Tíminn - 14.08.1982, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1982
■ Bandarísku forsetahjónin og Indira Gandhi
Viðræður Indiru og
Reagans gagnlegar
■ INDIRA Gandhi forsætisráðherra
Indlands er nýlega komin heim úr 10
daga ferðalagi um Bandaríkin, en
aðalerindi hennar var að heimsækja
Ronald Reagan í Hvíta húsið í
Washington og ræða við hann um
samvinnu og samskipti tveggja stærstu
lýðræðisríkja heims, ásamt skoðana-
skiptum um heimsmálin yfirleitt.
Indira Gandhi hafði fyrir 11 árum
komið í svipaða heimsókn til Bandaríkj-
anna og þá rætt við Nixon í Hvíta
húsinu. Viðræður þeirra urðu ekki til að
auka samskiptin milli Indlands og
Bandaríkjanna.
Nixon var þá upptekinn af því að bæta
sambúðina við Kína, og mun m.a. ekki
hafa talið það heppilegt af þeirri ástæðu
að treysta samvinnuna við Indland.
Indland og Kína áttu í landamæradeil-
um, sem raunar eru ekki leystar enn, en
sambúð þessara aðalríkja Asíu er hins
vegar orðin mun betri nú en þá.
Þau Indira Gandhi og Reagan hittust
í Mexikó síðastliðið haust á fundi
þjóðarleiðtoga, sem fjallaði um málefni
þróunarlandanna. Viðræður þeirra urðu
ekki langar þá, en vinsamlegar, og lauk
með því, að ákveðið var að Indira kæmi
í heimsókn til Bandaríkjanna næsta
sumar.
Á undanförnum árum hefur Banda-
ríkin og Indland greint á um margt.
Bandaríkin hafa verið óánægð vegna
náinnar samvinnu Indlands og Sovét-
rfkjanna, en Indland hefur talið að
stuðningur Bandaríkjanna við Pakistan
stríddi gegn hagsmunum sínum og gerði
m.a. samvinnu við Sovétríkin nauð-
synlega, þá hafa Indverjar litið með
nokkurri tortryggni vaxandi vinfengi
Kínverja og Bandaríkjanna.
Til viðbótar hefur svo komið ólík
afstaða Indverja og Bandaríkjamanna
til ýmissa alþjóðamála.
Þrátt fyrir þetta hafa verið mikil og
vaxandi viðskipti milli Indlands og
Bandaríkjanna á ýmsum sviðum, t.d.
hefur Indland ekki meiri verslun við
annað land en Bandaríkin. Þá hafa
Bandaríkin veitt Indlandi ýmsa mikils-
verða efnahagslega og tæknilega aðstoð.
VEGNA þessara ástæðna og fleiri var
fundi þeirra Indiru og Reagans í Hvíta
húsinu veitt mikil athygli. Fréttaskýr-
endur töldu að vísu, að hann myndi ekki
breyta viðhorfi þessara ríkja til alþjóða-
mála og þau myndu halda áfram að vera
ósammála um margt.
Hins vegar gæti fundurinn greitt fyrir
aukinni samvinnu þeirra á ýmsum
sviðum, eytt ýmsum misskilningi og veitt
báðum viðmælendum aukna yfirsýn um
stöðu alþjóðamála.
Yfirleitt virðist það álit fréttaskýrenda
sem hafa fjallað um viðræðumar, að þær
hafi náð tilætluðum árangri að þessu
leyti.
Viðræðurnar eru sagðar hafa farið hið
bezta fram og Reagan sýnt sínar beztu
hliðar til að geðjast gesti sínum.
Gesturinn hafi svarað gestgjafanum í
sömu mynt. Þá hafi fallið vel á með
Indiru og frú Reagan.
Eigi að síður hafi verið ræðst við í
fullri alvöru og megi vænta þess, að
gagnkvæmur skilningur hafi aukizt.
Þannig hafi verið lagður grundvöllur að
meiri samskiptum þessara ríkja og
sennilega auknum samráðum á ýmsum
sviðum.
Helzta áþreifanlega niðurstaða fund-
arins varð sú, að Bandaríkin féllu frá
banni, sem þau höfðu sett á sölu
uraníums til kjarnorkuvers, sem þau
höfðu aðstoðað við að reisa í Tarapur.
Þegar bygging þess var hafin 1963 var
gerður samningur til 20 ára þess efnis,
að Bandaríkin fengu fulla tryggingu fyrir
því, að orkuverið yrði ekki notað til að
framleiða kjarnavopn.
