Tíminn - 02.10.1982, Side 4
Útvarpslaganefnd vill afnema einkarétt Ríkisútvarpsins:
EINSTAKUNGAR OG SVEITAR-
FÉLÖG FÁI IÍTSENDINGARLEYFI
— að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Sjónvarpið
skyldað til að senda út dagskrá allt árið
■ „Grundvallarbreytingin í okkar hug-
myndum cr sú, að auk Ríkisútvarpsins
verði sveitarfélögum eða félögum sem
sérstaklega eru til þess stofnuð, gert •
kleift að sækja um leyfi til útsendingar,
að sjálfsögðu með ýmsum skilyrðum“,
sagði Markús Á. Einarsson, formaður
útvarpslaganefndar þeirrar er hélt sinn
síðasta fund í gær.
Meðal þeirra skilyrða nefndi Markús:
Að einn maður yrði að bera ábyrgð á
hverri stöð. Væntanlegar stöðvar yrðu
staðbundnar þar sem þeim yrði aðeins
úthlutað bylgjum á svonefndum metra-
bylgjum og mundi Póstur og sími setja
reglur og sjá um tæknihlið þeirra mála.
Þá yrðu sveitarstjórnir að mæla með
veitingu leyfa. Óheimilt yrði að veita
erlendum aðilum leyfi. Leyfi til útsend-
ingar miðast alfarið við efni sem aflað
hefur verið leyfis til að flytja og liggja
viðurlög við ef út af er brugðið. Minnti
Markús m.a. á í því sambandi að
höfundarréttarlög eru nú í endurskoð-
un. Þá verður t.d. óheimilt að stórfyrir-
tæki fái að kosta almenna dagskrárgerð.
Hvað þá með auglýsingatekjur? „Við
leggjum til að þráðlausum stöðvum
verði heimilað að selja auglýsingar í
svipuðu hlutfalli og Ríkisútvarpið, þar
sem þær hafa engin tök á að innheimta
afnotagjöld. Ekki er hins vegar lagt til
að kapalsjónvarp fái að nýta sér
auglýsingar". Jú, sjálfsagt missir Ríkis-
útvarpið auglýsingatekjur. En við ætl-
umst til að það fái sínar tekjur eftir sem
áður - líka þær sem tapast vegna þessa
- þar sem Ríkisútvarpinu eru lagðar svo
viðamiklar skyldur á herðar“, sagði
Markús. En samkvæmt tillögum nefnd-
arinnar er hljóðvarpi gert skylt að senda
út að lágmarki 16 tíma dagskrá á
sólarhring og sjónvarpi að senda út
dagskrá allt árið.
„Jafnframt viljum við veita heimildir
til að taka upp dagskrá 2 og landshluta
- eða héraðsútvarp, ef fjármunir verða
síðan veittir til þess“, sagði Markús.
„Þegar sekúndur skipta máir’:
Hjálparsveitir skáta
senda svar sitt
við slysabylgjunni
— Bók sem kennir almenningi
að bregdast rétt vid, ef slys
ber ad höndum verður seld
í hús nú um helgina
■ Allt of margur maðurinn hefur orðið
fyrir þeirri lífsreynslu að koma fyrstur á
slysstað og komast að raun um að hann
er ekki fær um að veita hina réttu
aðhlynningu slösuðu fólki og á jafnvel í
erfiðleikum að koma boðum til réttra
aðila. Hjálparsveitir skáta hafa sent sitt
svar við slysabylgjunni á markaðinn og
hyggjast selja landsmönnum bókina
„Fyrsta hjálp, - þegar sekúndur skipta
máli“, sögðu hjálparsveitarmenn í gær,
þegar þeir kynntu bókina. „Bókin er
hvorki mikið lesmál né flókin. Hver og
einn ætti nieð aðstoð bókarinnar að geta
orðið að gagni á slysstað, og einmitt slík
aðstoð getur skipt sköpum, því sekúnd-
urnar skipta verulegu máli“.
Bókin verður seld á laugardag og
heimsækja hjálparsveitarmenn og skát-
ar þá heimili víða á landinu, en alls
munu verða um þúsund manns í
sölustarfinu. Bókin kostar 100 krónur.
