Tíminn - 14.10.1982, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1982
3
Jón Bjarnason SF 3 sökk við Papey:
„VONUUST AD HÆGT St
AÐ BJARGA BAíNUM”
■ Vélbáturinn Jón Bjarnason SF 3 frá
Homafirði sem steytti á svonefndu
Flyðruskeri nokkur hundruð metra
n-austan við Papey í fyrrinótt, er nú
sokkinn og er talið nær útilokað að hægt
sé að bjarga nokkra úr bátnum. Sjópróf
vegna málsins hafa farið fram á
Hornafirði.
Það var um klukkan hálf eitt í
fyrrinótt að Jón Bjarnason SF 3 steytti
á Flyðruskeri, en báturinn var þá að
koma frá Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði
og hugðust skipverjar leita að síld við
Papey. Að sögn Friðjóns Guðröðar-
sonar, sýslum'anns á Höfn sem stýrði
sjóréttinum, taldi stýrimaðurinn sig vera
vel með rétta stefnu og hvorki hann né
skipstjórinn, Bjarni Snæland Jónsson,
kunnu nokkrar skýringar á því af hverju
báturinn hafnaði á skerinu. Sagði
Friðjón að þetta mál yrði trúlega aldrei
upplýst, en við sjóprófin hefðu komið
fram þær vangaveltur að hinir miklu
straumar sem væru í nágrenni Papeyjar
hefðu borið bátinn af réttri leið og eins
væri hugsanlegt að sjálfstýringin hefði
brugðist.
Enginn hinna níu skipverja um borð
í vélbátnum var í nokkurri hættu þó að
báturinn steytti á skerinu. Fjöldi
annarra síldveiðibáta var í nágrenninu
o g dreif þá að um leið og hjálparbeiðni
var send út. Urðu skipverjar á vélbátn-
um Langey fyrst varir við hjálparbeiðn-
ina, en það var svo Sturlaugur II,
skipstjóri Vigfús Vigfússon, sem tók
áhöfnina af Jóni Bjarnasyni um borð og
flutti hana til Hafnar.
Er Ijóst var orðið að Jón Bjarnason
var í nauðum var send út beiðni til
Djúpavogs um að bátur yrði sendur á
vettvang með brunadælu. Korn það í
hlut vélbátsins Frás frá Vestmanna-
eyjum að fara á staðinn og sagði Jón
Garðar Einarsson, einn skipverja í
samtali við Tímann að vélbáturinn hefði
marað í hálfu kafi er þá bar þar að. Ekki
sagði Jón að viðlit hefði verið að gera
neitt til að bjarga bátnum. Skcr hefðu
verið beggja vegna við bátinn og varð
Frár því að hörfa frá um hálf þrjú leytið.
Jón Bjarnason SF 3 var tryggður hjá
Samábyrgð íslcnskra fiskiskipa, en
samkvæmt upplýsingum Ásgríms Hall-
dórssonar hjá Skipatryggingum Aust-
fjarða sem fer með viðskipti fyrir
Samábyrgðina, er vonlaust að hægt sé
að bjarga bátnum.
- Báturinn er sokkinn og það er það
mikil hreyfing á þessum slóðum að það
er ekki viðlit að-reyna björgun, sagði
Ásgrímur og bætti því við að einasti
möguleikinn væri sá að bjarga neta-
trossum úr bátnum ef það gerði
blíðskaparveður. Sagði Ássgrímur að
búið hefði verið að samþykkja að
vélbáturinn sem er kominn allnokkuð til
ára sinna, færi til niðurrifs og var hann
því á sinni síðustu vertíð. Taka átti
bátinn af skipaskrá fyrir áramót, en
eigendurnir eiga von á nýlegum bát í
hans stað frá Noregi. -ESE
Hafa slátrað
44 þúsund
fjár á
Saudárkróki
Fallþungi
meiri
en á
liðnu ári
■ „Slátrun hefur gengið ákaflega vel
hjá okkur í haust og er það fyrst og
fremst að þakka góðu tíðarfari“, sagði
Sigurjón Gestsson, sláturhússtjóri á
Sauðárkróki. í gærkvöldi sagði hann
búið að slátra um 44 þús. Ijár, en gert
er ráð fyrir að heildarslátrun í húsi verði
um 57 þús. fjár. Því ætlar Sigurjón að
verði lokið næsta þriðjudagskvöld.
