Tíminn - 16.06.1982, Síða 20

Tíminn - 16.06.1982, Síða 20
VARAHLUTIR Sendum um land allt Kaupum nýlega bíla til niðurrífs Sími (91) 7 - 75-51, (91) 7- 80 -30. TTTTi'pv'n TTT? Skemmuvegi 20 rlrjUU rir . Kópavogi Mikiö úrval Opið virka daga 919 • Laugar- daga 10-16 HEDD HF. Gagnkvæmt tryggingafélag labriel HÖGGDEYFAR QJvarahlutir Armiila 24 Sími 36510 — sautjánda árbók Þjóðsögu MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1982 Aðalritstjóri og framkvæmdastjóri bókarinnar í heimsókn ■ Þá hefur bókaútgáfan „Þjóð- saga“ sent frá sér árbókina i 17. sinn og að þessu sinni er það að sjálfsögðu „Árið 1981“ sem kemur út. Þetta er stór bók og afburða vönduð, 344 blaðsíður að stærð og i sama broti og simaskráin. Eins og áður er í bókinni islenskur sérkafli. I tilefni af útkomu bókarinnar eru komnir hingað til lands þeir Eric Gysling aðalritstjóri bókarinnar í Sviss og Gerd Braun fram- kvæmdastjóri. Við hittum þá að máli fyrir helgina og spurðum ýmissa atriða um bókina. „Bókin byrjaði að koma út árið 1946 á sænsku," segir Gysling, „ og hún var skjótt þýdd á öll hin helstu tungumál og kemur nú út á átta málum. Þau eru þýska, franska, italska, spænska, enska, sænska, finnska og íslenska. Bókin hefur komið út á íslensku frá 1965 og upplag hennar hér er um 6 þúsund eintök. Það verður að teljast mjög mikið á ekki stærri markaði. Líklega kemur bókin út í alls 120 þúsund eintökum á þeim málum sem ég nefndi. Vegna þess að bókin á uppruna sinn á Norðurlönd- um hefur hún stöðugt mikla útbreiðslu þar og við hana starfa bæði finnskur og sænskur ritstjóri og danskur útlitshönn- uður. Það er að sjálfsögðu mikill fjöldi manna sem kemur við sögu við gerð bókarinnar ár hvert og ég á erfitt með að nefna neina tölu, því margir vinna fyrir okkur i igripum víða um lönd. Ljósmyndirnar kaupum við með tilstyrk umboðsmanna, en eigum síður samband við ljósmyndarana sjálfa. Vinnsla bókar- innar byggist því á mjög vel skipulögðu neti umboðsmanna. Já, ég hef komið til fslands áður og tala nokkra islensku. Ég hef lengi verið hugfanginn af þessu háþróaða máli og íslenskri menningu ekki sist bókmenn- ingu. Gerð íslensku útgáfu bókarinnar nú er til dæmis sérlega vel af hendi leyst, en hún er sett og filmuunnin á íslandi. Prentun var gerð í Sviss og bókbandið unnið i Þýskalandi. Þetta er mjög falleg bók. Bókalestur og bókagerð stendur á traustum grunni á íslandi og nærist á menningaráhuga landsmanna. Eg hef fengið tækifæri til þess að hitta Halldór Laxness að máli og ræða við hann um stund.. Það var mér ógleymanleg stund.“ Gysling er mikill áhugamaður um svifflug og við spurðum hann nú hvort hann hefði ekki fengið tækifæri til þess að spreyta sig i þeirri list hérlendis. „Já, ég hef um 300 flugtíma sem svifflugmaður. Ég fékk einmitt tækifæri til þess að skreppa upp á Sandkeiði um daginn og fór þar i flugferð. Ég bauð vini minum, Hafsteini Guðmundssyni, forstjóra Þjóðsögu að koma með mér í íoftið, en hann afþakkaði gott boð. Hvað sem veldur. Ég vona þó að hann skipti um skoðun og komi með mér næst.“ -AM Gerd Braun, framkvæmdastjóri og Eric Gysling, aðalritstjóri árbókarinnar. (Tímamynd G.E.) fréttir Markaregn á HM ■ Sannkallað markaregn varð i þeim þremur leikjum sem leiknir voru í gærkveldi i úrslitakeppni Heimsmeistara- mótsins i knattspyrnu sem fer fram þessa dagana á Spáni. Ungverjar settu nýtt marka- met í keppninni allt frá upphafi hennar, þegar þeir sigruðu E. Salvador 10:1. Er þetta í fyrsta sinn sem liði tekst að skora svo mörg mörk í leik að tveggja stafa tölu þurfi til að lýsa fjölda þeirra. Staðan i hálfleik var 3:0 