Tíminn - 14.09.1982, Side 7

Tíminn - 14.09.1982, Side 7
ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982 7 erlent yfirlit ■ Castró Kúbuforseti hefur oft sýnt áhuga á að bæta sambúðina við Bandaríkin og draga úr þeirri spennu sem er á milli ríkjanna. Bandaríska stjómin hefur vart virt þessar tilraunir Castrós viðlits og vill ekkert við hann tala. Á síðustu 18 mánuðum hafa Kúbumenn sýnt lit á að taka upp bætta sambúð við Bandaríkin og boðist til að taka upp sáttfúsari stefnu í málefnum Rómönsku Ameríku en Bandaríkja- stjórn lætur allt slíkt hjal sem vind um eyru þjóta. Wayne Smith heitir maður sem lengi hefur þjónað í utanríkisráðuneytinu í Washington, um árabil, sem yfirmaður þeirrar deildar sem fer með málefni sem tengjast samskiptum Bandaríkjanna og Kúbu og um skeið sem yfirmaður sendinefndarinnar sem sér um hagsmuni Bandaríkjanna í Havana. Fyrir rúmum mánuði sagði hann stöðu sinni lausri og hætti störfum í utanríkisþjónustunni í mótmælaskyni við stefnu Bandaríkja- stjórnar gagnvart Kúbu. Hann skrifaði grein um sjónarmið sín í tímaritið Foreign Policy sem mikið hefur verið vitnað til í heimspressunni síðan. Hann heldur því fram að hin einstrengingslega afstaða Bandaríkja- stjómar til Kúbu og ríkja Mið-Ameríku þjóni alls ekki hagsmunum Bandaríkj- anna, síður en svo. Kúbumönnum sé aðeins þrýst enn fastar í fang Sovétríkj- anna og það séu fyrst og fremst þeirra ■ Castró vill sættast. Castró vill f riðmælast en Bandaríkjastjórn vill ekkert vld hann tala Bandarískur diplómat segir af sér í mótmælaskyni hagsmunir að stjórnvöld í Washington vilji ekkert við Kúbustjórn tala. Á Kúbu hefur þessi stefna einnig þveröfug áhrif á það sem til er ætlast. Almenningur þar í landi snýst öndverður gegn Bandaríkj- unum eftir því sem þeir vilja hafa minna við Castró saman að sælda og stendur fast að baki stjórninni í Havana þegar Bandaríkjamenn senda Castró tóninn og herða refsiaðgerðir sínar. Wayne Smith heldur því fram að í Washington haldi menn að þeir geti rekið fleyg á milli kúbönsku þjóðarinnar og kommanna í Havana með stefnu sinni en Castró er aldrei fastari í sessi en einmitt þegar harðast er að honum ráðist í Washington Skömmu eftir að Reagan tók við völdum í janúar 1981 friðmæltust Kúbumenn við Bandaríkin. Um það leyti vann stjórnarherinn í E1 Salvador mikinn sigur á uppreisnarmönnum. Þá sendi Smith skilaboð til Washington þess efnis að Kúbumenn og Sandinistar í Nicaragua væru tilbúnir að draga mjög úr aðstoð við uppreisnarmenn og endurskoða afstöðu sína. Kúbustjórn dró verulega úr vopnasendingum til Nicaragua og þar með til E1 Salvador. Smith lagði til að viðræður gætu hafist. En hann fékk aldrei neitt svar frá Washington. Vorið 1981 bauðst Kúbustjórn til að beita sér fyrir aðgerðum til að draga úr spennu í Mið-Ameríku og taka þátt í að tryggja frið í heimshlutanum. Smith og ambassador Bandaríkjanna í Nicaragua lögðu til að þessu boði yrði tekið, en því var harðneitað í Washington. Í desembermánuði 1981 tilkynnti Kúbustjórn að hún hefði stöðvað alla vopnaflutninga til Nicaragua og af sjálfu leiddi að vopn bárust þá ekki áfram til E1 Salvador. Og í apríl í ár óskaði Kúbustjórn eftir viðræðum við Banda- ríkjamenn án skilyrða. Svarið sem Smith fékk var að Washington hefði engan áhuga á viðræðunum. Ekkert lát varð á kalda stríðinu við Castró. Wayne Smith hefur haft aðgang að öllum gögnum bandarísku leyniþjónust- unnar varðandi vopnasendingar frá Kúbu til Nicaragua og segir þær fjarri öllum sanni. Hann heldur því fram að ef upplýsingar leyniþjónustunnar um vopnasendingar væru réttar mundu uppreisnarmenn í E1 Salvador hafa yfir að ráða tuttugu sinnum meiri vopnum en stjórnarherinn. Afsögn Waynes Smith er áfall fyrir ,en Reagan vill ekkert við hann tala, Bandaríkjastjórn. Þetta er í annað sinn sem háttsettur maður í utanríkisþjónust- unni segir starfi sínu lausu til að mótmæla stefnu stjórnarinnar í málefn- um Mið-Ameríku. í fyrra hætti ambassa- dorinn í E1 Salvador, Robert White, vegna stefnunnar þar. Hann hélt því fram að kosningarnar sem þá voru ákveðnar mundu ekki gera annað en fella þá stjórn sem Bandaríkjamenn