Tíminn - 14.10.1982, Page 5

Tíminn - 14.10.1982, Page 5
FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1982 ■ Tveir þingmenn heilsast í þingbyrjun: Pálmi Jónsson, landbúnadarrádherra, og Magnús H. Magnússon, alþingismaður. Tímamynd: Róbert Kratar vilja af- nema heimild til brádabirgðalaga ■ Þingmenn Alþýðuflokksins eru dug- legir að leggja fram lagafrumvörp. Þegar á öðrum degi 105. löggjafarþingsins lögðu þeir fram fjögur frumvörp. Er hér um að ræða endurflutning mála síðan í fyrra og árið þar áður nema frumvarp til stjórnskipunarlaga, sem felur það í sér að ríkisstjórn sé óheimilt að gefa út bráðabirgðalög. Er sú breyting rökstudd með því að auðvelt sé að kalla Alþingi saman hvenær sem er. Samgöngur um landið eru góðar og þingmenn eru á launum allt árið og ætti því ekkert að vera því til fyrirstöðu að kalla þing saman þegar bráðliggur á nýrri lagasmíð. Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins er Vil- mundur Gylfason. Frumvarp um lokunartíma sölubúða var talsvert rætt á þinginu í fyrra, en þá lögðu alþýðuflokksmenn ásamt Guð- rúnu Helgadóttur fram frumvarp þess efnis að hann yrði gefinn frjáls og kaupmönnum í lófa lagið hvenær þeir hefðu opið og hvenær ekki. Málið hlaut ekki afgreiðslu, og er nú endurflutt og er Vilmundur fyrsti flutningsmaður, eins og síðast og Guðrún Helgadóttir stendur að frumvarpinu með honum ásamt fimm öðrum alþýðuflokksmönnum. Frumvarp um strangara eftirlit með Landsbanka íslands og reikningsskilum var einnig lagt fram. Þar er gert ráð fyrir ítarlegri reikningsskilum bankans en nú er í samræmi við ákvæði laga um aðrar ríkisstofnanir. Frumvarp um breytingu á lögum um tekjur - og eignarskatt gerir ráð fyrir að kostnaðarsamar tannviðgerðir verði frá- dráttarbærar frá skatti. Endurflutt er þingsályktunartillaga um athugun á möguleikum íslenskra fiskiskipa til veiða í erlendri fiskveiði- landhelgi. OÓ Hávaði vegna fyrirspurnar ■ Fyrsta uppákoma 105. löggjafar- þings varð í gær, er Vilmundur Gylfason fékk greidd atkvæði um það hvort hann mætti leggja fram tiltekna fyrirspurn eða ekki. Fyrirspurnin var á þá leið, hvort dómsmálaráðherra teldi ástæðu til að gera athugasemd við embættisfærslu sýslumannsins í Austur-Skaftafellssýslu 20. ágústs.l. ogsamþykktigjörðirhans. Hér er um að ræða ummæli og frásögn Friðjóns Guðröðarsonar sýslumanns í útvarpsviðtali er tekið var viö hann vegna árásar á tvær franskar stúlkur, og Vilmundur hefur fordæmt í blaða- greinum. Jón Helgason forseti sameinaðs þings neitaði að leyfa fyrirspurnina á þeirri forsendu, að hún væri bundin einstak- Iingi og ekki þinglega orðuð. Vilmundur bað þingið að úrskurða hvort fyrirspurnin yrði leyfð, og fór fram á nafnakall. Úrslit urðu þau að já sögðu 16, nei 41 og 3 greiddu ekki atkvæði. Hlé var gert á þingfundi áður en atkvæði voru greidd. Nokkrir þing- manna gerðu grein fyrir atkvæði sínu og meðal þeirra Vilmundur. Hann sagði dapurlegt að sjá þingmenn breytast í kerfiskarla er hlýddu flokksaga, en flestir