Tíminn - 19.06.1982, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1982
LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1982
m
■Félagar úr Lúðrasveit Akureyrar með tryggasta fylgjunaut sinn og heillastjömu, bangsann Ebba
(Timamynd G.E.)
■ Óskar Öm Ólafsson úr Lúðrasveit
Vestmannaeyja er 14 ára gamall og
leikur á barytonhom.
(Tímamynd G.E.)
■ Þetta er yngsti félagi Lúðrasveitar
Stykkishólms. Hann heitir Jón Þór
Sturluson og er 11 ára.
(Timamynd G.E.)
■„Lúðrasveit íslap.ds“leikur „Blásið homin“ eftir Áma Björnsson undir stjóm Hans Ploder.
(Timamynd G.E.)
HAFNARFIRÐI
landsmóti lúðrasveita um síðustu helgi
Reynir Guðnason og Ævar Hjaltason. Þeir báru hitann og þungann af
[ undirbúningsstarfinu. (Tímamynd G.E.)
Margra
mánaða
undirhún-
ingsstarf
Rætt við Reyni Guðnason
og Ævar Hjaltason
■ Það tók vel undir i Hamrinum þeirra
Hafnfirðinga s.l. laugardag, þegar hóp-
ur nær 250 isienskra lúðrasveitarmanna
blés mars Áma Bjömssonar, „Blásið
homin" við Lækjarskólann undir stjóm
Hans Ploder. í Hafnarfirði var ncfnilega
haldið landsmót islenskra lúðrasveita
um helgina og þangað mættu átta
lúðrasveitir. Auk gestgjafanna, Lúðra-
sveitar Hafnarfjarðar vora þama Lúðra-
sveit Akraness, Lúðrasveit Akureyrar,
Lúðrasveit Selfoss, Lúðrasveit Stykkis-
hólms og Lúðrasveit Vestmannaeyja.
Þá vom þama Svanurinn og Lúðrasveit
Verkalýðsins úr Reykjavík.
Mótið byrjaði snemma á laugardags-
morgun með samæfingu lúðrasveitanna
i iþróttahúsinu á þeim lögum sem siðar
um daginn voru leikin af öllum
sveitunum saman. Markmið landsmót-
anna er ekki síst að láta reyna á hve
lúðrasveitunum fer fram í listinni eftir
þvi sem þær hafa gerst fjölmennari,
útbúnaður þeirra betri og skólun
félaganna meiri. Er þar skemmst frá að
segja að á mótinu nú kom fram að
lúðrasveitirnar hafa náð miklum árangri
í framfaraátt. Sýndi það sig þarna hve
kennsla menntaðra manna í blásturs-
hljóðfæraleik er nú farin að skila árangri
með hópum af ungu og vel skóluðu fólki
sem fyllir raðir lúðrasveitanna. Lögin
„runnu í gegn,“ eins og sagt er í
lúðrasveitunum. eitt af öðru, - og Hans
Ploder, sem vanur er góðum lúðrasveit-
arleik frá heimahögunum í Austurríki
sagði á eftir: „Ja, þetta vildi ég eiga á
plötu.“ Ploder stjórnaði lagi Árna
Björnssonar, eins og áður segir, en
öðrum lögum stjórnuðu þeir Atli
Guðlaugsson, frá Lúðrasveit Akur-
eyrar, Ásgeir Sigurðsson, frá Lúðrasveit
Selfoss og Ellert Karlsson frá Lúðrasveit
Verkalýðsins.
„Marsérað“ að Lækjarskóla
Eftir hádegið, klukkan 13.30 lögðu
Lúðrasveit Stykkishólms „marsérar“ á mótsstaðinn.
(Tímamynd G.E.)
lúðrasveitirnar af stað frá tveimur
stöðum í Hafnarfirði og gengu með
mikilúðlegum hornablæstri að Lækjar-
skólanum. Þar lék hver sveitanna þrjú
lög og loks var endað á sameiginlegum
leik „Lúðrasveitar fslands." Þótt öðru
hverju kæmi dropi úr lofti í Hafnarfirði
á laugardaginn var enginn hrollur í
neinum þegar af mótstaðnum var
gengið, þvi það má vera dauð sál sem
ekki hitnar í hamsi við að heyra volduga
hljóma 250 manna lúðrasveitar. (En
hvar voru liðsmenn sjónvarps islenska
Ríkisútvarpsins? 250 manna lúðrasveit,
- ágæt lúðrasveit að auki, - hlýtur þó að
vera boðlegt efni? Varla síðra en sýning
á nokkrum vatnslitamyndum?)
