Tíminn - 14.09.1982, Qupperneq 3
MUÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982
fréttirl
Ólafur Jóhannesson veitir fjórum togurum leyfi til sölu afla erlendis:
VISSI EKKI BETUR EN SOL-
IIR HEFÐU VERID BANNRUAR”
— segir sjávarútvegsráðherra. „Engin bókun gerd á rikisstjórnar-
fundi’% segir Ólafur, starfandi viðskiptaráðherra
en að svörin yrðu jákvæð þegar ég vissi
að um þetta yrði fjallað af mönnum sem
þekkja tii þessara mála,“ sagði Kristján
Ragnarsson.
Ólafur Jóhannesson sagði í samtali
við Tímann að honum hefði ekki þótt
óeðlilegt að veita þessi leyfi miðað við
það sem átt hefði sér stað í fisksölumál-
um á svipuðum tíma undanfarin ár.
Aðspurður um hvort sjávarútvegsráð-
herra hefði ekki borið fram tillögu um
að banna sölur erlendis á ríkisstjórnar-
fundi, sagði Ólafur:
„Það var engin bókun gerð um þetta
mál. Ríkisstjórnin getur gert um þetta
samþykkt, en það var ekki gert.“
Óvíst er um framvindu þessa máls, en
16 umsóknir um sölur erlendis verða
sendar viðskiptaráðuneytinu í dag.
Steingrímur Hermannsson sagði þó að
hann myndi mótmæla þessum sölum
harðlega og ræða við Ólaf Jóhannesson
vegna þessa.
-ESE
■ „Ég er því algjórlega mótfallinn að
þessar sölur séu heimilaðar á meðan
hætta er á að vinna stöðvist í landi vegna
hráefnisskorts. Þess vegna lagði ég fram
tillögu í ríkisstjóminni um að banna allar
sölur erlendis á meðan stöðvun fiskveiði-
flotans stendur og ég vissi ekki betur en
að það hefði verið samþykkt,“ sagði
Steingrímur Hermannsson, sjávar-
útvegsráðherra í samtali við Tímann
vegna þeirrar ákvörðunar Ólafs Jó-
hannessonar, sem nú gegnir störfum
viðskiptaráðherra, að leyfa fjórum
íslenskum togurum að selja afla í
Englandi og Þýskalandi í lok þessarar
viku.
Fjórar umsóknir lágu fyrir viðskipta-
ráðuneytinu um sölur erlendis og voru
þær allar samþykktar. Ýmir HF selur
því afla í Englandi á fimmtudag, en Sölvi
Bjarnason BA og Heimir KE selja afla
í Þýskalandi og Englandi á föstudag og
Júpiter RE selur væntanlega eftirhelgi.
„Ólafur Jóhannesson er viðskiptaráð-
herra núna og ákaflega réttsýnn maður
■ Steingrímur Hermannsson
eins og alltaf áður,“ sagði Kristján
Ragnarsson, formaður LÍÚ er hann var
spurður að því hvort leyfisveitingin „Það er ekkert athugavert við þessar
hefði komið honum á óvart. sölur og mér datt bara ekki annað í hug
■ Kristján Ragnarsson
■ Ólafur Jóhannesson
Safnaðarfélag Áskirkju:
Fjársöfnun
til kirkju-
byggingar
■ Þessa viku gengst Safnaðarfélag
Áskirkju í Rcýkjavík fýrir fjársöfnun
til kirkjubyggingar safnaðarins. Verður
leitast við að heilsa uppá öllum
heimilum sóknarinnar og beðið um
fjárstuðning við bygginguna eða fyrír-
heit um framlag síðar.
Tilefni þessarar fjársöfnunar eru þau
tímamót að síðasti áfangi bygginga-
starfsins er hafinn. Tekið er til við
múrhúðun kirkjunnar að innan jafn-
framt því að vinnupallar utanhúss hafa
verið teknir niður, enda ytra frágangi
hússins lokið.
Þær framkvæmdir, sem nú eru að
baki, hafa verið dýrar og það, hve vel
hefur unnist, ber mikilli fórnfýsi safn-
aðarins vitni sem og áhuga. Er því ekki
að efa að vel verður brugðist við nú, er
leitað verður eftir stuðningi til að gera
myndarlegt átak innan dyra í kirkjunni.
