Tíminn - 29.08.1982, Blaðsíða 20

Tíminn - 29.08.1982, Blaðsíða 20
SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST1982 20 á bókamarkaði cWilliam Stcvenson Aulhur oJ A MAN CALLEI) INTRJBD GÍSif® Africa „Thc Ghosts of Africa" Höfundur: William Stcvenson. Útgef.: Star. Hér er á feröinni skáldsaga sem gerist undir sól Afríku, meðan Þjóðverjarvoru enn nýlenduveldi og keisari þeirra sat í hásæti í Berlín. Sagan er sögð byggð á sannsögulcgum atburðum og sviðið er þýska Austur-Afríka. Fyrsta heims- styrjöldin er rétt að byrja og höfuðs- maðurinn Paul von Lettow á í einskonar einkastríði við Englendinga. Hér er ekkert til sparað til þess að úr megi verða spennandi lesning, - stríð, tryggð og tál, dauðinn og ástin fær allt sitt rúm á síðum sögunnar. William Stevenson er sjálfsagt kunnur ýmsum unnendum spennandi skáldsagna af sögunni „A man called 1 ntrepid.“ Sagan er 400 síður og ef einhverjir eiga enn eftir að fara í sumarleyfi finnst okkur að hún komi vel til greina í nestið. „Three Women“ Höfundur: Nancy Thayer. Útgef.: Sphere Books Ltd. Hér er á fcrðinni ekta kvennasaga um þrjár konur á tímamótaskeiði í lífi þeirra. Sögupersónurnar eru Margrét, sem jáfnan hefur lifað fyrir fjölskyldu sína og ekkert annað. Hún hefur verið ánægð með að hafa eldhússtörfin að vinna við og sjá um mann sinn og tvær dætur. En einn daginn er þetta henni ekki nóg lengur, - hún hefur vaxið frá hlutverki sínu sem húsmóðir. Nú vill hún lifa sjálfri sér. Daisy á von á þriðja barni sínu, þegar sagan gerist, en um það leyti fer maður hennar frá henni. Hvernig ætli henni gangi að komast af upp á eigin spýtur? Hvernig getur hún byrjað nýtt líf sem einstætt foreldri? Hver mun veita henni stuðning? Dale, systir Daisy, hefur verið sjálf- stæð og laglcg kona og stolt af frelsinu, þegar hún skyndilega verður ástfangin svo um munar. Hvað mun það þýða fyrir líf hennar? „The A nnotated Alice“ Höfundnr Lewis Carrol (op Martin Gardncr). Útgefandi: Penguin Hér hefur Martin Gardner, sem er heimspckilærður hlaðamaður, tekist á hendur að gefa út þetta fræga verk Carrol með skýringum og athugasemdum. Höfundurinn segir m.a. um tilganginn með útgáfunni: „Staðreyndin er sem sagt sú að þcssi kynjasaga Carroll er ekki skrifuð svo mjög út í bláinn og markmiðslaust og vanalegu amerísku bami sem nú á dögum reynir að lesa söguna kann að virðast. Égsegi „reynir“, því sá tími er nú liöinn þegar börn undir 15 ára aldri, meira að segja í Englandi, gátu lesið bókina og haft jafn mikla skemmtun af og „Galdrakarlinum í Oz“. Nú á dögum verða börn áttavillt við lesturinn og stundum hrædd við hið martraðarkennda andrúmsloft í sögunni. Það er af því sem fullorðið fólk, er stöðugt að halda bókinni frá börnum í þeirri trú að hún sé ekki holl lesning. Þessi útgáfa er ætluð fullorðnu fólki sem hefur alið mcð sér slíkan misskilning." *Thr undmUk ot lu«**U hUlory txpUtt wWh ðnnrvt. »hock utmAtion The iMfutln nt»d» kke • Ihrtlef, yet kt» xrildly dfKurnemed aod much oi M» matoUI hw» n«•»« before bem puMUbed ~ -JahftU'* h*m „The