Tíminn - 02.10.1982, Page 3
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1982
3
fréttir
Samkomulag eftir „maraþon-samningafund”:
UNDIRMENN FA SVIPAÐ-
AR HÆKKANIR OG AÐRIR
■ Eftir að hafa setið tæplega tuttugu
klukkustundir við samningaborðið,
samþykktu samninganefndir sjómanna
og vinnuveitenda sáttatillögu þá sem
iríkissáttasemjari lagði fram. Þá var
klukkan hálf sjö að morgni og það var
því ekki langur svefn sem samninga-
nefndarmenn fengu, því að laust eftir
hádegi var samkomulagið undirritað
með fyrirvara um samþykki félagafunda.
■ - Mér finnst þessi tillaga ákaflega
furðuleg og engu líkara en stefnt sé að
því að koma á fót tveim fræðsluskrifstof-
um í Reykjavík með tilheyrandi
tilkostnaði, sagði Kristján Benedikts-
son, fyrrverandi formaður fræðsluráðs
er hann var spurður álits á þeirri tillögu
borgarstjóra að óska eftir viðræðum við
Menntamálaráðuneytið um stöðu
Fræðsluskrifstofunnar í Reykjavík og
störf fræðslustjóra.
- Það eru kuldalegar móttökur sem
hinn nýi fræðslustjóri fær og ég fæ ekki
betur séð en að hér sé um einhvers konar
hefndarráðstöfun að ræða, sagði
Kristján ennfremur og bætti því við að
samt væri ekki ljóst hver færi verst út úr
þessu máli. Kannski væri það Reykjavík-
urborg.
- Ég læt mér ekki detta í hug að
borgarstjóri treysti ekki núverandi
fræðslustjóra af því að hún er kona, en
maður hefur vissulega sínar efasemdir
eftir að sjálfstæðismenn í fræðsluráði
útilokuðu aðra konuna sem um starf
fræðslustjóra sóttu, frá því að hljóta
umsögn fræðsluráðs, sagði Kristján
Benediktsson. Kristján tók það sérstak-
lega fram að ríkisvaldið hefði alltaf
greitt það sem því hefði borið varðandi
rekstur fræðsluskrifstofunnar og vísaði
þar með á bug þeim ummælum
borgarstjóra að ríkið stæði í einhverri
skuld við Reykjavíkurborg vegna þessa
máls.
-Ég verð að segja að mér finnst þessi
tillaga ákaflega skrýtin og trúlega er hún
gerð í fljótræði líkt og svo margt annað
á borgarskrifstofunum sl. mánuði, sagði
Þorbjörn Broddason, sem sæti á í
fræðsluráði.
Þorbjörn sagði greinilegt að kveikjan
að þessari tillögu borgarstjóra væru
fræðslustjóraskiptin í Reykjavík og sú
staðreynd að sjáifstæðismenn fengu ekki
vilja sínum framgengt í þessu máli.
Hann sæi heldur ekki að ríkið stæði í
neinni skuld við borgina og ef tillaga
borgarstjóra yrði samþykkt þá myndi
það aðeins hafa í för með sér aukið
skrifstofuhald og aukið bákn í
fræðslumálum.
- Nema hugmyndin sé að draga saman
seglin í fræðslumálum í Reykjavík, en
því á ég bágt með að trúa að óreyndu,
sagði Þorbjörn Broddason.
- Mér hefur fundist staða fræðslumála
hvað Reykjavík varðar afskaplega
ankannaleg og fyllilega tímabært að
þessi mál séu tekin til endurskoðunar,
sagði Markús Örn Antonsson, formaður
fræðsluráðs.
Markús sagði að borgarstjórn
Reykjavíkur hefði lagt mun meira fram
til reksturs fræðsluskrifstofunnar en
henni hefði borið lögum samkvæmt og
það helgaðist af því að litið hefði verið
- Þetta er búin að vera hroðaleg törn,
sagði Sigmundur Hannesson, lögfræð-
ingur, sem leiddi samningaviðræðurnar
fyrir hönd Vinnumálasambands sam-
vinnufélaganna.
Sigmundur sagði að mestur tíminn
hefði farið í að fá viðsemjendurna
„niður á jörðina" og útkoman hefði
orðið þannig að samið hefði verið á mjög
á fræðslustjórann sem borgarstarfsmann
öðrum þræði, þó að samkvæmt
landslögum væri hann vissulega ríkis-
starfsmaður skipaður af Menntamálar-
áðuneytinu.
- Það var vissulega tekið tillit til
borgaryfirvalda þegar fræðslustjóri var
fyrst skipaður og það var líka skilningur
■ Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir
í höfninni á Bolungarvík í haust. Unnið
hefur verið að dýpkun hafnarinnar en
fyrirhugað er að lengja við legukantinn
í höfninni um allt að sjötíu metra næsta
sumar. Hefur dýpkunarskipið Grettir
verið á Bolungarvík í haust vegna
þessara framkvæmda en þeim lauk
nýlega.
Það hafa verið mjög erftðar hafnarað-
stæður hjá okkur vegna þrengsla og því
svipuðum grundvelli og samið hafði
verið við yfirmenn á kaupskipaflotanum.
- Ég held að eins og staðan var, þá
geti kaupskipaeigendur verið sæmilega
ánægðir með útkomuna, sagði Sig-
mundur Hannesson.
