Tíminn - 02.10.1982, Side 2

Tíminn - 02.10.1982, Side 2
I I ■ Á brúðkaupsdaginn. Hin lukkulcga og öfunds- verða fjölskylda, talið frá vinstri: Corin, Deirdre, Sir Michael og fyrir framan hann Lynn, Rachel og Vanessa. ■ Redgrave-fjölskyldan í Englandi, Sir Michael, Rachel, Vanessa, Corin og Lynn, nýtur algerrar sérstöðu innan leik- hússheimsins breska og í alþjóðlegum leikheimi. í augum almennings er þessi fjölskylda gædd alveg óvenju miklum hxfdeikum, þó að oft sé hún umdeild. En sambúð við þessa „konunglegu" fjöl- skyldu leikhússins getur verið erfið. Að raun um það komst Deirdre Hamilton-Hill, en hún var gift Corin í nokkur ár og átti með honum tvö böm. Hún hefur nú skrifað bók um þessi ár, þar sem hún lýsir andstæðunum í lífi Ijölskyld- unnar, allt frá kampavíns- drykkju til þess að gera við skóna sína sjálfur með rífríldurn úr pappakössum, hvernig Vanessa og Corin fengu aldrei nóg af því að vera í sviðsljósinu, baráttu Rachel - ar við að halda fjölskyldunni sameinaðri og systurinni, sem sneri baki við allri dýrðinni! Tilefni þess að Deirdre lagði út í að skrifa þessa bók var einfaldlega það, að henni lá við gjaldþroti. En dropinn, sem fyllti mælinn var bréf, sem henni barst frá lögfræðingi, þar sem henni var tjáð, að svo kynni að fara, að hún yrði dæmd til að framfæra Corin, sem hún var þá skilin við. Ekki hefði Deirdre dreymt um að svona myndi fara, þegar hún kynntist og síðar giftist ■ Bömin Jemma og Luke em augasteinar Deirdre. Þeim vill hún ekkert gera til miska. Corin á sjöunda áratugnum. Þá vom öll blöð full með fréttir af hinu glæsilega pari og björtum framtíðarvonum þeirra. Hvernig var ástæða til að ætla annað en að þeim myndi farnast vel? Hann af þessari hæfileikaríku fjöl- skyldu og þegar orðinn þekktur leikari sjálfur, og hún ein fallegasta stúlkan, sem hafði verið kynnt í samkvxmis- lífi Lundúnaborgar. Fljótlega fæddust þeim bömin Jemma, sem nú er 17 ára, og Luke, sem er 15 ára. En fyrir 9 áram gafst Deirdre upp á hjónabandinu. Keppinauturinn um hylli Corins var ekki önnur kona, heldur litill öfgafullur stjórn- málaflokkur, „The Workers Revolutionary Party.“ Þegar Deirdre hafði ákveðið að skrifa bókina, hafði hún samband við fyrmm tengda- fjölskyldu sína og skýrði henni frá fyrirætlunum sínum. Siðan hefur hún lítið sem ekkert frá henni heyrt, þó að hún segist hafa haft gott samband við hana fram að þeim tíma. Hún segir þó börn sín umgangast fjölskylduna eftir sem áður. - Kannski era þau hrædd um að ég segi eitthvað, sem kemur illa við þau, segir hún, en það myndi aldrei hvarfla að mér að setja neitt á prent, sem gæti sært börnin mín, þau eru mér dýrmætust af öllu. Luke er ekkert mjög spenntur fyrir bókinni, en Jemma hefur verið mín hægri hönd, það má nefnilega segja, að hún hafi ritskoðað bókina. Og hún er ánægð með hana. ■ Deirdre Hamilton-Hill þótti með alglæsilegustu stúlkum, sem kynntarvoru í samkvæmislífi Lundúnaborgar á sjöunda áratugnum. Hún bótti heldur betur hafa hreppt hnossið, þegar hún giftist Corin, en beið síðan lægri hlut í samkeppninni við stjórnmálin. Ástin upplitadist vid uppþvottinn Nú býr Corin með leikkon- unni Kika Markham, sem styður hann heils hugar í pólitískri baráttu hans. Þau cigá saman þriggja ára son. Deirdre segir samkomulagið vera gott milli systkinanna þriggja, enda líki hennar börnum- ágxtlega við Kiku, sem er prýðis stjúpa. - Okkur Corin þykir enn vænt . r. hvoru um annað og ég met hann mikils. Eg gat liara ekki hugsað mér að deila honum með „Flokknum". En hann hefur trú á þvi, sem hann er að gera. Hann fómaði frama sínum i leikhúsinu fyrir vinnu fyrir flokkinn og hann lifir samkvxmt þvi, sem hann prcdikar. Hann býr i litlu leiguhúsi og hann á enga peninga. Eg óska honum alls hins besta. Kannski þarf Deirdre ekki að gera sér neitt rell út af því, hvernig Redgrave-Qölskyldan tekur bókinni hennar, því að hún hefur komist að raun um það, að þau, þ.e.a.s. Sir Michael, Vanessa og Lynn, em sjálf önnum kafin við ritun sjáifævisagna um þessar mundir. Heimurinn ætti því að verða fróðari um þessa makalausu fjölskyldu innan skamms! RITAR ÆVISÖGUR REDGRAVE- FJÖLSKYLDAN

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.