Ráðleggja hjálparsveitarmenn fólki að
hafa slíka bók til taks á heimilum og eins
í bílum, - en jafnframt að menn kynni
sér efni bókarinnar fyrirfram. Það
kostar varla nema tveggja tíma lestur og
skoðun.
Framsóknarflokkurinn:
Flokksþing haldið
um miðjan nóvember
■ Flokksþing' Framsóknarflokksins
verður haldið á Hótel Sögu dagana
13.-15. nóvember n.k. Var ákvörðun
um þetta tekin á fundi framkvæmda-
stjórnar flokksins sem haldinn var sl.
fimmtudag.
Á þinginu verða almennar umræður
um stjórnmálaviðhorfið auk þess sem
ræddar og afgreiddar verða ályktanir
fra hinum ýmsu málefnanefndum þings-
ins. Á þinginu fara fram kosningar 25
manna í miðstjórn Framsóknarflokksins
til viðbótar þeim 90 miðstjórnarmönn-
um sem kosnir eru í kjördæmunum.
Flokksþingið verður opið frétta-
mönnum.
Svæðiskærleikur
um nón og svæða
nudd að kvöldi
■ Svæðiskærleikur, heilabrot, svið
tækifæranna og endurmat eru meðal
dagskrárliða á svæðismóti JC félaganna
á Reykjavíkursvæði, sem sett verður í
Félagsheimili Seltjarnarness á morgun
kl. 13.00. Þar verður m.a. rætt um
landsverkefni JC íslands „Aðstoð við
aldraða".
Eftir rútuferð úr Grófinni 1 í
Skíðaskálann í Hveradölum verður
mótinu fram haldið þar til fjalla, þar sem
gestir háma í sig háfjallagúllasið að
loknu svæðisnuddi. Eftir gróusögur og
draugasögur verður svæðismóti hleypt
upp (um fjöll og firnindi) á 2. tímanum
aðfaranótt sunnudags. - HEI
■ Þau Gísli Halldórsson og Margrét Guðmundsdóttir fara með hlutverk afans og
mömmunnar sem sonurinn og dóttursonurinn (Emil G. Guðmundsson) grípður allt
í einu glóðvolg við hassreykingar, sem þau virðast jafnvel farin að rækta líka.
Leikhúsin kom
in á fulla ferð
■ GARÐVEISLA, nýjasta leikrit
Guðmundar Steinssonar mun vera
það leikverk sem beðið hefur verið
eftir með hvað mestri eftirvæntingu
af þeim verkum sem verða á fjölum
leikhúsanna i borginni nú um
helgina. Eins og áður hefur verið frá
greint fjallar Guðmundur þar - eins
og í fyrri verkum sínum - á óvæginn
hátt um nútímamanneskjuna. Garð-
veisla verður sýnd á aðalsviði
Þjóðleikhússins bæði í kvöld og
annað kvöld.
Barnasýningin sem Brynja Bene-
diktsdóttir samdi og leikstýrði eftir
sögunni um GOSA kemur aftur á
fjalirnar á sunnudaginn kl. 14.00.
TVÍLEIKUR á litla sviðinu hefur
verið vel sóttur, en næsta sýning á
honum verður á sunnudaginn.
Þá kemur AMADEUS aftur á
fjalirnar í Þjóðleikhúsinu næsta
miðvikudagskvöld, en aðeins örfáar
sýningar eru fyrirhugaðar á þessu
leikári.
HASSIÐ HENNAR MÖMMU,
ærslaleikur eftir Dario Fo, sem
sýndur var í Iðnó í vor við góðar
undirtektir hefur nú verið fluttur í
Austurbæjarbíó til miðnætursýninga
á laugardagskvöldum. Dario Fo mun
sjaldan svíkja þá sem langar til að
hlæja hátt og innilega svo sem eina
kvöldstund.
JÓA hans Kjartans Ragnarssonar
dugði að sjálfsögðu ekki eitt leikár á
fjölunum í Iðnó fremur en öðrum
vinsælum sýningum í okkar litlu
gömlu Iðnó.