Eftir að samkomulagið hafði verið
undirritað með fyrrgreindum fyrirvara,
var veitt undanþága frá verkfallinu til að
þess manns sem gegndi þessari stöðu
fram til síðustu mánaðamóta að hann
starfaði á vegum borgarinnar. Nú hefur
það hins vegar gerst að menntamálaráð-
herra hefur sett í embætti umsækjanda
sem ekki var mælt með af meirihluta
fræðsluráðs og það gerir það að verkum
að við hljótum að fara fram á
höfum við ráðist í þær framkvæmdir að
stækka viðlegukantinn í höfninni, sagði
Guðmundur Kristjánsson, bæjarstjóri á
Bolungarvík í samtali við Tímann.
Guðmundur sagði að byggður hefði
verið um 50 metra viðlegukantur í
höfninni í.fyrra, en nú væri fyrirhugað
að stækka hann í 120 metra. Er dýpkun
hafnarinnar nú fyrsti áfanginn í því
verki, en Guðmundur sagðist vona að
hægt yrði að reka niður stálþil næsta
færa skip til í höfnum og losa þau skip
sem voru tilbúin. Útgerðirnar sam-
þykktu að senda ekki skipin út fyrir en
klukkan 22 í kvöld til að sjómenn gætu
fjallað um samkomulagið á fundi sínum
eftir hádegið, en sjálf atkvæðagreiðslan
um samkomulagið mun fara fram á
hálfsmánaðartímabili hjá Sjómanna-
félagi Reykjavíkur.
endurskoðun á þessum samskiptum
ríkis og borgar, sagði Markús Örn
Antonsson.
Markús tók það fram að kynni hans
af Áslaugu Brynjólfsdóttur, fræðslu-
stjóra hefðu verið ágæt og hann kviði í
engu samstarfi við hana.
króna
sumar í höfninni og Ijúka framkvæmd-
um við viðlegugarðinn næsta haust.
- Þetta hefur verið afar fjárfrekt
fyrirtæki, sagði Guðmundur og bætti við
að dýpkunarframkvæmdirnar einar sér
hefðu kostað þrjár og hálfa milljón
króna. Minnsta dýpi við viðlegukantinn
verður nú sex metrar og sagði Guð-
mundur það mikla bót frá því sem verið
hefur.
- ESE
■ Haukur Ingibergsson.
Haukur Ingi-
bergsson
ráðinn fram-
kvæmdastjóri
Framsóknar-
flokksins
■ Haukur Ingibergsson hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Framsóknar-
flokksins frá 1. janúar næstkomandi.
Tekur hann við þessu starfi af Þráni
Valdimarssyni sem gengt hefur fram-
kvæmdastjórastarfinu um 35 ára skeið.
Haukur Ingibergsson er 35 ára
gamall, lauk BA prófi frá Háskóla
íslands 1970 og cand. mag prófi í
hagsögu 1973.
Hann var skólastjóri Samvinnuskól-
ans 1974-1981 og framkvæmdastjóri
afmælisnefndar samvinnuhreyfingar-
innar 1981-1982. Haukur var kjörinn í
miðstjórn Framsóknarflokksins 1978, í
blaðstjórn Tímans 1979, varagjaldkeri
Framsóknarflokksins 1979 og varafor-
maður Sambands ungra Framsóknar-
manna 1978-1980, formaður kjör-
dæmissambands Framsóknarfélaganna
í Vesturlandskjördæmi 1979-1981 og 2.
varaþingmaður Framsóknarflokksins í,
Vesturlandskjördæmi síðan 1979.- ESE
Stefnir
í nýtt
met hjá
lceland
Seafood
Kaupin á fisk-
réttaverksm iðj-
unni uppfylltu
þær vonir sem
bundnar voru
við þau
■ Þó að ágústmánuður hafi verið
annar besti sölumánuður Iceland Sea-
food Corporation dótturfyrirtækis Sam-
bandsins í Bandarikjunum frá upphafi,
eru allar horfur á að septembermánuöur
verði engu síðri.
- Við erum ekki búnir að fá endanleg-
ar tölur fyrir mánuðinn, sagði Guðjón B.
Ólafsson, forstjóri Iceland Seafood í
samtali við Tímann, - en þessar tölur
ættu að liggja fyrir innan skamms. Það
er öruggt að septembermánuður verður
alveg sambærilegur við ágústmánuð og
það eru jafnvel horfur á að hann verði
betri hvað sölu varðar, sagði Guðjón.
Sala ágústmánaðar hjá lceland Sea-
food nam 10.3 milljónum dollara, eða
um 150 milljónum íslenskra króna, en
söluaukning fyrirtækisins fyrstu átta
mánuði þessa árs nam um 7%.
Guðjón B. Ólafsson sagði að kaupin
á hluta af eignum og framleiðslumerkj-
um fiskréttafyrirtækisins Dolphin Sea-
food, sem gerð voru í júnímánuði sl.,
hefðu alveg staðið undir þeim vonum
sem bundnar voru við þau. Dolphin
Seafood hefði fyrir gjaldþrotið verið
búin að vinna ákveðinn markað fyrir
fiskréttaframleiðslu sína, en þennan
markað hefði Iceland Seafood nú
yfirtekið. _ ESE
- ESE
Ætlar Davíd að koma á fót tveim fræðsluskrifstofum í Reykjavík?:
„Einhvers konar
hefndarráðstöfun”
— segir Kristján Benediktsson, fyrrverandi formaður fræðsluráðs
-ESE
■ Dýpkunarskipið Grettir að störfum í Bolungarvíkurhöfn. Tímamnd Guðmundur Sveinsson
Bolungarvík:
Dýpkun hafnarinnar
kostaði hálfa
fjórðu milljón