fyrir Ungverja- landi. Skotar lögðu Nýja Sjáland með 5 mörkum gegn tveimur, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 3:0, eins og í leik Ungverja og E1 Salvador. Að lokum kepptu Perú og Kamer- on. Skar sá leikur sig út úr öðrum leikjum sem fram fóru um kvöldið, því hann endaði með markalausu jafntefli. -Kás „Ánægð með þessa Iausn“ - segir Bella Korsnoj ■ „Auðvitað er ég ánægð með þessa lausn eftir allt það sem á undan er gengið. Við erum nú i óða önn að ganga frá öllu sem ganga þarf frá í sambandi við flutningana og ég reikna með að við förum 27. þessa mánaðar," sagði Bella Kortsnoj, eiginkona skák- meistarans Viktors Kortsnoj, en eins og kunnugt er fengu Bella og sonur hennar Igor leyfi til að flytja frá Sovétríkj- unum fýrir skömmu eftir sex ára þras við stjórnvöld í Sovétrikjunum. „Ég get ekki sagt að þetta hafi komið mér á óvart. Ég reiknaði alltaf með að þeir myndu leyfa okkur að fara eftir að Igor var búinn að afplána fangavistina. Enóneit- anlega var ég kvíðin um tima, eftir að þeir kvöddu hann í herinn á nýjan leik. Nú vil ég gleyma þessu stríði og hefja nýtt líf með eigin- manni mínum og syni. Við Igor hlökkum mikið til að hitta Viktor,“ sagði Bella. -Sjó dropar Handa- bandid ■ Það líður ekki sá dagur að ekki berist nýjar upplýsingar af nábúadeilunum á Bergþórs- hvoli, þar sem þeir eigast við þingmaðurinn Eggert Hauk- dal og klerkurinn Páil Pálsson. Þótt undarlegt megi virðast mun þeim aldrei hafa lent saman í eigin persónu i öll þau ár sem deilan hefur staðið heldur hafa einhverjir aðrir séð um að skattyrðast fyrir þeirra hönd. Þó höfum við spumir af því að þeir hafi hist á hvitasunnunni, og nieira að segja tekist i hendur i fyrsta (og kannski siöasta) sinn. Þannig var að Eggert, ásamt öðrum gestum, var á leið úr kirkju eftir að hafa hiýtt á messu. Séra Páll stóð i kirkju- dyrunum og kvaddi alla með handabandi. Það munu hafa komið nokkrar vomur á klerk- inn þcgar Eggert kom i gættina, en eftir nokkra um- hugsun tókust kapparnir þó í hendur þótt litil hafl orðaskipt- in orðið. Það fylgdi sögunni, og má vera til marks um hörkuna sem hlaupin er í deiluna, að heitustu stuðningsmenn Egg- erts munu hafa skotið sér undan þvi að taka i hönd klerksins. Flottir á því hjá SÍF ■ Þeir hjá Sölusambandi is- lenskra fiskframleiðenda voru flottir á því þegar þeir héldu upp á 50 ára afmæli sambands- ins í gær. Gestir í hádegisverð- arboði voru svo margir að þeir fylltu Súlnasal Hótel Sögu, og eins og teljast verður viðeig- andi var boðið upp á saltflsk í matinn, enda liflð salflskur hjá þeim í SÍF. Það var þó engin venjulegur saltfiskur með feiti og kartöflum sem var á borðum, heldur voru fengnir hvorki fleiri né færri en sex matreiðslumeistarar frá Portú- gal til þess að hantera fiskinn eins og finast þykir þar i landi. Saltfiskurinn var matreiddur á níu mismunandi vegu og rak mörlandinn upp stór augu þegar hann sá suma réttina. En það var ekki látið sitja við saitfiskinn einan heldur voru framreiddar fjórar teg- undir af portúgölskum guða- veigum: hvitvín, rauðvin, sherrý og brandý. Gestir munu ekki hafa verið síður hrifnir af þeim en saltflskinum. Af þessum vinum er annars það að segja, að umboðsmaður SÍF i Portúgal sendi þau sérstaklega hingað til lands i tilefni af umræddri veislu. Til hamingju með afmælið - saltflskmenn! Krummi... sá þessa smáauglýsingu í DV: „53 ára kona óskar eftir að kynnast góðum manni með smáferðalög í huga og í september til Júgóslaviu, þarf að fjármagna sinn hluta“. Hverslags frekja er þetta eiginlega?

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.