Árið 1978 voru sett um það lög í
Bandaríkjunum, að ekki mætti selja
uranium til annarra ríkja en þeirra, sem
gerðust aðilar að alþjóðasamningi um
eftirlit með því, að ný ríki bættust ekki
í hóp kjarnavopnaframleiðenda.
Þegar Indverjar neituðu að undir-
gangast þennan samning, ákvað Carter-
stjórnin að hætta útflutningi á uranium
til Indlands, en samkvæmt samningnum
frá 1963 höfðu þau heitið að selja
Indverjum uranium til 1983. Þá beittu
þau einnig áhrifum sínum til að koma í
veg fyrir að Indland fengi uranium
annars staðar frá.
Þetta mál leystist á fundi þeirra Indiru
og Reagans á þann veg, að Indverjar
geta hér eftir keypt uranium af
Frökkum, en lofa jafnframt að fram-
fylgja samningnum við Bandaríkin frá
1963 um að nota ekki orkuverið til að
framleiða kjarnavopn.
Þá samdist um það að auka samvinnu
ríkjanna á sviði vísinda- og tæknimála,
menningarmála og efnahagsmála.
ÞAU Indira Gandhi og Reagan
ávörpuðu hvort annað mjög virðulega í
samkvæmi, sem henni var haldið í Hvíta
húsinu. Bæði Iögðu áherzlu á bætta og
aukna samvinnu ríkjanna.
Reagan sagði í ræðu sinni, að Indland
og Bandaríkin, sem væru stærstu
lýðræðisríki heims, hefðu sameiginleg
markmið á mörgum sviðum, eins og að
efla frelsi, öryggi og velmegun. Hvort
þeirra um sig hefði öðlazt reynslu, sem
gæti verið gagnleg fyrir hitt þeirra. Um
sitthvað væru þau ósammála, en sam-
mála um annað. Mikilvægast væri þó, að
sameiginlegar hugsjónir tengdu þau og
ættu að auðvelda samvinnu þeirra á
mörgum sviðum.
Indira Gandhi sagði, að erfitt væri að
hugsa sér ólíkari þjóðir en Indverja og
Bandaríkjamenn. Indverjar hefðu að
baki eldgamla og rótgróna menningu.
Nýlendustjórn og kúgun hefði á ýmsan
hátt sett mót sitt á Indland nútímans.
Bandaríkjamenn væru hins vegar ung
þjóð, sem hefði mótazt af frumkvæði og
djörfung landnemans og því orðið
forustuþjóð á mörgum sviðum. Mark-
mið hennar væri frelsi, sem veitti sem
flestum tækifæri til að njóta krafta sinna.
Þetta hefði átt sinn drjúga þátt í því, að
Bandaríkin væru nú voldugasta þjóð
heimsins og næstum hvert verk og hver
ummæli forseta Bandaríkjanna væru
vegin og metin nær hvarvetna um heim
allan.
Þá lagði Indira Gandhi áherzlu á, að
Indverjar vildu búa í vinsemd við allar
þjóðir og því höfnuðu þeir ekki
samstarfi við neina þjóð, heldur sæktu
eftir vinfengi hennar. Þetta skilja sumir
fréttaskýrendur sem svar hennar við því,
að hún hefur verið ásökuð um of nána
samvinnu við Rússa. í reynd hafi hún
líka boðizt til samvinnu við Bandaríkin,
en án þess að það breytti afstöðu hennar
til Sovétríkjanna eða annarra ríkja.
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar Kn
Úrvalið af leikföngum
fyrir alla krakka á öllum aldri.
Póstsendum
pkiymobll
pkiumolsil
LEIKFANGAVERZLUNIN JOJO
AUSTURSTRÆTI8 - SÍM113707
Til sölu
Ursus dráttarvél 65 ha. árg. 1978. Ámoksturs-
tæki geta fylgt. Einnig Fahr-sláttuþyrla árg.
1977, vinnslubreidd 1,35.
Upplýsingar í síma 99-6550
Ljóa — hvít ft gul
m/Halogen-peru
Settið 510,-
Ljós — hvit & gul
m/Halogen-peru
Settið 510,-
Bremsuljós
aft/glugga
kr. 349,-
Króm felguhringir
12" —13" 4 stk. i setti 708,-
14" -15" 4 stk. í setti 752,-
Tjakkar 1 tonn 230,-
Tjakkar 1.2 tonn 290,-
Búkkar
2stk. 355,-
1 1/2 tonn
pr/bukka
Póstsendum
um
land allt
y
BILHLUTIR
V
Suðurlandsbraut 24 Simi 38365
/