untold history of Israel" Höfundar: Jacques Dcrogy og Vesi Carmel. útgef.: Grove Press Inc. New York. Þessi bók sem fyrst er útgefin á ensku 1979 má segjast hafa öðlast aukið gildi í ljósi hcimsviðburðanna síðustu vikum- ar. Hér er varpað nýju Ijósi á ýmsa þá atburði sem leiddu til stofnunar ísraels- ríkis og margar hliðar þeirra baráttu sem það hefur kostað að halda ríkinu við lýði. Er stuðst við ýmis merkileg gögn sem þar til fyrir fjórum ámm vom algjört ríkisleyndarmál í ísrael. Hér er farið niður í saumana á málum ýmissa pólitískra og trúarlegra leiðtoga Gyð- inga, innbyrðis samkeppni og valda- streitu auk þess sem hin margfræga leyniþjónusta kemur mikið við sögu. Þá er þætti stórveldanna í málunum ekki gleymt og sá sem les bókina mun verða talsvert fróðari um málefni mið-Austur- landa á eftir. Bókin er 345 síður. ■ Bækurnar hér að ofan eru fengnar i bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar. Tekið skal fram að hér er um kynungar að ræða en öngva ritdóma. ■ Reyfarar = bókmenntir? Af hverju gera sér rellu út af því? Það er bara staðreynd að meirihluti fólksins hefur miklu meira gaman af reyfurum/rómön- um heldur en svokölluðum alvarlegum bókmenntum og þá það. Við rákumst á viðtal sem breski rithöfundurinn / blaðamaðurinn J. Mortimer hafði átt við enska reyfarahöfundinn Frederick For- syth, sá er einn hinn vinsælasti í bransanum. Brot úr þessu viðtali fara hér á eftir. Fæstir metsöluhöfundar virðast vera svonefndir „fæddir rithöfundar". Þeir eins og Ienda í því að skrifa eða skrftunum er neytt upp á þá. Oft gerist það á miðri ævinni eftir að viðkomandi hefur náð árangri á öðru sviði, ýmist sem knapi, þvottahúseigandi eða - í tilfelli Frederick Forsyth - fréttaritari. Allt í einu kemur eitthvað óvænt upp á, þvottahúsið fer á hausinn, hesturinn sest skyndilega niður rétt hjá markinu eða taugarnar gefa sig. Þá þarf að finna upp á einhverju nýju. Herra Forsyth fór ekki að skrifa bækur fyrr en á fertugsaldri. Það tók hann nákvæmlega fjögur ár að verða milijónamæringur - í sterlings- pundum talið. Bækumar sem þessir metsöluhöfund- ar skrifa eiga líka margt sameiginlegt. Það er sett upp plott, sem kann að Af F. Forsyth, fyrrum blaða- manni og nú metsöluhöfundi ÓSIÐLEGT FÓLK VIÐ ÓSIÐLEGT ATHÆFI virðast ótrúlegt, en er kynnt lesand- anum eins og ekkert væri eðlilegra, útskýrt í smáatriðum og reynt að hjúpa það raunsæi, þegar lcsandinn er búinn að sætta sig við það hefst meódramatísk atburðarás og frásögnin svo hröð að lesandinn hrífst með. Þegar hann leggur frá sér bókina er hann sannfærður um að einhvers staðar undir yfirborði hvuifndagsins leynist ennþá ævintýri, og það hjálpar honum að takast á við raunveruleikann. Ætlaði að verða orrustu- flugmaður eða blaðamað- ur Frederick Forsyth tók á móti mér á sveitasetri sínu í Surrey. Húsið er stórt og landareignin vel hirt. Herra Forsyth sjálfur er horaður og hvítklæddur. - Ætlaðirðu þér alllaf að verða rithöfundur? „Alls ekki. Mig langaði til að verða orrustuflugmaður eða fréttaritari er- lendis. Pabbi las