studdu, stjórn kristilegra demókrata undir forsæti Duares, og koma hinum hægri sinnaða hryðjuverkamanni d’Aubuisson major til valda. Spá hans rættist. George Shultz utanríkisráðherra vís- aði ásökunum Waynes Smith á bug. Hann staðfcsti að Bandaríkjastjórn hefði engan áhuga á að taka upp viðræður við Castró, fyrr en hann hætti að flytja út byltingar í stórum stíl. Og þar við situr. erlendar fréttir 300 komust lífs af í flugslysi á Spáni ■ Farþegaþota, með næstum 400 manns um borð hrapaði til jarðar í flugtaki af Malagaflugvelli á Suður- Spáni í gær. Fregnir í gær hermdu að um 70 manns hefðu beðið bana í flugslysinu og um 100 manns verið fluttir á sjúkrahús, meira eða minna slasaðir, og þar af voru sumir með mjög alvarleg brunasár, en um 50 fengu fljótt að fara af sjúkrahúsinu. Aftari útgöngudyr þotunnar klesstust svo við fallið að ekki var hægt að opna þær, með þeim afleiðingum að fjöldi farþega lokaðist inni í aftari hluta vélarinnar. Svo virðist sem um 250 manns hafi sloppið ómeiddir með öllu. Flestir farþeganna voru banda- rískir ferðamenn á leið heim til Bandaríkjanna að afloknu sumarfríi á Spáni. Þotan var af gerðinni DC-10, á leiðinni til New York í leiguflugi fyrir spánska flutningaflugfélagið Span- tax. „Vélarnefið lyftist frá jörðu, en síðan virtist vélin missa afl,“ sagði einn sem komst lífs af við fréttamenn í Malaga í gær. Vélin skall niður aftur flugmaðurinn reyndi án árang- urs að hemla, en þotan hentist fram af brautinni og yfir aðalumferðaræð- ina, þar sem hún rakst á 3 bifreiðar og fjöldi manna slasaðist við það. Stórfelldar loftárásir ■ ísraelskar hcrþotur héldu í gær uppi stöðugum loftárásum á stöðvar Sýrlendinga í Líbanon. Loftárásirn- ar stóðu samfleytt í yfir sjö klukkustundir og voru þær mestu í meira en mánuð. Útvarpið í Beirút greindi frá því að a.m.k. 40 manns hefðu látið lífið og hundruðir hefðu flúið svæðið. fsraelsmenn sögðust hafa verið að ráðast á birgðastöðvar þar sem skotvopna og eldflaugar væru geymd, auk þess sem þeir hefðu ráðist á loftvarnarpalla. Réðust þeir á svæðið á milli Beirút og Damaskus. Héldu þeir því fram að þeim hefði tekist að gera mikinn usla í höfuðstöðvum Palestínumanna á þessu svæði. Páfagardur haf nar ásök- unum ísraela ■ Því hefur algjörlega verið hafnað í Páfagarði að ásakanir ísraelsmanna þess efnis að rómverrsk-kaþólska kirkjan hafi af ásettu ráði látið það óátalið og þagað, þegar Gyðingar voru myrtir svo milljónum skipti í síðari heimsstyrjöldinni, af nas- istum. Talsmaður Vatikansins sagði aö svo fáránlegri ásökun, mætti ekki láta ósvarað. Þessi ásökun fsraelsmanna var opinber gerð þegar talsmaður ríkis- stjórnarinnar í Jerúsalem fordæmdi þá ákvörðun páfa að eiga fund með Yasser Arafat, leiðtoga PLO, síðar í þessari viku. Batnandi samband Breta og Argen- tínumanna ■ Bretland og Argentína hafa náð samkomulagi þess efnis að aflétta nú efnahagstakmörkunum þeim sem löndin settu hvort á annað, þegar deilan um Falklandseyjar stóð sem hæst, en takmarkanirnar hafa verið í gildi síðan. Fjárupphæðir þær sem hér um ræðir eru alvarlegar, því fé í eigu argentínskra aðila og var fryst í Bretlandi var að upphæð um þúsund milljónir dollara, og fé breskra banka og fyrirtækja í Argentínu sem fryst var hvorki meira né minna en fjórum sinnum sú upphæð, eða um fjögurþúsund milljónir dollara. Viðskiptahömlur eru enn í gildi á milli landanna en heimildir frá Bretlandi herma að bresk stjórnvöld hyggist beita sér fyrir því að báðir aðilar í deilunni fallist á að nema úr gildi viðskiptahömlur. RUSSAR HAFA VAKANDI AUGA MEÐ PÓLVERJUM ■ Utanríkisráðherra Póllands, Stefhan Oshosky hefur að undan- förnu verið í Moskvu, þar sem hann hefur átt fundi með sovéska starfs- bróður sínum, Gromyko. Hafa fréttamenn í Moskvu getið sér þess til að rekja megi þessa heimsókn pólska utanríkisráðherrans til þcss að Sovétmenn vilji sýna pólskum stjórnvöldum fram á að fylgst sé náið með gangi mála í Póllandi frá Moskvu, og þetta sé eins konar áminning til pólskra stjórnvalda, eltir mótmælaöldu þá er reis nýlega í Póllandi, gegn herlögunum í landinu.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.