Tíminn - 14.10.1982, Síða 4
ffimxtm
FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1982
4
■ Símon og Siegfried eru nú á tónleikaferð um Norðurland.
Spænsk tónlist
á Norðurlandi
■ Gítarleikararnir Símon ívarsson
og Siegfried Kobilza munu á næstu
dögum halda nokkra tónleika á
Norðurlandi. Að undanförnu hafa
þeir haldið tónleika víða á Suður- og
Austurlandi við mjög góðar undir-
tektir.
Á Norðurlandi verða fyrstu
tónleikararnir í Dalvíkurkirkju,
fimmtudaginn 14. verða þeir í
Reynihlíðarkirkju og föstudaginn
Sjálfsævisaga
Jakobs Hálf-
danarsonar
komin út
■ Jakob Hálfdanarson var frum-
kvöðull að stofnun fyrsta íslenska
kaupfélagsins, Kaupfélags l'ingey-
inga fyrir einni öld. Jakob var mikill
félagsmálamaður og drífandi, en
fæstum mun þó um það kunnugt, að
eftir hann liggur nokkurt safn rita og
ritgerða.
ísafold hcfur nú gefið út hluta
þeirra ritverka, sem Jakob átti í
fórum sínum, en ekkert af þeim
hefur verið gefið út fyrr. Bókin hcfur
að geyma sjálfsævisögu Jakobs, sögu
fyrstu ára Kaupfélags Þingeyinga,
tvær ritgerðir Jakobs um verslunar-
mál auk niðjatals hans.
Bókin er rituð af manni, sem ekki
hafði ritstörf að atvinnu, og ber þess
að sjálfsögðu nokkur merki. Við
útgáfuna hefur verið kappkostað að
breyta sem minnstu.
Undirbúning handrits fyrir prent-
un annaðist Pétur Sumarliðason, og
naut hann aðstoðar Einars Laxness,
sem sinnti undirbúningi einn eftir
fráfall Péturs. Einar Laxness ritar
einnig formála. Sonardóttir Jakobs,
Petrína Jakobsson, hefur gert mynd
á bókarkápu.
Sinfónían
vakti mikla
hrifningu
á Selfossi
■ „Hrifningin var mikil, hljóm-
sveitin, stjórnandinn og einsöngvar-
inn voru margsinnis klöppuð fram og
menn gleymdu alveg að ræða
mjólkurfræðingadeilur og einmuna
veðurblíðu, sem verið hefur undan-
farið,“ sagði Stefán Jasonarson, á
Vorsabæ, eftir tónleika Sinfóníu-
hljómsveitarinnar sem haldnir voru í
íþróttahúsinu á Selfossi í fyrrakvöld.
„Húsfyllir var á tónleikunum og
raunar gott betur,“ sagði Stefán.
„Það þurfti að bæta við stólum og
það dugði ekki til því margir þurftu
að standa á tónleikunum."
Ennfremur sagðist Stefán hafa
heyrt á fólki, að um ókomna framtíð
vonaði það, að Sinfónían gerði meira
af því að fara í tónleikaferðir um
landið.
Efnisskrá Sinfóníunnar var fjöl-
breytt á tónleikunum. Flutt var
15. okt. í Akureyrarkirkju. Allir
tónleikarnir verða klukkan 20.30.
Laugardaginn 16. okt verða þeir
Símon og Sigfried í Siglufjarðar-
kirkju kl. 16 og daginn eftir verða
þeir á Sauðárkróki, en þar fara
tónleikarnir fram á vegumTónlistar-
félagsins.
Á efnisskránni hjá gítarleikurun-
um, er létt klassísk tónlist og
flamengo. -Sjó.
innlend og erlend tónlist. Stjórnandi
var Páll P. Pálsson en einsöngvari
Kristján Jóhannsson.
-Sjó.
Hernaðar-
uppbygging
sjaldan jafn
ör hérlendis
og á síðustu
misserum,
segja Her-
stöðvaand-
stæðingar
■ Ný viðhorf í herstöðvamálum
vegna stóraukinna áforma og
umsvifa bandaríska NATO-hersins
hér á landi voru mjög í brennidcpli
á landsráðstefnu Samtaka herstöðva-
andstæðinga sem haldin var hér í
Reykjavík um hclgina. Að sögn
forystumanna samtakanna var það
samdóma álit manna á ráðstefnunni
að sjaldan hafi hernaðaruppbygging
hérlendis veriö jafn ör og á síðustu
misserum. Nægi þar að minna á
byggingu sprengjuheldra flugskýla
og gervihnattamóttökustöðvar á
Miðneshciði, áformin um olíuhöfn í
Helguvík og eldsneytisbirgðastöð á
Hólmsbjargi svo og nýjustu freuir af
eflingu herflugvélatlotans. AnJófs-
starfið standi því trammi fyrir
viðameiri verkefnum en nokkru
sinni fyrr.
