Tíminn - 16.06.1982, Side 1
íslendingaþættir fylgja blaðinu í dag
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ!
Miðvikudagur 16. júní 1982
134. tölublað - 66. árg.
Verslunarmannafélagi Reykjavíkur berast undirskriftir hundruða félaga:
Kvikmynda-
VlUfl AD VERKFAIil VR
VERDINÚ STRAX flFLÝST
— Raunhæfar viðræður vinnuveitenda og ASÍ hafnar í gærkvofdi
hornid:
■ Verslunarmannafélagi Reykjavík-
ur bárust í gxr undirskriftarlistar með
nöfnum um þrjúhundruð félaga innan
VR sem kreQast þess að þegar verði
boðað til félagsfundar þar sem borin
verði upp tillaga um að boðuðu
verkfalli sem hefjast á föstudaginn 18.
júni nk. verði aflýst. Flestar undir-
skriftirnar eru ættaðar frá starfsfólki
sem vinnur hjá Flugleiðum og Eim-
skip. Heimildir innan Verslunar-
mannafélagsins herma að upptök
undirskriftariistanna megi m.a. rekja
tfl manna i æðstu stöðum fyrirtækj-
anna.
Ákvörðun hafði ekki verið tekin um
það í gær hvort orðið yrði við ósk
þessara félaga, en verði af bonum, eru
engar likur tfl þess að hann geti farið
fram áður en boðað verkfall kemur til
framkvæmda.
Vonarglæta komst í samningavið-
ræður vinnuveitenda og Alþýðusam-
bands íslands i gærkveldi, og var nú
fyrst talað um að raunhæfar viðræður
hefðu hafist að nýju milli aðila eftir að
upp úr sauð milli þeirra þegar
hugmyndir byggingameistara og
sveina komu upp á yfirborðið um
miðja siðustu viku. Samningafundur
stóð með aðilum á miðnætti i
gærkveldi og var búist við að hann
héldi áfram fram eftir nóttu.
í gærmorgun gerði Guðlaugur Por-
valdsson, rikissáttasemjari, ríkis-
stjórninni grein fyrir stöðunni í
samningaviðræðunum í Ijósi lykta
deilu byggingameistara og bygginga-
manna. Um svipað leyti ræddust
Vinnumálasamband samvinnufélag-
anna og ASÍ við um hugsanlega
möguleika á lausn deilunnar. Síðdegis
í gær ræddust síðan VSÍ og ASÍ við,
og var þeim fundi tramhaldið kl. 20.30
í gærkveldi. Um tiuleytið bættust
fulltrúar Vinnumálasambands sam-
vinnufélaganna i hópinn, og voru þá
lið fullskipuð af beggja hálfu. -Kás
Sjá viðbrögð við
samningi byggingamanna á bls. 3
Hjörleifur
Guttormsson
um steinullar-
áform
Sunnlendinga:
Fá ekki
endur-
greiddan
útlagðan
kostnað
■ „Ég hef ekkert um ákvörðun
Sunnlendinga varðandi steinullarverk-
smiðjuna að segja. Þeir verða sjálfir
að taka á slíku,“ sagði Hjörleifur
Guttormsson, iðanaðarráðherra í sam-
tali við Tímann i gær. „Rikisstjómin
hefur sagt sitt i þessu máli og ef þeir
vilja reisa sér verksmiðju uppá eigin
spýtur, þá þeir um það,“ sagði
ráðherrann.
- Kemur þessi ákvörðun til með að
breyta einhverju varðandi fyrirhugaða
steinullarverksmiðju á Sauðárkróki?
„í þessu máli er ríkið ekki forgöngu-
aðili. Það hefur aðeins boðist til þess
að taka á því með Steinullarfélaginu á
Sauðárkróki, gegn þvi að það tryggi
60% hlutafjár."
- Nú hefur rikið boðist til að greiða
Jarðefnaiðnaði i Þorlákshöfn sannan-
lega útlagðan kostnað vegna undirbún-
ings byggingar steinullarverksmiðju.
Stendur það boð?
„Það tilboð átti að sjálfsögðu við
það að ekki yrði farið af stað með
verksmiðju á þeirra vegurn," sagði
Hjörleifur.
Stefán Guðmundsson, alþingismað-
ur og stjórnarmaður í Steinullarfélag-
inu á Sauðárkróki, sagði í samtali við
Timann í gær, að ákvörðun sunnan-
manna hefði engin áhrif á áform
Steinullarfélagsins. Hann sagði hins
vegar að ekki væri grundvöllur fyrir
tveimur verksmiðjum á fslandi. - Sjó.
■
■ Sólin er nú farin að skina i Austurstræti dag hvem. Þessar ungu konur vom lika einmitt að njóta veður-
bliðunnar þar i gær þegar Ijósmyndarinn átti þar leið um. cnmamynd: Róbert).
bls. 7
Sumar-
tíska
- bls. 2
Langlifi
«