Tíminn - 29.08.1982, Qupperneq 22

Tíminn - 29.08.1982, Qupperneq 22
SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1982 LINDSAY COOPER í TÖTRUM ■ Sjöundi áratugurinn er oft nefndur áratugur uppreisna og mótmæla. Þá reis ungdómurinn upp gegn stríðsrekstri og úreltum þjóðfélagsháttum. Hámarki nær þessi uppreisn á árunum 1968 til 1970 en þá börðust ungmenni við her og lögreglu á götum allra helstu borga vesturlanda og einnig Japan. Endalok þessara óeirða má ef til vill setja í maí 1970 en þá myrti her og lögregla fimm ungmenni í Kent State háskólanum í Bandaríkjunum. Upp úr þessum hrær- ingum var hljómsveitin henry Cow stofnuð í Cambridge háskóla í Englandi í byrjun árs 1968. Aðal mennirnir við stofnun hljómsveitarinnar voru þeir Fred Frith gítarleikari og Chris Cutler trommari en Lindsay Cooper var einnig gildur limur. Tónlist hljómsveitarinnar er svokallað avant-garde og er mjög pólitísk. Það gerði það að verkum að vinsældir hennar voru litlar og nær eingöngu bundnar við háskólaborgina. 1971 fluttist hljómsveitin til London og fór hagur hennar þá svolítið að vænkast. Það var þó ekki fyrr en árið 1973 sem fyrsta breiðskífa þeirra Legend kom út hjá Virgin hljómplötuútgáfunni. Ári síðar gáfu þau út breiðskífuna Unrest. Það sama ár fóru þau að vinna með hljómsveitinni Slapp Happy sem innihélt þau Peter Blegvad, Anthony Moore og þýsku söngkonuna Dagmar. Út ur þessar samvinnu komu brciðskíf- urnar Desperate Straight og In Praise Of Learning sem báðar komu út 1975. Síðan slitnaði upp úr samstarfinu og þeir Blegvad og Moore hættu en Dagmar gekk til liðs við Henry Cow. En Lindsay Cooper hefur gert fleira merkilegt en að vera meðlimur Henry Cow. Hún sá um strengjabassaleik á plötu Mike Oldfield Tubular Bells og stofnaði einnig kvennahljómsveitina The Feminist Improvisation Group sem hélt tónleika í Menntaskólanum við Hamrahlíð og í Félagsstofnun stúdenta fyrir nokkrum árum. Hún hefur einnig gert mikið af því að semja tónlist fyrir kvikmyndir og gerir t.d. tónlistina í kvennakvikmynd- inni sem Julie Christie var að gera hér á landi í fyrra. Platan Rags er einnig tónlist úr kvikmynd. Sú mynd heitir The Song og the Shirt eða Söngur skyrtunnar og fjallar um verkalýðsbaráttu sauma- kvenna á Englandi á síðustu öld. Að miklum hluta er tónlistin á plötunni baráttusöngvar frá síðustu öld í útsetningu Lindsayar, og þau lög sem Lindsay semur eru öll í sama stíl. Fyrri hluti plötunnar fjallar almennt um baráttumál verkamanna en seinni hlutinn fjallar nær eingöngu um baráttu kvenna. Á dögum iðnbyltingarinnar á síðustu öld varð mikil breyting á fjölskyldulífi. Mikil þörf varð fyrir ódýrt vinnuafl og þannig var konum og börnum hálfþröngvað út á vinnumarkað- inn. Vinnuaðstaðan í fataverksmiðjun- um, sem flestar konurnar unnu í, var mjög slæm. Flestar saumakonurnar voru ógiftar og höfðu komið til borganna til að fá vinnu. Það var ekki aðeins að kaupið væri lágt heldur var kuldi og lítil birta í verksmiðjunum þannig að konumar misstu bæði sjón og heilsu, voru reknar og neyddust til að fara út í vændi til þess að komast af. Nú er enn önnur iðnbylting á ferðinni - tölvubyltingin og hið sama er uppi á teningnum. Alþjóðaauðfyrirtæki sem framleiða tölvur hafa mikla þörf fyrir ódýrt vinnuafl og það fá þau í austurlöndum. Þar vinna konur við að búa til kísilkubba (silicon chips) rýnandi í smásjár átta tíma á dag og missa þannig sjónina. Af framansögðu má því vera ljóst að Lindsay Cooper er enn mjög pólitísk og mikil kvenréttindakona. Að lokum langar mig að birta hluta af texta lagsins 1848: La Chanson des Paysans en það var samið af franska sósíalistanum og skáldinu Pierre Dupont. í febrúar 1848 var gerð uppreisn og lýðveldi komið á í Frakklandi. Franskir bændur studdu í fyrstu uppreisnina en í júní snerust þeir gegn lýðveldinu aðallega vegna skatts sem settur var á þá. Dupond samdi ljóðið Söngur bændanna í von upp að fá þá aftur til liðs við lýðveldið sem þó ekki gerðist og