Fallþunga dilka sagði Sigurjón ívið
meiri nú en síðasta haust, eða um 14,2
kg. að meðaltali - sem hann telur í slöku
meðallagi - en í fyrra \af meðalvigtin
um 13,6 kíló.
„Það gekk nú svona sæmilega að fá
fólk í haust. En uppistaða vinnuaflsins
er úr sveitinni”, sagði Sigurjón, að-
spurður.
Sláturhúsið á Sauðárkróki er mjög vel
búið færibandahús sem tekið var í
notkun árið 1973 og byggt eftir
nýsjálenskri hugmynd. Þar sagði Sigur-
jón menn slátra um 3.000 fjár á dag í
svona húsi, en afköstin á Sauðárkróki
eru um 2.300 til 2.500 fjár á dag. „En
þess ber líka að gæta að þar er unnið við
slátrun allt árið ogakkorðsvinna, þannig
að það þjálfast upp miklu meiri
verktækni heldur en hjá okkur á svona
stuttum tíma,“ sagði Sigurjón.
-HEI
■ Alva Myrdal: hlaut friðarverð-
laun Nóbels.
Alva Myrdal
hlaut fridar-
verðlauniri
— ásamt
Alfonso
Garcia
Robles
frá Mexikó
■ í gær var tilkynnt að Svíinn Alva
Myrdal og Mcxíkaninn Alfonso
Garcia Robles hlytu friðarverðlaun
Nóbels, sem verða afhent í Osló 10.
desemher n.k.
Alva Myrdal hefur gegnt fjölmörg-
um störfum sem fulltrúi lands síns,
verið sendiherra, virk í kvcnrétt-
indabaráttu, en þekktust er hún fyrir
störf sín sem fulltrúi Svíþjóðar á
afvopnunarráðstefnum Sameinuðu
þjóðanna og baráttumaður fyrir friði
og afvopnun. Bók hcnnar „Spclct
om nedrustningen", eða „Sjónar-
spilið um afvopnunarmálin“, hcfur
vakið heimsathygli. Hún cr nú
áttræð aö aldri.
Alfonso Garcia Robles cr fyrr-
verandi utanríkisráðherra Mexíkó,
heilinn á bak við sáttmálann um
kjarnorkuvopnalaust svæði í róm-
önsku Ameríku fráárinu 1967. Hann
hefur vcrið fulltrúi Mexíkó á afvopn-
unarráöstefnum eins og Alva Myrdal
og er nú scndiherra lands síns í Genf.
Þau sögðu bæði í gær að þau líti á
veitingu verðlaunanna sem viður-
kenningu til friðarhreyfinganna í
heiminum og talsmaður Nóbcls-
nefndarinnar í Osló lét þá ósk í Ijós
er Itann tilkynnti um verölaunin að
friðarhreyfingunum mætti vaxa fisk-
ur um hrygg.
JGK
■ í sláturhúsinu á Sauðárkróki þarf að lyfta eða bera skrakkana frá því þeir eru fyrst settir upp á króka á færibandi eftir
aflífun og þar til þcir eru teknir niður af bandinu þegar komið cr í frystiklefa. Öll vinna fer því fram á sama færibandinu,
sem hlýtur að spara mönnum mikið erfiði. Timamynd Örn.
Hvenær verða bráðabirgðalögin lögð fyrir Alþingi:
vEngin niðurstaða”
— segir dr. Gunnar Thoroddsen, forsætisrádherra
■ - „Það iiggur ekki fyrir nein niðurstaða um það hvenær
bráðabirgðalögin verða lögð fram né í hvorri deild þingsins þau verða
iögð fram,“ sagði dr. Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra, í samtali
við Tímann er hann var spurður út í þetta atriði.