þingmanna Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks sögðu nei. Alþýðu- flokksmenn sögðu já, nema Magnús H. sem greiddi ekki atkvæði. Alþýðubanda- lagsmenn voru beggja blands. Friðrik Sophusson sagði að hann vissi til að forseti hefði boðist til að leyfa fyrirspurnina ef orðalagi hennar væri breytt. Því var neitað. Jón Helgason staðfesti að hann hefði fallist á að leyfa fyrirspurnina ef orðalagi væri breytt í þinglegra horf. Vilmundur viðhafði hörð orð um forseta fyrir stjórn á fundi og kvað hann aðeins leyfa athugasemdir ef þær féllu að skoðun hans en annars ekki, og fyrir að hafa lagt fram handrit að nýrri spurningu, og sagðist hafa neitað því. Um ummæli Friðriks Sophussonar spurði þingmaðurinn hvað þessi lög- fræðipiltur úr Heimdalli vildi upp á dekk og færi að tala um hluti sem hann hefði ekkert vit á. Þegar forseti tók málið út af dagskrá hafði hann orð á að hann og Vilmundur væru ekki sammála um hvort þinglega hefði verið staðið að málinu eða ekki. Nefndakosningarnar á Alþingi: FRHMON KJORINN í STflÐ EGGERTS — sem féll út úr fjárveitinganefnd ■ Kosið var í fastanefndir Alþingis í gær. Uröu þær breytingar helstar að Eggert Haukdal var felldur út úr fjárveitinganefnd og Friðjón Þórðarson dómsmálaráðherra kosinn í hans stað. Listakosning er viðhöfð þegar kosið er í fastanefndir þingsins. Fjárveitinga- nefnd er kosin í sameinuðu þingi. Fram komu þrír listar. Stjórnarsinnar lögðu fram sér lista og á honum voru Þórarinn Sigurjónsson, Geir Gunnarsson, Guð- mundur Bjarnason og Friðjón Þórðar- son. A lista sjálfstæðismanna í stjórnar- andstöðu voru Lárus Jónsson, Friðrik Sophusson, Egill Jónsson og Eggert Haukdal. Á lista sem þingmenn Alþýðu- flokksins báru fram var Karvel Pálma- son. Allir þeir sem bornir voru upp og hér eru nefndir hlutu kosningu nema Eggert Haukdal, sem féll út úr fjárveitinganefnd. en hann sat áður í nefndinni. Atkvæði féllu þannig að A-listi, listi stjórnarsinna hlaut 31 atkvæði, og 5 menn í fjárveitinganefnd. B-listi. sem sjálfstæðismenn í stjórnarandstöðu stóðu að hlaut 19 atkvæði og 3 menn kjörna og C-listi 1 mann. Það var samkvæmt ósk Gunnars Thoroddsen að Eggert var felldur úr fjárveitinganefnd, cn að öðru leyti er skipan fastanefnda með mjög áþekku sniði og fyrr og listar bornir fram á sama hátt og á fyrri þingum þessa kjörtíma- bils. Til dæmis á Eggert Haukdal enn sæti í atvinnumálanefnd, sem kjörin er í sameinuðu þingi, og þar hefur hann verið formaður. Benedikt Gröndal hefur sagt af sér þingmcnnsku og Jón Baldvin Hannibals- son tekur sæti hans. Benedikt átti sæti í utanríkismálanefnd. í hana var Kjartan Jóhannsson kosinn nú. Magnús H. Magnússon vék úr atvinnumálanefnd og var Jón Baldvin kosinn í hans slað. í efri deild var Karl Steinar Guðnason kosinn í sjávarútvegsnefnd og Kjartan Jóhannsson hætti þar, eins vék hann úr iðnaðarnefnd efri deildar og Eiður Guðnason var kosinn þar í hans stað. Nefndirnar kjósa sér sjálfar formenn, varaformcnn og fundaskrifara. Flugleiðir: STERK STAÐA DOIiARS MINNKAÐI TEKJURNAR ■ Það