Tíminn - 02.10.1982, Blaðsíða 9

Tíminn - 02.10.1982, Blaðsíða 9
Sendandi: LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1982 LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1982 9 Volvo eykur framleiðslu sína þridja árið í röð — þrátt fyrir erfiðleika sem steðja að bílaframleiðendum í flestum löndum ■ Jafnfraral því að blaðamönnum var gefinn kostur á að reynsluaka nýjum Volvo 360 GLT, var haldinn blaðamannafundur, þar sem mættir voru ýmsir af forystumönnum Volvoverksmiðjanna, bæði í Hollandi og Svíþjóð. Fundurinn var haldinn á sveitahóteli, sem er nálægt borginni Bristol á Englandi. A fundinum kom fram, að mikil söluaukning varð hjá Volvo á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Sala á Volvo 240 og 760 hefur aukist um 11% miðað við sama tíma í fyrra. Nú hafa selst 116 þúsund bQar af þessum gerðum en í fyrra seldust 105 þúsund. Sumstaðar hcfur Volvo sett nýtt sölumet á mörkuðum sínum, t.d. í Bandaríkjunum. Aukning þessi hefur átt sér stað þrátt fyrir erfiðleika hjá mörgum framleiðend- um sem Volvo keppir við. Og í því sambandi má nefna, að fram kom á fundinum, að heildarsala á bifreiðum í júlí s.l. var ekki nema um helmingur af því sem seldist fyrir Ijórum árum í sama mánuði. j Bandaríkjunum verður að líta aftur til ársins 1961 til að finna ár, sem jafn fáir bílar hafa selst. „Þrátt fyrir alla erfiðleika sem steðja að bflafram- leiðendum núna hefur Volvo aukið sinn markaöshlut verulega í flestum löndum,“ sagði einn af blaðafull- trúum Volvoverksmiðjanna á fundinum. Ennfremur kom það fram á fundinum, að á fyrstu sex mánuðum þessa árs er fjöldi skráðra bifreiða á sextán stærstu mörkuðum í heiminum um 6% minni en á sama tíma í fyrra. Á þessum sextán mörkuðum voru skráðar4% fleiri 240 og 760 Volvo bifreiðar en á sama 'ima á s.l. ári. Árið 1982 er fimmta árið í röð sem Volvo eykur markaðshlutdeild sína í Bandaríkjunum. Árið 1978 var hún 0,4% en nú er hún um 1% af heildarmarkaðinum. - Sjó. Volvo360 GLT reynsluekið ■ Hvað útlit snertir, eru bflarnir af 360 gerðinni mjög svipaðir 340 bflunum. Þó hafa verið gerðar á þeim ýmsar breytingar, t.d. voru ekki listar eftir hliðum 340 bílanna og einnig má nefna „spoilcrinn“ aftan á tveggja dyra bflnum. Á myndinni eru Sighvatur Blöndal, blaðamaður Morgunblaðsins og Haraldur Hjartarson, blaðafuUtrúi Gunnars Ásgeirssonar. Hurðir eru stórar, enda komast stærstu menn inn í bflinn án minnstu óþæginda. ■ Volvo-verksmiðjurnar í Hollandi eru nú í þann mund að setja á markað nýja gerð af Volvo, Volvo 360 GLT og endurbættan GLS. Hér er um. að ræða endurbættar útgáfur af 300 línunni svonefndur, sem náð hefur miklum vinsæld- um víða um heim. Volvo 360 GLT er aðal skrautfjöður 300 línunnar hjá Volvo. Blaðamönnum var fyrir skömmu gefinn kostur á að reynsluaka einum slíkum. Að vísu fór reynsluaksturinn aðeins fram á malbiki, enda skilyrðin sem boðið bar upp á sennilega meira stíluð fyrir erlenda blaðamehn en íslenska. Engu að síður var gefinn kostur á að aka bílnum að vild, engin hraðamörk voru sett og leyfilegt var að reyna á þolrif bílsins og hvern og einn langaði til. Það duldist engum, að hér er um mjög skemmtilegan bíl að ræða, kraftmikinn, þýðan og þægilegan í flesta staði. Ef á heildina er litið er ekki annað hægt en að gefa bíinum ágætis einkunn. Þriggja og fimm dyra Bíllinn fæst þriggja og fimm dyra. Fram og afturdyr eru svo stórar, að stærstu menn geta gengið um þær án minnstu óþæginda. Framsæti, sem eru af nýrri gerð, eru mjög þægileg og með fjölda stillinga svo í þeim ætti að geta farið vel um menn af öllum stærðum. Framsætin eru færanleg fram og aftur, en þó er fótarými fyrir leggjalanga menn örlítið af skornum skammti, sérstaklega ef tillit er tekið til þess að stýrið er tiltölulega neðarlega. Að öðru leyti, er rými í framsæti mjög gott, lofthæð mikil og olnbogarými nægjanlegt fyrir öku- mann með farþega sér við hlið. Aftursæti eru einnig mjög þægileg og I Vélin er 115 hestafla, með 2000 rúmsentímetra