Tíminn - 16.06.1982, Síða 13
t * » \ t * .! mifi "vjm
MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1982'
Iþróttir
■ Diego Maradona tekur á móti fjölskyldu sinni (16 manns) á Barcelonaflugveili. Liðið ætlaði skömmu seinna að setjast að i
æflngabúðum argentínska liðsins, en þá tók þjálfarinn Menotti í taumana.
„Lýðurinn upp um alla veggi”
(PRIMA) MARADONA -
STENMJR UPP í
HÁRINU Á MENOTH
■ Vandamálin hrannast nú upp í
kringum stórstjörnu fótboltans númer
eitt, Argentinumanninn Diego Mara-
dona (sem af mörgum er nú kallaður
Diego Primadonna). Nú síðast mættu 16
meðlimir fjölskyldu hans sætir og klárir
á BarcelonaflugvöU og ætluðu sér að búa
hjá Diego í æflngabúðum argentinska
landsliðsins á meðan HM stendur.
Þegar Maradona kom með liðið að
búðunum trylltist þjálfarinn, Cesar
Menotti, bókstaflega og öskraði yfir
hópinn: „Þetta er heimsmeistarakeppni
i knattspyrnu, ekki sumarleyfi. Hugsið
ykkur ef allir leikmennirnir kæmu með
fjölskyldur sínar og lýðurinn væri hér
uppum alla veggi, alla daga.“
Auðvitað varð Maradona hinn súrasti
yfir málalokunum og sagði fjölskyldu
sína svo mikilvæga, að án hennar á
staðnum ætti hann erfitt með að einbeita
sér að knattspyrnuleiknum. En Menotti,
„el falco“, Loginn, hafði sigur að þessu
sinni.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þeim
Maradona og Menotti lendir saman,
einkum hefur starfsmaður nokkur að
nafni Jorge Cyterszpiler séð um að koma
þeim i hár saman, en Joggi þessi ku vera
einskonar umbi Maradona. Umbinn
hefur lengi haft það til siðs að rukka þá
sem Maradona yrðir á um stórar
fjárfúlgur. Menotti tók loks af skarið
gómaði Jogga og skipaði honum að
halda sig frá Maradona á meðan hann
væri í sinni umsjá. Varð það úr.
Nú er allt eins búist við því á Spáni
að enn kunni uppúr að sjóða millurn
þeirra Menotti og Maradona (og Jogga)
og er sagt að andrúmsloft þetta hafi hin
verstu áhrif í æfingabúðum Argentínu-
mannanna...
Þeir taka lífinu létt
Frá Erik Mogensen, fréttamanni
Timans á Spáni:
■ Undirbúningur landsliðs Nýja-Sjá-
lands fyrir HM hér á Spáni hefur vakið
verðskuldaða athygli. Æfingar hafa
verið vægast sagt stopular og hvers kyns
skemmtanir í fyrirrúmi.
Undanfarna daga hafa þeir heimsótt
sólarströndina á Costa del Sol, verið
viðstaddir tvö nautaöt, brugðið sér á
England-
Frakkland
í kvöld
■ í dag verður sannkallaður stórleikur
í Heimsmeistarakeppninni á Spáni
þegar lið Englendinga og Frakka mætast
i Bilbao. Bæði liðin þykja líkleg til
afreka i keppninni og verður þetta því
æði harðskeytt eldskirn.
Þá mæta heimamenn, Spánverjar, liði
Honduras og þar ætla Spánverjarnir sér
að fara með stórsigur af hólmi. Annað
væri hreinasta hneisa fyrir spánska.
Leikur þessi fer fram í Valencia.
Loks ber að nefna viðureign Vestur-
Þjóðverja og Alsirbúa í Gijon.
-IngH
flamingo-hátíð og haft alkó-hólinn í
farteskinu.
Það var ekki fyrr en i gær (mánudag)
að mælt var með því að hafa hemil á
köppunum og reyna að koma aga á liðið,
en... eingöngu eftir kl. 9 á kvöldin.
Leikmennirnir höfðu síðan tveggja
klukkustunda æfingu á leikvanginum i
Malaga i brennandi sól og lygnu veðri.