hefur ekki árað vel í rekstri Flugleiða það sem af er árinu. í nýjasta Félagspósti, innanfélagsblaði fyrirtæk- isins, kemur fram að styrk staða dollarans ásamt því að megintekjur fyrirtækisins eru í evrópskum gjaldmiðl- um hefur valdið tekjurýrnun sem nemur tveim milljónum dollara það sem af er árinu. Þá áætla Flugleiðir að fyrirtækið hafi orðið fyrir 500 þús. dollara tjóni vegna verkfallsboðana í júnímánuði. Ennfremur hefur slæmt Gnahagsástand í viðskiptalöndum valdið samdrætti í ferðamannaþjónustunni og þar mcð minni farþegafjölda hjá Flugleiðum. Einkum er áberandi að mun færri ferðamenn komu til landsins í ár frá Danmörku og Þýskalandi en ráð var fyrir gert. Ljósir punktar eru þó fyrir hendi, eldneytiskostnaður hefur lækkað og sömuleiðis vaxtabyrðin . Það er þó eftir sem áður Ijóst að miklir erfiðleikar eru fyrir hendi og „langur, erfiður og magur vetur" fer að, eins og Sigurður Helgason forstjóri orðaði það í Félagspóstinum. JGK ■ Hörður Helgason sendiherra hefur tekiit stöðu fastafulltrúa íslands hjá Sameinuðu þjóðunum en myndin var tekin er hann afhenti Pérez de Cuéllar aðalframkvæmdastjóra SÞ trúnaðarbréf sitt þann 7.9. s.l. Hjálparstofnun kirkjunnar afhendir um 1,7 milljónir ■ Rúmlega sautján hundruð þúsund krónur söfnuðust í landssöfnun Hjálpar- stofnunar kirkjunnar til stuðnings endur- nýjunar á fjarskiptabúnaði björgunar- og slysavarnarsveita. Söfnunarféð var afhent viðstöddum fulltrúum Slysa- varnarfélagsins, Landssambands hjálp- arsveita skáta og Landssambands flug- björgunarsveita. „Þessi góða niðurstaða lýsir skilningi landsmanna á góðu málefni í verki. Endurnýjunin er fjárfrek framkvæmd, sem sveitunum hefði vcrið ókleif, nema til hefði komið stuðningur lands- manna,“ segir í frétt frá Hjálparstofnun kirkjunnar. Hjálparstofnunin vill koma á framfæri þakklæti til allra þcirra sem þátt tóku í söfnuninni, hvort sem um var að ræða bein störf í þágu söfnunarinnar, eða fjárframlög. -Sjó. Ráðning frétta- manna hjá útvarpi: Ákvörðun eftir helgi ■ Útvarpsráð mælti einróma með þeim Katrínu Pálsdóttur og Einari Sigurðssyni í stöður fréttamanna við ríkisútvarpið. Hér er um að ræða afleysingastöður og í þriðju afleys- ingastoðuna sem laus ei hjá útvarpinu hlaut Atli Steinarsson 4 atkvæði en Stefán Jóhann Stefánsson 3. Andrés Björnsson útvarpsstjóri hefur endanlegt vald um ráðningar frétta- mannanna, en hann er erlendis og er væntanlegur heim um næstu helgi. Verður því að bíða ákvörðunar hans þar til í næstu viku. -JGK Rrtgeröasam- keppni um öldninarmál ■ Öldrunarráð íslands hefur ákveðið að efna til ritgerðasamkeppni meðal nemenda fjölbrauta- og menntaskól- anna í tilefni af ári aldraðra, um efnið: „Hvaða breytingar vilt þú gera á kjörum aldraðra á íslandi áður en þú verður 67 ára“. Lengd ritgerðanna miðast við 2-3 vélritaðar síður og er skilafrestur til 10. nóvember. Verðlaun eru ferð til Puerto Rico og vikudvöl á hóteli þar, ferða- hljómflutningssamstæða og vasatölva. JGK

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.