Tíminn - 08.06.1982, Síða 17
17
ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1982
Iþróttir
Nýja-Sjáland:
Ekki verið
hátt skrifað
■ Prátt fyrir að saga knattspyrnunnar
nái allt aftur til síðustu aldar, þá hefur
Nýja-Sjálandi aldrei fram að þessum
tima tekist að sýna fram á að þar sé á
ferðinni landslið á meðal bestu liða
heims. Þetta er í fyrsta skipti sem
Nýja-Sjálandi tekst að komast i úrslita-
keppni HM.En það fólk sem telur að
þeir hafi enga stórleiki að baki mættu
hafa það hugfast að þeir unnu Indónesiui
2-0 á útivelli í undankeppninni fyrir
framan 100 þúsund áhorfendur.
Landsliðsþjálfarinn er borinn og
barnfæddur í Lancashire i Englandi og
hlaut nafnið John Adshead. Hann var
m.a. leikmaður hjá Exeter og Hartle-
pool, en varð að leggja skóna á hilluna
á besta aldri, aðeins 23 ára vegna
meiðsla. Það lá því beinast við að verða
sér úti um þjálfarastöðu og tók hann
tilboði frá vestur Ástralíu og þaðan lá
leið hans til Nýja:Sjálands. Hann gerðist
landsliðsþjálfari 1979.
Leið þeirra í úrslitin nú var með
léttara móti og m.a. unnu þeir Fiji 13-0.
í þeim leik skoraði Stevie Sumner sex
mörk, en af honum er mikils að vænta
á Spáni í þessum mánuði. Þá má geta
framherjans Biran Turner, sem hefur
um 100 landsleiki að baki.
Litlar líkur eru nú taldar á þvi að þeim
takist að sigra svona glæsilega í
HM-keppninni eins og í leiknum gegn
Fiji. Enn minni líkur eru á því að þeim
takist að komast upp úr riðlinum sem
þeir leika i, því hann er talinn sá
erfiðasti. Nýja-Sjáland leikur í 6. riðli
ásamt Sovétrikjunum, Brasilíu og Skot-
um. Tvær þjóðir komast áfram. - röp.
Chile:
Þriðja sinn
í úrslitum
HM-keppnina.
Þekktasti leikmaður Chile er mið-
vörðurinn Figuera 35 ára gamall og lék
hann með Fort Lauderdale í Norður.
Ameríku. Kappinn hefur verið kosinn
knattspyrnumaður Suður Ameriku þrí-
vegis.
Áðrir þekktir kappar eru, Caszely nú
kominn aftur til Chile og leikur með
Colo-Colo eftir að hafa átt misheppn-
aðan feril á Spáni með Levante og
Espanol. Caszely hefur skorað fleiri
mörk en nokkur annar leikmaður i
Chile.
Chile leikur i riðli tvö með Alsír,
Austurríki og Vestur-Þjóðverjum.
- röp.
■ Chile hefur ekki tekið þátt i
úrslitakeppni HM síðan 1974, þetta er
því í þriðja sinn sem lið þaðan er í
úrslitum, en 1962 voru þeir gestgjafar.
Sigur þeirra í forkeppninni kom mjög á
óvart, fyrirfram hafði ekki verið búist
við þvi að Chile myndi takast að sigra i
sínum riðli, þar á meðal Suður
Amerikumeistarana Paraguay.
Landsliðsþjálfari Chile er Luis Santi-
banez og hafði hann í hyggju að lið Chile
yrði sem best undirbúið fyrir keppnina
á Spáni og ráðgert var keppnisferðalag
um Evrópu. Santibanez hafði í hyggju
að hætta sem landsliðsþjálfari, en var
beðinn um að halda áfram fram yfir
■ Nýja-Sjáland hefur ekki verið hátt
þjóð í knattspymu.
Brasilía:
Þrisvar
orðið
meistarar
— eina þjóðin sem alltaf hefur
verið í úrslitum
■ Brasilía er eina þjóðin sem hefur
alltaf tekið þátt i úrslitakeppnum
heimsmeistarakeppninnar. Brasilía er
einnig eina þjóðin sem hefur unnið
heimsmeistarakeppnina þrisvar
sinnum. Þá varð Brasilia fyrsta þjóðin
til að vinna sér þátttökurétt á Spáni
með því að vinna undankeppnina.
Flamengo félagið sem þykir einna
sterkasta félagslið i Brasiliu vann
Liverpool nýlega 3-0 i keppninni um
heimsbikarinn.
Landsliðsþjálfari Brasiliu er Tele
Santana 50 ára gamall og lék á árum
áður i landsliði Brasilíu. Santana tók
við störfum landsliðsþjálfara árið
1980. Landslið Brasilíu hefur marga
þekkta kappa innan sinna vébanda.
Má þar nefna Derezo 26 ára gamlan
miðvallarleikmann sem i fyrra var
kosinn knattspyrnumaður ársins. En
sá leikmaður sem Brasilia bindur
mestar vonir við i þessari keppni er
Zigo 28 ára gamall framherji. Hann
hefur skorað yfir 60 mörk fyrir
landsliðið og var maðurinn á bak við
sigur Flamengo yfir Liverpool í
Tokyo. Zigo er hæst launaði
knattspyrnumaður i Brasilíu og er
talið að hann hafi um 75 þúsund
islenskar krónur á viku.
Brasilia leikur i 6 riðli sem þykir
einn sterkasti riðillinn, með þeim i
riðli eru Sovétrikin, Skotland og
Nýja-Sjáland.
röp -.
■ Brasilia hefur þrisvar orðið heimsmeistari í knattspymu.
^Baukne cht
,m\ i-OG
tISKÁPAP
PD 2601
Hseoj.gocm
Bfpeeo^ -
Staðgreiösluve
Sta(
^greiös
luverö
w«ö;iÁlcrTL
«r.7.300'
s^eoSn 8.250
magn
RAFBUÐ
Ármúla 3 ■ Sími 38900