fyrir mig úr Daily Express og þar var fullt af fréttum frá „okkar manni á staðnum". Síðan náði hann í landabréfabókina og sýndi mér hvar vesenið var. Pabbi hafði líka verið í Austurlöndum og hann sagði mér frá tígrisdýraveiðum og hausaveiðurunum í Borneó. Þegar ég óx upp fór ég í skóla í Tonbrigde, en flestir nemendumir þaðan lögðu fyrir sig kaupsýslu og verðbréfabrask. Þeir sögðu mér að ég ætti ekki að verða blaðamaður, blaða- menn væru skítugir litlir náungar sem væru alltaf að drekka kalt te. Ég spurði þá á móti hvort þeir ímynduðu sér að ritstjóri The Times væri slíkur maður, og þeir hlutu að neita því.“ - En þú fórst ekki út í blaðamennsku strax? „Nei. Ég fór frá Tonbridge þegar ég var sautján ára og þá gekk ég í Konunglega flugherinn. Það voru sex mánuðir þangað til ég átti að byrja svo ég fór til Spánar. Ég hafði alltaf verið góður í tungumálum í skólanumm, ég var fremur lágvaxinn og hélt velli í strákahópnum með því að hjálpa þeim með frönskuna og þýskuna. Á Spáni fór ég síðan í háskólann í Granadá en lærði satt að segja ekki mikið. Ég hafði lesið Hemingway og mestur tíminn fór í að elta Ordonez milli nautaatsvallanna. í maí 1956 gekk ég svo í flugherinn og mér þótti bara gaman, en vildi samt ekki halda áfram þegar tímabilið var á enda. Þá fór ég út í blaðamennsku, var í þrjú ár á blaði í Norfolk og skrifaði æsilegar greinar um fuglasýningar og annað þess háttar. Annars var þetta góður tími, ég átti bæði sportbíl og fullt af kærustum, en á endanum langaði mig að reyna fyrir mér í London. Ég var búinn að ganga af mér skóna á Fleet Street áður en ég komst að hjá Reuters vegna tungumála- kunnáttunnar, og þeir sendu mig til Parísar í maí ’62. Ég átti enga konu, engin böm, engar eignir nema eitt herbergi í Bayswater, og fyrir ungan mann á lausum kili var stórkostlegt að vera í París. Á þessum tíma höfðu OAS samtökin sig mjög í frammi og oft lá við hemaðarástandi. Fullt af sprengjum upp á hvern dag, liggur við. Orðrómur um tilræði við De Gaulle Ég hafði það starf að eltast við De Gaulle til að sjá hvort hausinn yrði sprengdur af honum. Ég kynntist lífvörðunum hans, sem allir voru kaldir kallar frá Korsíku, og þeim leiddist tilbreytingarleysið svo þeir voru mjög alþýðlegir við mig. Svo var það dag nokkurn í september 1963 að inni á krá heyrði ég orðróm um að OAS hefðu fengið einhvern utanaðkomandi til að drepa De Gaulle vegna þess að þeirra eigin mönnum hafði mistekist svo oft. Ég býst við að þá hafi hugmyndin að Degi Sjakalans kviknað í undirmeð- vitundinni en þar hélt hún sig næstu sex árin án þess að tauta eða raula. Mér datt aldrei í hug að ég ætti eftir að skrifa bækur.