Tíminn - 14.09.1982, Page 17
ÞRIÐJUDAGUR 14. SEFTEMBER 1982
Ifþróttir
KR-ingar
unnu Val
■ Sævar Geir Gunnleifsson sést hér skora fyrra mark Breiðabliks gegn KA. Þar með má segja að falldómurinn hafi verið kveðinn yfir KA. Tímamynd: Ella.
Hann var rangstæður
Breiðablik sigraði KA á hæpinni vítaspyrnu
■ Þegar leikur KR og Vals hófst á
laugardag var Ijóst, að möguleikar
KR-inga á 2. sætinu í 1. deUd væri úr
sögunni og því höfðu þeir ekki að neinu
að keppa í leiknum fremur en Valsmenn.
En þrátt fyrir þetta höfðu leikmenn KR
sigur upp úr krafsinu og sitja þar af
pleiðandi í 3. sæti 1. deUdar, aðeins
tveimur stigum á eftir meisturum
Víkings og einu stigi á eftir IBV sem
hafnaði í öðru sæti.
Til að byrja með í leiknum voru
KR-ingar kröftugri og á 11. mínútu fékk
Óskar Ingimundarson knöttinn inn fyrir
Valsvömina eftir mistök hjá Valsmönn-
um, en hann lét Brynjar verja frá sér
skotið.
Þremur mínútum síðar barst boltinn
upp að Valsmarkinu og eftir mikinn
hamagang, náði Birgir Guðjónsson að
skora og það reyndist vera eina mark
leiksins.
Liðin skiptust á um að sækja eftir þetta
og ef eitthvað var þá áttu KR-ingar fleiri
markviss færi. En ekki tókst þeim að
skora fleiri mörk.
Það færðist töluverð harka í leikinn er
á leið og tvívegis sýndi Þorvarður
Björnsson gul spjöld, þeim Grími
Sæmundsen og Magna Péturssyni báðum
úr Val.
Valsmenn skomðu eitt mark í
leiknum, sem dæmt var af vegna meints
brots á Halldóri Pálssyni markverði KR.
Bestur í Valsliðinu var Brynjar
markvörður, en hjá KR varði Halldór
vel og einnig vom Ágúst, Sæbjöm og
Elías sæmilegir.
Árangur þessara liða er mjög viðun-
andi í íslandsmótinu. Hefðu kæmmálin
ekki komið til hefðu bæði liðin staðið
uppi í mótslok með 21 stig, en vegna
málaferlanna hlaut Valur aðeins 17. Um
árangur KR er það að segja, að þetta er
besti árangur KR í 1. deild frá 1969.
Reyndar hlutu KR-ingar fleiri stig 1979,
en höfnuðu þá í 5. sæti. — sh.
■ Vítaspyma sem dæmd var fimm
mínútum fyrir leikslok fíeik Breiðabliks
og KA tryggði Blikunum sigur í
botnbaráttuleiknum sem háður var í
Kópavogi á laugardag. Eftir leikinn
viðurkenndi annar línuvörður leiksins að
hann hefði verið búinn að veifa á
rangstöðu á Breiðablik, en látið flaggið
falla og því hefði dómarinn ekki tekið
eftir því. En KA-menn voru sárir yfir
þessu og þarf enginn að lá þeim það.
En þeir byrjuðu einmitt á að skora á
35. mínútu fyrri hálfleiks. Var þar á ferð
Ásbjörn Bjömsson, með skalla eftir
góða sendingu Elmars Geirssonar.
Um miðjan síðari hálfleikinn náði lið
Breiðabliks að jafna með marki Sævars
Geirs Gunnleifssonar ungs nýliða í
Breiðabliksliðinu. Hafði hann betur í
kapphlaupi við markvörð KA og fylgdi
vel eftir en knötturinn hrökk af
markverðinum út í teig og skoraði.
Svo kom vítaspyman fimm mínútum
fyrir leikslok, sem var „gjöf“ til
Breiðabliksmanna. Samvinna dómara
og línuvarða var þarna ekki nógu góð
og sama var reyndar upp á teningnum í
leik Víkings og lA, en þá virtist ekki
alveg ná saman það sem Óli Ólsen og
Rafn Hjaltalín línuvörður vom að gera.
En það má segja, að það sé sárabót
fyrir KA, að þó þeir hefðu náð jafntefli
þá vom þeir hvort eð er fallnir vegna
lakari markatölu. Því fylgja þeir Fram
niður í 2. deild, en upp kemur hitt
Akureyrarliðið Þór.
Fram í 2. deild
■ Þegar Eyjamenn taka sig til og
leggja sig alla fram þá em þeir öllum
liðum hér á landi erfiðir. Á laugardaginn
sendu þeir lið Fram beina leið niður í 2.
deild er þeir sigruðu þá með tveimur
mörkum gegn engu og þá um leið
tryggðu þeir sér 2. sætið í 1. deild og rétt
til þátttöku í UEFA-keppninni.
Fyrra markið skoraði Ömar Jóhanns-
son úr aukaspyrnu og var það mjög
fallegt. Og á 28. mínútu skoraði Sigurlás
annað mark og náði þar með að skora
jafn mörg mörk og Heimir Karlsson úr
Víkingi í 1. deild. Og Heimi tókst ekki
að bæta við marki á sunnudag, þannig
að þeir verða að skipta með sér
heiðrinum af markakóngstitlinum.
Fleiri mörk vom ekki skoruð í
leiknum og þó að Framarar tæku sig á
er á leið, þá náðu þeir aldrei að skapa
sér nein afgerandi marktækifæri.