Á næsta ári eru liðin 20 ár frá stofnun
Ásprestakalls og standa vonir til að á
þeim tímamótum verði unnt að taka
hluta kirkjubyggingarinnar í notkun.
Sunnudaginn 19. september verður
guðsþjónusta í Áskirkju og gefst
sóknarbömum og velunnurum kirkj-
unnar þá kostur á að skoða húsið og
væntanlega aðstöðu safnaðarins.
rmcrrccm
Rekstrarvandi útgerdarinnar:
Tillögurnar tilbúnar
■ Tillögur Sjávarútvegsráðuneytisins
um aðgerðir vegna rekstrarvanda út-
gerðarínnar verða lagðar fyrir ríkis-
stjómarfund á flmmtudag, sagði Stein-
grímur Hermannsson, sjávarútvegsráð-
herra í samtali við Tímann er hann var
inntur eftir hvað vinnu ráðuneytisins
vegna þessa máls liði.
Steingrímur sagði að vinnu ráðuneyt-
isins væri nú lokið en eftir væri að fá
upplýsingar frá bönkunum og Fiskveiða-
sjóði. Þessar upplýsingar lægju væntan-
lega fyrir einhvem næstu daga.
Við höfnuðum tillögum Sjávarútvegs-
ráðherra sl. miðvikudag og okkur er
ekki kunnugt um neinar nýjar tillögur,
sagði Kristján Ragnarsson er hann var
spurður um hvort LÍÚ væri kunnugt um
innihald tillagna ráðuneytisins.
Kristján Ragnarsson, sagðist því
svartsýnn á að róið yrði á næstunni.
Steingrímur Hermannsson sagði að
tillögur ráðuneytisins hefðu ekki verið
kynntar viðræðunefnd LÍÚ í smáatrið-
um og hann skildi því ekki hvernig hægt
væri að hafna tillögunum óséðum.
- Ríkisstjórnin mun bjóða það sem
hún framast getur í þessu máli, sagði
Steingrímur og bætti því við að það væri
mál útgerðarmannanna hvort þeir
ætluðu að stoppa eða ekki. Það væri víða
pottur brotinn og þeir ættu að líta í eigin
barm. Staðreyndin væri nefnilega sú að
margir þeirra hefðu reist sér hurðarrás
um öxl með offjárfestingum, en ætluðust
til að ríkið kæmi þeim nú til hjálpar.
- ESE
Dótturfyrirtæki
Sambandsins
í Bretlandi:
Mikil sölu-
aukning á
íslenskum
fisk-
afurdum
■ Sala Icelandic Seafood Limited,
dótturfyrirtæki Sambandsins í Bretlandi
jókst að verðmæti til um 54% fyrstu átta
mánuði þessa árs miðað við sama tímabil
í fyrra. Að magni til var salan um 43%
meiri, en þess ber að geta að síldarsölur
á vegum fyrírtækisins eru þar ekki
meðtaldar.
Samkvæmt upplýsingum Benedikts
Sveinssonar, framkvæmdastjóra fyrir-'
tækisins í Sambandsfréftum, var salan
þessa fyrstu átta mánuði að verðmæti
3250 sterlingspund, en var á sama
tímabili 1981 um 2105 pund. Að magni
til var salan þetta tímabil 2250 lestir, en
var 1570 lestir í fyrra.
Það háir fyritækinu nokkuð að
nægilegt hráefni hefur ekki borist frá
íslandi og eru birgðir fyrirtækisins nú
aðeins innan við 100 lestir. Sérstaklega
var hráefnisskorturinn tilfinnanlegur
fyrstu mánuði ársins, en ræst hefði þó
úr þeim málum þegar líða tók á árið og
nú síðast hefði borist það mikill fiskur
að all veruleg söluaukning hefði náðst.
Talsverðar birgðir af fiski eru nú til
hér heima þannig að sæmilegt útlit er
með sölumál á Bretlandseyjum í haust.
- ESE
VIDEO SPORT s/f
Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 - Sími 33460 Höfum fengið mikið
af myndefni í V.H.S. með og án íslensks texta.
Opið alla
daga
kl. 13.00-23.00