“ Árið 1967 breyttist líf herra Forsyth SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1982 Express. Ég var þama í tvö ár og þann tíma létu milljón manns lífið. Ég var sakaður um að vera í vopnasmygli fyrir Ojukwu og um að vera persónulegur ráðgjafi hans. Það var jafnvel sagt að ég stjórnaði málaliðadeild eins og þeirri sem ég sagði frá í Barist fyrir borgun. Sögur um mannvosku mína voru ýktar upp úr öllu valdi. En að lokum hrundi Bíafra og Ojukwu varð að flýja. Ég var blankur og þurfti að finna leið til að eiga fyrir mat. Á flugvöllum hafði ég gjarnan keypt mér reyfara til að lesa meðan á flugferðum stóð og mér fannst þetta vera órökréttar sögur sem engin vinna hefði verið lögð í. Ég hugsaði með mér að ég skyldi skrifa eina svona bók og græða slatta af peningum á auðveldan hátt. En þegar til kom var ég ansi lengi að græða nokkurn skapaðan hlut.“ Hann skrifaði Dag Sjakalans á þrjátíu og fimm dögum í upphafi ársins 1970. Fjórir útgefendur höfnuðu bókinni á þeim forsendum að fólki myndi þykja lítil spenna í bók sem fjallaði um tilraun til að drepa De Gaulle þegar allir vissu að De Gaulle væri sprelllifandi og við hestaheilsu. Að lokum uppgötvaði Forsyth að útgefendurnir lögðu ekki einu sinni á sig að lesa bókina í gegn, en þá skrifaði hann útdrátt úr henni og Iagði fram hjá Hutchinson. Þeir sam- þykktu að gefa bókina út og Bantam forlagið í Bandaríkjunum greiddi mestu fyrirframgreiðslu sem borguð hefur verið fyrir fyrstu skáldsögu höfundar, eða 365 þúsund pund. Bókin seldist lítið til að byrja með en salan jókst hægt og hægt og endaði með metsölubók. Hinir fjórir reyfarar Forsyth hafa nú selst í um það bil tíu milljónum eintaka. Leiðinlegt að skrifa en gaman að undirbúa skrift- irnar „Ég skrifa mikið á hverjum degi vegna þess að mér þykir í rauninni hundleiðin- legt að skrifa og vil ljúka þessu af. Ætli ég skrifi ekki svona tólf blaðsíður á dag. algerlega. Hann var þá orðinn frétta- maður hjá BBC-sjónvarpinu og var sendur til Nígeríu, þrátt fyrir áköf mótmæli hans sjálfs. Bíafra-stríðið var í uppsiglingu og hjá BBC og í utanríkis- ráðuneytinu var honum sagt að það væri ekki annað en stná uppreisn í kjarrlend- inu, Ojukwu leiðtogi Biafra-manna nyti lítils stuðnings og hefði í rauninni ekkert upp á Nígeríu-yfirvöld að klaga. „Þegar ég kom á staðinn fann ég fljótt að þetta var kjaftæði. Það var að brjótast út langt og bióðugt stríð, og fólkið hafði verið kúgað hrottalega. Ojukwu var ákaflega vel menntaður og gáfaður maður sem Bíafra-menn höfðu nánast tekið í guðatölu. Ég sendi heim fréttir sem sögðu sannleikann í málinu, um sveltandi börnin og þjáningar hinna fullorðnu. Ég vissi það ekki en breski sendiherrann í Lagos flaug heim til að kvarta yfir fréttum mínum. Ég var kallaður til baka og sagt að ég yrði aldrei sendur út fyrir landsteinana aftur. Svo var ég sendur til Síberíu, það er að segja. -eg var gerður að þingfréttarit- ara. Það var mjög slæm reynsla og eyddi alveg því litla trausti sem ég hafði enn á hinum kjörnu fulltrúum okkar. Á meðan héldu rangar fréttir áfram að koma frá Nígeríu og ég þoldi þetta ekki til lengdar og hætti.