarskólanum. Leifur kemur reyndar víða við, því sama ■ Kammersveit Listahátiðar hefur ver- ið mynduð, hún ætlar að halda tónleika í Háskólabiói sunnudaginn 13. júní og hefjast klukkan 15. Sveitina mynda 35 hljóðfæraleikarar, flestir fremur ungir að árum, en stjórnandi verður Guð- mundur Emilsson. Guðmundur Emilsson fæddist í Rvik 1951, lauk tónmenntakennaraprófi frá Tónlistarskólanum i Reykjavik 1971, nam kórstjórn hjá Dr. Róbert A. Ottóssyni, en tónsmíðar, píanóleik og almennar tónlistargreinar hjá Þorkatli sigurbjörnssyni. Guðmundur hóf fram- haldsnám 1973 í Eastham School of Music í rochester, New York, og þaðan lauk hann Bachelor of Music prófi 1975 og Master of Music prófi fjórum árum síðar. Aðalkennari hans í kór-og hljómsveitarstjórn var Robert DeCormier. Guðmundur hóf siðan nám að doktorsprófi í hljómsveitarstjórn við Indiana university i Bloomington 1979 en kennarar hans þar hafa verið Bryan, Balkwill, Thomas Baldner og Dr. dag, 12ta júni, opnar hann sýningu á steindum glermyndum í Amtsbókasafn- inu. Og enn mega augu Akureyringa gleðjast þennan dag, því þá opnar lika þriðja sýningin á leirmunum eftir þau Sigrúnu Guðjónsdóttur og Gest Þorgrímsson að Klettagerði 6. Margareth Hillis. Hann var skipaður aðstoðarkennari i í kór-og hljómsveitar- stjórn við háskólann haustið 1979 og stjórnandi við The New Music Ensem- ble síðastliðið haust. Á efnisskrá tónleikanna í Háskólabíói verða eftirtalin verk: Ad Astra eftir Þorstein Hauksson (f. 1949), Sinfonia Concertante fyrir fiðlu og lágfiðlu eftir Wolfgang Amadeus Mozart, Duo Concertino fyrir klarinett og fagott eftir Richard Strauss og loks Variaciones Concertantes fyrir kammersveit eftir Alberto Ginastera. Einleikarar verða Sigurlaug Eðvaldsdóttir og Ásdís Valdi- marsdóttir (Mozart) og Sigurður I. Snorrason og Hafsteinn Guðmundsson (Strauss). Þess má geta að verk Þprsteins Haukssonar, Ad Astra, verður frumflutt á þessum tónleikum en Þorsteinn st'undar nú nám til doktorsprófs í tónlist við tónlistarháskólann í Stanford, Kaliforníu. Kammersveit listahátíðar leikur í Háskólabíó 13. júní Kapalkerfi 980 kr Veist þú að / kapalkerfunum hjá okkur er meða/verð á ibúð 980 kr. Veist þú að kapalkerfin hjá okkur eru hönnuð eftir dönskum gæðastaðli fhér á landi er enginn slíkur gæðastaðall i gildi) Veist þú að kapalkerfin eru framtiðin Veist þú að hjá okkur vinna fagmenn verkin Veist þú að efnið sem við notum er frá Wisi m I III llllljllljllljlIIIIIIiljB SJÖNVARPSMIÐSTÖÐIN HE Sími 91-39090 - 39091 insý/v Sími 91-24474 - 40937

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.