Tíminn - 02.10.1982, Blaðsíða 1

Tíminn - 02.10.1982, Blaðsíða 1
Fyrsti áskriftar-getraunaseðillinn birtur á bls. 8-9 Bla 1 ð 1 Tvö blöð í dag Helgin 2.-3. okt. 1982 224. tbl. - 66. árg. Indland: Stefnu- breyting — bls. 5 % m Fjala- kötturinn - bls. 15 Redgrave- fjöl- skyldan bls. 2 Volvo reynslu- ekið — bls. 8-9 Samúdarverkfall starfsmanna á Siglufirði fær óvæntan endi: MÆTTll TIL VINNU EFTTR HÓTANIR UM UPPSAGNIR ■ „Sá cinstæði atburður skeði hér í morgun, að þeir sömu aðilar sem að undanförnu hafa sagt mönnum upp starfi með vinnubrögðum sem minna mann óneitanlega á vinnubrögð vald- hafa í Póllandi - þeir Geir Zoega, skrifstofustjóri og Gísli Eh'asson, verksmiðjustjóri Sðdarverksmiðja rík- isins á Siglufirði - skiptu því á sig að hringja í hvem einstakan starfsmann og tðkynna þeim að ef þeir ekki mæti tð vinnu í dag, þá yrðu þeir hver um sig reknir úr starfi. Menn hafa verið og em hræddir, því hér er piikill vandi í atvinnumálum. Þegar Ijóst var að þeim hafði tekist að hræða nokkum hluta starfsmannanna til að mæta tíl vinnu þá lögðum við hjá verkalýðs- félaginu til við aðra starfsmenn að þeir gerðu það líka. Vinna hófst þvi aftur kl. 13.00 í dag,“ sagði Kolbeinn Friðbjamarson, form. Vöku á Siglu- firði í gær. Forsaga þessa máls er sú, að eftir uppsagnir um 25*28 manna smám saman síðustu mánuði, án nokkurra reglna, þannig að enginn hefur vitað ■ „Ekki tifir maðurinn á brauðinu einu saman“ stendur að vísu í bók bókanna. Ekki ætlast bakarar þjóðarinnar heldur til þess. Þeir telja á hinn bóginn að landsmönnum muni betur famast en ella ef þeir borða að minnsta kosti 6 sneiðar af brauði á dag. Þessa álitlegu kringlu hafa þeir væntanlega bakað í tilefni af norrænni brauðviku sem stendur yfir dagana 4. til 10. október. Tímamynd G.E. hver næstur yrði, fyllti það mælinn þegar elsta starfsmanni fyrirtækisins - Jóhanni Möller sem er 64 ára gamall - var sagt upp störfum eftir 48 ára starf hjá Síldarverksmiðjum ríkisins. „Upp á þennan mann er ekkert að klaga og því ljóst í huga okkar hér, að þarna var verið að beita persónulegum hefndarráðstöfunum og grófri vald- níðslu. En Jóhann hefur verið í stjórn Vöku í áratugi og því gjaman lent á honum að standa í ágreiningsmálum fyrir félaga sína. Menn fylltust því réttlátri reiði“ sagði Kolbeinn. Á fundi starfsmanna sjálfra ákváðu þeir að mótmæla þessum vinnubrögðum kröftuglegar en til þessa, með því að fara heim úr vinnu og mæta ekki aftur fyrr en eftir helgi. „Með fyrrnefndum ógnunum tókst þeim að brjóta þessar eðlilegu mót- mælaaðgerðir á bak aftur. Minnist ég þess ekki að hafa heyrt af slíku hér á landi síðustu 30 ár eða svo“, sagði Kolbeinn. - HEI Fimm stöðu um dómara ■ Fimm umsækjendur eru um stöðu sakadómara við sakadóm Réykjavík- ur, stöðuna sem Gunnlaugur Briem nýskipaður yfirsakadómari gegndi. Þau eru Birgir Þormar, fulltrúi sakadóms, Erla Jónsdóttir, deildar- stjóri hjá rannsóknarlögreglu ríkisins, Ingibjörg Benediktsdóttir, fulltiúi sakadómara, Jón Erlendsson, fulltrúi ríkissaksóknara og Karl F. Jóhanns- son dómarafulltrúi á Selfossi. -Sjó Ölvaður tjónvaldur í umferðinni: HANDSAMADUR AF IÐGll- BÍLSTJÓRA 0G DYRAVERDI ■ Ungur maður sem var að koma af dansleik í Hollywóod í fyrrinótt gerði sér lítið fyrir og brá sér upp í bíl sinn, vel við skál, og ók honum síðan á kyrrstæðan bíl sem var fyrir utan veitingahúsið. Kyrrstæði bíllinn varð fyrir talsverðum skemmdum, en öku- maðurinn drukkni var ekki á því að standa gerðum sínum skil, heldur ók hann á brott eins og ekkert hefði í skorist. Nokkrir sjónarvottar voru að þess- um atburði. Þeirra á meðal voru leigubílstjóri, sem beið við véftinga- húsið eftir farþegum, og dyravörður. Brugðu þeir skjótt við, fóru á bílum sínum á eftir þrjótnum og náðu að handsama hann áður en hann var kominn úr Ármúlanum, götunni sem Hollywood stendur við. Héldu þeir þrjótnum þar til lögreglan kom á vettvang og færði hann til blóðprufu. -Sjó.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.