Það hefur greinilega komið í ljós
hversu mikilvægt það er liði ÍBV að
Sigurlás sé á skotskónum. Nú í síðustu
leikjum hefur dæmið gengið upp hjá
honum og þá er ekki að sökum að
spyrja, hann er meðal aðalmarka-
skorara landsins. Hann var bestur
Eyjamanna gegn Fram, en í liði Fram
stóðu þeir Marteinn og Guðmundur
markvörður sig einna best. 2. deildin
bíður liðs Fram og það verður að segjast
að bæði KA og Fram hafa það góðum
liðum á að skipa, að dvöl þeirra í 2. deild
ætti ekki að verða ýkja löng. En þegar
þau snúa aftur mega hin liðin fara að
vara sig, því bæði félögin eiga fjöldann
allan af ungum og efnilegum leikmönn-
um sem munu taka upp merkið. sh
Isfirdingar sluppu
■ Segja má, að bæði ísfirðingar og
Keflvíkingar geti gert sig ánægða með
úrslitin í leik liðanna á ísafirði á
laugardag. Jafntefli tryggði framhalds-
dvöl þeirra beggja í 1. deild og að því
var stefnt þegar af stað var farið.
Bæði liðin áttu sín tækifæri til að
skora. Magnús Garðarsson fékk fyrst
verulega gott tækifæri, en því næst
ísfirðingamir Jón Oddsson og Gunnar
Pétursson.
Aftur átti Magnús Garðarsson góð
marktækifæri en án árangurs. Þannig
skiptust liðin á um að sækja, en eftir því
sem á leikinn leið, var sem leikmenn
hefðu sætt sig við jafnteflið.
Rétt í þann mund er dómari leiksins
flautaði af skallaði Örnólfur Oddsson og
Gunnar Pétursson.
Aftur átti Magnús Garðarsson góð
marktækifæri en án árangurs. Þannig
skiptust liðin á m að sækja, en eftir því
sem á leikinn leið, var sem leikmenn
hefðu sætt sig við jafnteflið.
Rétt í þann mund er dómari leiksins
flautaði af skallaði Örnólfur Oddsson
knöttinn í netið hjá Keflvíkingum, en
það var ekki dæmt mark. Leiknum var
lokið. En hefði markið verið látið gilda
væru Keflvíkingar fallnir í stað Fram.
Það munaði ekki meiru. En segja má,
að þessi spenna allt fram á síðustu
stundu í leikjum helgarinnar hafi verið
dæmigerð fyrir keppnina í 1. deild í
sumar. Allt gat gerst og við lá, að
íslandsmeistaranir væru í fallhættu fram
í síðustu umferðimar.
sh
Lítill munur í 3. deild
Jafntefli Siglfirðinga og Víðis úr
Garði í lcik liðanna í úrslitum 3. deildar
tryggði KS sæti í 2. deild á næsta
keppnistímabili. Leiknum sem háður
var á Siglufirði lauk með markalausu
jafntefli og þar með komst KS í 2. deild
á mun betri markatölu en Tindastóll frá
Sauðárkróki, sem hlaut jafn mörg stig í
úrsUtakeppninni.
Þess vegna nægði Tindastóli ekki 2-0
sigur gegn Selfyssingum á Selfossi. Sá
leikur var frekar jafn framan af, en í
síðari hálfleik skoruðu Norðmenn tvö
mörk. Fyrst skoraði Gústaf Bjömsson
úr vitaspymu og síðan skoraði Öm
Ragnarsson hið sei>\na.
Þar með era það Víðir úr Garði og
KS sem leika í 2. deild á næsta
keppnistmabUi í stað Þróttar Nes. og
SkaUagríms. Þess má geta í framhaldi af
þessu, að þetta er í þriðja sinn í röð, sem
TindastóU situr eftir i 3. deildinni vegna
markatölu. En vonandi gengur þeim
betur næst.
sh
Handbolti
■ Reykjavíkurmótið í handknatt-
leik í meistaraflokki karla hefst í
kvöld í LaugardalshöU. Þá verða
leiknir þrír leikir. Klukkan 19.00
mætast KR og Ármann, og strax á
eftir leika Víkingur og Þróttur og
loks ÍR og Fylkir.
Liðunum er skipt í tvo ríðla og era
KR, Víkingur, Þróttur og Ármann í
öðrum, en Valur, ÍR, Fylkir og Fram
í hinum. sh
■ Sigurlás Þorleifsson hafði það af að ná Heimi Karissyni í keppninni um
markakóngstitilinn í 1. deild. Hér er hann í hörðum slag við Martein Geirsson.
Mynd: Guðm. Sigfússon
Stadan
■ Lokastaðan á mótinu var þannig: Lokastaðan í 2. deUd varð þessi:
Víkingur Vestmannaeyjar . 18 7 9 2 25-17 23 Þróttur R. .. . 18 12 5 1 27-« 29
18 9 4 5 23-16 22 Þór Ak . 18 8 7 3 35-19 23
KR 18 5 11 2 14-12 21 Reynir S. ... . 18 9 3 6 25-16 21
Akranes 18 6 6 6 22-20 18 FH . 18 7 6 5 21-23 20
Valur 18 6 5 7 18-15 17 Völsungur . . . 18 5 6 7 20-21 16
> Isafjörður .... 18 6 5 7 27-29 17 Einherji . . .. . 18 6 3 9 24-30 15
Breiðablik .... 18 5 6 7 18-22 16 Njarðvík . . . . 18 5 5 7 24-30 15
Keflavík 18 5 6 7 14-19 16 Fylkir . 18 1 12 5 12-18 14
Fram 18 4 7 7 17-23 15 SkaUagrímur . . 18 5 4 9 22-31 14
KA 18 4 6 8 17-22 14 Þróttur N. . . . 18 5 3 10 10-25 13