Tíminn - 06.06.1982, Qupperneq 23
SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1982
23
á bókamarkaði
‘The Eariy Church
GHenry Chadwick
Henry Chadwick:
The Early Church. Penguin 1981.
■ Þetta er fyrsta bindið í bókaflokki
sem Penguin-forlagið gefur út um
sögu kristinnar kirkju, en nú mun
þessi flokkur hafa spannað söguna
allt fram á okkar daga. Auðvitað
byrjar þessi mikla saga hjágyðingum,
fyrstu kristnu mennirnir voru jú gyð-
ingar hvað sem síðar varð, fámenn-
um hópi sérvitringa sem óx svo ört að
eftir fáeinar aldir taldi rómverska
heimsveldinu sér stafa ógn af honum
og hóf hinar miklu ofsóknir sem náðu
hámarki undir Díókletíanusi keisara.
Þá var líka blómatími hinna miklu
pislarvotta sem þoldu hræðilegustu
pyntingar með gleðibros á vör og
unnu trúnni ótal nýja fylgismenn.
Síðan koma trúskipti Konstantínus-
ar og það skeið þegar kirkjan fer að
taka á sig mynd þeirrarmiklu6tofnun-
ar sem hún síðar varð - þetta var timi
ólíkra safnaða og trústefna sem oft
fjandsköpuðust út i hvor aðra. Höf-
undurinn setur svo punkt þegar páf-
adómurinn er orðinn fastur í sessi
með Gregoríanusi mikla. Henry
Chadwick hefur verið prófessor í
trúarbragðasagnfræði og guðfræði
við háskólana í Oxford og Cambri-
dge.
‘Sh««r phKtsure... to nwKl
WotMwmeonWocMwm
ts to i«ad Wodohoofo’
- Anthooy 8 urge&s
In th« Oöserver
P.G.Wodehouse:
Wodehouse on Wodehouse.
Penguin 1981
■ Hann átti hundrað ára afmæli i
fyrra - P.G. Wodehouse, var þá
reyndar búinn að hvíla undir grænni
torfu í sex ár, en lifir enn góðu lifi sem
einhver frábærasti vitleysuhöfundur
allra tíma. Og þá er orðið vitleysa
notað í sinni bestu merkingu. Wode-
house var óhemju afkastamikill höf-
undur, skrifaði á annað hundrað
bóka, en var alla tíð litið gefið um að
skrifa eða tala um sjálfan sig. Þó lifði
hann ekki óspennandi lífi. Því er
þessi bók hreinn happadráttur fyrir
fjölmarga Wodehouse-lesendur, hér
eru samankomnar í eitt bindi þrjár
bækur sem er hið eina sem Wodeho-
use lét frá sér sjálfsævisögulegrar
ættar. Þetta eru bækurnar „Bring on
the Girls“, sem hann skrifaði i félagi
við Guy Bolton; „Performing Flea“,
en það sagði hann oft um sjálfan sig,
að hann væri hin „tamda fló“ enskra
bókmennta; og „Over Seventy".
Þetta eru sjálfstæðar bækur, en gefa
nokkuð heillega mynd af ævi hans og
ritstörfum. Langt og skemmtilegt líf,
hógvær og meinfyndinn maður sem
kann að segja góða sögu.
Joseph Wambaugh: The Glitter
Dome. Bantam 1982.
■ Enn ein metsölubókin - i þetta
sinn frá Ameríku. Sjötta metsölu-
bókin í röð eftir þennan ágæta
höfund, Jopseph Wambaugh, segir á
bókarkápu. Okkur rámar í t vo titla
- „The New Centurions" og „The
Choirboys", sem út kom í
hitteðfyrra. Sögusvið Wambaughs
eru hin iðandi og hörðu stræti
stórborganna athvarf glæpamanna,
kynvillinga og vændiskvenna, og
söguhetjur hans eru oftastnær
hversdagslegir lögreglumenn sem
lifa í eins konar styrjaldar- og
umsátursástandi, en geta þó tekið á
honum stóra sínum þegar á þarf að
halda.
Þessi bók gerist i Kaliforníu, i Los
Angeles og Hollywood - og Joseph
Wambaugh er þarna til að færa þetta
allt í letur, morð, vændi, nauðganir
plús privat-raunir lögreglumanna.
Og annað veröur ekki sagt en að
hann geri það ágæta vel, i
harðsoðnum og hnifskörpum stil
fyrirrennara á borð við Hammett og
Chandler. Maðurinn er enda
fyrrverandi lögga sjálfur. Segir Luigi.
Deirdre Bair:
Samuel Beckett - A Biography
Picador 1981
■ Það er vist ekki talið heiglum hent
að skrifa ævisögu Samúels Beckett -
mannsins sem skipulagði umferðar-
öngþveiti í París til að komast hjá
þvi að hitta útsendara Helgar-
Tímans. Maðurinn er var um sig,
hleypir ekki hverjum sem er inn á
gafl, og einkalifið er algjört. Þau
hjónin ræðast við gegnum innanhúss
síma, annars ekki, er meðal þess sem
maður veit eftir lestur þessarar
bókar. Beckett veitti Deirdre Bair
(hún er amrísk) litla sem enga aðstoð
við smíð þessarar bókar, en lagði
heldur ekki stein i götu hennar,
kvaðst ekki ætla að lesa bókina.
Bókin ber nokkur merki þess að hér
er um brautryðjendastarf að ræða,
fyrst og fremst staðreyndasöfnun, en
hún er bæði afar læsileg og fróðleg.
Hér kynnumst við Beckett (að
nokkru), mömmu hans (sem er
mikilvægt), J.Joyce, Peggy Guggen-
heim („Kjánalegur bað hann mig að
leggjast við hlið sér á sófann, brátt
vorum við komin í rúmið og héldum
þar kyrru fyrir þangað til um
kvöldmatarleytið daginn eftir..“) og
Murphy og Watt og Molloy og
Malone og Mercier og Camier og
Hinum ónefnanlega og Vladimir og
Estragon og Lucky og Pozzo og
Hamm og Clov en ekki Godot.
■ Bækurnar hér aö ofan eru fengnar hjá Bókabúö Máls og
menningar. Tekiö skal fram aö hér er um kynningar aö ræöa en
öngva ritdóma.
AUGLÝSINGASTOFA KRISTÍNAR HF. 3 100
RJÓMASKYR
Nýtt, mjúkt og ólýsan-
lega bragðgott.
RJÓMASKYR
Próteinríkt, kalkríkt og
sérlega hollt.
Aðeins 67 h.e. í 100
grömmum.
u
RJÓMASKYR MEÐ
MYNTUSÚKKULAÐI
Splunkunýtt!
Hefuralla kosti Rjóma-
skyrs, en þetta nýja
myntusúkkulaðibragð
hefurðu tæpast fundið
áðurafskyri.
Aðeins 85 he. í 100
grömmum.
„ió-nasW'
dagleð8-
o
Fjórhjóladrifnar dráttarvélar
70 og 90 ha.
Kynnið ykkur verð og kosti
BELARUS
Auglýsið í Tímanum
Guðbjörn Guðjónsson
heildverslun
Kornagarði 5 — simi 85677.
$