Tíminn - 01.07.1982, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1982
5
fréttir
„ÞETTA ERU SKYNSAM-
LEGIR KIARASAMNINGAR”
— segir Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ
■ Á meðan samninganefndarmenn biðu í nótt eftir að gengið yrði frá siðustu atriðum nýs kjarasamnings var ýmislegt sér
tii dundurs gert. Hér sjást samninganefndarmennirnir Guðmundur P. Jónsson og Benedikt Davíðsson við skákborðið, en
meðal þeirra, sem fylgjast mcð, er Gestur Jónsson, sem á sæti i sáttanefndinni, fyrir miðri mynd. Tímamynd: Róbert.
■ „Ég held að þetta séu skynsamlegir
samningar. Sé litið til efnislegrar
niðurstöðu samninganna - sem er i
sjálfu sér eini mælikvarðinn á þá - þá
stefna þeir að því að tryggja meðaltals-
kaupmátt ársins 1981. Og þar sem allar
spár hníga i þá átt að þjóðartekjur
dragist saman, þá gefur það okkur til
kynna að með samningunum sé stefnt
að aukinni hlutdeild launafólks. í>að
hljótum við að telja nokkurn árangur,"
sagði Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ
er Tíminn spurði hvort hann væri
sammála ríkissáttasemjara um að nýju
samningamir séu skynsamlegir.
„Ekki er óeðlilegt að spurt sé hvort
rétt hefði verið að sækja lengra, frekar.
en að sætta sig við þessa niðurstöðu.,
Mitt mat er að það hefði ekki tekist án
mikilla átaka á vinnumarkaðinum. í þau
átök tel ég að fólk hafi ekki verið
reiðubúið, né til þeirra fórna sem þau
hefðu útheimt. Sjálfur er ég sammála
því mati fólks, tel að það hefði ekki verið
skynsamlegt að fara þá leið. Á þeirri
forsendu finnst mér niðurstaðan, - að
þetta séu skynsamlegir samningar - vera
rétt.“
Ásmundur var nýkominn af fundi í
72ja manna samninganefnd ASÍ þar sem
hann sagði samningana samþykkta
samhljóða. En þótti mönnum þó ekki
samningur, m.a. um visitöluskerðingu
erfiður biti að kyngja?
„Auðvitað er sérstök 2,9% vísitölu-
skerðing 1. september ágalli í þessum
samningi og einnig að við skulum ekki
losna við skerðingarákvæði Ólafslaga.
En það hlýtur að vera heildarniðurstaða
samningsins sem við metum fyrst og
fremst. Berum við saman kauphækkanir
sem samningurinn felur í sér og hins
vegar þá visitöluskerðingu seoi i honum
felst, þá er heildarniðurstaðan eins og
ég sagði sú, að meðaltalskaupmátturinn
1981 muni nást á samningstímanum,
sem gerir þessa niðurstöðu ásættanlega."
- Hvað er þá kauphækkunin mikil?
„í svona samningi er niðurstaðan ekki
ein tala. Sumir hækka um 4% nú 1. júli,
aðrir um 8-9% og hugsanlega meira.
Þetta fer eftir þvi hvort þeir njóta
breyttra starfsaldurshækkana, flokkatil-
færslna, eða fá aðeins grjnnkaupshækk-
unina eina. Meðaltalshækkunina í þess-
um samningi mundi ég áætla umó,5%
nú 1. júli og eflaust milli 9 og 10% á
samningstímanum. En þar til frádráttar
kemur fyrrnefnd 2,9% visitöluskerðing,
auk hinna almennu skerðinga Ólafslaga
á tímabilinu."
HEI.
SAMKOMULAG-
IÐ METIÐ Á
NÍU PRÓSENT
■ Samningar náðust á milli vinnuveit-
enda og Alþýðusambands íslands i
gærmorgun um nýjan kjarasamning
þessara aðila eins og leiddar voru getur
að i Tímanum í gær. Samningurinn er i
öllum meginatriðum eins og sagt var frá
í blaðinu í gær, og er hann metinn til
niu prósentalaunahækkunar, áður en
tillit hefur verið tekið til 2.9% visitölu-
skerðingar 1. september nk.
Samningstiminn er frá deginum í dag
til 31. ágúst á næsta ári. Sjálf
grunnkaupshækkunin sem í honum felst
er 4%, og kemur hún til framkvæmda í
dag. Auk þess kemur strax til fram-
kvæmda breyting á starfsaldurshækkun-
um. Verður hún sem hér segir: Eftir eitt
ár 2.5%, eftir tvö ár 5%, eftir þrjú ár
7.5%, og eftir fimm ár 10%.
Um næstu áramót kemur til fram-
kvæmda eins launaflokkshækkun á alla
félaga innan ASÍ. Jafnframt hækka
lágmarkstekjur um 2% frá sama tima.
