Tíminn - 28.08.1982, Page 5
LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1982
Kennara vantar
aö Grunnskóla Eskifjarðar.
Meðal kennslugreina er danska.
Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 97-6182.
Raflagnír Raflagnir
Fyrsta flokks
þjónusta
Þurfirðu að endurnýja raflagnir,gera við,
bæta við eða breyta, minnir Samvirki á
fullkomna þjónustu sína.
Harðsnúið lið rafvirkja er ævinlega reiðubúið
til hjálpar.
samvirki 5!
SKEMMUVEGI 30 - KÓPAVOGI - SÍMI 44666
Bakari
Brauðgerð K.B. Borgarnesi óskar eftir að ráða
bakara til starfa sem fyrst. Upplýsingar gefa
Albert Þorkelsson og Georg Hermannsson í síma
93-7200.
Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi.
Nýir bílar
Leitid
upplýsinga
- Notaðir bílar
ÞÚ KEMUR -
OG SEMUR
BÍLASALAN BUK s/f
SlÐUMÚLA 3-5-105 REYKJAVÍK
SÍMI: 86477
Ull MIÐSTÖÐIIV
^AÐALSTRÆTI 9 S. 28133.
m FRÉTTASKÝRENDUR bíða mef
vaxandi eftirvæntingu eftir fylkiskosn-
ingum í Hessen, en úrslit þeirra get;
hæglega leitt til stjómarskipta í Bonn.
Tæpur mánuður er nú til kosninganna.
Urslitin í Hessen geta einnig leitttil
þess, að nýr maður bætist í hóp þeirra.
sem keppa um að verða kanslaraefni
kristilegra demókrata í næstu kosning-
um til sambandsþingsins í Bonn.
Úrslit í Hessen urðu þau, þegar síðast
var kosið til fylkisþingsins, að sósíal-
demókratar fengu 46% greiddra at-
kvæða, kristilegir demókratar 44,3% og
frjálslyndir demókratar 6,6%.
Eftir kosningarnar gengu frjálslyndir
demókratar til samstarfs við sósíaldemó-
krata. Samsteypustjórn þeirra hefur
síðan farið með völd í Hessen.
Nú er Ijóst, að slík sambræðslustjórn
verður ekki mynduð þar aftur.
Síðan fylkiskosningamar fóru fram
fyrir fjórum árum, benda skoðanakann-
anir til að verulegar breytingar hafi
orðið á fylgi flokkanna. Mest áberandi
er tap sósíaldemókrata. Þeim er spáð í
besta falli 40% greiddra atkvæða.
Spárnar eru ekki heldur hagstæðar
frjálslyndum demókrötum. Það mætti
jafnvel draga af spánum þær ályktanir,
að frjálslyndir næðu ekki þeim 5%
greiddra atkvæða, sem þarf til þess að
fá fulltrúa kjörna.
Á flokksþingi, sem frjálslyndir í
Hessen héldu í júnímánuði síðastliðnum
■ Alfred Dregger
Þriggja vikna feröir til BENIDORM 14. september
og 5. október. í feröinni 5. október gefst kostur á
2—4 daga viödvöl í London á bakaleiðinni.
Benidorm ferð aldraðra:
Sérstök ferö eldri borgara 5. október í milt haustið
á strönd BENIDORM. Sérlega þægileg ferö, í fylgd
hjúkrunarfræöings. Nánar auglýst síðar.
c/) O
li
cú <
riðar stjómin í Bonn
Úrslitin í
varð niðurstaðan sú, að ekki væri ráðlegt
að halda áfram stjórnarsamvinnu við
sósíaldemókrata. Meirihlutinn ákvað að
kjósa heldur samstarf við kristilega
demókrata og að lýsa því yfir fyrir
kosningarnar.
FYLGISTAP sósíaldemókrata og
skoðanaskipti frjálsra demókrata gætu
bent til þess, að kristilegir demókratar
ættu hagstæð úrslit í vændum. Þetta er
þó ekki talið öruggt.
Flokkur umhverfismanna gæti hér
gert strik í reikninginn. Þeir munu
draga verulegt fylgi frá sósíaldemó-
krötum og frjálslyndum. í fyrra fengu
þeir fulltrúa kjöma í borgarstjórnina í
Frankfurt, sem er aðalborgin í Hessen.
Það þykir ekki útilokað, að þeir fái
fulltrúa kjörna á fylkisþingið.