Bæjarstjóm Hafnarfjarðar efndi til
kaffisamsætis í Flensborgarskóla að leik
lúðrasveitanna loknum og þar fluttu þeir
ávarp forseti bæjarstjórnar, Árni Grétar
Finnsson. frv. forseti bæjarstjórnar,
Stefán Jónsson og frv. bæjarstjórnar-
maður Árni Gunnlaugsson og hlutu þeir
viðurkenningargripi og þakkir Lúðra-
sveitarinnar í Hafnarfirði, en hún hefur
lengi átt hauka í horni, þar sem þessir
menn eru. Þá bárust Lúðrasveit Hafnar-
fjarðar góðar gjafir frá lúðrasveitunum
og einnig hlutu formenn og stjórnendur
sveitanna að gjöf veglegan minnispening
sem Lúðrasveit Hafnarfjarðar lét slá í
tilefni af mótinu.
Boðið til móts á Akureyri
Mikinn fögnuð vakti þegar einn
lúðrasveitarmannanna, Sigtryggur J.
Helgason frá Akureyri tók á móti fagurri
silfurkönnu frá stjórn SÍL fyrir 50 ára
lúðrasveitarstarf. Var það formaður
SÍL, Eiríkur Rósberg Áreliusson sdem
afhenti Sigtryggi viðurkenningu þessa.
Kom formaðurinn að hljóðnemanum
öðru sinni skömmu síðar og tilkynnti að
Lúðrasveit Akureyrar hefði boðist til að
taka að sér að sjá um næsta landsmót
árið 1985 og var boðinu fagnað með
langvinnu lófataki.
Mótinu lauk með dansleik i Ártúni
um kvöldið og auðvitað var ekki farið
yfir lækinn eftir vatninu, því félagar úr
Lúðrasveit Akureyrar spiluðu dynjandi
dansmúsik á hornin fram eftir kvöldinu.
Lúðrasveit Hafnarfjarðar hlaut verð-
ugt lof gesta sinna fyrir prýðis vel
heppnað og vel skipulagt landsmót, en
það kostar ekki litla vinnu að bjóða á
þriðja hundrað manns heim. Hafnfirsku
félögunum bárust lika margar þakkirfrá
gestum þeirra i lok mótsins, - þvi eins
og einhver komst að orði á laugardag-
inn: „Tíunda landsmótið mun geymast
og safna vöxtum i sjóði endurminning-
anna.“
- AM
■ Það kostar talsverða vinnu og
undirbúning að bjóða á þriðja hundrað
manns heim, en þeir létu þaö samt ekki
vaxa sér i augum forystumenn Lúðra-
sveitar Hafnarfjarðar og við Timamenn
fundum þá að máli við Lækjarskólann,
Ævar Hjaltason, formann lúðrasveitar-
innar og Reyni Guðnason framkvæmda-
stjóra mótsins.
„Við byrjuðum að undirbúa mótið
þegar i haust,“ segja þeir félagar" og
fyrsta verkefnið var að velja og síðar að
senda lúðrasveitunum þau lög sem leikin
voru sameiginlega. Við annan undirbún-
ing þurftum við að leita eftir aðstoð frá
bæjaryfirvöldunum i Hafnarfirði og við
viljum koma á framfæri þökkum til
þeirra fyrir ágætar viðtökur og rausnar-
skap sem okkur var sýndur. Sama er að
segja um aðra þá sem við þurftum að
leita til, - menn voru alls staðar boðnir
og búnir til þess að leysa allan vanda og
koma til móts við okkur með hvað sem
var.
Jú, við erum harla ánægðir með
framkvæmd mótsins. Þátttaka lúðra-
sveitanna er góð og við höfum fengið
hér talsvert af áheyrendum þótt við
hefðum getað óskað okkur betra veðurs.
En við hefðum líka getað fengið verra
veður en þetta.“
Þeir Ævar og Reynir eru báðir reyndir
liðsmenn í Lúðrasveit Hafnarfjarðar og
við spyrjum um starf sveitarinnar.
„f sveitinni eru nú 30 félagar og starfið
hefur verið liflegt á þessu starfsári. Við
héldum okkar árlegu hljómleika fyrir
styrktarfélaga nú fyrir skömmu og
höfum leikið að vanda við hin margvis-
legustu tækifæri, - auk þessara venju-
lega tilefna, á sjómannadaginn, 1. mai
og 17. júní.“ - AM
Gróska í starfi
lúðrasveitanna
segir Eiríkur Rós-
berg, formaður SÍL
■ „Það er tíunda landsmót SÍL, sem
við höldum hér i Hafnarfirði i dag,“
sagði Eiríkur Rósberg Areliusson,
formaður Sambands islenskra lúðra-
sveita, þegar við hittum hann að máli i
Hafnarfirði á laugardaginn. Eirikur
Rósberg leikur i Lúðrasveit Akureyrar
og hefur verið formaður SlL frá 1978.
Áður lék hann lengi með lúðrasveitinni
Svanur í Reykjavík og hann hóf feril í
lúðrasveitum í annarri af fyrstu islensku
skólalúðrasveitunum árið 1955, aðeins
tíu ára gamall.