Mjólkurvinnsla að komast í eðlilegt horf:
Fengu 12% haekkun
■ Mjólkurvinnsla er nú komin í nær
cðlilegt horf eftir að samkomulag tókst
í deilu mjólkurfræðinga og vinnuveit-
enda á sáttafundi hjá ríkissáttasemjara.
Samþykktu samninganefndir deiluaðila
sáttatillögu þá sem ríkissáttasemjari
lagði fram og var nýtt samkomulag
undirritað að því búnu, með fyrirvara
um samþykki félagafunda.
Að sögn Einars Árnasonar, sem verið
hefur fyrir samninganefnd VSÍ á
samningafundunum, þá hafa vinnuveit-
endur metið launahækkun mjólkurfræð-
inga vegna þessara samninga á tæp 12%.
Mjólkurfræðingar fengu ekki kröfum
sínum um fæðis- og flutningagjald
framgengt, en héldu þess í stað þeim sex
föstu næturvinnutímum á viku sem þeir
hafa haft undanfarin ár.
Stjórn og samninganefnd Mjólkur-
fræðingafélags íslands kynnti hið nýja
samkomulag á fundi með mjólkurfræð-
ingum á Akureyri í gær. en mjólkur-
fræðingum víðs vegar um land verður
svo gerð grein fyrir samkomulaginu á
næstu dögum. Síðan verður gengið til
atkvæðagreiðslu um samkomulagiö og
ætti niðurstaða að geta legið fyrir
fljótlega.
Grétar Símonarson mjólkurbússtjóri
hjá Mjólkurbúi Flóamanna sagði í
samtali við Tímann að starfsemi hjá
mjólkurhúinu yrði komin í eðlilegt horf
eftir daginn í dag, en ástandið í
mjólkurmálum væri annars gott. T.a.m.
hefðu Reykvíkingar afpantað ákveöinn
hluta umsamdrai mjólkursendingar þar
sem að næg nýmjólk hefði verið til í
verslunum. -ESE
Forsætisráðherra sagði að þetta mál
hefði vissulega boriö á góma í viðræðum
ráðherrancfndarinnar, sem auk forsætis-
ráðherra er skipuð Steingrími Her-
mannssyni og Svavari Gestssyni, en
engin ákveðin dagsetning hcfði enn
verið nefnd í sambandi viö það hvenær
bráðabirgðalögin yrðu lögð fram. Sagði
dr. Gunnar að það lægi ekki lífið á í
þessu máli, og dagur til eða frá skipti
engum sköpum.
Um þær hugmyndir sem Stcingríinur
Hermannsson, formaður Framsóknar-
flokksins hefur lagt fram um að samið
verði við stjórnarandstöðuna um af-
greiðslu mála og þar með talið afgreiðslu
bráðabirgðalaganna, sagði Gunnar
Thoroddsen að hann teldi sjálfsagt að
breytingatillögur við bráðabirgðalögin
yrðu athugaðar og ræddar eftir að þau
hefðu verið lögð fram. Allir möguleikar
væru opnir í því sambandi, sagði
forsætisráðherra.
Varðandi ummæli flcstra þingflokks-
formannanna í sjónvarpsþætti sl. þriðju-
dagskvöld um að hægðarleikur væri að
afgreiða kjördímamálið á nokkrum
dögum cftir að málið kæmi til kasta
þingsins, sagði dr. Gunnar:
- Stjórnarskrármálið og kjördæma-
málið eru það mikil stórmál að það
hlýtur að taka tíma fyrir þingið að fjalla
um þau og eðlilegt að til þess sé ætlaður
ríflegur tími. Það er mín skoðun að
þessum málum verði ekki hespað af í
fljótræði, sagöi dr. GunnarThoroddsen,
forsætisráðherra, sem jafnframt er
formaður sjtórnarskrárnefndar.
-ESE
HVAÐ
MEÐ ÞIG r.