Kristilegir demókratar setja sér að
sjálfsögðu það mark að fá hreinan
meirihluta. Takist það ekki, munu þeir
ekki hafna samvinnu við frjálslynda
demókrata.
Forustumenn þeirra, þó einkum
Alfred Dregger, láta í það skína að þeir
hefðu talið eðlilegra að frjálslyndir
demókratar stigu sporið til fulls og segðu
einnig skilið við sósíaldemókrata í
ríkisstjórninni íBonn. Þetta valdi því, að
ekki sé fullkomlega hægt að treysta
þeim. Þó verði að reyna á það, ef þörf
krefur.
Af hálfu Hans Dietrich Genscher,
formanns frjálslyndra demókrata, er því
yfirlýst, að sú breyting, sem hafi orðið
á stöðu flokksins í Hessen, gildi ekki um
flokkinn í heild. Sú afstaða hans sé
óbreytt að halda áfram samvinnunni um
ríkisstjómina við sósíaldemókrata til
loka kjörtímabilsins, sem er haustið
1984. Það hafi hins vegar ekki áhrif á
hvemig flokkurinn hagar samstarfi sínu
í fylkjunum. Þar geti oft ráðið önnur
sjónarmið.
Þrátt fyrir þetta, eru flestir frétta-
skýrendur á því máli, að stjórnarsam-
vinna sósíaldemókrata og frjálslyndra
eigi ekki langt líf fyrir höndum, ef
frjálslyndir missa fulltrúa sína á fylkis-
þinginu í Bonn eða sósíaldemókratar
verði fyrir miklu áfalli, þá geti orðið
skammt til samvinnuslita.
LEIÐTOGI kristilegra demókrata í
Hessen, Alfred Dregger, er meðal
umdeildustu stjómmálamanna í Vestur-
þýskalandi. Hann er ásamt Franz Josef
Strauss aðaldýrlingur hægri arms kristi-
legra demókrata.
Það eru fimmtán ár síðan Alfred
Dregger tók við forustu kristilegra
demókrata í Hessen. Flokkurinn hafði í
næstu fylkiskosningum á undan ekki
hlotið nema 26,6% greiddra atkvæða.
Hann tók fljótt að eflast undir fomstu
Dreggers og þarf nú ekki að bæta við sig
nema örfáum prósentum til að fá
hreinan meirihluta.
Því verður ekki neitað, að Dregger er
áhrifamikill áróðursmaður, og hægri
boðskapurinn, sem hann hefur flutt,
hefur fallið mörgum í geð. Hann er
harður andstæðingur kommúnista en er
ekki eins skeleggur gegn öðrum ein-
ræðisstefnum. Þannig hefur hann heim-
sótt Chile, Braziliu og Argentínu og
látið ekki illa af. Hann hefur einnig
ferðazt til Suður-Afríku og lætur vel af
ýmsu þar.
Hann fer ekki dult með, að hann var
í hernum á stríðsárunum og ber
venjulega á sér byssu til að minna á það.
Um skeið var verulega rætt um
Dregger sem vænlegt kanslaraefni kristi-
Iegra demókrata, þar sem hann full-
■ Holger Bömer, forsætis-
ráðherra í Hessen er vinsxll og
getur það styrkt sósíaldemó-
krata
nægði hugmyndum margra um „sterk-
an“ foringja.
Nokkuð hefur dregið úr þessu í seinni
tíð og Dregger heldur horfið í skuggann.
Hann hefur dregið þær ályktanir af
þessu, að málflutningur hans er ekki
með eins miklum hægri svip og áður.
Ef kristilegir demókratar fá meiri-
hluta í fylkiskosningunum í Hessen,
verður það vafalítið vatn á myllu
Dreggers. Hann kemst þá áreiðanlega í
hóp þeirra, er koma til greina sem
kanslaraefni kristilegra dcmókrata.
Sennilega gefur hann þó ekki kost á sér,
ef Strauss reynir að verða kanslaraefni
flokksins áfram. Dragi Strauss sig í hlé,
mun Dregger ekki draga sig í hlé.
Hins vegar er ekki víst, að hann hljóti
stuðning Strauss. Strauss er talinn
mótfallinn því að fá „sterkan" kanslara
eftir að hann sjálfur er genginn úr leik.
Hann stefnir þá sennilega að því að
verða utanríkisráðherra og kærir sig þá
ekkert um að hafa „sterkan" kanslara
sér við hlið.
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar