Tíminn - 06.06.1982, Page 6
6
SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1982
■ Eru þeir sem nær-
ast á grænmetisfæði
alvörugefnari og kyn-
orkumeiri en annað
fólk? Ertu sælkeri? Þá
er þér ráðlegra að fara
að öllu með gát í ást-
Segðu
mér
hvað
þú
borðar
og . . . .
■ Grænmetisxtan er full kynorku og hefur áhuga á þjóðdönsum og saumaskap...
j ■ Sælkerínn er mest gefinn fyrir dýrt sport - siglingar, golf, skíðaiþróttir og fallhlifa-
stökk...
■Hu/Kí 'V/'. C
Mataræðið kemur upp um okkur
armálunum. Er það
rétt að þeir sem nærast
á heilsufæði séu gjarna
ímyndunarveikir og
sjálfselskir. Og hamb-
orgara- og pylsuát - er
það merki um að fólk
sé íhaldssamt og heim-
akært? Hópur sálfræð-
inga í Bandaríkjunum
gerði rannsókn á mat-
arvenjum fólks og
komst að þeirri niður-
stöðu að það eru órjúf-
anleg tengsl milli þess
sem fólk leggur sér til
munns og þess sem fer
fram í kollinum á því...
Samtal hlerað við borð á dýru veiting-
ahúsi. Uppábúinn eiginmaður sem situr
við borðið ásamt samkvæmisklæddri
konu sinni pantar: „Eina flösku af Dom
Perignon, 1956 árganginum." Hann litur
brosandi á konu sína hinu megin við
borðið og segir: „Hljómar það ekki
yndislega, elskan?“
„Nei, alls ekki. Það eyðileggur alveg
kynlífið fyrir mér. Hefurðu ekki tekið
eftir því hvað ég er orðin líflegri siðan ég
byrjaði að borða grænmeti eingöngu."
Litur ásakandi á eiginmanninn og af-
pantandi á þjóninn.
Þetta eru ekki ólíklegri samræður en
hverjar aðrar á veitingahúsum nútímans.
Því í Rikisháskólanum i Arizonafylki i
Bandarikjunum hefur hópur sálfræðinga
lagt löfuðið i bleyti og komið upp með
þá niðurstöðu, sem kannski kemur ekki
svo mjög á óvart, að það séu mikil og órj-
úfanleg tengsl milli þess sem mannfólkið
leggur sér til munns og þess sem það
hugsar og trúir. Maturinn er sumsé meiri
áhrifaþáttur í okkar andlega lifi en hing-
að til hefur verið haldið, enda eru mat-
arvenjurnar óiikar, svo maður tali ekki
um einstaklinga og þjóðir.
Rannsóknir sálfræðinganna í Arizona
voru byggðar á hópi fólks, sem var skipt
í fjóra undirhópa eftir matarvenjum:
Grænmetisætur, sælkera, þá sem lifa á
hollustufæði (kjöt meðtalið) og þá sem
hafa ást á hamborgurum og pylsuvagn-
afæði.
Grænmetisæta:
alvörugefín og
full kynorku
Grænmetisætur spyrja sem svo:
„Hvers vegna að borða kjöt, þegar hægt
er að lifa fullt eins góðu lifi á jurtum ein-
um saman.“ Þarna liggur auðvitað til
grundvallar siðferðileg spurning, hvort
það sé rétt að deyða dýr merkurinnar til
þess eins að éta þau? Barnalegt? Sumar
grænmetisætur telja meira að segja að
kjöt sé óhrein fæða og hafi slæm áhrif á
líkamsvessana.
Grænmetisætur eru kjötætum eilíf
ráðgáta, hvað er það eiginlega sem græn-
metisætur nærast á? Jú, það er ýmislegt,
og mataræðið verður eðlilega fjölbreytil-
egra eftir því sem löndin eru hlýrri og
frjósamari. Hér á íslandi eiga grænmet-
isætur af skiljanlegum orsökum erfitt
uppdráttar, eða svo var að minnsta kosti
þar til farið var að flytja inn aðskiljanleg-
ar tegundir af baunum og grænmeti. En
það sem grænmetisætan lifir helst á er
gróft korn, dökk hrísgrjón, baunir af
ýmsu tagi og auðvitað allra handa græn-
meti - bæði hrátt og soðið. Það er gömul
og útbreidd bábilja að grænmetisætur
séu einfaldlega grasbítar.
En hvaða ályktanir drógu svo sálfræð-
ingarnir í Arizona af þessu? Rannsókn-
irnar sýndu að grænmetisætur eru fullar
af kynorku, rólyndar og alvörugefnar.
Að minnsta kosti er ekki líklegt að finna
mikla brandarakalla í hópi grænmeti-
sæta. Þær eru frekar smámunasamar og
hafa áhuga á þjóðdönsum, saumaskap
og útréttingum innan veggja heimilisins.
En að sögn eru grænmetisætumar lika
gjaman andans fólk, sem reynir að kom-
ast til botns í gátum lífsins. Þetta er með
öðrum orðum fólk sem nýtur bæði starf-
semi heila sins og kynkirtla.
Sælkerinn: sá sem
nýtur lífsins
Frá baunum, grófkorni og hrísgrjón-
um vikjum við sögunni að margbrotnu
eldhúsi sælkerans, þar sem Frakkland og
allt franskt táknar hreina himnarikis-
sælu. Sælkerinn er maður sem notar
hvert tækifæri til að bjóða bragðlaukun-
um i rikulegan kvöldverð og flösku af
góðu víni á Holtinu.
