Tíminn - 16.06.1982, Page 1

Tíminn - 16.06.1982, Page 1
íslendingaþættir fylgja blaðinu í dag TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTTABLAÐ! Miðvikudagur 16. júní 1982 134. tölublað - 66. árg. Verslunarmannafélagi Reykjavíkur berast undirskriftir hundruða félaga: Kvikmynda- VlUfl AD VERKFAIil VR VERDINÚ STRAX flFLÝST — Raunhæfar viðræður vinnuveitenda og ASÍ hafnar í gærkvofdi hornid: ■ Verslunarmannafélagi Reykjavík- ur bárust í gxr undirskriftarlistar með nöfnum um þrjúhundruð félaga innan VR sem kreQast þess að þegar verði boðað til félagsfundar þar sem borin verði upp tillaga um að boðuðu verkfalli sem hefjast á föstudaginn 18. júni nk. verði aflýst. Flestar undir- skriftirnar eru ættaðar frá starfsfólki sem vinnur hjá Flugleiðum og Eim- skip. Heimildir innan Verslunar- mannafélagsins herma að upptök undirskriftariistanna megi m.a. rekja tfl manna i æðstu stöðum fyrirtækj- anna. Ákvörðun hafði ekki verið tekin um það í gær hvort orðið yrði við ósk þessara félaga, en verði af bonum, eru engar likur tfl þess að hann geti farið fram áður en boðað verkfall kemur til framkvæmda. Vonarglæta komst í samningavið- ræður vinnuveitenda og Alþýðusam- bands íslands i gærkveldi, og var nú fyrst talað um að raunhæfar viðræður hefðu hafist að nýju milli aðila eftir að upp úr sauð milli þeirra þegar hugmyndir byggingameistara og sveina komu upp á yfirborðið um miðja siðustu viku. Samningafundur stóð með aðilum á miðnætti i gærkveldi og var búist við að hann héldi áfram fram eftir nóttu. í gærmorgun gerði Guðlaugur Por- valdsson, rikissáttasemjari, ríkis- stjórninni grein fyrir stöðunni í samningaviðræðunum í Ijósi lykta deilu byggingameistara og bygginga- manna. Um svipað leyti ræddust Vinnumálasamband samvinnufélag- anna og ASÍ við um hugsanlega möguleika á lausn deilunnar. Síðdegis í gær ræddust síðan VSÍ og ASÍ við, og var þeim fundi tramhaldið kl. 20.30 í gærkveldi. Um tiuleytið bættust fulltrúar Vinnumálasambands sam- vinnufélaganna i hópinn, og voru þá lið fullskipuð af beggja hálfu. -Kás Sjá viðbrögð við samningi byggingamanna á bls. 3 Hjörleifur Guttormsson um steinullar- áform Sunnlendinga: Fá ekki endur- greiddan útlagðan kostnað ■ „Ég hef ekkert um ákvörðun Sunnlendinga varðandi steinullarverk- smiðjuna að segja. Þeir verða sjálfir að taka á slíku,“ sagði Hjörleifur Guttormsson, iðanaðarráðherra í sam- tali við Tímann i gær. „Rikisstjómin hefur sagt sitt i þessu máli og ef þeir vilja reisa sér verksmiðju uppá eigin spýtur, þá þeir um það,“ sagði ráðherrann. - Kemur þessi ákvörðun til með að breyta einhverju varðandi fyrirhugaða steinullarverksmiðju á Sauðárkróki? „í þessu máli er ríkið ekki forgöngu- aðili. Það hefur aðeins boðist til þess að taka á því með Steinullarfélaginu á Sauðárkróki, gegn þvi að það tryggi 60% hlutafjár." - Nú hefur rikið boðist til að greiða Jarðefnaiðnaði i Þorlákshöfn sannan- lega útlagðan kostnað vegna undirbún- ings byggingar steinullarverksmiðju. Stendur það boð? „Það tilboð átti að sjálfsögðu við það að ekki yrði farið af stað með verksmiðju á þeirra vegurn," sagði Hjörleifur. Stefán Guðmundsson, alþingismað- ur og stjórnarmaður í Steinullarfélag- inu á Sauðárkróki, sagði í samtali við Timann í gær, að ákvörðun sunnan- manna hefði engin áhrif á áform Steinullarfélagsins. Hann sagði hins vegar að ekki væri grundvöllur fyrir tveimur verksmiðjum á fslandi. - Sjó. ■ ■ Sólin er nú farin að skina i Austurstræti dag hvem. Þessar ungu konur vom lika einmitt að njóta veður- bliðunnar þar i gær þegar Ijósmyndarinn átti þar leið um. cnmamynd: Róbert). bls. 7 Sumar- tíska - bls. 2 Langlifi «

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.