1. mars á næsta ári kemur til nýtt
starfsaldursþrep, er miðast við sex ára
starf í viðkomandi starfsgrein, þar af tvö
siðustu árin hjá viðkomandi vinnuveit-
anda og verði þá laun 12.5% hærri en
byrjunarlaun viðkomandi launaflokks.
Ákvæðisvinnutaxtar taka sömu hlutfalls-
legu breytingum og tímavinnutaxtar.
Um verðbætur fer eftir svonefndum
Ólafslögum, en auk þess verður vísital-
an sérstaklega skert 1. september nk.
um 2.9%. Auk þessa koma til ýmsar
breytingar á sérkjörum einstakra sér-
sambanda innan ASÍ, sem eru mjög
fyrirferðamiklar i samningnum, en eru
samt ekki metnar nema á 0.2%.
-Kás
„Samningarmr
marka tímamót”
— segir Þorsteinn Pálsson,
framkvæmdastjóri VSÍ
■ „Það er ekkert vafamál að þessir
samningar marka timamót um margt.
Tekin hafa verið upp ný vinnubrögð i
samningaviðræðunum. Menn hafa sett
sér viðmiðunarpunkta til að vinna út frá,
sem voru innan eðlilegra marka. Menn
unnu þetta út frá kaupmáttarútreikning-
um og viðmiðunum, sem er nýtt. Og ég
held að ef hægt verður að þróa samninga
áfram i þessum farvegi þá muni það
þjóna hagsmunum beggja samningsað-
ila til langframa", svaraði Þorsteinn
Pálsson, framkvæmdastjóri VSÍ, spurð-
ur hvort samningar á þessum „lágu“
nótum marki ekki þrptt fyrir allt nokkur
tímamót.
- Við eigum kannski einhverntimann
eftir að heyra þig lýsa yfir að
samningagerð hafi verið skynsamleg?
- Vonandi á ég það eftir, því það er
hægt að segja um þessa samninga að þeir
hafi verið skynsamlegri en þeir sem við
höfum staðið frammi fyrir áður, þó ljóst
sé að þeir eru alveg á ystu mörkum þess
sem hægt er að verja með tilliti til
efnahagsaðstæðna. Væntanlega munu
þeir þvi halda okkur í þessu 60%
verðbólgufari út næsta ár a.m.k., verði
ekki gripið með róttækum aðgerðum inn
i verðbólguferilinn, þar á meðal með
aðgerðum i vísitölumálum.
- Átt þú þá við enn frekari
visitöluskerðingar?
- Já. Það er ljóst af viðræðunum um
nýtt viðmiðunarkerfi sem ríkisstjórnin
stofnaði til á s.l. vetri að það er hennar
meginaðgerð til að koma verðbólgunni
niður i 30%, að koma þvi á. Við
bundum strax og bindum enn miklar
vonir við þetta nýja kerfi og teljum því
mikla ábyrgð hvíla á rikisstjórninni að
þetta skili tilætluðum árangri. -HEI
„MERKIR
SAMN-
INGAR”
■ „Ég er mjög feginn að þessum
samningum skuli lokið“, svaraði Guð-
laugur Þorvaldsson, ríkissáttasemjari
spumingu Tímans þar um, þegar hann
stóð upp frá samningaborðinu i Karp-
húsinu, þar sem nýr kjarasamningur var
undirritaður af fulltrúum ASÍ og VSÍ um
kl. 6.30 í gærmorgun. Við það tækifæri
sagðist Guðlaugur ætla að hér hefðu
verið gerðir skynsamlegir samningar
sem þjóðin hljóti að vera ánægð með.
„Já, að mörgu leyti held ég að þetta
séu merkir samningar, m.a. vegna þess
að þeir gefa nokkurn umþóttunartima.
Eg tel að hér hafi verið afskaplega vel
unnið siðustu dagana. Ekki sist er ég
ánægður með að samningsaðilar tóku
nú mjög virkan þátt i þessu sjálfir i stað
þess að biða sifellt eftir tillögum frá
sáttasemjara. Þannig finnst mér það eiga
að vera nema í undantekningartilvik-
um“. -Hei-
ÆTLIÐ ÞER
AÐ KAUPA
IGNIS
ÞVOTTAVEL
IGNIS K-12 þvottavélin er
nú fáanleg aftur. Margra
ára reynsla á þessari frá-
þæru þvottavél jafnvel í
fjölþýlishúsum sannar að
þetta er vél framtíðarinnar.
Veltiþottur úr ryðfríu stáli.
Legur þeggja megin við
veltipott. Vinduhraði 600
sn/min.
Tekur 5 kg. með sparn-
aðarkerfi fyrir 3 kg.
RAFIÐJAN H.F.
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll
Sími 19294 og 26660
VÖRUAFGREIÐSLAINNANLANDSFLUGS
27933
Við bendum viðskiptavinum okkar á að kynna sér nýju númerin á bls. 78 í símaskránni.
FLUGLEIDIR
Gott fólk hjá traustu félagi