Þá mun hafa komið fram mikill
áhugi á því á ráðstefnunni að hafin
verði markviss barátta fyrir því að
ísland verði hluti af hinu kjarnorku-
vopnalausa svæði á Norðurlöndum,
enda sé fuilur vilji fyrir því innan
friðarhreyfinganna í Skandinavíu.
Áformað er að kynna þær hugmyndir
meðal landsmanna á næstunni.
Jafnframt hyggjast Samtök her-
stöðvaandstæðinga stuðla að því að
hafin verði undirskriftaherferð með
áskorun til íslenskra stjórnvalda um
að þau taki höndum saman við
stjórnir annarra Norðurlanda um að
lýsa yfir stofnun kjarnorkuvopna-
lauss svæðis.
Samtök herstöðvaandstæðinga
fagna þeim vísi að íslenskri
friðarhreyfingu sem vaxið hefur fram
að undanförnu og lýsa sig reiðubúin
til samstarfs við aðra friðarsinna að
öllum málum sem lúta að afvopnun
og friðarbaráttu. -HEI
Sænska gengislækkunin veldur Iðnaðar-
deild Sambandsins miklu tjóni:
„ENGINN REKSTUR
ÞOUR SLÍK AFÖL”
— segir Hjörtur Eiríksson, framkvæmdastjóri
■ Þegar 16% gengislækkunin kom til
framkvxmda í Svíþjóð á dögunum átti
iðnaðardeild SIS inni nokkrar milljónir
sænskra króna hjá kaupendum þar í
landi. Fyrsta og augljósasta áfallið, sem
iönaöardcildin varð fvrir af völdum
gengisfellingarinnar var auðvitað það að
þessar innistæður rýrnuðu um 16%, og
þar er um geysilega upphæð að ræða. Á
hinn bóginn er erfitt að meta nú
heildaráhrif gengisfellingarinnar, þar
eiga mörg kurl eftir að koma til grafar.
Þetta kom fram í samtali við Hjört
Eiríksson framkvæmdastjóra iönaðar-
deildarinnar í gxr.
Iðnaðardeild SÍS flytur mikið af
kápum og fullunnum mokkaskinnum til
Svíþjóðar og helstu keppinautarnir á
sænska markaðnum eru Svíar sjálfir og
þar næst Finnar. Eftir að báðar þessar
þjóðir hafa lækkað gengi gjaldmiðla
sinna verulega, verður samkeppnis-
aðstaðan að sjálfsögðu allt önnur og
verri en áður fyrir iðnaðardeildina.
Sama gildir einnig á öðrum mörkuðum
þar sem þessar þjóðir eru í samkeppni.
Viðskipti Finna og íslendinga fara hins
vegar að mestu fram í dollurum, og
hefur því lækkun finnska marksins lítil
áhrif á útflutninginn til Finnlands.
Hjörtur sagði að bíða yrði og sjá hvað
setur varðandi heildaráhrif gengisfell-
ingarinnar í Svíþjóð. Margt væri enn
óljóst og benti hann á það sem dæmi að
ríkisstyrkir til iðnaðarins hefðu nú verið
lækkaðir þar í landi og ætti það að ýta
undir hækkanir á verði sænskra iðnaðar-
vara og draga þar með úr áhrifum
gengislækkunarinnar þegar fram í sækir.
„Hitt er annað að svona áföll þolir
enginn rekstur á íslandi í dag,“ sagði
Hjörtur. „fslensk fyrirtæki eru ber-
skjölduð fyrir tjóni af þessu tagi. Þau
hafa engar útflutningstryggingar eins og
mörg fyrirtæki erlendis nota til að jafna
áhættu.“
JGK
Nýr leiklistarskóli hefur starfsemi:
„Stuttnám-
skeið íleik-
listinni”
■ „Ég mun fyrst um sinn verða með
stutt námskeið í leiklist og bjóða upp á
kennslu í nokkrum undirstöðuatriðum í
raddbeitingu, taltækni, spuna, leikrænni
tjáningu, upplestri og almennri fram-
sögn. Fyrsta námskeiðið, sem hefst á
mánudag eftir tæpa viku, verður þriggja
mánaða og ég mun kenna tvö kvöld í
viku.“
Þetta sagði Sigrún Björnsdóttir, leik-
kona, sem nú er að setja á stofn nýjan
leiklistarskóla, Lciklistarskóla Sigrúnar
Björnsdóttur við Ármúla 44 í Reykja-
vík. Sigrún er enginn nýgræðingur í
leiklistinni. Hún útskrifaðist frá Leik-
listarskóla Þjóðleikhússins 1967. Þar á
eftir stundaði hún nám við leiklistar-
skóla í Köln í Þýskalandi f hálft annað
ár. Auk þessa hefur hún sótt námskeið
hjá þekktu leikhúsfólki í Evrópu og
leikið og leikstýrt hér heima.