Sælkerinn er léttlyndur og umburðarl-
yndur, menningarsinnaður og lífsnautn
hans... Tölum ekki um hana. Hann er lítt
gefinp fyrir íþróttir og óþarfa hreyfingu,
nema kannski þær iþróttir sem kosta
skildinginn - siglingar, golf, skíðaiþrótt-
ir og fallhlífastökk. En þá má lika alltaf
fá sér gilda nautasteik á eftir, litið steikta
ef sælkerinn er ósvikinn
Ennfremur segja sálkönnuðimir í Ar-
izona að sælkerinn sé oft vel upplýstur og
menntaður maður, sem hneigist lítt til
guðstrúar og annarra stórra blekkinga.
Efahyggjumaður, semsagt’. Hann er
glaðlyndur og spaugsamur, en helst illa
á sinum mökum, býr gjama einn og
stundar samkvæmislifið eins og hverja
aðra vinnu.
Látum ósagt hvort lífsmáti sælkerans
eða grænmetisætunnar er vænlegri leið
til lífshamingjunnar, eða hvort lífslikur
annars hópsins séu betri en hins. Þar er
ekki allt sem sýnist.
Sá sem borðar
heilsufæði: oft
ímyndunarveikur
Sælkeralifið getur vist ekki talist mjög
hollustusamlegt, lif þess sem nærist á
heilsufæði mun víst líklegra til að hljóta
náð fyrir augum læknislistarinnar.
Þeir sem borða hollustufæði fylgja
ekki alveg jafn ströngum matarvenjum
og grænmetisæturnar. Þeir leggja sér sitt-
hvað til munns - grænmeti vitaskuld, en
lika kjöt, fisk, egg og mjólkurafurðir í
hæfilegum og vel völdum skömmtum.
En uppáhaldsrétturinn og meginnæring-
in er þó alltaf jógúrt og gróft brauð.
Staka sinnum er þó hægt að lokka þetta
heilsusinnaða fólk inn í munaðar- og
óhófslíf veitingahúsanna. Þetta er ekkert
ofsatrúarfólk, og af því vilja sálfræðing-
amir okkar í Arizona draga þá ályktun
að það sé heldur ekki mjög metnaðargj-
amt eða áhugasamt um að koma sér áfr-
am ílífinu...
í þessum hópi er gjarna imyndunarv-
eikt fólk og fólk sem óttast hinar fjölm-
örgu dauðagildrur tilvemnnar. Það er
jafngott að hafa vaðið fyrir neðan sig í
mataræðinu líka. Og þama eru ennfrem-
ur miklir einstaklingshyggjumenn og oft
sjálfselskt fólk.
Samkvæmislíf þessa fólks fer mestan
part fram innan veggja heimilisins, það
tekur á móti gestum sínum í inniskóm og
skokkgalla og er skapi næst að bjóða
þeim upp á dollu af jógúrt. Siðan er sest
niður i rólegheitum og rætt um hina vó-
legu kjamorkuvofu, hættur sem fylgja
salt- og sykumeyslu. Eftir þessar sam-
ræður um það sem ógnar mannlifinu
berst talið kannski að hinum jákvæðari
hliðum - sólarorku, orkuspamaði og
gamaldags svörtum kvenreiðhjólum.
Svo er röðin komin að borgarskipulag-
inu, Breiðholtsafglöpunum og uppgerð-
um timburhúsum i Vesturbænum og loks
að sumarfríinu næsta ár. Það þarf aldrei
að verða þögn í þessum félagsskap.
Fyrir utan áhugann á gömlum timbur-
húsum og orkusparnaði er þessi heilsus-
innaða manntegund líka ákafur áhugalj-
ósmyndari. Hann les bækur og álítur sig
vera vel með á nótunum. Segja sálfræð-
ingarnir í Arizona.
Hamborgaraætan:
ósköp venjuleg
Hér emm við komin ao Jóni Jónssyni
í eigin persónu. Þarna segir að fólk af
hamborgaraættinni eigi í raun engin
áhugamál, það skeri sig á engan hátt úr-
aftur á móti langi það ofurheitt að eign-
ast börn. Það er sumsé fjölgunarhvötin
sem er þeirra lífsinntak. Hjá þvi er fjöl-
skyldulifið í fyrirrúmi, það leggur hart að
sér við vinnu og reynir allt hvað það get-
ur til að koma sér upp ömggum smá-
heimi á einhverjum skikanum. En sam-
kvæmt niðurstöðum könnunarinnar er
þetta lika fólk sem leggur allt kapp á að
sigra í kapphlaupinu, það skiptir engu
máli hvort maður er i öðm sæti eða all-
rasiðastur - það breytir engu um þann
bitra sannleik að maður tapaði.
Ennfremur segir að þeir sem em
hneigðir fyrir skyndibitann séu trú-
hneigðir, ihaldsamir, ákafir fylgismenn
kjarnorku og ekki siðri andstæðingar
allra fikniefna. Heimilislif þeirra fer
fram í friði og spekt, þetta er oftast nær
yfirvegað fólk sem telur sig hafa gott vit
á því hvernig koma skal hlutunum fyrir
á sem haganlegastan hátt.
Það var nú það. Þannig leggjum við að
minnsta kosti út af niðurstöðum sálfræð-
inganna i Arizona-eyðimörk.
endursagt eh.