„Fyrsta landsmót islenskra lúðra-
sveita var raunar haldið árið 1955,“ segir
Eirikur, „en það var í Reykjavik. Næsta
mót var á Akureyri, þá i Vestmannaeyj-
um, ísafirði, Siglufirði, Selfossi, i
Keflavik, á Húsavik, í Stykkishólmi og
nú hér í Hafnarfirði. Ég hef sjálfur tekið
þátt i fjórum mótum og hef aðeins misst
af einu frá þvi er ég byrjaði, en þá var
ég erlendis við nám. Hér eru hins vegar
saman komnir í dag margir eldri félagar
úr lúðrasveitunum sem sótt hafa öll
mótin frá byrjun.
Já, það er rétt. Karl O. Runólfsson
var minn fyrsti kennari á trompetinn og
hann var lika einn helsti hvatamaður að
stofnun SÍL og fyrsti formaður þess og
siðar heiðursfélagi.
Ég lýsi ánægju minni með hve mótið
i dag hefur farið vel fram og þar eiga
Hafnfirðingar ekki minnstan hlut að
máli, sem annast hafa undirbúning. Það
eru átta lúðrasveitir sem eru hér komnar
i dag og ég geri ráð fyrir að fjöldinn sé
nærri 250 manns. Mót sem þetta telja
sumir að betra sé að halda úti á landi en
i þéttbýlinu hér fyrir sunnan og það kann
að vera nokkuð til í þvi, en hér hefur
mjög vel tekist til eigi að síður, því
samhugur lúðrasveitarmanna nýtur sin
hvar sem þeir koma saman.
í tengslum við mótið var komið upp
sýningu á nokkru af þeim gögnum sem
safnað hefur verið til sögu lúðrasveit-
anna, en vonast er til að við getum
komið henni út í bókarformi á 30 ára
afmæli SÍL. Þetta hefur verið eitt helsta
verkefni okkar að undanfömu.
Á mótinu nú sést að starf lúðrasveit-
anna er sífellt að eflast og æ fleiri koma
til okkar úr skólalúðrasveitunum. Það er
sýnilega veruleg gróska í lífi lúðrasveit-
anna i dag.“
- AM
■ Eiríkur Rósberg: „Sumir gömlu
félaganna hafa sótt mótin allt frá
byrjun“. (Tímamynd G.E.)
■ Sigtryggur J. Helgason með viðurkenningargripinn.
Heiðradur
fyrir 50 ár
með iúðra-
sveit sinni
(Tímamynd G.E.)
■ Á lúðrasveitamótinu var Sigtryggur
J. Helgason frá Akureyri heiðraður fyrir
50 ára lúðrasveitastarf og hlaut hann
fagurlega áletraða bjórkönnu úr silfri
frá SIL sem viðurkenningu. Sigtryggur
mun eflaust kunna að meta þcnnan grip
vel, þvi hann er sjálfur gull og
silfursmiður og ber skynbragð á slíka
hluti. Blaðamaður Timans fann Sigtrygg
að máli og spnrði hann um fyrstu árin í
lúðrasveitum á Akureyri:
„Ég byrjaði að spila með lúðrasveit-
inni Heklu árið 1929, þá 17 ára,“ segir
Sigtryggur, „en ég er fæddur 27.9.1912.
Ég fór að blása að hvatningu Karls O.
Runólfssonar, sem kom norður 1929 og
endurvakti lúðrasveit á Akureyri eftir
nokkurra ára svefn. Hekla starfaði svo
i nokkur ár, en leið undir lok og var það
1942 sem Jakob Tryggvason stofnar
Lúðrasveit Akureyrar. Þar hef ég spilað
með æ síðan.
Að öllum mönnum öðrum ólöstuðum
álit ég að enginn hafi unnið lúðrasveitun-
um jafnmikið gagn og Karl O. Runólfs-
son og þar á ég ekki sist við hlutdeild
hans i stofnun SÍL. Það er orðin
stórbreyting á lúðrasveitunum nú frá því
sem var í gamla daga og það er auðvitað
að þakka skólun unga fólksins og
stofnun tónlistarskóla viða um land.
Ég var á móti skólalúðrasveitanna á
Akureyri um daginn og þar voru komnir
saman 430 unglingar. Það var gaman að
sjá.“
Sigtryggur J. Helgason er sjötugur í
haust. Hann hefur verið drjúgur liðs-
maður i sinni lúðrasveit og til gamans
má nefna að hann hefur leikið á nær öll
hljóðfæri lúðrasveitarinnar og gripið
það hornið sem helst vantaði hljóðfæra-
leikara á við hvert tækifæri. Það leika
ekki margir áhugamenn eftir. Nú er
hann á barytonhorninu. Sigtryggi er
óskað til hamingju og Lúðrasveit
Akureyrar með Sigtrygg. _ AM