Tíminn - 01.07.1982, Blaðsíða 20
VARAHLUTIR
Sendum um land allt
Kaupum nýlega
bíla til niðurrxfs
sími <<m 7 - ;:> -51. («11) 7 - so - :i«.
TTT7i'pv'p\ tttt1 Skemmuvegi 20
iir . Kopavogi
Mikiö úrval
Opid virka duga
9 19 • Laugar
daga 10 16
HEDD HF.
Gagnkvæmt
tryggingaféJag
~.>aPC£’
V
labriel
HÖGGDEYFAR
QJvarahlutir
Armiila 24
Sfmi 36510
„ÞARF AB INNRÆTA BORN-
UM JAFNRÉmSHUGMYNDIR
Rætt vid nýskipaðan framkvæmdastjóra
Jafnréttisráds, Elínu Pálsdóttur Flygenring
V
■ „Auðvitað hlakka ég til að takast á
við þetta starf, þótt ég geri mér fulla
grein fyrir að það verður erfitt á
stundum," sagði Elin Pálsdóttir Flygen-
ring, lögfræðingur og nýskipaður fram-
kvæmdastjóri Jafnréttisráðs þegar Tím-
inn hitti hana að máli. „Jafnréttismál eru
mér mjög hugleikin og hafa alltaf verið.
„Eg var að Ijúka lagaprófi nú í vor og
fjallaði lokaritgerð mín um jafnréttislög-
in og aðdraganda þeirra,“ bætti Elin við.
- í hverju felst svo starfið?
„Ég get náttúrlega ekki alveg vitað
það fyrr en ég tek við. En þó veit ég að
um mínar hendur fara kærur um brot á
jafnréttislögum, sem ég síðan legg fyrir
ráðið á fundum þess. Nú mikið er um
alls kyns fræðslu og upplýsingastarfsemi
og mér skilst að undanfarið hafi verið
nóg að gera i þeim efnum. Ég þarf að
svara margs konar fyrirspurnum og
kynna lögin ef þess verður farið á leit
við mig.“
„Karlmenn ná ekki
sama baráttuanda“
- Hefði þér fundist eðlilegt að
karlmaður fengi starfið?
„Nei. Það hefði mér fundist óeðlilegt.
Meðan fullkomið jafnrétti kynjanna
hefur ekki náðst á kona að gegna starfi
framkvæmdastjóra Jafnréttisráðs. Þótt
karlmenn geti barist fyrir sömu hugsjón-
um og konur i þessum málum, þá ná
þeir ekki sama baráttuanda. Þeir hafa
ekki búið við sömu mismunun og konur
og geta þvi ekki skilið þessi mál til
fullnustu,” sagði Elin.
- Hver eru brýnustu verkefnin
framundan?
„Þau eru heilmötg. En eins og stendur
eru fjárveitingar til ráðsins mjög af
skornum skammti. Meðan svo er, er
lítið hægt að gera.
Lengst af hefur framkvæmdastjórinn
verið eini fasti starfsmaður ráðsins. Það
var ekki fyrr en i vetur að heimild fékkst
til að ráða í eina stöðu i viðbót. Henni
er nú skipt milli tveggja kvenna, sem
báðar vinna hálfan daginn, og önnur
þeirra sinnir eingöngu rannsóknarverk-
efnum sem eru mjög viðamikil."
- Rannsóknarstörf?
„Já. Eitt af verkefnum ráðsins er að
fylgjast með þróuninni í jafnréttismál-
um og hafa svo frumkvæði um úrbætur
i sambandi við það. Einnig er nauðsyn-
legt að gera ýmis konar kannanir, taka
þátt i samnorrænum verkefnum o.fl.
o.fl.,“ sagði Elin.
- Er jafnrétti á þlnu hcimili?
„Já. Ég bý í óvigðri sambúð og við
erum barnlaus. Því er tiltölulega auðvelt
fyrir okkur að hafa jafnrétti á heimil-
inu.“
- En finnst þér langt í land víða?
„Astandið hefur batnað mjög á
undanförnum árum, en þó er það langt
frá þvi að vera nógu gott. Til að ná fram
fullkomnu jafnrétti þarf að byrja á því
strax á fyrstu stigum grunnskóla að
innræta börnum jafnréttishugmyndir.
Ef það tekst er markmiðið ekki langt
undan,“ sagði Elin að lokum.