„Ég hef gert talsvert af því að halda
Innkaupa-
pokar
seldir til
styrktar
Rauða
krossinum
■ - Þetta er algjör tilraun af okkar hálfu
og ég veit ekki til þess að þetta hafi verið
reynt áður, sagði Björn Baldursson,
starfsmaður Rauða kross íslands í
samtali við Tímann í tilefni af því að
ákveðið hefur verið að hrinda af stað all
nýstárlegri herferð á vegum samtak-
anna. Verða innkaupapokar merktir
Rauða krossinum, seldir í verslunum
gegn vægu gjaldi og er hugmyndin með
þessu að afla Rauða krossinum tekna.
- Við vonum að þetta fái góðar
viðtökur og fólk sjái sér þannig fært að
styrkja starfsemi Rauða krossins, sagði
Björn, en þessi nýja fjáröflunaraðferð
var kynnt á nýafstöðnum aðalfundi
leiklistarnámskeið úti á landi um leið og
ég hef leikstýrt fyrir áhugamannafélög,"
sagði Sigrún. „A því leikur enginn vafi
að það eru fleiri en þeir sem hafa áhuga
á að leggja fyrir sig lciklist, sem hafa
gott af svona námskeiðum. I því
sambandi má nefna fólk sem hefur
féiagsmálaáhuga og þarf mikið að koma
fram, kennara og aðra sem þurfa að tala
yfir fjölmenni."
- Hvernig eru undirtektimar?
„Það er nú ekki komið í ljós ennþá,
ég er rétt að fara af stað. Hins vegar er
það alveg Ijóst að ég þarf ekki marga
nemendur til að fara af stað. Ég vil hafa
fáa á hverju námskeiði. Það tryggir góða
tilsögn," sagði Sigrún.
Sem fyrr segir hefst fyrsta námskeið
Sigrúnar mánudaginn 18. október. Enn
er ekki fullbókað á námskeiðið. Þeir
sem hafa áhuga á að vera með geta
innritað sig í síma 31357. -Sjó.
■ Einn Rauðakrosspokanna, sem
seldir verða í verslunum á næstunni.
Tímamynd Ella
Rauða krossins. Verða innkaupapok-
arnir seldir á þrjár krónur stykkið, en
Plastprent hf. sér um dreifingu pokanna.
Tekjum af sölu pokanna verður varið til
hjálparstarfs bæði innan lands og utan.
Stærstu verkefni Rauða krossins innan
lands nú eru aðstoð við aldraða og
rekstur sjúkrabifreiða, en þess má geta
að í fyrra voru t.d. keyptar átta nýjar
sjúkrabifreiðar og nam andvirði þeirra
tæplega 1.6 milljónum króna. -ESE
■ Sigrún Bjömsdóttir.
Atvinnuleysi
í september:
Aldrei
minna á
þessu ári
■ Skráð atvinnuleysi í september-
mánuði s.l. svarar til þess að 0,2% af
áætluðum mannafla hafi verið á atvinnu-
leysisskrá. Er það lægsta hlutfall á
yfirstandandi ári. Atvinnuleysisdagar
reyndust samtals 5.472 á öllu landinu,
sem svarar til þess að 253 - þar af 149
konur - hafi verið á atvinnuleysisskrá í
mánuðinum.
Hlutfallslega mest bar á atvinnuleysi
á Norðurlandi-vestra eða 62, sem er um
fjórðungur af skráðum atvinnuleysis-
dögum á landinu. Þar af voru konur 47.
Atvinnuleysi á Norðurlandi-eystra
svarar til 30 atvinnulausra í mánuðinum
og í Reykjavík 95 manns. í öðrum
landshlutum voru atvinnulausir frá 17 og
niður í 4 í september, nema hvað
Vestfirðir komust ekki á blað fremur en
venjulega. -HEI
Kýr
Viljum kaupa snemmbærar
kýr eða kvígur, upplýsingar
í síma 99-6946.