Það er glöggséð að Ný-Sjálendingarnir
eru þrátt fyrir allt í mjög góðu likamlegu
formi, en sömu sögu er ekki að segja um
leikni þeirra með knöttinn, markskot og
önnur tæknileg atriði.
Að aflokinni æfingunni kvartaði
þjálfarinn sáran undan meiðslum lykil-
manna liðsins, en sagði jafnframt að
menn sinir gætu komið á óvart i
keppninni. „Venjulcga vinnur nauta-
baninn, en ég skal ekki þvertaka fyrir,
að hið gagnstæða getur alltaf gerst.“
EM/IngH.
Tele Santana
■ Fyrir aðeins tveimur árum yfirtók
Tele Santana þjálfarastarfíð hjá brasi-
liska knattspymulandsliðinu af hinum
fræga Claudio Couthinho, sem oft er
kallað „heitasta“ starfið i fótbolta-
heiminum. Á þessum tveimur árum
hefur Santana byggt upp lið sem
flestir álíta nú að muni sigra i HM.
Á 6. áratugnum lék Santana i
Iandsliði Brasilíu, en lcikirnir urðu
samt æði fáir, eða aðeins þrir. Árið
1965 hófst þjálfaraferill hans hjá
Fluningensen-félaginu og hefur verið
nær óslitin sigurganga siðan. Hann
þykir sérfræðingur í „taktisku spUi“
eins og sjónvarpsáhorfendur íslenskir
hafa væntanlega fengið að sjá i
gærkvöldi.
1. deild fótboltans
fA-UBK
í kvöld
■ Tveir leikir verða í 1. deild
fótboltans í kvöld. Á Akranesi leika
Skagamenn gegn toppliði deildarinn-
ar, Breiðabliki. Norður á Akureyri
mætast siðan KA og Valur og hefst sú
viðureign kl. 20.
Samkvæmt Mótabókinni munu Vik-
ingur og ÍBV eigast við í kvöld á
Laugardalsvelli í Meistarakeppni KSÍ,
en hvorki hefur heyrst hósti né stuna
frá framkvæmdaaðilum þessa leiks.
Venjan hefur verið sú, að reynt hefur
verið að gera dálitið umstang í
kringum leik þennan, en það er
greinilega liðin tið.
IngH
Tímarit um knattspyrnu
■ Komið er út fyrsta tölublað tima-
ritsins Allt um knattspymu og kennir
þar margra grasa. Fjallað er um
íslandsmótið í ár, viðtal er við
Jóhannes Atlason, landsliðsþjálfara,
dagbók Sigurlásar Þorleifssonar frá
landsliðsferðinni til Kuwait, fjallað um
HM í knattspyrnu o.fl.
1 spjalli við ritstjóra blaðsins, Jens
G. Einarsson og Sigurð Helgason,
kom fram að áhuginn fyrir slíku
knattspyrnutimariti yfir sumarmánuð-
ina væri hreint ótrúlegur. „Við vonum
að undirtektirnar verði jafngóðar við
næsta tölublaði, en það verður í mjög
endurbættri útgáfu, ennþá efnismeira
og með nýrri útlitsteiknun," sögðu
þeir félagarnir.
Væntanlegir áskrifendur geta snúið
sér (eða skrifað) til skrifstofu blaðsins
að Hjarðarhaga 17, Reykjavík.
Vormót UIA
■ Vormót UÍA í frjálsum íþróttum 100, 400, 800 og 1500 m. hlaupum,
verður haldið 20. júní nk. að Eiðum langstökki, hástökki, kúluvarpi,
og hefst keppni kl. 10. Keppt verður í kringlukasti, spjótkasti og að auki í
eftirtöldum greinum karla og kvenna: þrístökki karla. -IngH
íslandsmet
■ Bryndis Hólm, IR, setti nýtt
Islandsmet i langstökki sl. mánudag á
fyrra degi Meistaramóts Reykjavíkur i
frjálsum iþróttum. Hún stökk 5.80 m.,
2 sm. lengra en eldra íslandsmet Helgu
Halldórsdóttur, KR. Reyndar hefur
Bryndis verið lengi rétt neðan við
metið og það var aðeins timaspursmál
hvenær hún léti til skarar skriða.
-IngH
Mynd Ari
■ Bryndís Hólm, ÍR, i metstökki sínu, 5.80m