Tíminn - 16.06.1982, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1982
Xspegli tímans
umsjón: B.St. og K.L.
Gódurmid-
degislúr
■ Stundum er talað um „sofandi sauði“
og þykir það heldur niðrandi umsögn. Hér
sjáum við reyndar tvö sofandi litil lömb,
sem eru að hvfla sig eftir hopp og skopp
morgunsins og fá sér góðan miðdegislúr.
Þessi fallega mynd er tekin í Skotlandi af
tveimur heimalningum.
■ Hún styttir biðtimann með þvi að prjóna fallegar sumarpeysur
úr pakkaböndum
Prjónað úr
pakkaböndum
■ Prjónamir tifa hjá
þeim iðnu, sem nota
tímann vei. Hanne Lyng-
feldt, dönsk Ijósmynda-
fyrirsæta er ein af þeim,
sem iætur timann ekki
hlaupa frá sér án þess að
hafa eitthvað til gagns
milli handanna. Hún seg-
ist oft þurfa að bíða
langtimum saman, - það
fylgir minni vinnu, segir
hún.
Eftir jólin i vetur fékk
Hanne þá hugmynd að
nota pakkaböndin utan
af jólapökkunum sínum
til þess að prjóna sér lit-
skrúðugt vesti. Þetta
þótti henni svo sniðugt,
að hún keypti sér rúllur
af gjafapakkaböndum
og prjónar litlar emalaus-
ar peysur fyrir sumarið.
Hún er á myndinni i
hvitri peysu sem hún bjó
þannig tU, og á prjónun-
um hefur hún rauða
peysu úr pakkaböndum,
það er um að gera að
eiga til skiptanna á sumr-
blúndum. svinað op í hinðhiíninc
Sumarlegir kvöldkjólar frá ukrainska tiskufyrirtækinu Lvov
■ Sumarið er komið og
kominn tími til að huga
að sumarfatnaðinum.
Hönnuðir Lvov tísku-
hússins í Ukrainu i Sovét-
ríkjunum hafa hannað
hversdags- og kvöldfatn-
að, og nota mikið þjóð-
legar fyrirmyndir, sem
eru óþrjótandi upp-
spretta fyrir nýjustu
tískustefnur. Þama má
sjá hefðbundin ukrainsk
snið, útsaum og dúk.
Af dúk er aðallega um
að ræða nýja framleiðslu
ukrainskra ldæðaverk
smiðja, s.s. Rovno hör-
verksmiðjunnar, Tsj-
emigov tvistdúksverk-
smiðjunnar, Temopol
bómullarverksmiðjunn-
ar og Kiev og Darts
silkiverksmiðjanna, sem
Lvov tiskuhúsið hefur
lengi skipt við.
Nýbreytni, endingar-
gæði, einföld tækni, fal-
legir litir og smekkleg
notkun þjóðlegra fyrir-
mynda einkenna fata-
hönnun Lvov tískuhúss-
ins og hafa unnið þvi
viðurkenningu meðal
sérfræðinga i öðram
löndum.