“ Með Ojukwu í Biafra Hann fór aftur til Bíat'ra, þessa helvítis á jörðu, sem hann átti eftir að nota sem sögusvið skáldsögunnar Barist fyrir borgun sex árum síðar. „Ég flaug til Lissabon og eftir að hafa spurst fyrir á einhverjum bar hitti ég amerískan vopnasmyglara sem flaug með mig til Bíafra í gamalli Constella- tion-flugvél sem var full af sprengjuvörp- um. { Bíafra báru þeir strax kennsl á mig, BBC var ekki beinlínis vinsæl stofnun þar í landi og það lá við að ég yrði handtekinn sem njósnari. En ég slapp við það og fór að ftnna Ojukwu. „Ja, fyrir Time tímaritið og svoleiðis,” svaraði ég. Þegar til kom skrifaði ég fyrir Time, Evening Standard og Daily Og ég segi það alveg satt að peningarnir skipta mig ekki ýkja miklu máli. Ég er fluttur aftur til Englands og sætti mig prýðilega við skattheimtuna." - En ef þér finnst leiðinlegt að skrifa, hvers vegna ertu þá að þessu? „Ég nýt þess að undirbúa skriftirnar, rannsaka jarðveginn sem þær gerast í. Öll smáatriðin í Valkosti djöfulsins fékk ég frá sovéskum andófsmönnum sem eru í tengslum við bandaríska mennta- menn. Ég var í sex manuði að undirbúa þá bók og ferðaðist til Bandaríkjanna, Osló, Rotterdam, Amsterdam, Berlínar og Moskvu. Ég fór meðal annars út á „dacha" svæðið fyrir utan Moskvu og fann veitingahúsið þar sem breski leyniþjónustumaðurinn Munro hittir kontaktmann sinn, Næturgalann. Ein- um dcgi eyddi cg í Kreml og útvegaði mér kort af þeim byggingum öllum. Þegar ég er að vinna þessa undirbúnings- vinnu er ég eins og blaðamaður að eltast við frétt. Það er mjög spennandi." Sumir reyfarahöfundar vilja koma til skila siðferðilegum boðskap. í sögum Dick Francis, svo dæmi sé tekið, sigrar hið góða alltaf að lokum. Þetta er ekki svona einfalt hjá herra Forsyth. „Mér finnst gaman að skrifa um ósiðlegt fólk við ósiðlegt athæfi. Mig langar til að sýna að yfirvöldin eru jafn ósiðleg og glæpamennirnir." - Ertu þá pólitískur? „Nei, alls ekki. Ég held ég sé ekki fær um að hafa djúpstæðar pólitískar skoðanir. Ég virði ástríðuhitann í frú Thatcher og Michael Foot en finn ekki fyrir honum sjálfur." - í Valkosti djöfulsins fjállarðu um hættuna á kjarnorkustríði. Áttu von á að það skelli á kjarnorkustríð? „Nei, En ég held að á næstunni muni brjótast út minni háttar styrjaldir víða um heiminn og stórveldin taka náttúr- lega afstöðu með öðrum aðila. Ætli þetta endi ekki í allsherjar þreytu og óreiðu eins og hefur gerst í Afríku. Eða Líbanon“ - Hvað ætlarðu að skrifa um næst? „Ég veit það ekki. Það er svolítið vandamál. Þegar maður er búinn að skrifa um baráttuna milli Washington og Kremlar er ansi erfitt að byrja á bók um rán á launagreiðslum ísbúðar í East Acton.“ - Endursagt 21 Snjoruðníngstæki: Framleiðum snjóruðnings- tennur fyrir vörubíla og dráttarvélar. Pantanir þurfa að berast sem fyrst svo hægt verði að afgreiða þær fyrri part vetrar StalIækni sf. Síðumúla 27, sími 30662 VAKAÁ Á NÓTTU SEM DEGI Gerum til boð i að sækja bila hvert á land sem er. Simi 33700, Reykjavik. Getum boðið International 630 beltagröfu á hagstæðu verði Þyngd Hestöfl Skóflustærð Verð kr.: 15000 kg. 101 8001. 1.350.000,- Lánsheimild fyrir 3ja ára erlendu láni fyrirliggjandi Sýningarvél á staðnum. Kynnið ykkur verð og skilmála VÉIADEILD ■ SAMBANDSINS Á rmúla 3 Reykjavík S. 38 900 wánm himiu mömw

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.