-Sjó
fm
ÍV
Ú
írmi
$»*** *
*I', rT _ >£*
m „Meðan fullkomið jafnrétti hefur ekki náðst, á kona að gegna starfi framkvæmdastjóra Jafnréttisráðs,“ segir Elín
Pálsdóttir Flygenring i viðtalinu.
1».
■ Krístinn Hallgrímsson,
fréttastjóri Timans.
Nýr
frétta-
stjóri
Tímans
■ Fréttastjóraskipti verða
á Tímanum í dag. Páll
Magnússon, sem verið hef-
ur fréttastjóri blaðsins sið-
an 1. maí 1981, lætur nú af
þvi starfi og gerist aðstoð-
arritstjóri hjá Iceland
Review, en við frétta-
stjórastarfinu tekur Krist-
inn Hallgrímsson, blaða-
maður.
Kristinn Hallgrimsson
er 24 ára gamall og hefur
unnið sem blaðamaður við
Timann frá árinu 1977.
Tíminn þakkar Páli
Magnússyni fyrir vel unnin
störf og býður hinn nýja
fréttastjóra velkominn til
starfa.
-ESJ.
Á slysadeild eftir
árekstur.
■ Talsvert harður árekst-
ur tveggja bíla varð á
gatnamótum Skúlagötu og
Vitastígs á átjánda tíman-
um i gær. Kona sem ók
öðrum bilnum var flutt á
slysadeild. Meiðsli hennar
voru ekki talin alvarleg.
Bilarnir skemmdust tals-
vert. -Sjó.
dropar
Síldarhapp-
drættid
■ Islendingar hafa löngum
þótt fíknir i alls konar fjár-
hxttuspil, og hafa happdrætti
af öllum tegundum þjónað
þeim duttlungum þeirra. Nú
segja gárungamir að nýtt
happdrætti hafi veríð stofnað,
að vísu af illri nauðsyn,
svokallað síldarhappdrxtti.
150 bátar sóttu um leyfi til
sildveiða i haust, en ekki þótti
skynsamlegt að leyfa nema
helmingi þeirra veiðamar í ár.
Því var tekið upp það fyrir-
komulag að draga um það á
milli umsækjenda hverjir
fengju að veiða í ár, en þeir
sem útundan urðu fá i sárabæt-
ur að veiða næsta ár.
Það sem er merkilegt við
þetta happdrætti er hins vegar
hið óvenju háa vinningshlut-
fall, eða 50%, og eins hitt, að
þeir sem ekki fá stóra vinning-
inn í ár era 100% öraggir með
að fá hann að árí liðnu. Fleiri
happdrætti mxttu taka sér
þetta til fyrirmyndar.
Pissað
í vatnið
■ Það ku hafa veríð æði
liflegt á tjaldsvæðinu á Mura-
eyrum, þegar hestamenn i
Amessýslu héldu þar mót sitt
um siðustu helgi. Aðfaranótt
sunnudagsins höfðu ungir gest-
ir sig mjög i frammi og léku
ýmsar listir á ökutækjum
sínum. Sagt er að sumir
hugsunarlausir gestir hafi tjald-
að tjöldum sínum, þar sem
hinir ungu ökusnillingar vildu
fara og að sjálfsögðu orðið að
taka því að ekið var yfir tjöldin.
Heimildir herma að stjóra-
endur mótsins hafi tekið fullt
tillit tU hinna athafnasömu
manna og gætt þess að engir
leiðinda nöldurseggir væru á
svæðinu til að skipta sér af
gerðum þeirra. Þeir sáu líka
um að nægUegt neysluvatn var
á staðnum, í stóram tank frá
Mjólkurbúi Flóamanna. Hvort
gleymst hefur að setja upp
náðhús á staðnum, fylgdi ekki
sögunni. En þegar snillingar
þurftu að kasta af sér vatni
miUi ökuferða, stigu þeir upp
á tankinn góða, Iyftu upp
lokinu og létu bununa blandast
vatninu. Um tiuleytið um
morguninn fann einhver starfs-
manna mótsins upp á þvi að
hleypa öllu vatninu af tanlui-
um, en engum sögum fer af því
að tjaldbúðagestir, sem burst-
uðu tennur eða hituðu sér
kaffisopa fyrr um morguninn
hafi kvartað undan óvenjulegu
bragði af vatninu.
Krummi...
er að velta því fyrir sér hvort
Gunnar fái að opna munninn i
Varðarferðinni á laugardag-
inn....