sprengirými og beinni innspýtingu. Hún eyðir talsvert minna eldsneyti en vélamar í 340 bílunum þrátt fyrir meiri kraft. Volvo 360 GLT reynsluekið. i þeim rúmast þrír fullorðnir farþegar, ef ekki er um langferðir að ræða, en í langferðum er hætt við að þrjá fullorða færi að skorta olnbogarými áður en langt um liði. Flins vegar er bíllin afar heppilegur ferðabíll fyrir fimm manna fjölskyldu. Útsýni úr bílnum er ágætt, hvort sem sétið er aftur í eða fram í, enda rúður hans tiltölulega stórar. Vél og gírar Sem fyrr segir er bíllinn sérstaklega kraftmikill, enda knúinn 115 hestafla vél með beinni innspýtingu og 2000 rúm- sentimetra sprengirými. Bíllinn er eld- fljótur að ná miklum hraða. Þótt fáir langir og beinir kaflar hafi verið á reynsluakstursbrautunum, ók blaða- maður hvað eftir annað á 150 kílómetra hraða og átt þá mikið eftir í botn. (Það skal tekið fram að reynsluaksturinn fór fram á lokuðum vegum í Englandi). Gírarnir eru fimm. Gírstönginni er vel fyrir komið og mjög þægilegt er við hana að eiga. Ef eitthvað er að, þá er það helst, að skiptingin er heldur laus. Bíllinn virkar í raun mjög vel í öllum gírum og það er hreint ótrúlegt hversu hægt má aka hor.um í háum gírum. Jafnvel í bröttum brekkum, sem komið er að á .sæmilegri ferð.er óþarfi að skipta niður úr fimmta gír. Bremsu-, bensín,- og kúplingspedalar eru óaðfinnanlegir. Bremsur og kúpling virka vel og ástigið á bensínpedalann er eins og best verður á kosið. Niðurstaða Niðurstaðan er sú, að Volvo 360 GLT, er sportlegur bíll af millistærð með sérstaklega góða aksturseiginleika á malbiki. Bíllinn er þýður og liggur vel a veginum á miklum hraða, án þess að mikið finnist fyrir hraðanum. Bíllinn er þægilegur, jafnt fyrir farþega sem ökumann. - Sjó. Fyrsti getraunaseðillinn Hvert er stærsta sveitarfélag á íslandi? □ Reykjavík 0 Vestmannaeyjar □ Siglufjörður Áskrifendagetraun Tímans: Gerist áskrifendur og takið þátt í Nafn Nafnnúmer Heimilisfang □ Ég er áskrifandi að Tímanum □ Ég vil gerast áskrifandi að Tímanum Hér kemur fyrsti getraunaseðillinn í glæsi- legri áskrifendagetraun Tímans. Dregið verð- ur fyrsta sinni fimmtudaginn 4. nóvember næstkomandi um 25 þúsund króna vinning - húsgögn frá Nýform. Svarið spurningunni hér að ofan, útfyllið meðfylgjandi seðil og sendið síðan úrklippuna til Tímans, Síðumúla 15, Reykjavík, hið fyrsta. ■ Fyrsti seðillinn í áskrifendagetraun Tímans birtist í blaðinu í dag. Þátttakendur í getrauninni eiga að svara spurningunni, sem þar er sett fram, útfylla meðfylgjandi seðil og senda svo úrklippuna til Tímans, Síðumúla 15, Reykjavík. Alíir þeir, sem eru skuldlausir áskrifendur Tímans þegar dráttur fer fram - en það er í fyrsta sinn fimmtudaginn 4. nóvember næstkomandi - geta tekið þátt í getrauninni. Þeir, sem ekki eru nú þegar áskrifendur að blaðinu, en vilja taka þátt í getrauninni, verða því að gerast áskrifendur. Það geta þeir gert með því að útfylla seðilinn sem fylgir getraunaseðlinum hér til hliðar, eða með því að hafa samband við afgreiðslu Tímans, Síðumúla 15, Reykjavík, símar 86300, eða umboðsmenn úti á landi. Vinningarnir í áskrifendagetraun Tímans eru fjórir: getraun Fyrst, eða fimmtudaginn 4. nóvember, verður dregið um 25.000 króna vinning, húsgögn frá Nýform Oðru sinni verður dregið fimmtudaginn 2. desember. Vinningurinn þá er Sharp myndband og sjónvarp að verðmæti um 50.000 krónur. Þriðji vinningurinn, sem dreginn verður út fimmtudaginn 3. febrúar, er NAD hljómflutn- ingstæki fyrir um 25.000 krónur. Og rúsínan í pylsuendanum er svo bifreið, Daihatsu Charade 1983, að verðmæti um 133.000 krónur, sem dreginn verður út 3. mars. Þeir, sem eru með í getrauninni frá byrjun, hafa mesta möguleika á að hljóta vinning í áskrifendagetraun Tímans. Dragið því ekki að gerast áskrifendur og senda útfylltan getrauna- seðil til blaðsins. Gerið það strax í dag! fm. . þ!91 kinsu toaurr srftax IDAG! nms" Undirskrift

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.