■ Gísli Rúnar Jónsson hefur nú tekið
við hlutverki hins miskunnarlausa Loga
leikhússtjóra í bamaleikritinu Gosa, af
Flosa Ólafssyni, sem margir krakkar
minnast sjálfsagt frá þvi í fyrravetur í
Þjóðleikhúsinu.
„Eitt af bestu íslensku leikritunum
sem samin hafa verið og sýnd í mörg
ár“, sagði Jónas Guðmundsson m.a.
um JÓA í Tímanum í fyrra. JÓI
kemur aftur á fjalirnar í Iðnó næsta
þriðjudagskvöld.
- HEI
Kirkjudagur
n.k. sunnudag kl. 2 e.h.
■ Frá stofnun þessa safnaðar fyrir 32
árum hefir verið venja að halda
svonefndan Kirkjudag hátíðlegan síð-
sumars ár hvert til þess að treysta
tengslin við kirkjuna sérstaklega inn
byrðis, minna á hana út á við og afla fjár-
muna til byggingar hennar, viðhalds og
fegrunar. Flestallir, ef ekki allir aðrir
söfnuðir í Reykjavík og víðar, hafa tek-
ið upp sömu siðvenju, það er kirkju-
daga, og gefist vel.
Konur úr kvenfélagi Óháða safnaðar-
ins hafa frá upphafi haft veg og vanda af
fjáröfluninni með kaffisölu alla kirkju-
daga með þeirri rausn, sem rórnuð er
orðin innan safnaðarins og utan.
Mikils þarf við á næstunni til við-
halds og viðgerðar kirkjunnar, og heiti
ég nú sem prestur hennar á safnaðar-
fólk að nota tækifærið og minnast
kirkju sinnar, sem mér er manna kunn-
ugast um að margir hafa styrkt af ráð-
um og dáð frá upphafi. Ýmsir þeirra eru
nú fallnir frá og veit ég fyrir víst að þeim
þætti vænt um að eftir kirkjunni yrði
munað þegar þeirra er minnst. Slíkan
hug báru þeir til hennar og máttu ekki
til þess hugsa að hætt yrði að búa vel að
henni.
Á kirkjudegi vorum í fyrrahaust
messaði vinur minn séra Árelíus Níels-
son í veikindum mínum og síðan áfram
nær allan veturinn og vil ég nota þetta
tilefni og þakka honum, þótt aldrei verði
fullþakkað, það drengskaparbragð sem
hann sýndi mér þá, kirkjunni og
söfnuðinum.
í stórum dráttum verður dagskráin
þannig á sunnudaginn á kirkju Óháða
safnaðarins og Kirkjubæ:
Kl. 2 síðdegis hefst guðsþjónustan
með samleik á fiðlu og orgel og
organistinn, Jónas Þórir Þórisson,
stjórnar söng kirkjukórsins. Stefán
bóndi Jasonarson í Vorsabæ flytur
stólræðuna í kirkjunni, sá landskunni
félagsmálafrömuður. Eftir messu, um
kl. 3 hefjast síðan hinar rómuðu
kaffíveitingar kirkjukvenfélagsins í safn-
aðarheimilinu Kirkjubæ og standa lengi
dags. Um klukkan fjögur verður
barnamyndasýning í kirkjunni.
Með kærri kveðju til lesenda minna.
Emil Bjömsson.
Skemmtidag-
skrá
■ Nemendur Fellaskóla, foreldrar og
kennarar munu efna til mikils gleð-
skapar við skólann sinn í dag, sem
hefjast á mcð skrúðgöngu kl. 13.00. Við
skólann verður efnt til flóamarkað en
innandyra verður kaffisala. Þá mun fara
fram Ieiksýning í skólanum ásamt
ýmisskonar uppákomum öðrum, leikj-
um og þrautum. Einnig verður Fella-
hellir opinn, sem gefur þá foreldrum
kjörið tækifæri til að kynna sér stað
þennan sem krakkarnir þeirra dvelja í
meira og minn á kvöldin. - HEI