lýðveldið leið undir lok. La Chanson des Paysans. La terre va briser ses chaines La misere a fini son bail Les monts, les vallons et les plaines. Vont engendrer par le travail A bas les menteurs et les traitres Unis avec les ouvriers. Sem útleggst lausl. þýtt: Jörðin mun brjóta af sér hlekkina / Eymdin mun hætta ránum sínum / Hæðimar dalimir og sléttumar / munu blómstra vegna vinnunnar / Niður með lygarana og svikarana / harðstjórana og okrarana / Bændumir verða hinir ráðandi / í sameiningu með verkamönnunum). vika. No time to think: Síðasta plata Purrks Pillnikk ■ Purrkur Pillnikk hefur sungið sitt síðasta, eða gerir það á Melavellinum í dag, en þótt þessi hljómsveit sé nú hætt störfum er ný fjögurra laga plata komin út með þeim. Þetta er platan „No Time To Think“ og eru öll lögin með enskum textum enda platan ætluð á þann markað í einhverjum mæli. Á plötunni em lögin Googooplex, For Viewing, Excuse og Surprise öll fmmsamin af þeim félögum og á þeim sést að strákamir em í góðu formi, raunar er platan með því besta sem Purrkurinn lætur eftir sig. Besta lag plötunnar er að dómi undirritaðs, lagið Googooples, en í því þenur Einar Örn söngvari hljómsveitar- innar klarinett af miklum móð. Þótt Purrkur Pillnikk hafi aðeins starfað í tæpt eitt og hálft ár liggur mikið og gott efni eftir þá og er þessi síðasta plata þeirra verðug eftirmæli hljómsveit- arinnar, ef svo má að orði komast. Útgefandi plötunnar er Gramm en Purrkurinn hefur gefið út allt sitt efni á vegum þeirrar útgáfu. - FRI Hestur tapaðist Hestur tapaðist úr girðingu á Bíldudal 3. ágúst. 6 vetra foli, litur bleikur, Mark: blaðstíft framan hægra. Taminn og járnaður. Þeir sem einhverjar upplýsingar geta veitt hafi samband í síma 94-2110 á daginn, eða 94-2114 á kvöldin. Lausar stöður. 1. Eftirtaldar nýjar stöður við lítið heimili fyrir unglinga: Staða forstöðumanns. Reynsla af starfi með unglingum í vanda og menntun sem nýst getur í slíku starfi áskilin. Staða aðstoðarmanns. Reynsla af starfi með unglingum í vanda sem nýst getur í slíku starfi áskilin. Umsóknarfrestur er til 15. september n.k. Upplýsingar gefur yfirmaður fjölskyldudeildar í síma 25500 og 74544. 1. Staða fulltrúa. Hálf staða eftir hádegi í fjármála og rekstradeild. Reynsla í skrifstofu- störfum nauðsynleg. 3. Staða ritara. Góð vélritunarkunnátta og starfsreynsla áskilin. Umsóknarfrestur um tvær síðastnefndu stöð- urnar er til 15. sept. Skrifstofustjóri veitir upplýsingar í síma 25500. MFi Felagsmálastofnun Reykjavíkurborgar igf Vonarstræti 4 sími 25500 Ta Frá Grunnskólum Kópavogs Grunnskólarnir í Kópavogi verða settir með kennarafundum í skólunum kl. 9 f.h. Næstu dagar verða notaðir til undirbúnings kennslustarfs. Nemendur eiga að koma í skólana mánudaginn 6. sept. sem hér segir: 1. bekkur, börn fædd 1975 kl. 13.00 2. bekkur, börn fædd 1974 kl. 13.00 3. bekkur, börn fædd 1973 kl. 10.00 4. bekkur, börn fædd 1972 kl. 11.00 5. bekkur, börn fædd 1971 kl. 10.00 6. bekkur, börn fædd 1970 kl. 9.00 7. bekkur, börn fædd 1969 kl. 11.00 8. bekkur, börn fædd 1968 kl. 10.00 9. bekkur, börn fædd 1967 kl. 9.00 Framhaldsdeildir á 2. ári í Víghólaskóla kl. 8.30 Forskólaböm (fædd 1976, 6 ára) og foreldrar þeirra verða boðuð í viðtal símleiðis frá 1.-13. sept. Skólaganga forskólabarna hefst 13. sept. Nemendurkomi meðtöskurog ritföng í skólann. Skólafulltrúi. TIL SÖLU Til sölu er International Ijósavél UD-18, árgerð 1949-50. Rafallinn er 46 kw, 3 fasa, 220 volt, 50 rið, 1000 R.p.m. 8 power factor, 4 wire, 40° temp rise. Skipt hefur verið um stimpla og slífar. Vélin er lítið keyrð. Mikið fylgir af varahlutum. Vélin er í eigu Kaupfélags Dýrfirðinga, Þingeyri. Nánari upplýsingar hjá Véladeild Sambandsins. SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉIAGA Veiðiá Hölkná í Þistilfirði er til leigu. Tilboð óskast fyrir 1. október n.k.. Upplýsingar gefur Þórarinn Kristjánsson, Holti, Þistilfirði.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.